Þjóðólfur - 17.02.1888, Side 2

Þjóðólfur - 17.02.1888, Side 2
34 « gullkaleikinn þann hinn mikla, er Jón Arason hafði gjöra látið; hann var úr skíru gulli og vo níu merkur, og er mælt, að sendimenn hafi sagt, þá er þeir sáu hann, að slíkan kjörgrip væri ísland ekki verðugt að eiga, enda lutu þeir að því, sem minna var í varið, svo sem bisk- upsstöfum, rostungstönnum og öðru þess- háttar, og rúðu þeir staðinn að gripum, svo svo mest mátti verða“ (sjá Siðbótar- sögu Þorkels Bjarnasonar bls. 142). Þessi afreksverk unnu sendimenn Danakon- ungs, þegar þeir voru að boða lúterska trú hjer á landi. En sleppum þessum atburðum. Hvern- ig fór seinna, þegar kaupmannaeinokun- in kom upp? Árið 1699 var Hólmfast- ur Gruðmundsson dæmdur fyrir að hafa selt nokkra úrkastsfiska í Keflavík, en fyrir þetta „ljet Miiller amtmaður binda hann við staur, að sjer ásjáandi, og fiengja hann 16 vandarhöggum og skaut til æðra úrskurðar, hvort hann skyldi losast við þrælkun á Brimarahólmi“. Árið eptir fengu kaupmenn Tómas Konráðsson „dæmdan til að missa aleigu sína, og þrælka á Brimarahólmi, fyrir að hann hafði selt nokkra fiska að Búðum, sem hann hafði aflað úti á Snæfellsnesi i Dritvík, þar sem Stapa kaupmenn áttu verslun“. „Þá var svo bundið allt með samtökum Miillers og kaupmanna, að menn máttu ekki skiptast nauðsynjum sín á miili, enn síður eiga kaup saman, því öll sala, hjálp eða lán, hvað sem við lá, var kallað ,prang‘ og látið varða húðstrok- um og þrælkunu. Þetta eru orð Jóns Sig- urðssonar í Nýjum Fjelagsritum III. bls. 14—15. og eru þau hverju orði sannari. Það var Kristján konungur IV., þessi mikli Danakonungur sem innleiddi ein- okunina og kaupmannakúgunina. Og það var einnig þessi konungur, sem ætl- aði, eptir að hann liafði selt atvinnu landsmanna, að selja eða veðsetja sjálft Island. Það eru enn til brjef Krist- jáns IV. með eigin hendi til Korfitz Ulfeld, tengdasonar hans, dags. 9. febr. 1645, þar sem þetta kemur berlega fram. Brjefið er svo hljóðandi: „Þessa dagana var hjá mjer maður frá Hamborg fránokkrum kaupmönnum þar, sem nefnir sig Ufifelen. Hann bauð mjer 500,000 dali, ef þeir fengi ísland að veði; jeg gekk að þessu með nokkrum skil- málum. Nú fáum við að sjá, hverju fram vindur uin þetta kaup. Á þessum timum má gjöra allt með peningunum, ef guð almáttugur vill gefa mjer þá“. En guð almáttugur vildi ekki gefa honum peningana á þennan hátt og fór- ust þessi kaup fyrir. Eins og sjá má af því, sem áður er sagt, gengu þeir Danahöfðingjar, sem komu eptir daga Kristjáns IV., þó enn betur fram í því, að blóðsjúga íslend- inga. Og þegar fór að líða á 18. öld- ina, þá kom varla það ár fyrir, að íslend- ingar liðu ekki hungur, og svo sagði barón Eggers: „Það mun óhætt að fullyrða, að af einokunarversluninni hafi bæði leitt fjárdauðann hinn mikla, að nokkru leyti, og að þeim óvætti hafi einnig verið blótaðar margar þúsundir manna, sem hungurmorða hafa orðið á íslandi“. Og það sagði hann enn fremur: „Þegar menn falla af hungri nærfellt á hverju ári á því landi, sem matvara er flutt frá mest- megnis, þar verður landstjórninni að vera töluvert ábótavant“. En hvernig er það ekki á þessari Öld ? Danastjórn ætlaði að fara með oss eins og nýlendu, sem lítil eða engin rjettindi hefði, hún sendi hingað hermenn, til þess að ógna fulltrúum landsins, og hún gjörði það ekki af góðmennsku, að veita oss verslunarfrelsið 1854, heldur af þvi, að hún mátti til, bæði vegna íslendinga og annara þjóða, sjerstaklega Englend- inga. Danastjórn var heldur ekki fús á, að veita stj órnarskrána frá 5. jan. 1874. Og þegar menn gá að fjárhagsmálinu, þá er alveg