Þjóðólfur - 03.02.1890, Qupperneq 2
22
seœi stjórnarinnar, og er ekki enn sjeð
fyrir endann á þessu máli.
Hið nafnfræga skáld Robert Browning,
eitt af hinum þrem höfuðskáldum Englend-
inga, sem nú hafa verið uppi um langan
aldur, dó í Yenedig 12. des., 77 áragam-
all. Lík hans var flutt til Westminster
Abbey í London; síðan Darwin var grafinn
þar 1882, hefur enginn Englendingur hlot-
ið þann sóma fyr en nú Browning. Hann
hefur ritað feikna mikið (34 bindi) en
þykir torskilinn og ekki við alþýðu
hæfi.
Verkfall mikið hefur verið við gasgerð-
arhús í Lundúnum, en verkmenn hafa ekki
komið sínu fram, enda voru kröfur þeirra
í þetta skipti ósanngjarnar og blöðin voru
andstæð þeim. Aðrir menn hafa verið teknir
i þeirra stað, svo þúsundum skiptir, og
verður lögregluliðið að vernda þá gegn
hinum.
Þýskaland. Kosningar til þings eiga
að fara fram 20. febrúar, og halda menn,
að sósíalistar fjölgi á hinu nýja þingi. Þeir
fjölguðu nýlega um helming í bæjarstjórn'-
inni í Berlín við kosningar til hennar í
bænum. Líklegt er og, að flokki þeim, er
framfaramenn (Fortschrittler) heita, fækki
við þingkosningarnar. Keisarinn hefur
sjálfur hastað á „Kreuz-Zeitung“, blað
hinna römmustu apturhaldsmanna og má
af því marka, að hann er ekki eins ramm-
ur apturhaldsmaður og sagt hefur verið.
í Afríku og á Samoa-eyjunum gengur
Þjóðverjum skrykkjótt. Þeir hafa orðið að
setja aptur í konungssess Malietoa þann,
er þeir fluttu burt frá Samoa-eyjum. Wiss-
mann, foringi þeirra í Austur-Afríku, á í
einlægum smáskærum, og verður lítið á-
gengt.
Ágústa, ekkja Vilhjálms keisara fyrsta,
er nýdáin. Hún hefur unnið margt í þarf-
ir særðra manna og sjúklinga og var á-
gætiskona í sinni röð.
Rússar eru að herða böndin að Þjóð-
verjum í Eystrasaltsfylkjunum. í skólum
og í bæjarstjórnum, í blöðum og tímarit-
um er rússneska barin fram og þýska bæld
niður. Þjóðverjar kveina sáran, en Bis-
marck daufheyrist við kveinstöfum þeirra,
því hann vill fyrir hvern mun ekki styggja
Rússakeisara; Rússar hafa nú komið svo
miklu liði fyrir á landamærunum vesturfrá
við Þýskaland og Austurríki, að ekki kemst
meira fyrir.
í desembermánuði lánaði Búlgarastjórn
mikið fje hjá banka í Vín og setti að veði
ýmsar járnbrautir. Rússastjórn reiddist
þessu og skipaði öllum sendiherrum sínum
31. desember, að segja stjórnunum í Ev-
rópu, að með þessu tiltæki væri rofin ein
af greinum Berlínarsáttmálans; járnbraut-
ir þessar væru líka veðsettar Rússlandi
fyrir skuldum.
Noregur og Svíþjóð. Hinn 4. nóv.
voru 75 ár liðin síðan Noregur og Svíþjóð
sameinuðust. Voru haldnar margar ræð-
ur, einkum í Stokkhólmi, fyrir sáttum og
samlyndi milli beggja þjóðanna, en Björn-
stjerne Björnsson vill helst slíta samband-
inu, ef Noregur heldur áfram að vera und-
irlægja Svíþjóðar, eins og nú er, segir hann.
I Noregi eru menn farnir að skjóta sam-
an fje, til að aukavarnir landsins; marg-
ir gefa stórgjaflr, og ætla þeir fyrst að
kaupa stórt brynskip. Danir byrjuðu fyr-
ir mörgum árum, að safna fje til hins
sama, og hafa safnað hátt á aðra miljón
króna.
Danmörk. Fólksþinginu í Danmörk
var slitið nokkru eptir nýjár, rjett eptir
að nefndarálit fjárlaganefndarinnar var
lagt fyrir stjórnina. Kosningar eiga að
fara fram 21. janúar, og eru nú mestu
rimmur um allt landið í ræðum og riti.
Vinstrimenn berjast hvorir á móti öðrum.
