Þjóðólfur - 06.06.1890, Side 2

Þjóðólfur - 06.06.1890, Side 2
106 ur greinar þessarar er fjelagi, er það haft þannig: Þegar einhver fjelagsmaður til- kynnir fjelagsstjórninni, að hann þarfnist smáupphæðar, t. d. 20—30 kr., þá lætur flelagsstjórnin hann gefa út skuldabrjef fyrir nefndri upphæð, sem hann undir- skrifar ásamt áreiðanlegum manni til á- byrgðar. Síðan gefur fjelagsstjórnin hon- um ávísun fyrir sömu upphæð og gegn henni fær hann svo vörur af vörubirgðum fjelagsins. Láni þessu er aldrei sagt upp, en hinn tiltölulegi hluti hans af hreinum ágóða fjelagsins er dreginn af honum, þar til skuldinni er lokið; og þar eð fjelagið í mörg ár hefur geíið af sjer 10% í hreinan ágóða, þá verður hann skuldlaus á skömmum tíma. Það verður heldur aldrei nein vandræði fyrir ráðvandan og vellát- inn fátækling að fá ábyrgðarmann fyrir svona löguðu láni, því hættan er mjög lítil, þar sem hann borgar part af láninu í hvert sinn og hann kaupir vörur sínar í gegnum fjelagið. (Niðurl.). Borginni Venedig á Ítalíu lýsir ferða- maður einn í vetur þannig í útlendu blaði einu: Það getur ekki komið neitt fyrir mann jafnundrunarvert, eins og þegar menn koma til Venedig. Járnbrautin ligg- ur eptir langri brú, sem liggur frá landi út til borgarinnar. Það var kveld, er jeg kom þar, svo að jeg varð eigi var við neitt óvanalegt fyr en jeg, í staðinn fyrir að aka í vagni eptir götum borgarinnar, var kominn upp í bát og fór á honum til gistihússins. Þegar jeg var þangað kominn, fór jeg í snatri úr ferðafötunum, flýtti mjer niður stigann og ætlaði að ganga stundarkorn eptir götum borgarinnar; en það var nú öðru nær en nokkuð yrði af þeirri göngu, því að við endann á stiganum gein við kolblár sjórinn. Jeg leitaði fyrir mjer annarstaðar, en það fór á sömu Ieið; þar var einnig sjór . . . sjór og aptur sjór! Þá sá jeg best, hvernig allt var horíið, sem venjulegt er í borgum annarstaðar. Jeg var staddur í borg, þar sem göturnar eru ekki steinlagðar, ekki með vögnum, ekki með mannfjölda, sem er á gangi aptur og fram, heldur kemur sjórinn hjer í staðinn fyrir götur. Úr bátunum virti jeg bæinn fyrir mjer, — og hvílíkan bæ! Það eru ekki venjulegar byggingar, heldur ógrynni af marmara, ótal brýr, hús, kirkjur og hallir, prýddar með súlum, veggsvölum, bogagluggum og ýmsu skrauti með ýmsu byggingarsniði. í þessum götum eru það bylgjur hafsins og niður þeirra, sem kem- ur í staðinn fyrir hávaðann og skarkal- ann í götum annara borga. Fögur er borgin Venedig á næturþeli í tunglskyni, þegar hin ótalmörga skraut- hýsi og hallir eins og renna saman í eina upphækkaða bjarta mynd á sjávarfletinum; fegri er hún þó á morgnana, þegar hinir daggvotu turnar, kúlur og turnspírur hægt og hægt koma í ljós fram úr morgunmóð- unni, eius og menn sæju þau síga upp úr djúpi sævarins, en fegurst, allrafegurst er hún þó á kveldin, þegar sólin, meðan klukkunum er hringt, sígur í sæinn, sem þá er klæddur eldrauðum roða, og allt, himininn hvað þá annað, uppljómast af hinum rauða bjarma hafsins, þá sjá menn, að engum málara, jafnvel ekki hinum ítölsku málarasnillingum, hefur tekist að sýna þessa fegurð á málverkum, alveg eins og hún er, nje nokkru skáldi að lýsa henni fullkomlega í Ijóðum sínum. í Venedig geta menn ekki gert annað en sjá sig þreyttan, og áður en menn hafa dvalið þar marga daga, eru menn orðnir heyllaðir af þessari undraborg, sem á sjer sögu enn merkilegri en hún er sjálf. Eins og hinir fornu lýðveldisstjórar köstuðu á hátíðisdögunum í fyrndinni dýrðlegum gull- hring út í hafið og þannig giptu sænum borgina Yenedig, þannig óskar maður að geta verið hjer og notið alis þessa unaðs- leika um aldur og æfi! Eitt sem þarf að Iagast eru vatnsbólin viða við sjávarsiðuna. Það eru mjög viða stðrar lágar umhverfis bæina og i þeim miðjum eru brunnarnir, en i rigningum á sumrum og snjóleysingum á vetrum fyllast