hið sama ofan á. Þegar fjárhag- urinn var aðskilinn, var annaðhvort að gjöra af Dönum, að meta allar eigur og skuldir Danmerkur og íslands, meta brýr, vegi, hallir ríkisins o. s. frv. og skipta svo eptir fólksfjölda, eða þá að Dana- stjórn skilaði því, sem ísland átti að telja til skulda, svo að það væri ekki alveg blásnautt, eins og skilið var við það, vegalaust, brúalaust og ekki eig- andi að nokkrum almennilegum húskofa. En þetta gerði Danastjórn hvorugt. Hún skilaðiekki einusinni „styrktarsjóði handa íslandi“, sem átti að vera orðiun á 2. miljón króna, heldur þóttist hun lata íslendinga fá tillag, sem hún svo skoð- ar eins og nokkurs konar ölmusu, sem Islendingar eigi að vera fjarska þakk- látir fyrir. Hún neitar góðum lögum fyrir landið, og hún reynir að svipta þjóðina fulltrúum, sem hún heldur að hafi bæði vit og vilja til að halda uppi þjóðrjettindum vorum. Þrátt fyrir þetta megum vjer ekki minnast á sannleikann og segja við sjálfa oss: „fátt er frá Dönum, sem gæfan oss gaf“. Yjer eigum að vera þakklátir Danastjórn fyrir það, að hún neitar oss árlega um lagaskóla og kúgar syni þjóðarinnar, til að læra dönsk lög og danskan hugsunarhátt í framandi landi. Oss finnst þetta engin velgjörð, og það er ekki undarlegt, þótt islensk- um námsmönnnm finnist það lítil vel- gjörð, þótt Danir þrengi þeim til að þiggja ölmusur af sjer í Kaupmannahöfn. En vjer viljum ekki fara frekar út i þetta að sinni. Vjer skulum i næsta blaði minnast á þetta mál frá nokkuð annari hlið. / Bókmenntir. Sent til ritstjórnarinnar: Frumatriði stýrimannafræðinnar eptir S. 0. L. Hempel. þýdd af Markfisi F. Bjarnasyni skip- stjðra, kom út við síðustu árslok. Bók þessi kenn- ir eiginlega ekki neitt í sjálfri stýrimannafræðinni, heldur er hún ágrip at' talfræði, rúmmálsfræði og hornmálsfræði (trigonometri), að svo in-iklu leyti, sem með þarf til undirbúnings undir stýrimanua- fræðina, en til slíks undirbúnings er hún ómiss- andi. — i?að hefur hingað til ekki verið hlynnt mikið að kennslu í stýrimannafræði lijer á landi, þó að kunuátta í þeirri grein sje eitt af aðalskil- yrðunum fyrir eflingu og framförum þilskipaútvegs. Þeir fáu, sem hafa fengist við kennslu í stýri- mannafræði hjer á landi, hafa fundið til þess, hve örðugt hefur verið, að liafa ekki nema útlendar bækur við kennsluna, með ]iví, að nemendurnir hafa eigi kunuað útlent mál til hlitar. — Bók þessi kemur l>vi í góðar þarfir. Hún liefur verið viðhöfð sem kennslubók i stýriiiiannaskólum í Dan- mörku og fengið þar orð á sig. Dað er nóg trygg- ing fyrir, að hún sje í sjálfu sjer góð bók,- og út- leggingin er vel af hendi leyst. Vöru vöndun. Herra Tryggvi Guimarsson skrifar í ísafold tbl. 8 þ. á. um vöruvönduu og fer mörgum orðum um, hversu alþýða á Norður- og Austurlandi vandi illa vörur sínar. „Þetta eru nú framfarirnar!“ hrópár hann. Undir þetta tökuin vjer með honuin, en í stað þess hlífðarlaust að álasa alinenningi, væri best fyrir herra Tryggva að stinga hendinni í sinn eiginn barrn og atliuga, að þetta eru nú fram- farirnar, sem Gránufjelagið hefur afrekað, þetta fjelag, sem stofnað var fyrir almenning, en ekki til að vera fjeþúfa einstakra manna. Vöruóvönd- un almennings, er eiugöngu hinu illa verslunar- lagi kaupmanna og Gránufjelagsins, sem trúlega hefur fýlgt þeim, að kenna. Kaupinenn sjálfir gefa iðulega ekki meira, heldur minna, fyrir vand- aða vöru, heldur en óvandaða vöru. Það eru mörg dæmi til, að bændur, sem með mestu sam- viskusemi liafa vandað ull sína, hafa fengið minua fyrir ull sína, heldur en ríkismenn með mikla ó-

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.