Þjóðólfur - 14.04.1890, Side 4
72
ÍSLENSKI
GOOD-TEMPLAR
12. nr. á ári; Terð 75 au.; söhilaun 20%, ef 5
expl. eru keypt. Nýir kaupendur fá 1.—4. árg.
fyrir 2 kr.— Eitstjóri Guðl. Guðmundsson, eand. jur.
Blaðið flytur ritgjörðir og frjettir um bindindis-
málið. — Allir bindindisvinir eru beðnir að styðja
blaðið með jiví að gjörast áskrifendur._209
Arinbj. Sveinbjarnarson
bókbindari
leysir af hendi hverskonar bókband. (■yllir binkur
í sniðum, ef æskt er. AIl ódýrt og- vel vandað.
210 Vinnustofa: Laugaveg 2.
Skrifstofa fyrir almenning.
10 Kirkjustræti 10
opin livern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h. 211
Verslunarmaður, æfður í öllum almennum
verslunarstörfum óskar eptir atvinnu. Ritstjóri
vísar á.________________________________212
Tímarit uni uppeldi og menntamál
fæst fyrir 1 krónu árgangurinn hjá Sig-
urði Kristjánssyni bóksala í Reykjavík. 213
WGT Skósmíöaverkstæöi
og
leðurverslun
Björns Kristjánssonar
214____er i VESTURGÖTU nr, 4.__
Askorun. 1 umboði fjelags eins i ísafjarðar-
sýslu skorum vjer undirritaðir hjer með á ])á herra
alþingismenn Jðn Ólafsson, Pál Briem og Þorleif
Jónsson, að eiga með oss fund á ísafirði einhvern
tíma í ágústmánuði næstkomandi, til þess að ræða
ágreiningsatriðin milli meiri- og minni hlutans í
stjórnarskrármálinu og koma því í heppilegra og
þjóðlegra horf en nú er, ef unnt er.
Ferðakostnað greiðum vjer hverjum þeirra herra
fyrir fjelagsins hönd með 100 krónum, ef þeir mæta
eptir þessari áskorun, en um það óskum vjer að
fá tillkynning fyrir júnímánaðarlok þ. á.
Ísaíirði, 12. mars 1890.
Sigmrður Stefánsson. (Junuar Halldórson
1. þingm. ísfirðinga. 2. þm. ísfirðinga.
Skúli Thoroddsen. 215
Skóleður, brókarskinn.
Sólaleður, söðlaleður.
Bókbindaraskinn, flókaskór.
Barnastígvjel, skó-yíirledur.
í maí-byrjun kemjegmeð miklar birgðir
af alls konar verkefni fyrir skósmiði, söðla-
smiði og bókbindara með enn þá lægra
verði en áður. Þá ný brókarskinn, sem
ekki liafa áður þekkst hjer. E»á nýja teg-
unij af skóleðri 70—75 a. pd., sem jeg á-
byrgist að sjeu laus við fúa eða sólbruna.
E»að er því vonandi, að menn um allt land
kaupi skóleður hjá mjer. —- Ef 50 húðir
eru keyptar í einu, er verðið þó talsvert
lægra. Sjóskóleður nýtt, ódýrara en áður,
ný verkjœri fyrir skósmiði og söðlasmiði,
margs konar tegundir af saumþræði, Jeðri
og skinnum, sem jeg ei áður hef flutt, þar
á meðal svínaskinn. E»annig get jeg nú
selt allt ódýrara en söðlasmiðir og skósmiðir
hafa áður keypt verkeíni sitt í útlöndum.
í maí læt jeg prenta verðlista yflr allt,
sem verslun mín hefur til sölu, er jeg
sendi hverjum ókeypis, sem óskar þess.
P. t. Leipzig, 19. mars 1890.
Björn Kristjánsson. 216
Stríðsráð dr. Winslöv, hjeraðs-og bæj-
arlæknir í Nakskov ritar:
„Eptir að jeg nákvæmlega hef kynnt
mjer bitter þann, er þeir herrar Mansfeld-
Bullner & Lassen búa til og selja með
nafninu Brama-lífs-elexír, verð jeg að
lýsa því yfir, að í bitter þessum eru að
eins efni, sem skilyrðislaust eru styrkj-
andi og gagnleg.