þær með vatn, sem flytur með sjer alls konar óhrein- indi frá hærri stöðum og ofan í brunnana, enda er vatnið í þeim opt með grænum og gljáandi lit, viðbjóðslegum þef og bragði; þess eru líka dæmi, að við hliðina á brunninum er önnur vilpa, sem brúkuð er til þess að þvo úr og hræra i henni haug og forir á vorin, til þess að bera á tún, en við vaxandi vötn rennur þetta saman við vatnið í brunnunum. Það er eptirtektavert, að flestar þær sóttir hjer á landi, sem ekki flytjast að erlendis frá, byrja seint á vetrum og vorin í verstöðunum og flytjast til sveitanna, þegar menn fara að dreifa sjer þang- að frá sjónum, og vildi jeg mega bera það undir lækna vora, hvort þetta miður heilnæma vatn gæti ekki verið nokkuð þessu valdandi, og hvort þeir sæju ekki ráð til að bæta úr þessu, alltjend með því að hlutast til um, að hlaðin sje jörð i kring- um brunnana, svo að vatnið geti hreinsast gegn um hana og svo að yfir þá yrði gjört, enda mun mega víðar en hingað til hefur verið gjört fá betri brunna og heilnæmara vatn; hefur Lárus Pálsson á Sjónarhól gefið eptirtektavert dæmi i þessu efni, og ekki látið nokkrar krónur halda sjer frá að búa til ágætan brunn á heimili sínu, enda mun hann hafa skoðað þetta efni frá sömu hlið og aðrir, sem vilja varðveita heilsu bæði sína og annara. Það er vert að get.a þess í sambandi við þetta, að fast eptirlit væri haft á þvi, að slor og annar óþrifnaður væri borinn i sjóinn, en ekki látinn rotna í fjörunni, til þess að spilla heilnæmi lopts- ins, enda er það eptirtektavert, að í Reykjavik mun seinasta mislingasóttin hafa orðið töluvert skæðari fyrir vestan og i miðjum bænum en fyrir austan hann, enda var þá þeim megin, sem sóttin geysaði meira, meira af óframskornum forarmýrum, og allir vita, að þara- og slorrotnun er þar meiri og fleira sem telja mætti til óheilnæmis. Jeg vona svo góðs bæði til lækna vorra og blaðanna, að þeir og þau taki í strenginn og kippi þessu í betra horf, ef hægt er, þvi ekki er við því að búast að alþýða manna verði af eigin hvötum fljót að breyta fornum hætti i þessu heldur en öðru, og sjerstaklega er áríðandi að gefa nú þessu máli gaum, þar sem von er dagsdaglega á inflúenza- sýkinni hingað að sjávarsíðunni. Sjónarhól á Yatnsleysuströnd, i maí 1890. Jöhannes Jónsson. Tíðarfar hefur í vor verið eitthvert hið besta, sem menn muna, þangað til 2. þ. m. að gerði hret með talsverðri snjókomu til fjalla og norðangarði, sem hefur stöðugt harðnað síðustu daga; í gær var hjer ofsa- stormur á norðan og kuldi með byl að sjá norðurundan; talsvert frost síðustu nætur. Stafar veður þetta sjálfsagt af hafís, sem rekið hefur að norðurlandi. Þetta illviðriskast hefur getað orðið til allmikils tjóns á geldfje, sem nú er nýrúið, og ung- lömbum, einkum norðanlands, þar sem þess konar illviðri eru vön að vera miklu verri en sunnanlands. — Veðrinu slotaði í nótt. Alþingiskosningin í Suður-Múlasýslu á fram að fara 14. þ. m. eptir því sem nú frjett- ist með austanpósti. Rjett fyrir miðjan fyrra mánuð var eigi víst, hve margir yrðu þar í kjöri; þá höfðu boðið sig fram próf. Jón Jónsson í Bjaruanesi og búfr. Björn Björns- son i Reykjakoti í Mosfellssveit. Þrír aðrir eru til nefndir, sem muni ef til vill bjóða sig fram: Ari Brynjólfsson bóndi á Heykliíi, búfr. Guttormur Vigfússon og sjera Páll Pálsson í Þingmúla, „en eigi er hægt að segja, hver muni lielst kosn- ingu hljóta“, er oss skrifað að austan. Alþingiskosningin í Eyjafirði á að fara fram 19. þ. m.; þar verður, eins og áður hefur frjetst, umboðsm. Einar Ás- mundsson og sýslum. Skúli Thoroddsen í kjöri, og líklega ekki aðrir. Skipstrand. í f- m. rak skip að landi í Meðallandi í Skaptaf.s., mjög laskað, menn allir dauðir og 4 þeirra reknir í land. Það var hlaðið kolum, og skips- skjölin báru með sjer, að það var frá

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.