Þjóðólfur - 15.08.1890, Side 2
150
kels goða, fann bein hans í haugnum og
fíeiri merkileg einkenni; síðan yfir Fljóts-
dalsheiði hinn efra veg ofan eptir Fljóts-
dal og aptur upp í Kiðjafellsþing, þaðan
út á Hjerað, síðan upp í Eyvindardal til
að rannsaka fall Helga Droplaugarsonar,
síðan norður yfir fljót og rannsakaði þar
hinn merka þingstað hjá Krakalæk, þaðan
í Hróarstungu og yfir Jökulsá á Brú, síð-
an upp Jökuldal allt að Hofteigi, fann
þar merkilega hof'tótt, aðra stærstu hof-
tótt, sem hann hefur fundið á íslandi;
þaðan út eptir allri Jökulsárhlíð allt út
að Hjeraðsflóa, síðan yfir Hellisheiði yfir í
Böðvarsdal, rannsakaði vígin þar (sbr.
Vopnfirðingasögu); síðan til Krossavíkur og
þaðan að Hofi í Voynafirði, rannsakaði þar
það, sem sagan nefnir, fann þar afarstóra
hoftótt og upphlaðna blótkelduhjá, þaðan
ylir í Sunnudal og rannsakaði hinn forna
þingstað þar og síðan á skip í Vopnafirði.
Á öllum þessum stöðum rannsakaði hann
alla merka sögustaði í Austfirðingasögum,
kom á 4 þingstaði, fann 4 hoftóttir og
mörg fornbýli með sínum fornu byggingar-
einkennum. Auk þess safnaði hann forn-
gripum hvar sem hann gat, fjekk marga
merka gripi, og suma þeirra sannkallaða
dýrgripi, bæði frá einstökum mönnum og
kirkjum, enda sýndi biskup Haligrímur
Sveinsson, sem var á vísitasíuferð fyrir
austan, Sigurði og Forngripasafninu þann
góðvilja að styðja að því, að safnið fengi
þá gripi frá kirkjum, er þær máttu missa
og hann áleit betur komna á safninu. Á
þessum rannsóknarferðum mætti Sig. Vig-
fússon yfir höfuð bestu viðtökum, og sum-
ir merkir menn þar eystra gerðu sjer mik-
ið far um að greiða ferð hans og voru
honum sjerstaklega liðsinnandi.
Ný lög, staðfest af konungi 11. f. m.:
35. Lög um styrktarsjóði handa al-
þýðufólki.
36. Lög um breytingar nokkrar á til-
skipun 4. maí 1872 um sveitarstjórn á
íslandi og fl. (þ. e. lögin um amtaskipun-
ina og amtsráðin).
Dá eru 4 lög frá síðasta þingi enn óút-
kljáð, að því er kunnugt er (sbr. 35. tbl.).
Ásgeir litli, gufubátur Ásgeirs kaup-
manns, kom til Isafjarðar 30. f'. m. norðan
um land og er byrjaður á ferðum um ísa-
fjarðardjúp; kvað vera 17 smálestir að
stærð.
Bæjarbruni. 19. júlí braun allur bær-
inn að Auðshaugi á Barðaströnd til kaldra
kola; hafði kviknað í hefilspónum, er lágu
við eldavjel. Allir munir, er í bænum
voru, brunnu þar gjörsamlega. Missti því
bóndinn þar, Jón Þórðarson að nafni, all-
ar eigur sínar, að skepnum uudanteknum;
haf'ði hann nýlega flutt heim töluvert af
matvælum, sem einnig brunnu. Ull sína
haf'ði hann lagt inn í Flatey nokkru fyr-
ir brunann. (Úr brjefi að vestan).
Haf'ís sást af Thyru fyrir Strönd-
um, allbreið spöng um 3 mílur undan
landi.
Skólasfjórasýslanina við barnaskólann
í Keykjavík veitti bæjarstjórnin 8. þ. m.
prestaskólakandídat Morten Hansen, sem
hefur verið þar kennari í 13 ár. Hann
var kosinn með 6 atkv. Sjera Lárus
Halldórsson alþingism. hafði elnnig sótt,
og tilraun gerð af venslamönnum hans
hjer í bænum að koma honum að, en eigi
fjekk hann nema 3 atkv. Enn fremur
haf'ði sjera ísleif'ur á Stað í Steingríms-
firði sótt um þessa sýslan.
L ufuskipið Mount Park (til Jóns Vída-
líns) kom hingað í fyrra kveld frá Eng-
landi með salt til Knudtzons versiana
hjer og í Hafnarfirði og til fleiri. — Fer
aptur með hross.