Nakskov. Winslöv“.
Einkenni & vorum eina egta Brama-lífs-eleaAr
eru firmamerki vor á glasinu og á merkiskildinum
á miðanum sjest blátt ljón, og gullhani og innsigli
vort MB & L í grænu lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir búa til hinn verhlaunaða Brama-llfs-elexir.
Kaupmannahöfn.
Vinnustofa: Norregade, No. 6. 217
Eigandi og áhyrgðarmaður:
ÞORLEIFUR JÓNSSON, cand. phil.
Skrifstofa: í Bankastræti nr. 3.
Prentsm. Sigf. Eymundssonar.
50
Á fyrri árum söng Kristinn vanalega upp úr svefn-
inum, þegar hann prjedikaði, og þóttist þá syngja með
söngflokknnm. Nú á síðari árum syngur hann aldrei,
þegar hann prjedikar, en bíður þegjandi jafnlangan tíma,
og honum þykir sálmurinn vera sunginn. Þegar Krist-
inn þykist fara ofan af stólnum, nefnir hann, hvern
sálm eða vers úr sálmabókinni syngja skuli. Stundum
hafa menn sungið sálminn eða versið, er Kristinn heí'ur
tiltekið og hefur hann þá vanalega þagað heldur lengur
en meðan þeir hafa sungið, en ekkert veit hann um
þetta, heldur finnst honum einungis, að sinn gamli söng-
flokkur syngi.
Allan þennan 26 ára tíma hefur Kristinn sungið
upp úr svefni öðru hvoru, þótt hann prjediki eigi. Þykir
honum þá ætíð einhverjir vera viðstaddir, en ekki j
neinu sjerstöku húsi. Optar kannast enginn við sálm-
ana, er hann syngur, eins þótt fróðir menn hafl verið
viðstaddir, enda hefur það komið fyrir, að Kristinn hefur
talað í ljóðum í svefni, þótt hann sje alls ekki skáld-
mæltur í vökunni. Þeir, sem hafa heyrt Kristinn prje-
dika, segja að ræður hans geti eigi talist líkar öðrum
ræðum, er þeir hafl áður heyrt, og sömu ræður heldur
hann ekki optar en einu sinni, svo menn viti til. Kæð-
ur hans eru sagðar nokkuð mismunandi, en skynsamir
51
menn hafa talið sumar þær ræður, er þeir hafa heyrt
til hans, mjög góðar.
Fyrst, þegar jeg heyrði sagt frá Kristni þessum, á-
leit jeg, að hann mundi prjedika vakandi, en flest virð-
ist mæla móti, að svo muni vera, því að Kristinn hefur
það orð á sjer hjá öllum, sem hann þekkja, að hann sje
mjög vandaður og sannsögull, enda lítur út fyrir, að
hann beri það fyllilega með sjer. Hann er mjög hæg-
látur og alveg laus við kvefsni og þess konar flysjungs-
skap. Kristinn er alveg ómenntaður, alls ekki meira,
en í meðallagi greindur og málstirður í vöku. Þar á
móti lýsa ræður hans opt gáfum, þekkingu, mælsku* og
fögru orðfæri. Stundum koma líka fyrir hjá honum til-
vitnanir, er menn hafa reynt að væru rjettar, þótt hann
í vökunni kannaðist ekkert við þær. Einnig er sagt,
að hann syngi sálma orðrjett, þótt liann kunni ekkert
orð í þeim. Kunnugum mönnum ber líka saman um,
að slíkar ræður, sem Kristinn heldur opt, mundi hann
alls ekki geta haldið í vöku, enda virðist auðsjeð á öllu,
að maðurinn sje steinsofandi, þegar hann prjedikar.
*) í þeirri ræðu, er jeg heyrði til Kristinns, kom hann t. a.
m. með þessar og þvílikar setningar: „Hann hefur sett sinn veldis-
stól föstum takmörkum á himnum“ .... „Vjer skulum umfaðma
hann með elskuböndum vorra trúarkrapta“. „Þótt þetta líf sje skamm-
vinnt, þá er það byrjun til hins óendanlega". . . .