Þjóðólfur


Þjóðólfur - 10.05.1889, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 10.05.1889, Qupperneq 2
82 Það heyrist ekki ósjaldan kvartað yfir kostnaðinum við Qelagsverslun þessa; einkum eru það deildarstjórarnir, sem eiga að bera sitt úr býtum. Reyndar er nú launum þeirra svo háttað, að þeir eiga að gera reikning fyrir hverju því viki, er þeir vinna í fjelagsins þarfir; skulu reikningar þessir síðan vegnir og dæmd- ir af fj e] agsmönnu m. Það liggur nú nokkurn veginn í augum uppi, að deild- arstjórar geta ekki lagt fram jafnsmá- smuglegan reikning og þyrfti, ef þeir ættu að vera skaðlausir, enda er þá og alvegundir náð fjelagsmanna komið, hvort slíkirreikningar fá komistgegn um hreins- unareldinn; nái hann ekki fram að ganga, verður deildarstjóri að fxtja upp á nýtt, og getur það þannig gengið langa hríð í sífelldu þrefi og leiðindum. Hjer í hreppi er svo komið — og lít- ið betur mun ástatt í hinum hreppun- um, — að enginn vill ári lengur taka að sjer deildarstjórastörf. Síðast þegar kosn- ing fór fram, lá við sjálft, að enginn myndi fást til þess starfa af þeim mönn- um, er atkvæði hlutu og fjelagsmenn gátu borið traust til. Hið eina eðlilega og rjetta er, að deildarstjórar fái laun sín talin eptir prósentum, en slíkt hef- ur ekki verið viðkomandi hjá meginþorra fjelagsmanna. Prósentur þessar ættu að vera svo háar, að deildarstjórar væru vel sæmdir af. A þennan hátt er því fyrir- komið í kaupfjelagi Þingeyinga og farn- ast vel. Það er auðsjáanlega miklu betra, ef völ er á góðum mönnum til þess að veita fjelaginu forstöðu, að launa þeim betur, og eiga ekki á hættu, að þeir yfir- gefi starfa sinn að ári liðnu. Hin sí- felldu skipti á deildarstjórum, er átt hafa sjer stað hjer í hreppi, og óánægja með stöðu þessa, eru til hins mesta hnekkis fyrir fjelagið. Kaupfjelag þetta er, eins og sjálfsagt flest sams konar fjelög, mjög í barndómi. Það vantar vöruhús, áhöld og flest það, er talið verður nauðsjnlegt til slikrar verslunar. Lakast af ölfu er þó samtaka- leysi, skortur á alvarlegum áhuga fjelag- inu til eflingar, tortryggni, flokkadrátt- ur og smámunasemi. Þessar meinlokur álít jeg miklu hættulegri fjelagi voru heldur en þó „eitthvað batnaði í ári“. Núpufelli, 30. niars 1889. J. Sigfússon. Brjef úr Suður-Þingeyjarsýslu 9.apr. „3. apríl var haldinn pólitiskur fundur að Ljósavatni; mættu þar, eptir áskorun þingmanns vors, sjera Benedikts Krist- jánssonar, 2 kjörnir menn úr hverjum hreppi kjördæmisins. Auk þess voru þar margir aðrir, allir sýslunefndarmenn og allir (5) alþingismenn þeir, er heima eiga hjer í kjördæminu. Á fundinum voru rædd mörg mál, svo sem stjórnar- skrá, hæsti rjettur, háskóli, fjölgun þingm., alþýðumenntun, kvennfrelsi, fjárhagur landssjóðs, gufuskipaferðir umhverfis land, leysing á vistarbandi o. fl. — I mörg þessara mála voru settar nefndir. Eiga nefndir þær að koma fram með álit sitt og tillögur á kjördæmisfund í vor fyrir þing. Þar verða þá fundarályktanir stað- festar með almennum atkvæðum, sem eigi var gert á þessum fundi. I umræð- um málanna á fundinum lýsti sjer all- mikið fjör og áhugi. — Sýslunefndar- fundur er nýafstaðinn. Hið helsta nýnæm- islegt, er þar gerðist, var það, að sýslu- nefndin fjellst á þá tillögu, að Þingeyj- ( arsýsla og Eyjafjarðarsýsla gangi i sam- band við Skagafjarðar- og Húnavatns- sýslur, að því er snertir búnaðarskólann á Hólum. Eiga 2 kjörnir menn af hverri sýslunefnd, ásamt amtmanni, að semja | reglur