Ölvesárbrúin kom einnig á Mount Park;
skipið komst eigi, vegna veðurs, með hana
til Eyrarbakka. Sum brúarstykkin kvað
vera 2—3 þúsund pund; þau stærstu 6000
pund, þ. e. lítt viðráðanleg í uppskipun og
flutningi. Hjer liggur nú seglskip frá
kaupm. Guðm. ísleifssyni á Eyrarbakka,
og mun eiga að leita samninga við hann
um að flytja brúna á þessu skipi lijeðan
austur á Eyrarbakka.
Skipstrand. í fyrra morgun strand-
aði Ásta, kaupskip Duus verslunar í Kefla-
vík, með nokkru af saltfiski; hafði rekið
þar upp í kletta og brotnað.
Hval rak nýlega á Hrauni á Skaga
og lival reru Færeyingar inn á Seyðisfjörð
í f. m., 30—40 álna langan.
Suðurmnlasýslu 30. júlí: „Frjettir eru
iitlar. Inflúenzaveikin víðast hvar um
garð gengin; einstöku menn virðast f'á
hana aptur eptir nokkurn tíma, þótt þeir
hafi áður verið orðnir heilbrigðir að fullu,
en svo getur það verið vanalegt kvef.
Eigi allfáir hafa dáið alls, í Reyðarfirði
einum milli 10 og 20.
Allgóður afli í sjónum hvarvetna, sum-
staðar (í Vopnafirði) í besta lagi; nægileg
síldveiöi í Reyðarfirði og víðar. Grasvöxt-
ur varla i meðallagi sumstaðar, en hvergi
mjög illa sprottið. Tún víðast livar all-
góð. Tíðin köld og uggir marga, að ís-
inn muni vera nálægur; loptið þrungið af
þoku og mökk, en eigi rigningar svo að
kveði“.
Norðurmúlasýslu 18. júlí: „Inflú-
enza-veikin geysaði hjer í júní, og
lagðist víða þungt á, og dóu talsvert
margir úr henni. Á eiuum bæ, Gagnstöð í
Hjaltastaðaþinghá, dóu 4 af 20 heimilis-
mönnum. Verktjón það, sem veikin gjörðí,
var hroðalegt og margir eru, sem ekki
þola enn að ganga að vinnu. — Grasvöxt-
ur er í lakasta lagi. Tún á stöku stað í
meðallagi, einkum við sjóinn, en víða ann-
arstaðar sára snögg og brunnin. Túna-
sláttur víðast byrjaður, en útengjasláttur
enginn áður, sem þó er venja hjer. — Ó-
muna-afli á Vopnafirði, og er nú nær bú-
ið að fylla þar hverja smugu af fiski og
Færeyingum. — Vathne lagði upp í Lag-
arfljótsós 24. júní á hollenskri skútu flat-
botnaðri. Hann lenti á grunn, vegna ó-
kunnugleika, og gliðnaði skipið þar sund-
ur, því það var gamali hjailur. Á nú að
selja það við uppboð 28. þ. m. ásamt því,
sein óselt er af farminum. Skipið var
hlaðið timbri, og lítið eitt af öðrum vör-
um í því. Var Hjeraðsbúum það góð send-
ing, því timburflutningar af Seyðisfirði og
Vopnafirði eru nær ógjörningur, nema fyr-
ir efnuðustu menn. Vathne er öruggur í
anda, þrátt fyrir þetta slys, og kveðst
skuli koma aptur betur útbúinn, og með
betri þekkingu á því, hvernig til hagar-
Allir Hjeraðsbúar óska honum heilla og
hamingju í þessu nýbyrjaða þrekvirki
hans, sem gera mun hann nafnfrægan,
meðan Austurland byggist, ef liann getur
framkvæmt það til fulls.
Vopnafirði 2. ágúst: „Kvefsóttin (in-
flúenza) gjörði vart við sig lijer um allar
sveitir meir og minna, en lagðist almennt
ekki mjög þungt á, og fáir dáið úr henni.
Hún var að mestu um garð gengin áður
en fiskafli og heyannir byrjuðu. en hefur
samt valdið miklum vinnumissi.
Fiskafli byrjaði hjer ekki að mun fyr
en um júlímánaðarbyrjun, en heíur síðan
verið mjög mikill og jafnvel betri en
nokkru sinni áður; það hefur borið til, að
menn hafa tví- og þrihlaðið á dag; f'engið
þetta um 1000 og nokkuð á annað þús-
und, þegar best hefur verið, mest af stút-
ungsfiski. Síld hefur veiðst mcð lang-
mesta móti. Á þessum eina mánuði hef-
ur bjer fiskast meira en í allt fyrra sum-
ar, en auðvitað liggur það mest í því, að
svo mikið fleiri liafa nú stundað hjer íiski-