Þjóðólfur - 07.06.1889, Side 2

Þjóðólfur - 07.06.1889, Side 2
98 svo komið, að hún sje það. En þetta er þó eigi svo, því það gæti vel hugsast, að einhver annar bær væri allt eins vel eða jafnvel betur til þessfallinn; spurn- ingin er því eigi óþörf, en henni ber allt um það að svara játandi. Reykjavík liggur eigi að eins prýðilega velá land- inu, heldur er einnig það, að eins og á stendur, og á meðan ísinn ár eptir ár spennir allt norður- og austurland með heljargreipum sínum, getur eigi komið til máls, að neinn bær á því svæði verði höfuðborg, á vesturl. er víst heldur enginn bær betur til þess fallinn en Eeykjavík, og á sjálfu suðurlandí getur eigi verið að tala um neinn annan bæ, með því að Eyrarbakki hefur svo slæma höfn; ann- ars mundi hann óefað verða höfuðborg- in, því bæði liggur hann eins vel og Reykjavík, enda betur, landrými stórt og gott, og hvað mest er, hann hefur tvær auðugustu og fjölmennustu sýslur landsins fyrir uppland, þar sem Reykja- vik að eins hefur Mosfellssveitina, sem þrátt fyrir öll landgæði er einhver hin ljelegasta sveit sunnanlands. En höfn- in er Eyrarbakka til fyrirstöðu og þess vegna verður Reykjavík að vera höfuð- staður landsins. En er lieykjavík þá höfuðstaður ? Stærsti bærinn á landinu er Reykjavík, og aðsetur allra æðstu embættismanna, skóla og visindastofnana og kallast höfuð- staður; en að segja að hún sje það, væri sama semað kalla stúdent, sem hefur slampast á | próf með ljelegri einkunn, vísindamann. J Meðan að besta lóð kaupstaðarins í miðj- um bænum er brúkuð undir stakkstæði, þar sem saltfiskur er verkaður og þurrk- aður. til þess að bæta hina fínu lykt, sem leggur frá lýsisbræðslukofum rjett við bæ- inn, og dauninn af þangi, sem er lát- ið liggja og grotna í fjörunni fram á sumar, og undir kálgarða, sem gína móti manni kolsvartir, skugga- og eyðilegir á vetrum, og án þess að gefa af sjer neitt verulegt gagn á sumrum, meðan að rennu- steinar bæjarins eru í því sama ástandi eg þeir eru nú — og þó hafa þeir að miklum mun batnað á hinum síðasta ára- tug —, meðan engin gata er steinlögð, þó nóg grjót sje rjett við hendina, með- an úldnar grásleppur hanga hrönnum saman og sundmagar breiddir á hjalla- rimlunum fram með helstu götu bæjar- ins. A meðan allt þetta á sjer stað, þá má kalla Reykjavík höfuðstað en hún 151' það ekki. Reykjavík, 7. júní 1889. Póstskipið Tliyra fór hjeðan aðfara- nótt sunnudagsins með fjölda farþega. Til Hafnar fór frú Herdís Benedictsen, en vestur og norður þessir farþegjar: Prú Katrín, ekkja Jóns sál. Arnasonar, fröken Katrín Skúladóttir frá Hrappsej, Pjetur Eggerz, Eriðbjörn bóksali Steins- son og kona hans, Jakob Björnsson versl- unarmaður með konu sinni o. fl. Margir hjer að sunnan fóru með Thyru til róðra á Seyðisfjörð, náttúrlega allir á 2. káetu, þessari stíu, sem svo greinilega sýn- ir, hvað gufuskipafjelagið diríist að bjóða Islendingum, því það er óhætt að full- yrða, að engin menntuð þjóð í heimi mundi láta bjóða sjer annað eins, og það fyrir jafn-geypihátt verð, eins og það kostar, að fara hafna milli á íslandi. Ilin sama framúrskarandi veðurhlíða hefur haldist hjer alla þessa daga, en rigningar hafa verið miklar, svo að ef til vill er hætt við, að saltfiskur skemm- ist. — Hinn4. þ.m. kom segiskipið „Ágúst" frá Englandi með salt til Geirs Zöéga. — Hinn 5. kom „Itagnheiður“ til Jóns 0. Y. Jónssonar kaupmanns. Með