Þjóðólfur - 31.03.1888, Síða 1

Þjóðólfur - 31.03.1888, Síða 1
Kemur út, ú föatudags- morgTta. Verð úrg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÓLFUR Uppsögii 8krifleg. bund- in viö áramót, 6gild neraa korai til útgefanda fyr- ir 1. október. XL. ára;. Reykjayík, laugardaginn 31. mars 1888. Nr. 17. í 3.-4. tðlubl. Þjdðdlfs þ. á., yerður kcypt á afgreiðslustofu blaðs- ins fyrir fullt verð. Sigurður Guðmundsson málari. i. Æska Signrðar og yera í Kaupmannahöfn. Þjóðhátíðin var haldin sumarið 1874, en um haustið eptir, þúsundasta ár ís- lands, dó Sigurður málari, einum vetri moir en fertugur, og þá átti ísland að sjá á bak ágsetismanni, sem annars staðar myndi hafa hlotið frægð og fje, en lijer fann lítil laun. Þá hafði danska stjórnin öll fjárráð hjer á landi, en Sigurður kunni eigi að smjaðra nje hræsna, og því lifði hann við svo mikla fátækt, að þeim renn- ur til rifja, sem um það hugsa, og það kveikir gremju og sorg að hugsa til þess, að annar eins listamaður, fræðimaður og einlægur ættjarðarvinur og liann var, skyldi deyja fyrir það, að hann varð að vinna í nístandi vetrarkulda, fyrir það að Imnn hafði eigi efni á að hita upp her- hergið, þar sem hann sat við starf sitt. A þeim sama tíma, sem danska stjórnin mokaði fjenu í Gísla Brynjúlfsson, og brúkaði fje landsins til að halda uppi níð- ritum um þjoð og þjng 0g Jón Sigurðsson, fjekk Sigurður málari enga viðurkenningu og það er sagt, að þegar Sigurður var dauðvona við þjóðhátíðiua á Þingvöllum, Þw sem hann sagði fyrir hvernig ætti að prýða konungstjaldið. binda blómsveiga o. s. trv., hafi Kristján IX. viljað vcita hon- um heiðurspening úr gulli, en þá hafi lands- höfðingi afstýrt því með því að segja, að slíkt mætti eigi viðgangast, því að hann væri bæði „dum og dovcn“ (heimskur og latur). Þá varð Randrúp riddari! En hverfum frá þessu, sem að eins vekur gremju og sorg. Sigurður Guðmundsson er fæddur 9. mars 1833. Gáfur og fyndni og maka- laus náttúra til að teikna og tálga mynd- ir, vöktu almenna eptirtekt á honum með- an hann var í uppvexti. Menn hafa ýms- ar sögur um þetta enn þá í Skagafirði, þar sem hann var borinn og barnfæddur. Þetta er ein sagan. Þegar Sigurður var barn 10 eða 11 vetra, var hann með fullorðnum manni að reka lömb. Kom hann þá að Flugumýri til Ara lækiiis Arasonar og var hoðið inn í stofu. En í stofunni hjengu margar myndir af ljóm- andi fallegum hestum og sjerstaklega var einkar fögur mynd fyrir ofan rúm, sem var í stofunni, af gráum hesti á harða stökki. Sigurði þótti þessi ir.ynd falleg og hafði ekki augun af henni, en þegarheim kom, teiknaði hann mynd svo líka að all- ir undruðust, sem sáu. En kunnust er sagan um hrjóstmynd, ( sem Sigurður gjörði af Gísla Konráðssyni, svo líka, að allir dáðust að. Sigurður var sonur bláfátæks bónda, en það er nóg að segja þetta, til þess að menn skilji, hvort ekki liefur þótt mikils vert um hann, að 16 ára fór hann til Khafnar, og komst eptir ýmisleg æfintýri á „Kunstakademíið“ ; stundaði hann þar málaralist af alefli og hlaut margra manna lof og velvild ágæt- ustu málara. Olíumyndir af íslendingum, sem hann ljet á málarasýningar í Khöfn, vöktu allmikla eptirtekt, og lmgðu menn bæðiafþessu og hversu houum gekkfram- úrskarandi vel á „Kunstakademíinu“, að haun myndi verða hinn frægasti málari.