Þjóðólfur


Þjóðólfur - 03.02.1888, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 03.02.1888, Qupperneq 2
26 Þá koma nú „þessi skilj'rði11, sem gjöra útslag- ið: a, að tveir skilríkir menn votti, áð maðurinn sje reglumaður, og ráðdeildarsamur. Það eru orð sem teygja er í, og álitsmál, og veitir enga vissu fyrir, að svo reynist, en eru að öðru leyti mein- hæg. Skilyrðið b. er alvarlegra, og einmitt það gjör- ir lögin, að mínu áliti, með öllu óhafandi; [iað er ðhafandi skerðing á atvinnufrelsi. Það er og ljðst hveijunr manni, hve vauhugsað [iað er, því hver maður þekkir Jiurrabúðarmann, sem hefur hyrjað með tölverðum efnum, og ekki átt [iau ári lengur og annan, sem hefur byrjað fjelaus, en orðið stoð sinnar sveitar. Til að vera bðndi á stórri jörð, [iarf ekki að eiga 1 eyri skuldlaust, til að vera embættismaður, til að mega gefa út stórt blað, til að vera alþingismaður og semja lög um þurrabúð- armenn og fl., þarf ekki að eíga 1 eyrír skuldlaust, en til að fá þá náð, að lifa án þess að hafa jarð- arskika til ábúðar, þarf að eiga 400 kr. skuldlaust auk alls klæðnaðar, ekki einungis fyrir sig, held- ur og fyrir skuldaliö sitt!! Br þetta ekki á móti 51. gr. stjðrnarskrárinnar? Eða er það frelsi í atvinnuvegum? En líkn er bjer lögð með þraut; hreppsnefndarmenn mega með samhljóða atkvæðum veita undanþágu undan þessu beina lagaákvæði, hingað til hefur konungur einn og þau stjórnar- völd, sem liann felur það, haft þessi rjettindi; nú eiga hreppa-nefndir að setjast á bekkinnmeð! Er það gjörlegt að leiða slíkar meginreglu inn í löggjöfina ? 2. grein frumvarpsins er sem næst samhljðða fyrri hluta 12. greinar í tilskipun 26. maí 1863. í greininni segir: „skal hreppsnefndin vandlega atliuga öll skjöl og skilríki beiðanda“. Eptir þessu skyldu menu ætla, að hún ætti mest að fara eptir skjölum og skilríkjum. Ensvosegir: „Þyki henni á- stæða til, getur hún neitað um leylið“. Getur hún neit- að ef skjölin og skihúkin eru góð? Það er ekki ljóst ognefndinni verður það ekki ljóst. í greinina vantar það ákvæði, sem er í 12. gr., að þeim, sem ekki fær leyfi, megi vísa burt. 3. greinin mun vera önnur aðalgreinin, að minnsta kosti eru nýmæli í henni. Orðið „byggja“ mun eiga að skiljast hjer eins og að „leigja", en kaupstað- ur „og“ verslunarstaður veit jeg ekki hvort er sama og kaupstaðar eða verslunarstaðar. Eigi má leigja neina þurrabúð nema henni fylgi 400 ferhyrnings faðmar. Þarf þá sá þurrabúðarmaður, sem hefur 2 í heimili, jafnstórt svæði og sá, sera hefur 10? Er að hinu leytlnu nokkuð á mótiþví, að byggja stóra og „loptgóða“ [mri-abúð á [iess- um 400 ferhyrnings fóðmum, og láta þangað svo marga þurrabúðarmenn, sem komast? Aðsetjaþað í lög, að sá sem leigir part af liúsi sínu, skuli af- henda hann með löglegri úttekt, held jeg að sje að eins til að hlægja að því. Eptir 4. grein á sá, sem tekur við þurrabúð á óræktaðri lóð, að rækta liana og girða „innan 7 ára“. „Enveraskal hann undan þeginn eptirgjaldi þessi ár“. Hvað er nú að „girða“ og hvað að „rækta“ ? Er það eingöngu að nafninu eða að girða svo full vörn sje, og rækta sem hest má verða. Ef þurrabúðarinaöur