skipum þessum frjettist, að verð á saltfiski færi lækkandi; ágætur afli í Horegi. — Reykjavíkurbær er nú sem stend- ur með öllu kolalaus, og er það vanvirða mikil fyrir kaupmenn. — Hið 'ísl. kennarafjelag, sem stofn- að hefur verið hjer í bænum i vetur, hef- ur samið frumvarp til laga um menntun alþýðu; það verður víst lagt fyrir alþingi í sumar. — Kaupskip strandaði á útsiglingu á Djúpavogi 14. f. m. Allir menn komust af, en engu af vörum varð bjargað. — Austanfjalls er svo ágæt tið til lands og sjávar, að elstu menn muna varla annað eins; tún betur sprottin, en um Jónsmessu og hlaðafli á Eyrarbakka og Stokkseyri, þegar gefur. — Nýdáinn er í Kaupmannahöfn for- stjóri í hinni íslensku stjórnardeild John Hilmar Stephensen. Hann var íslenskur í föðurætt, sonur Ólafs Stephensens amt- manns, auditörs og síðast bæjarfógeta í Varde á Jótlandi. H. Stephensen var fæddur 1846, tók embættispróf í lögum 1870, var fýrst yfirréttarmálfærslumaður, en 1880 skrifstofustjóri í hinni íslensku stjórnardeild og 1885 við dauða Oddg. Stephensens forstjóri. Hann hafði lengi verið veikur. -— Um Vestmannaeyjar hafasótt: síra Oddgeir Guðmundsson, sjera Brynjólfur G-unnarsson, cand. theol. Hannes Þor- steinsson, sjera Bjarni Pórarinsson og sjera Ólafur Stephensen. Milli einhvers af hinum þremur fyrstnefndu eiga Vest- manneyingar að sögn að velja. — Þorleifur Jónsson ritstjóri „Þjóð- ólfs“ fór norður hinn 81. f. m. til þess að halda þingmálafund með Húnvetn- ingum. — Dr. Jón Þorkelsson í Kaupmanna- höfn ritar nú dómadagsgreinar i ísafold, mestallt lof um sjálfan sig og dispútazí- una góðu, og skammir um aðra. Vesturskaptaýellssyslu, 26. maí. . . „Nú er Öndvegistið, jörð er nú sprottin, sem hun hefur best verið, það jeg til man. Harðindin hjeldust til einmánaðarkomu; úr því fór að draga til batnaðar. Fyrsta sunnudag í sumri var hjer orðið örísa. Hlutarupphæð á Meðallandi 80 hæðst. Þerrileysi mikið síðan páska. Eldiviður því allur óhirtur og fiskur gróflega skemd- ur. Það kvað standa til, að þingmaður okkar Vestur-Skaptfellinga ætli að halda fund, til þess að rædd verði og undir- búin þau mál, er nauðsynlegt þykir að bera fram á þingi í sumar, mun það að öllum líkindum verða meðal annars um tollálögur. Nýr ritlingur: „Heimilislífið“, fyrirlest- ur eptir sjera Ólaf Ólafsson. Það er orð- ið algengt hjer á landi að halda fyrir- lestra; þetta er rnjög gott og þarflegt, því að vel samdir fyrirlestrar og vel fram- fluttir hafa meiri áhrif á tilheyrendurna, en nokkuð annað. Allir vita, hvað ýms- ir af hinum merkustu mönnum heimsins hafa á unnið með því að flytja ræður. Þegar kosningar eiga fram að fara, geng- ur eigi á öðru en ræðum og fyrirlestrum, og fólkið þyrpist þar að. Vísindamenn fara úr einu landi í annað og flytja þar ræður. Þannig hefur hinn nafnfrægi danski vísindamaður, dr. Georg Brandes, nú í nokkur ár farið um Noreg, Svíþjóð, Rússland og Pólverjaland og alls staðar flutt fyrirlestra, og jafnan verið tekið tveim höndum. Það er því gleðilegt tím- anna tákn, að slíkt, sem fyrir 10 árum var nær allsendis óþekkt hjer, skuli hafa farið svo mjög í vöxt. Fyrirlestur þessi eptir sjera Ólaf, er fluttur á Eyrarbakka i vetur, og skiptir höfundurinn honum í 8 kafla: um húsbóndann, húsmóðurina og hjúin, en þó grípur þetta þrennt opt hvað inn i annað. Um börnin talar hann

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.