— Um þessar mundir gjörði hann einnig lág- mynd af Jóni Eiríkssyni, furðu vel gjörða. Meðan Sigurður var á „Kunstakadcmí- inu“, kom upp hjá lionum sú hugsun að verða sögumálari; hann vildi mála við- burði úr fornsögunum, og það eru ýmsar myndir til eptir hann frá þessum tíma. Þá teiknaði hann Gísla Súrsson og draum- konuna, mjög fagra mynd, sem menn vita ekki hvar vcra muni, og þá teiknaði hann Guðrúnu Ósvífursdóttur eptir víg Bolla, þegar Helgi Harðbeinsson þerrði blóðugt spjótið á blæjuhorni hennar, og fleiri mynd- ir. En það er undarlegt, livernig þet-ta dró t:il annars. í „Hugvekju til íslcnd- inga“, scm Sigurður málari skrifaði 1862 og verður síðar minnstá, segirhann: „Jeg vil leyfa mjer að spyrja g'óða menn, hvern- ig ætti söf/umálari að mála viðburði úr okkar fornsögum, ef hann hcfði enga hug- mynd um búninga, vopn, húsakynni og skip fornmanna, því að allir vita, að þeir gengu ekki naktir, og að allir söguvið- burðir urðu að ske á sjó eða landi, inn í hósum eða undir opnum liimni, en ekki uppi í liimninum. Til þess að geta þetta, þurfa menn einmitt forngripasafu“. Hvað verður sá að gjöra, sem ætlar að róa á sjóinn, þegar enginn bátur er til, eða sá sem ætlar að fara að slá túnið, þegar ekkert er orfið eða ljárinn til? Hann verður að fara að smíða bátinn, orfið og ljáinn. En hjer var meira að smíða en orf eða ljá. Ef Sigurður málari hefði ver- ið óvandaður maður, þá hefði hann málað fornmenn í einhverjum og einhverjum bún- ingi, en þetta gat hann ekki, og því hlaut hann að fara að rannsaka sögurnar, rit um búninga og leifar af fornmenjum. Árið 1857 kom á prent í Nýjum fjelagsritum ritgjörð eptir Sigurð: „Um kvennhúuinga á ís- landi“ með þessum einkunnarorðum: „Áður sjerhver íald bar frú, íálleg þótti venja sú“. Þá var hann 24 ára að aldri og hafði þá varið tíma sínum til að nema málaralist- ina, en það má nefna ritgjörð þessa, sem dæmi til þess, hve niikill eljumaður hann var, að þá hefur hann verið húinn að lesa ílestallar fornsögur vorar og rannsaka handrit, myndir á söfnum í Khöfn, rímur og kvæði á öllum öldum fram undir vora daga, og mynda sjer ákveðnar hugmyndir um búning kvenna á íslandi, og hafði rit- gjörð hans hin mestu áhrif á allar konur, sem nokkuð voru íslenskar í anda um það leyti. En svo verður að nefna annað, sem verður að koma til skoðunar áður en lengra er íarið út, í æfiferil Sigurðar, og það er hans brennandi ættjarðarást, sem að einu leytinu veldur því, að danska stjórnin og hinir ráðandi höfðingjar ljetu hann og fyrirtæki hans íara á mis við þá hjálp og aðstoð, sem annars hefði mátt bú- ast við, og að hinu leytinu veldur því, að hann afrekaði það, sem uppi mun verða meðan landið er byggt. Hvers vegna fór Sigurður eigi að mála danska skóga og danska menn, þegar hann kom af „Kunst- akademíinu"? Það er að eins ást á ís- i

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.