girðir nú ekkert og ræktar ekkert í 6 ár, og lætur sjer svo þóknast að fara burt, er þá nokkuð að því? Landeiganda mun þykja eítthvað að því, að mega enga þóknun fá fyrir þessi 6 ár. Er hjer eigi nærri gengið eignarrjettinum ? Og er þetta eigi byggt á tóm- um misskilningi ? Hefði eigi verið nær, að setja ákvæði um það, að sá sem byggði á óræktaðri lóð, skyldi ávallt undan þegin þeirri kvöð, að róa á út- veg landeiganda? Sú kvöð hefur gjört margan þurra- búðarmann að sveitarlim, og sú regla gæti orð ið undirstaða þess, að sjóþorp mynduðust, þar sem menn lifðu eingöngu á iðnciði og fiskiafla, og j það teldi jeglandinu til vernlegra framfara. En vera má, að þau orð í upphali 5. greinar: „Þurrabúð með óræktaðri lóð skal ávallt byggð að minnsta kosti 8 ár“, eigi svo að skiljast, að eng- iuu megi vera skemmri tíma en 8 ár í sömu þurrabúð! Þá er ekki hætt við, að laudsdrottinn missi ept.irgjaldið. Að öðru leyti er grein þessi sem næst eptir landbúnaðarlöguuum, en á betur við | jarðir en þurrabúðir. 6. greinin hefur það til ágætis, að hún gefur hreppstjórum míkið að gjöra, og sýsluneíudum er veittur hinn sami rjettur og hreppsnefndum áður, að veita undanþágu undan beinu lagaákvæði; eru sýslunefndir þeim mun hærra settar, að þær verða sem optast að veita undanþáguna í blindni. 7. greinin ræðir að eins nm sektir, en þær eru allar aðrar en í tilskipuuinni 1863 og mjög vafa- samt, hvað af henni er úr gildi nuinið og hvað ekki með þessu frv., ef það yrði að lögum, Ein aðalástæða miu á móti frumvarpinu er, að það er ómannúðlegt, og á illa við áð gjöra það að lögum í harðæri því, sem nú gengur yfir. Þegar landbúnaður hefur fallið, hafa margir úr sveitum sjer til bestu nota flúið að sjónum, fyr og síðar á öllum öldum. En væri þetta frumvarp gjört að lögum, þá væri þeim sem misst hafa fjenað og eigi geta búið landbúi, sá einn kostur, að f'ara af landi burt til Vesturheims, þar sem þeir getanotið þess helgasta frelsis. Menn hafa tíðum sagt, að „sjáv- ar gjöf sje svikul“, en sje hún rjett notuð, þarf hún engu brigðulli að vera en landbúnaðurinn. Landið er umgirt sæ og hvervetna fiskur af ýmsu tægi, og mannfjöldinn í sjóplássunum eigi meiri en svo nú, að menn eru í vandræðum með að koma á flot þeim fáu þiljubátum, sem menn eiga. Jeg hefi alls eigi hripað þessar líuur til að niðra þeim, sem fluttu frumvarpið, heldur at tillinningu fyrir almenuum mannrjettindum, og umliyggja fyr- ir sæmd þingins. Tilgangur flutniugsmanus hefur vissulega verið góður, og alls eigi láanda, þótt sumt af þvi marga, sem þingmenn hafa með hönd- um á þeim stutta tíma, sem þeim er skammtaður, verði eigi nægilega vel hugsað. En þó Þjóðólíi líki það ef til vill ekki, vil jeg fresta að gjöra að lög- um, þau frumvörp, sem mjer þykja vera með veru- legum göllum, þangað tiljeg eða aðrir haía bætt úr þeim. Það er rjett fyrir oss, að halda því fram, að frumvörpum vorum sje eigi að ástæðulausu synj- að um staðfestingu, en vjer verðum að taka það með, eins ogfullkomið skilyrðifyrir staðfestingunni, að frumvörpin sjeu sem best úr garði gjörð, — í öllu tilliti. Jeg er á sama máli og flytjendur frumvarpsins um