Þjóðólfur - 06.06.1890, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 06.06.1890, Blaðsíða 4
108 Til sveitamanna og annara ferðamanna, sem koma til Reykjavíkur. Nýlega kominn út minn fjölskrúðugi V örulisti og hann sendur víðsvegar um suður- og austurland. Þeir sem koma í búð mína geta einnig fengið hann gefins. Einkanlega skal jeg benda kvennfólkinu á nokkrar vörusortir, sem nú falla í smekk, og sem eru og verða á þessu Jsumri „hæst rnóðins"; fyrst Hin þjóðkunnu flöielssvuntutau, nýkomin frá París, al. kr. 1,35. Hin góðu og breiðu ljereft af öllum teg- undum. Linlaka ljereft. Hið mikla úrval af millumskyrtutauum. Silkiböndin margbreyttu. Hin fásjeðu oq vel völdu sjöl, þar á meðal: Hvít og mislit herðasjöl prjónucf. Kjóla og svuntutau fyrir hvaða smékk sem er. Úrvál af höttum, linum og hörðum, og margt fleira. Fínustu reiðtreflar og reiðhattar. Hálfklœði í reiðföt. Oardínutau, hvít, rauð og mislit. Borðdúkaefnin nafnkenndu. Silkitau svört og mislit. Cashmere svart, fleiri tegundir. Á meðal annars skal geta: framúrskarandi handsápa sem gjörir hend- urnar mjúkar og hörundið fínt og fall- egt. Keypt af bestu söngkonum og skrautfólki heimsins. Margar tegundir af fallegu leirtaui. Með Lauru koma frá Sheffield smíðatólin góðu: hefiltannir, sporjárn, axir. Eakhnífarnir beittu og skærin góðu, einnig Ljáblöðin sem eru ekta. Munið eptir stimplinum = mynd af fíl = öll önnur Ijáblöð bekta. Fleiri merkiskonur úr ísafjarðarsýslu hafa skrifað mjer brjef á þessa leið: „Mikið þykir oss vænt um, að þjer ætlið að senda yðar góðu og þjóðlegu vörur til okkar í suraar. — Það er auðsjeð, að þjer fylgið með tímanum, því munstrin eru einkennileg, eins og líka litirnir og efnið, og verðið miklu betra enn vjer erum van- ar við. Einkanlega hlökkum við til að sjá hin nafnfrægu flöjelssvuntutau“. Þegar jeg var búinn að lesa þetta, datt mjer í hug: Hvað skulu þær segja, bless- aðar, þegar þær sjá nýju Parísarflöjels- tauin, sem nú koma til þeirra og til Keykjavíkur. Til alls annars vísa ég fólki til Vörulist- ans. Œeymið ei að spyrja um hann. Allar íslenskar vörur teknar nú í kaup- tíðinni með hæsta verði. Yinsamlegast. Beykjayík, 31. maí 1890. 294 Þorl. Ó. Johnson. Þr. H. Schack starfandi læknir í Kaup- mannahöfn ritar: Jeg hef rannsakað bitt- er þann, er þeir Mansfeld-Búllner & Las- sen búa til, Brama lífs-elcxír, og verð að lýsa yfir því, að eptir samsetning hans, er hann skilyrðislaust bæði hollur og bragð- góður, og þori jeg því að mæla með hon- um að öllu leyti. Kanpmannahöfn. H. Schack. Einkenni á vorum eina egta Brama-lífs-eleaAr eru firmamerki vor á glasinu og á merkiskildinum á miðanum sjest blátt ljón, og gullhani og innsigli vort MB & L í grænu lakki er á tappanum. Mansféld-Búllner & Lassen, sem einir búa til hinn verðlaunaða Brama-lífs-elexir. Kaupmannahöfn. Vinnustofa: Norregade No. 6. 295 Eigandi og ábyrgðarmaður: ÞORLEIPUR JÓNSSON, mnd. phil. Skrifstofa: i Bankastræti nr. 3. Fjelagsprentsmiðjan. — Sigm. Guðmundsson. 78 Auölegöin og fátæktin í Lundúnaborg. Eptir H. Taine.* -------Jeg hafði gert mjer hugmynd um mikla auðlegð og marga auðmenn á Englandi, enda fullvissuðu vinir mínir þar í landi mig um þetta hvorttveggja. „Fáið þjer yður vagn“, sögðu þeir, „og ak til Sydenham (í Lundúnaborg); þjer munuð aka þar 5 mílna langan veg með fram húsum, þar sem hver familía eyðir 1500 pd. sterling (27000 kr.) eða meiru að meðaltali á ári“. Eptir þessu fara einnig laun embættismanna og ritlaun til rithöfunda, sem eru miklu hærri en á meginlandi Norðurálfunnar. í París hafa „prófessorarnir“ við hina *) H. Taine, frægur frakkneskur rithöfundur, fagurfræðingur og sagnaritari, „prðfessor" við fagurfræðaskólann í París, fæddur 21. apríl 1828. Þessi lýsing á auðlegðinni og fátæktinni í Lundúna- borg er tekin úr ferðasögu hans frá Englandi, sem hann gaf út milli 1870 og ’80. 79 ýmsu skóla þetta frá 7500 til 12000 franka* í laun, en i Oxford hafa „prófessorarnir“ optast allt að 3000 pd. sterling (54000 kr.). Það er sagt, að skáldið Tennyson, sem ekki ritar mjög mikið, fái í ritlaun 91000 kr. á ári. Forstöðumaðurinn fyrir skólanum í Eton hefur rúmlega 109,000 kr. í laun, forstöðumaður skólans í Harrow rúmlega 113,000 kr., skólans í Rugby rúmlega 53,000 kr. og margir af kennendunum við þessar kennslu- stofnanir hafa 21,000—30,000 kr. og einn við skólann í Harrow 45,000 kr. Biskupinn í Lundúnaborg hefur 180,000 kr. og erkibiskupinn í York 270,000 kr. í laun. Ritlaun fyrir prentaða örk í frakkneska tímaritinu Bevue des Deux Mondes er 200 frankar, en 500 frank- ar fyrir örkina í ensku tímaritunum; fyrir sumar rit- gjörðir hefur stórblaðið Times borgað 1800 kr. Skáld- sagnahöfundurinn Thackeray hefur unnið sjer inn á sama sólarhringnum 4000 franka (2880 kr.) fyrir að lesa upp ‘2 rit eptir sig, annað í Briqhton og hitt í Lundúnaborg; hann fjekk hjá blaði því, er hann skrif- aði í skáldsögur sínar, 2000 pd. st. (36,000 kr.) í föst laun á ári og auk þess 10 pd. st. <180 kr.) fyrir hverja blaðsíðu, sem hann skrifaði. Blaðið hafði 100,000 kaup- endur og sjálfur gerði hann tekjur sínar 86,000 kr. *) 1 franki = 72 aurar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.