Þjóðólfur - 13.02.1891, Síða 1
Kemur út á föstudög-
um — Verð árg. (60 arka)
4 kr. Erlendis 5 kr. —
Borgist fyrir 15. júli.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögu skrifleg, bundin
viö áramót, ógild nema
komi til útgefanda íyrir 1.
október.
XLIII. árg.
Innanlandsverslun.
E>að mun vera allvíða lijer á landi, að
sjávarbændur og landbændur versli sín í
millum. Sjávarbóndinn þarfnast margs,
sem landbóndinn getur veitt honum, og
landbóndinn getur illa hjá því komist, að
afla sjer þess hjá sjávarbóndanum, sem úr
sjó er dregið. Af þessu leiðir, að allmikil
viðskipti eru milli þessara bænda. Þau
liafa verið hjer frá því er land byggðist.
Jeg er nokkuð kunnugur þessari bænda-
verslun. En jeg hef ekki betur getað sjeð,
en þessi verslun, eins og liún er nú, sje
fjarri því að vera svo ábatasöm og hag-
kvæm eins og hún gæti verið. Jeg man
ekki eptir því, að nokkur hafi opinberlega
minnst á þessi viðskipti, og mætti því
ætla, að alit gangi í góðu lagi. En því
fer fjarri, þar sem jeg þekki til. Jeg ætla
í fám orðum að lýsa henni, eins og hún er
þar sem jeg þekki til.
Yersiunarvörur landbænda eru sauðfje,
smjör, skyr, ostur og stundum fatnaður,
en á móti láta sjávarbændur ýmis konar
sjófang. Landbændur taka líka fje til
fóðurs af sjávarbændum og sjávarbændur
borga fóðrin með afla.
Að áliðnu sumri hefst verslunin fyrir
fullt og allt, að minnsta kosti er það svo
á Austurlandi. Landbændur hefja þá
skreiðarferðir sínar og lestirnar streyma
fram og aptur. Þegar landbændur ætla
að versla skuldlaust, þá flytja þeir vörur
sínar með sjer og ætla að „fá upp á klár-
ana sína“ fyrir þær; eu opt taka þeir að
láni afla hjá sjávarbændum og borga svo síð-
ar í fje, fóðrum eða peningum. Þetta er
nú gangurinn í versluninni. Nú er eptir
að sýna gállana á þessari verslun. Einn
gallinn er það, að landbændur gjöra opt
ferðir sínar til skreiðakaupa, án þess að
liafa nokkra vissu fyrir, að þeir geti fengið
skreið keypta. Þeir fara svona „upp á
von og óvon“og hafa þá einatt með sjer
eitthvað af varningi og trúa því þá ekki,
að þeir geti ekki „einhverstaðar11 fengið
upp á hestana. Nú koma þeir til sjávar-
bændanna og bjóða vörur sínar. Undir-
tektirnar eru misjafnar. Ýmist hafa sjávar-
bændur engan afla til, eða þeir vilja ekki
gefa hinum svo mikið fyrir vöru þeirra,
Reykjavík, föstudaginn 13. fehrúar 1891.
sem þeim líkar. Svo fara þeir frá einum
til annars út með firðinum að sunnan og
inn með honum að norðan og leita fyrir
sjer, og opt fara svo leikar, að þeir verða
að láta vöru sína langt undir söluverði,
til þess að fara þó ekki með berklakkaða
hestana heim aptur, það þykir þeim verra
en allt annað, úr því þeir eru þangað
komnir um langan veg. Bændur lá kaup-
mönnum, þegar þeir setja þeim afarkosti
í harðæri, en svona eru bændur sjálfir við
sína líka. Landbændum verður þetta
dýrt um heyskapartímann og opt eru þeir
litlu skemur en viku í ferðinni, þegar
svona gengur. Er nú nokkur mynd á
slíkri verslun sem þessari? Yæri ekki
hagkvæmara, að þessi verslun færi fram
á ákveðnum stað og ákveðnum tíma, að
haldinn væri nokkurs konar markaður af
beggja hálfu. Til eru landbændur, sem
eiga fasta viðskiptamenn við sjóinn og
geta átt viðskipti við þá á ákveðnum stað
og tíma. Ekki hafa þeir neitt af þessum
ófögnuði að segja. Þeir láta hverjir aðra
vita, hvenær þeir sjeu viðbúnir að versla.
