Þjóðólfur - 24.08.1888, Síða 1
Keinur út á föstudags-
morgna Verð árg. (60
arka 4 ki (erlindis 5 kr.).
Borgist fyrir 10. júli.
ÞJÓÐÓLFUR
Uppsögn skrifleg, bund-
in við áramót, ógild nema
komi til útgefanda fyr-
ir 1. október.
XL.
árg.
Reykjayík föstudaginn 24. ágúst 1888.
Nr. 10.
ÞIN&Y ALL AFUND AR-K? ÆÐI
20. ÁGÚST 1888.
Fnlltrúar þjóðar!
Fornaldar sjrnir!
Frelsisins hetjur!
Framfara menn!
Hrist.ið nú lilekki
Höfga af ryði!
Eilíf er sólin!
Söm er hún enn.
Látið nú liljóma
Líkt eins og áður
Ljóðvilja fastan
Þingvöllum á!
Vit.ið, að geymir
Vel inn i hömrum
Eilifðar orðin
Almannagjá.
Hristið nú hlekki
Hátt svo að glymji
Hjartnanna höl við
Hamranna skarð!
Kvaldir þó krefji
Konunga rjettar,
Engum það fyr að
Álasi varð.
Mænir vor móðir,
Móðir vor allra,
Traustið hún setur
Til yðar nú,
Djer sem að þolið,
Þjer sem ei flýið,
Ðjer sem að hafið
Heilaga trú!
Til hverra lítur
Tárug og rýjuð
Fölnuð og fegin
Fjallkonan nú?
Yðar, til yðar
Augum hún rennir,
Frelsisins vinir,
Fastir í trú!
Löng þó að þyki
Líðandi stundin
Langar með vonir,
Líður hún samt —
Stutt eru fetin,
Stikar þó jörðin
Áfram í geimi
Ekki svo skamt
Rennnr í fjarska
Roðinn á tinda
Frelsis af sólu,
Finnum það vjer.
Hver spennir hurðir
Helgar á gættir
Framfara þjóðar?
Það eruð þjer!
Hrekið úr hjörtum
Hatur og öfund!
Njótið svo afls er
Alvaldur gaf!
Samtaka yður
Snerti og blessi
Trúin með sínum
Töfrandi staf!
b. a.
Þingvallafundurinn.
Eins og tij stóð höfðu hinir kosnu full-
truar ur flestum kjördæmum landsins safn-
ast saraan á Þingvelli við Öxará 20. þ.
m. til fundarhalds. Einn af fundarboð-
endunum, alþingismaður Benedikt Sveins-
son, setti fundinn kl. 11 f. h. Að því
húnu var sungið kvæði það eptir Bene-
dikt Gröndal, sem hjer fer á undan. Ept-
ir tillðgu B. Sveinssonar stýrði ritstjóri
Björn Jónsson fundarstjórakosningu og
könnun á kjörbrjefum fulltrúanna, sem
öll voru tekin gild.
Á fundinum voru mættir þessir 28 fulltr.:
Úr Borgarfjarðarsýslu:
1. Andrjes Fjeldsted á Hvítárvöllum.
Úr Mýrasýslu:
2. Ásgeir Bjarnason í Knararnesi.
Úr Snæfellsnessýslu:
3. Sjera Stefán Jónsson í Hitarnesi.
Úr Dalasýslu:
4. Pjetur Fr. Eggerz.
Úr ísafjarðarsýslu:
5. Skúli Thoroddsen sýslumaður,
6. sjera Þorsteinn Benediktsson á Rafnseyri.
Úr Strandasýslu:
7. Sjera Arnór Árnason í Felli.
Úr Húnavatnssýslu:
8. Páll Pálsson í Dæli,
9. sjera Stefán M. Jónsson á Auðkúlu.
Úr Skagafjarðars.ýslu:
10. Jón Jakobssou, cand. phil. á Víðimýri,
11. sjera Einar Jónsson á Miklabæ.
Úr Eyjafjarðarsýslu:
12. Frb. Steinsson á Akureyri,
13. sjera Jónas Jónasson prestur að Grund.
Úr Norður-Þingeyjarsýslu:
14. Árni Árnason í Höskuldarnesi.