það, að þurrrabúðar löggjöf vora þurfi að bæta. enjeg álit að aðalbótin eigi að vera fólgiu í því, að þurrabúðarleyfi í hverjum hreppi sje veitt að eins til eins árs og ákvæðí sett um, liverja megi svipta þurrabúöarleyfi i hverjum hreppi. Álít jeg það hið verulegasta aðhald fyrir þurrabúðarmenn að tjá sigvel. Eptir þeim lögutn, sem nú gilda, og eitus eptir frv. [iví, sem hjer ræðir um, hefur «sít7sem einu sinni hefur öðlast þurrbúðarleyfi, lieim- ild til að vera þurrrabúðarmaður í sama hreppi hvernig sem liann liegðar sjer, ef hann að eins í kemst hjá, að heimta sveitarstyrk. Þórarinn Böðvarsson. Reykjavík, 3. febr. 1888. Veitt var 31. í. m. Reynistaðarklaust- ursumboð, stúdent og alþingism. Ólafi Briern á Álfgeirsvöllum. Brauð veitt. Meðallandsþing 24. f. m. j prestaskólakandídat Jóni B. Straumfjörð, og Hvanneyri i Siglufirði 27. f. m. sjera Helga, Arnasyni í Ólafsvík. í hvorugu brauðinu notuðu söfnuðirnir kosningarrjett sinn. Nýlosnað brauð: Nesþing í Snæfells- nessýslu, metin 1356 kr., augl. 31. f. m. Prestsekkja er i brauðinu. Daimebrogsmenn voru 5. t. m. gjörð- ir bændurnir Siyurjón Jóhannesson á Laxa- mýri og Ketill Ketilsson í Kotvogi. Mannslát. 15. f. m. andaðist kaupm. Jón Ouðmundsson í Flatey á Breiðafirði, einn meðal hiuna duglegri kaupmanna hjer á landi. Hafís var allur farinn aptur frá Norð- urlandi seint í f. m. eptir því, sem ver- menn segja Til „Borgfirðings“. Það hefur tekist illa til með greinina þína kunningi, um búnaðarfjelag Snðuramtsins, sem þú komst fyrir í haun Þjóðólf hjerna um daginn. Annar helmingurinn af henni hvílir nefniiega á íinyndun og sannfæringu sjálfs þín, sein auðsjáaulega stendnr' á veikum fótura, en hiun belmingurinn er hrein og bein ósannindi. Þú viðurkennir, að búnaðarfjelag Suðuramtsins hafi gert mikið gagn með því, að senda bútræðinga upp ura sveitir, til að leiðbeinu, með því að veita verðlaun o. s. frv., og er það satt; en þú álítur það ófært, að það skuli gjalda mjer svo liátt kanp, sem það gerir. Það er aðgætandi, að jeg lief' nu ferðast um lijer á landi í 12 ár og leiðbeint mönnnm, og haft opt- ast sama kaup. Ertu svo blindur, að halda að margra ára reynsla utau og innan lands, gefi epga yfirburði yfir kunuáttu þeirra, sem eru ný- skroppnir út af ísleuskum búnaðarskólum. Stjórn búnaðarfjelagsins er hyggnari en þú, sem einungis starir á kaupgjaldið, og reynir raeð getgátum ekki með ástæðum, að svipta mig því, sem jeg á skilið. Að segja reyndum manni úr vistinni strax og ein- hver ókunnur býður sig fýrir lægra kaup, á sjer ekki stað annarstaðar en á íslandi. Þú gefur greinilega í skyu, að jeg vinni ekkisjálfur með verkamönnuum mínum. Þarna segirðu ósann- indi móti betri vitund og sannfæringu, fyrst þú ert Borgfirðingur. Jeg vinu æfinnlega með sjálfur, þó að jeg sje engan veginn skyldugur til, þetta er þjer kunnugt. Þú segir enn fremur, að jeg sje orðiun heilsu- linur. Aptur tóm ósannindi. Jeg hef aldrei verið vesall, nema eins og almenningur þegar landfara- sóttir hafa gengið yfir. Jeg hef tvisar látið skoða mig af læknum (Dr. Schierbeck og öðrum út-

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.