og ákvarðanir fyrir sameiningunni. Jón á Gautlöndum og Einar i Nesi voru kosnir til þess fyrir sýslunefndina hjer. Yonandi er, að þetta verði Hólaskóla til svo mikils trausts, að framtið hans sje tryggð. Tíðin hefur nú um stund verið stillt og hæg, en frost mikið, svo að eins klökknar litið eitt um hádag, þótt sól- skin sje og logn. Víðast er jörð til gagns. — Vetur þessi hefur lagst mjög misjafnt á. Sums staðar hefur verið snjoljett og optast jörð; á öðrum stöðmn hefur apt- ur verið ákaflega mikill vetur, 4 5 mán- uði stöðug innigjöf fyrir allan pening. — Það hefur enn sem fyrri sýnt sig, að eigi hefði verið nauðsynjalaust að setja á hey í haust. Ymsir eru komnir í hey- þrot, og enn fleiri eru þeir, er svo hafa hert að peningi sínum, að það verður til að rýra afnotin. En ekki þarf samt að óttast að fellir verði“. Brjef' úr Eyjafirði, 20. apr.... „Seint í mars gerði góða hláku og leysti ná- lega allan snjó af láglendi; síðan hefur mátt heita öndvegistíð, og í skjóli mót sólu er fárið að votta fyrir gróðri. — Is- laust er að ö]lum líkindum úti fyrir, því að hákarlaskip, sem kom inn í fyrrá dag, hafði ekki orðið vart við neinn ís, og eptir þeim sjógangi að dæma, sem verið hefði úti fyrir, fullyrti formaðurinn, að ís mundi ekki í nánd. — Gránufjelags- ; skipið Rosa, sero er nýkomið, hafði held- ur ekki orðið vart við ís. — Seinustu dagana af mars varð fyrst fiskvart hjer úti á firðinum, og síðan hefur verið reit- ingsafli af meðalvænum fiski utau til á firðiuum, en aflalaust hjer innijarða. — Hákarl er sagður mikill hjer úti fyrir. Selir hafa verið drepnir allmargir hjer á firðinum seinni partinn í vetur. — Skepnu- höld almennt mjög góð og velliðan manna á meðal.— Vesturheimsferðir ekki nefnd- ar á nafn. — Allir, sem jeg hef talað við, eru eindregnir stjórnarskrármenn, nema nokkrir af fylgifiskum minni hluta þrenn ingarin uar “. Reykjavík, 10. maí 1889. íslenskt gufuskipsfjelag er nýfætt hjer í Reykjavík. Fundur var haldinn af nokkrum útvöldum mönnum að kveldi hins 6. þ. m. hjer i bænum og fjelagið þar sett á laggirnar. Tilgangurinn er „að koma á innlendum gufuskipsferðum fyrst og fremst við Faxaflóa og svo jafn- framt við Vesturland, ef ástæður leyfa“. Til þess áleit fundurinn, að þyrfti 80,000 kr. innstæðufje. Innstæðan á að vera, fólgin i hlutabrjefum, að upphæð 100 kr. hvert, sem eiga að borgast á fjórum gjalddögum, 25 kr. í hvert skipti, 11. sept., 11. des. þ. á., 11. mars og 11. júní næsta ár. — Bráðabirgðarstjórn var kos- in (Árni Thorsteinsson landfógeti, Björn Jónsson ritstj., sjera Jens Pálsson, ljós- myndari Sigfús Eymundsson og kaup- maður Steiugrímur Johnsen) til næsta aðalfundar íjelagsins, sem ákveðinn er í Reykjavík 29. júni, þar sem frumvarp til fullnaðarlaga fyrir fjelagið verður lagt fram til umræðu og samþykktar. Bráðabirgðarstjórnin á að safna hlutalof- orðum til fjelagsins og „leita liðsinnis bestu manna til að greiða fyrir þessu nauðsynja- og framfaramáli". Er hún þegar farin að senda út áskoranir um það. Hve mikið verður úr þessu fyrirtæki eða hversu greiðlega það gengur, er mest komið undir fjárframlögum manna, æðri sem lægri, sem einhvers eru megnugir, ekki að eins við Faxaflóa, heldur einnig um allt Vestuidand, þar sem ætlastertil, að Sunnlendingar og Vestfirðingar sam- eini krapta sína í þessu máli og hvorir- tveggja njóti góðs af því. Þörfin er auðsæ fyrir þvílikar gufuskipsferðir.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.