Bergs flokkur vill engum sættum taka við
stjórnina, en meiri hluti þingmanna vill
semja við hana. Vinstriflokkarnir rífast
eins og grimmir hundar, og E. Brandes,
einn af þingmönnum í meiri flokknum,
spáir, að hægrimenn muni vinna af vinstri
mönnum allt að 11 kjördæmi, sem ekki
er að furða, þegar svona er komið. Stjórn-
inni þykir nú Höfn víggirt til fulls land-
megin, en vill reisa mikið virki til að
verja hana sjávarmegin. Vinstrimenn
segja, að skjóta megi inn í borgina á svo
löngu færi sjávarmegin (á nærri 2 mílna
færi), að virkið sje betur óbyggt en byggt.
Spánarkonungur, sem nú er þriggja
ára gamall, hefur legið svo hætt veikur,
að hann var talinn af. Þjóðveldismenn á
Spáni ætluðu að nota sjer dauða hans til
að gera Spán að þjóðveldi á svipstundu,
eins og Brasilíu, en barnið raknaði við, og
er nú úr allri hættu.
A nýjársdag urðu mörg óhöpp. Höll
Belgakonungs í Laeken brann til kaldra
kola. Brunnu þar mörg listaverk og fóstra
konungsdóttur brann inni. Konungur varð
mjög kryggur yfir þessum hallarbruna.
Skömmu síðar rak konungur höfuðið í
ljósakrónu í kirkju, svo að hann fjell í
öngvit, en varð þó ekki meint af. Sama
dag brunnu leikhús í Ztirich og Florens,
en engir brunnu þar inni. Sama dag brann
mikið hús í Lundúnnm, sem var hæli fyr-
ir fátæk börn; 26 af börnunum brunnu
inni.
Verkfall hefur verið mikið í Belgíu;
allt að 100,000 verkmenn í kolanámum
og við aðra vinnu, höfðu hætt vinnu og
heimtuðu styttri vinnutíma og svo framv.
Eptir 3 vikur sáu húsbændur þeirra sjer
ekki annað fært, en ganga að kostum þeim,
er þeir settu. Verkmenn í Belgíu hafa
opt beðið ósigur í viðskiptum við húsbænd-
ur sína, og þetta er í fyrsta sinn, að þeir
hafa unnið sigur.
í Portúgal eru miklar æsingar út af
því, að stjórnin hefur látið undan Eng-
lendingum. Konungur og ráðgjafar sátu
á ráðstefnu hálfan dag og fram yflr mið-
nætti, áður en þeir svöruðu Englandsstjórn,
að þeir neyddust til að lúta valdinu, en
mundi seinna leita rjettar síns. Salisbury
hafði hótað, að kalla heim sendiherra Eng-
lendinga í Lissabon, og enskt herskip beið
eptir svari Portúgals, til að færa Salis-
bury það jafnskjótt og það kæmi. í Lissa-
bon hafa verið brotnir gluggar hjá Eng-
lendingum og þeim gerður ýms óskundi.
Portúgalsmenn ætla að hætta að kaupa
vörur af þeim.
Þjóðverjar kvað æíla að gera út menn
til íslands til að sækja silfurberg, en ó-
víst, livort þeir senda skip gagngjört ept-
ir því.
Ný lög. Auk þeirra 9 laga frá síðasta
þingi, sem áður voru staðfest (sbr. 55. tbl.
Þjóðólfs f. á.) hefur konungur staðfest 9.
desember f. á.:
10. Lög um breyting á lögum 15. okt.
1875 um laun íslenskra embættismanna
(prentuð orðrjett í 36. tbl. f. á.).
11. Lög um sölu nokkurra þjóðjarða (á-
grip af þeim í 44. tbl. f. á.)
12. Lög um varúðarreglur til að forðast
ásiglingar (pr. orðrjett í 37. tbl. f. á.).
En 3. f. m. hafa verið staðfest:
13. Lög um lögreglusamþykktir fyrir
kaupstaðina (ágrip í 40. tbl. f. á.).
14. Lög um breyting á tilskipun um
póstmál o. s. frv. (o: hækkun á burðargj.
undir böggla á vetrum: 25 a. fyrir hver
25 kvint),
15. —19. Lög um löggilding verslunar-
staðar að Arngerðareyri við ísafjarðardjúp,
við Hólmavík í Steingrímsflrði, að Stapa í
Snæfellsnessýslu, á Búðareyri við Reyðar-
fjörð, að Múlahöfn við Hjeraðsflóa.
Reykjavíkurbrauðið veitti konungur 2.