Þjóðólfur - 25.07.1890, Side 3

Þjóðólfur - 25.07.1890, Side 3
139 börn sjódrukknaðra manna í Isafj.s. eða ísafj. kaupst., en þegar hann er orð- inn 10000 kr. má auk þess veita af hon- um styrk til efnalítilla sjómanna, er misst hafa skip eða veiðarfæri, svo og til fyrir- tækja, sem miða til að efla fiskiveiðar þar vestra. Styrktarsjóður W. Fiscliers. Af vöxt- um sjóðs þesssa, sem er að upphæð 20,000 kr., verður í fyrsta sinn útbýtt styrk 13. desbr. þ. á., í hlutum frá 50—100 kr. á ári, eptir því sem stjórnendum sjóðsins ir við eiga, í fyrsta lagi „handa ekkjum og börnum, sem misst hafa forsjármenn sína í sjóinn og eru verð hjálpar og þurfa hennar“, og í öðru lagi „ungum íslend- ingum, sem liafa í tvö ár verið í förum á verslunar- eða fiskiskipum, sýnt iðni og reglusemi og eru verðir þess, að þeim sje kennd sjómannafræði og þurfa styrk til þess“. Um ekkjur er það haft í skilyrði fyrir styrkveitingu, að þær hafi verið bú- settar í Rvík, eða Gullbringusýslu, eigi skemur en 2 árin síðustu, og sjómenn og börn að vera fæddir og að nokkru Ieyti uppaldir þar. Sjá augl. í þ. bl. Skipströnd. Kaupskíp, sem Otto Watne ætlaði að sigla inn í Lagarfljót, seint í f. m., strandaði á innsiglingunni en mönn- um og vörum varð bjargað. Norskt timburskip, Amalie, strandaði 21. þ. m. við Höfn í Melasveit í Borgar- firði. Mannslát. Laugardaginn 28. júní dó Finnbogi Rútur Magnússon prestur á Húsa- vík úr lúngnabólgu, sem hann hafði feng- ið upp úr inflúenzu. Hann var sonur Magnúsar Jónssonar á Brekku í ísafj.s., fæddur 23. febr. 1858, útskrjfaður úr lat- ínuskólanum 1880, af prestaskólanum 1882 og vígðist s. á. til Kirkjubólsþinga, fjekk Otrardal 1884, en Húsavíkurbrauð 1885. Hann var kvæntur Jónínu, dóttur Mark- úsar Snæbjarnarsonar Kaupmanns á Vatn- eyri. Þorlákur Ó. Johnson kaupmaður er að gera sig „vigtugan11 í ísafold 19. J). m. og þykist ætla að koma með leiðrjettingar við brjefið frá Lundúnum i síðasta bl. Þjóðólfs, en leiðrjettir auð- vitað ekki neitt. Það situr þó ekki á Þorláki að láta mikið; hann heíur ekki svo miklu fyrir að fara. Honum ætti að vera nóg að gera sig hlægi- legan með „alþjóðlegu úrunurn11 og öðru þess konar „húmbúgi", þótt. hann bæti eigi þar ofan á flónslegum sljeggjudómi um ritsmíði annara, sem eru honum mörgum sinnum fremri að greind og þekkingu. Fyrirspurnir og svör. Geta það verið góð úr, sem kosta ný ekki meir en 10 kr. ? Svar: Nei, því fer fjarri; þau ganga ekki nema um tíma og eru siðan einskis virði. Það ber ekki vott um mikla samviskusemi í kaupskap, að reyna að ginna almenning til að kaupa jafnónýta muni. Fjelagsprentsmiöjan (verkstjóri Sigm. Guðmundsson) er flutt í nýja húsið á Laugavegi Nr. 4. Hún er opin frá kl. 7 f. h. til kl. 7 e. h. hvern virkan dag, og geta þeir, sem eitthvað vilja láta prenta, snúið sjer þangað eða til ritstjóra Þorleifs Jónssonar og samið um prentunina. 373 10. tbl. Þjóðólfs þ. á. (1890) verður keypt á afgreiðslustofu blaðsins. — Hafi nokkrum útsölumanni verið ofsent þetta tölublað, er hann vinsamlega beðinn að senda það sem fyrst aptur til útgefandans. 374 Til kaupenda Pjóöólfs. 15. þ. m var gjalddagi á borgun fyrir blaðið þetta ár. Eru því kaupendurn- ir vinsamlega beðnir að borga það, sem þeir eiga ógreitt fyrir Þjóðólf þetta og fyrirfarandi ár. 375 Nýprentaður: íslenskur kirkjurjettur eptir Jön Pjetursson háyfirdómara 2. út- gáfa 256 bls. 8vo. Fæst hjá höfundinum, og kostar í kápu 3 kr. 50 au. 376 104 „Það geturðu nú sjeð sjálfur, að mjer er aldeilis ó- mögulegt“. „Hvað, eruð þjer ekki sjálfráður að því?“ „Jú, jeg er svo sjálfráður að því eins og að öðru, hvernig jeg fer með mína eign“. „Jæja, svo get jeg ekki annað sjeð, en þjer getið það; og það væri falleg viðurkenning af yður til Helgu og Gunnlaugs sál., að þjer lofuðuð henni að njóta þess, sem þau hafa gert og kostað til, með sömu kjörum eins og þau hafa notið þess; afgjaldið var óheyrilega hátt á meðan jörðin var í niðurníðslunni, en nú er það vel þolanlegt, af því að það er búið að bæta jörðina svo mikið". „Og á jeg þá ekki að hafa meiri arð af minni eign, af því að henni hefur farið fram?u „Jú eðlilegt er það; en hitt er líka eðlilegt að þjer ljetuð Helgu njóta verka sinna að einhverju leyti; og þá kemur okkur ekkert betur en að fá að njóta þeirra svoleiðis, að búa að þeim, og þá í viðurkenning- arskyni með vægum kjörum“. „Hún hefur nú búið lengi að þeim með ógnarvæg- um kjörum, eða hvaða afgjald er þetta fyrir jörð með sjö kúa fóðri og fullum þrjú hundruð hesta útheyskap?u „Hverjum er það að þakka?“ ,Þeim, því dettur mjer ekki í hug að neita". 101 fóðrum hjá henni. En bú hennar kvaðst hann skyldi sjá um, eins og hann ætti það sjálfur. Þegar Jakob fór að stjórna búi á Keldubóli, fann Helga skjótt, að það var maður, sem var vel trúandi, Hún fann það skjótt, að það var mikils um vert fyrir hana að geta haldið honum framvegis. Og hún komst á þá niðurstöðu, að hún mundi allt til vinna að halda honum — jafnvel að giftast honum. Jakob sýndist konan mannvænleg, og það var ekki fjarri því, að hinar fornu ástatilfinningar hans vöknuðu að nýju. Hann komst á þá niðurstöðu með sjálfum sjer, að það væri nú um annaðhvort að gera fyrir sjer, að að reyna að fá Helgu, eða að öðrum kosti giftast ai- drei. Það er ekki að orðlengja það — þau komu sjer saman um það, að steypa saman eigum sínum'um mitt sumar. Síðan áttust þau um haustið. En frá þeirri stund hafði Helga fyrirgert ábúðar- rjetti sínum. Meðan hún var ekkja, var hún kvennmaður, með rjettindum, sem loddu við hana sem leifar af því að hún var gift áður; en þegar hún giftist aptur, varð hún að sjá á bak þessum rjettindum. Meðan hún var ógipt ekkja, var hún persóna í

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.