Þjóðólfur - 29.08.1890, Síða 1

Þjóðólfur - 29.08.1890, Síða 1
Kemur út á. föstudöp- um — Verö árg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júlí. ÞJÓÐÓLFUR Uppsögn skrifleg, bundin viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. XLII. árg. Reylíjavík, fðstudagiim 29. ágúst 1890. Nr. 40. Bæjarbrunar og brunaábyrgö. Fjórir bæir hafa brunnið hjer á landi á rúmu hálfu ári. Um orsökina til brun- ans á einum þeirra (á Árbót) er ekki kunnugt. Á einum þeirra (að Auðshaugi) kviknaði í spónum, sem lágu við elda- vjel. Á hinum tveimur (Hjaltabakka og G-rímsstöðum) hafði eldurinn kviknað í eldavjelarpípu, sem eigi hefur verið nógu vel um búið. Eldavjelar eru nú orðnar all-algengar hjer á landi, og þar sem menn hafa nú fyrir sjer þessi dæmi, er full ástæða til að vekja athygli manna á, að búa vel um eldavjelar, einkum pípurnar, sem ganga í gegn um lopt eða þekju, auk þess sem jafnan er áríð- andi að fara varlega með eldinn, þvi að mikið er í húfi, ef illa fer. En það eru jafnan einhverjir, sem ekki sinna þvílíkum aðvörunum og geta með lítilli ovarkarni valdið eldsvoða. Og hvað varlega sem farið er með eld, getur þó jafnan komið fyrir, að kvikni í bæj- um Og húsum, þar sem farið er með eld, af einhverjum atvikum. sem ómögu- legl er að sjá fyrir eða sporna við. Þeg- ar slíkt kemur fyrir á bæjum í sveitum, brennur optast allur bærinn til kaldra kola, og stundum allt, sem í honum er. Eigendurnir standa þá uppi fjelitlir eða jQelausir eptir. Með samskotum er að vísu optast bætt að nokkru leyti úr tjóni því, er bruninn hefur valdið, en bæði geta þau gengið misjafnlega og eru auk þess talsverður ábætir fyrir þá, sem inna þau af hendi, með því að þeir eru þá ef til vill eigi aflögufærir sjálfir. Það er því hin mesta nauðsyn að geta tryggt fyrir eldsvoða bæi og búshluti ekki siður en timburhus eða steinhús eins og yfir höfuð að gfeta tryggt alla fjármuni sína fyrir hvers konar voða, sem fyrir kann að koma. Auk þess sem þeir fást endurgoldnir, ef þeir farast, eru tryggðir munir í sjálfu sjer meira virði en ótryggðir og auðfengnara lán út á tryggða eign en ótryggða. Útlend votryggingarfjelög taka eigi torfbæi í ábyrgð eða muni, sem í þeim eru geymdir. Það væri þvi mjög mikils- vert að koma á fót innlendu votrygg- ingarfjelagi, sem tæki í ábyrgð alls kon- ar hús og torfbæi og muni þá, sem í þeim eru geymdir. Þetta er því frem- ur nauðsynlegt, sem brunabótagjald í út- lendum votryggingarfjelögum er afar- hátt og telja má víst, að það gæti verið lægra í innlendu ábyrgðarfjelagi. I út- lendu fjelögunum er ábyrgðargjaldið 5 af 1000 á ári, nema á húsum í Reykja- vík, sem má skoða undantekningu. Þetta gjald (5 °/oo) samsvarar því, að 5 hús brenni af hverjum 1000 húsum á ári eða eitt af hverjum 200 húsum. I þeirri sýslu, þar sem eru 600 bæir, ætti þá að brenna 3 bæir á ári eða 80 bæir á 10 árum. Slíkt hefur aldrei komið fyrir og mun aldrei koma fyrir til jafnaðar. Brunabótagjaldið gæti því verið miklu lægra en það er í útlendu fjelögunum, en hve lágt það mætti vera, verður reynslan að skera úr. Með því lengi mætti biða eptir inn- lendu votryggingarfjelagi, ef einstakir menn ættu að koma því á fót, verður landið sjálft með landssjóð að bakhjalli að stofna það. Það ætti ekki að neinu leyti að geta verið hættulegt fyrir lands- sjóð. Ef menn ættu að vera sjálfráðir, mundu margir skjóta sjer undan að vo- kryggja. Fyrir því teljum vjer sjálfsagt að allir hús- og bæjaeigendur alstaðar á landinu væru skyldaðir til að votryggja hús sín og bæi, eins og húseigendur í Reykjavík eru nú skyldaðir til að votryggja hús sin. Á þann hátt yrði gagnið af fjelaginu almennt, og votryggingargjald- ið svo lítið sem frekast væri unnt. Það er svo margt sem mælir með því, að stofna innlent votryggingarfjelag, að eigi er hægt að -telja það upp í stuttri blaðagrein. I þetta sinn vildum vjer að eins koma hreyíing á málið með þvi að vekja athygli á nauðsyninni á ijelag- inu og benda lauslega á, hvernig það ætti að stofna. Þingið og landsstjórnin verður að taka þetta mál að sjer, eins og flest annað, sem landinu horíir til framfara. Brjef frá Englandi. Frá frjettaritara. Þjóöólfs. Oxford 6. ágúst 1890. James Bryee. Nafn þessa manns er ókunnugt heima á Fróni, og þó er hann hinn mesti og merkasti Islandsvinur, sem nú er uppi á Englandi. Skáldið William Morris, sem líka er mikill vinur íslands, þekkja þó fáeinir menn heima. Bryce er fæddur 1838 í Belfast á ír- landi. Foreldrar hans voru af irskum og skozkum ættum, og er því lítið enskt blóð í æðum hans. Hann gekk á latínu- skóla í G-lasgow, síðan á Oxford-háskóla og seinna á Heidelberg-háskóla í Þýska- landi. Hann ritaði svo ágætar verðlauna- ritgj örðir í Oxford, að hann var skipað- ur prófessor í lögum 1870 við þann há- skóla, og er það enn. Fyrirlestrar hans eru svo ágætir, að hinir prófessorarnir flykkjast að til að hlusta á hann. Hin fyrsta bók, er vann honum rit- frægð, var „The Holy Roman Empire“ (hið helga rómverska keisaradæmi). Bók þessi hefur komið út 8 sinnum og er þýdd á flest Evrópumál. Hann sýnir í henni, að keisaradæmið leið ekki undir lok á 5. öld, en lifði í orði og á borði til 1806. Bryce hefur setið á þingi síð- an 1880 og er þingmaður Aberdeen, sem er borg norðaustantil á Skotlandi. Árið 1886 stýrði hann utanríkismálum í ráðaneyti Gladstones, enda er hann manna best fallinn til þess. Hann kann 16 mál, og er alkunnur sem ferðamaður og fjall- klifrari. Árið 1876 steig hann fyrstur manna, aleinn, fæti á tind Ararats og ritaði bók næsta ár um ferðir sinar um Rússland, Irland og Japan. Hann hef- ur ferðast um Ástraliu og 1873 var hann á íslandi og lærði íslensku hjá yfirkenn- ara Halldóri Friðrikssyni. Hann hefur ritað snilldarlega grein um ísland í enskt tímarit. Um Bandarikin ferðaðist hann 1870, 1881 og 1883. Hann skoðaði hvert ríki i krók og kring. kynntist öllum merk- um Ameríkumönnum og hjelt fyrirlestra í mörgum heldri borgum. Amerikumenn

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.