Úr Suður-Þingeyjarsýslu:
15. Pjetur Jónsson á Gautlöndum.
Úr Norður-Múlasýslu:
16. Sveinn Brynjólfsson á Vopnafirði,
17. Jón Jónsson á Sleðbrjót.
Úr Suður-Múlasýslu:
18. Sjera Páll Pálsson í Pingmúla,
19. Guttormur Vigfússon búfræðingur á Strönd.
Úr Austur-Skaptafellssýslu:
20. Próf. Jón Jónsson í Bjarnanesi.
Úr Vestur-Skaptafellsssýslu:
21. Jón Einarsson á Hemru.
Úr Rangárvallasýslu:
22. Jón Sigurðsson i Syðstumörk,
23. Jón Hjörleifsson í Eystri-Skógum.
Úr Árnessýslu:
24. Sjera Jón Steingrímsson i Gaulverjabæ,
25. sjera Magnús Helgason á Torfustöðum.
Úr Gullbringu- og Kjósarsýslu:
26. Þórður Guðmundsson á Hálsi,
27. Hannes Hafstein cand. jur.
Úr Reykjavík:
28. Björn Jónsson ritstjóri.
Fulltrúinn tyrir Barðastrandarsýslu,
alþm. próf. Sigurður Jensson, kom eigi
og enginn mætti úr Vestmannaeyjum.
Auk þess voru viðstaddir 18 þjóðkjörn-
ir alþingismenn og margt manna að auki,
alls á að geta um 200 manns, þar á með-
al nokkuð af kvennfólki; sumir langt að
t. d. Haraldur Ó. Briem í Búlandsnesi í
Suðurmúlasýslu og úr Isafjarðarsýslu auk
fulltr. og þingm. þaðan: Halldór Jónsson á
Rauðsmýri, Jakob Rosinkarsson á Ogri
og Jón Einarsson á G-arðsstöðum. Þess-
ir 7 Isfirðingar höfðu sitt eigið tjald með
dreka máluðum á framhlið og þar fyrir
ofan málað: „Isfirðingabúð“ og hjátjaldi
sínu höfðu þeir flaggstöng með fána
(fálkamerkið).
Fundarstjóri var kosinn Björn Jóns-
son ritstjóri með 20 atkv. og varafund-
arstjóri sýslum. Skúli Thoroddsen með
22 atkv. Með sainþykki fundarins tók
fundarstjóri fyrir skrifara sjera Einar
Jónsson og sjera Jón Steingrimsson.
Atkvæðisrjett höfðu fulltrúar einir, en
málfrelsi allir, sem viðstaddir voru, en
þó skyldu fulltrúar, sem eigi hefðu tal-
að um eitthvert mál, sitja fyrir þing-
mönnum, og fulltrúar og þingmenn jafn-
an fyrir öðrum.
Fulltrúar afhentu fundarstjóra fundar-
gjörðir úr kjördæmum sínum. Eptir fund-
argjörðum þessum og tillögum frá full-
trúum og einstökum þingmönnum voru
tekin til umræðu og ályktunar þessi mál:
1. Stjórnars'krárm.álið. TTm það urðu
allmiklar umræður (undirbúningsumr. frá
kl. 1 til 4 og frá kl. 5 til 7 e. h. 20.). Marg-
ar af ræðunum lutu áð því, að sýna fram
á, hver væri vilji kjósendanna i hinum
einstöku hjeruðum landsins. Alstaðar
hafði lýst sjer meira og minna sterkur
vilji að halda málinu hiklaust áfram og
allir, sem tóku til máls, töluðu með þvi,
nema Hannes Hafstein, sem þó talaði
móti málinu fremur eptir sinni eigin
skoðun, en kjósenda sinna, þótt hann að
vísu hjeldi því fram, að meiri hluti þeirra
mundi vera móti málinu; en því mót-
mælti bæði hinn fulltrúinn úr Kjósar-
og (xullbringusýslu og Gnðmundur Magn-
ússon i Elliðakoti og sjera Jens Pálsson.
Ymsir urðu og til að mótmæla skoðun-
um H. H. á málinu, t. d. Skúli Thor-
oddsen og Benedikt Sveinsson.
Kl. 7 e. h. var samþ. að hætta umræð-
um og setja7 manna nefnd i málið. I hana
voru kosnir: Slddi Thoroddsen með 21
atkv., sjera Páll Pálsson (18 atkv.), sjera
Jbn Sjleingrímsson (15 atkv.), Pjetur Jóns-
son (14 atkv.), próf. Jón Jónsson (13 atkv.),
L *