Og eins og einstakir menn geta komið
þessari reglu á sin í milli, svo gætu allir
það, lield jeg megi segja. Það verður
ekki tölum talið, hversu mikið tjón leiðir
af því, fyrir oss landa, að vera aldrei til
taks á ákveðnum tíma.
Annar gallinn er svíksemin. Hvorir-
tveggja vilja, eins og eðlilegt er, skara
eld að sinni köku. Á móti því hef jeg
ekkert, meðan öllum leyfilegum brögðum
er beitt og hvorirtveggja geta liaft til-
tölulegan hag af viðskiptunum. En fram
úr því liófinu gengur eigi allsjaldan.
Landbændur kvarta yfir því, að hákarl-
inn sje lirár og sje orðinn þriðjungi til
hclmingi Ijettari, þegar liann sje orðinn
ætur, riklingurinn sje niðurrunninn og
stundum sjeu strengsli af hlýra og stein-
bit innan um, þegar betur sje aðgætt,
fiskurinn sje hálfþur og skemmdur alla-
vega, og svona fram eptir götunum. Allt
er þetta selt með fullu verði samt sem
áður, og þó t. d. fiskurinn sje fallinn úr
verði i kaupstaðnum svo miklu nemi, þá
er liann opt í þessari bændaverslun í sama
verði og hann var, þegar hann var í besta
gengi sem verslunarvara. Sama má segja
Nr. 8*
um landbændurna; þeir standa nú reynd-
ar, lield jeg megi segja, ver að vígi með
að svikja vöru sína, þó er kvartað yfir
því, að velmikið salt sje stuudum í smjör-
inu og svo sjeu heldur mikil brögð að
„pestinni11 í fóðrafjenu; það verður svona
kind og kind úti á leiðinni, þegar verið
er að reka úr fóðrunum, og svo er margt
steindautt áður, og eigendurnir fá ekki
nema „hnytjurnar11 af þessu fje. Ekki er
ávallt gefið eptir af „ágjöfinni11, þótt svona
fari, og ekki er örgrannt um, að menn
fleygi því sín á uiilli, að einu gildi, þótt
sjávarbændur fái illa launaðan hráa hákarl-
inn sinn.
Landbændur fá nú eigi svo góðan og
velverkaðan afla hjá sjávarbændum eins
og áður, síðan fiskurinn varð verslunar-
vara. Þótt landbændur gefi stundum meira
fyrir íisk, en kaupmenn, þá vilja sjávar-
bændur ekki að heldur selja þeim hann,
eða hafa fyrir því að verka hann handa
þeim. Hollara myndi þó sjávarbónda að
eiga meiri viðskipti við landbóndann, en
kaupa minna af kramvörunni í kaupstaðn-
um. En meðan bændaverslunin er eins og
jeg hef lýst henni, þá eru bændur í sífeld-
um erjum sín á milli, milli þeirra er ekkert
verulegt samkomulag, því að þó þeir reyni
að jafna viðskipti sín með því að svíkja
hverjir aðra, þá verður ójöfnuður úr þeim
jöfnuði.
Mjer hefur þótt leitt að sjá, hvernig
þessi eina alíslenska verslun er rekin, sem
gæti þó verið næsta arðsöm víða, ef menn
kynnu með að fara og væru ekki eins og
þeir frændur, sem eru frændum verstir.
Hafi jeg ofsögum sagt af þessu, þá vona
jcg, að þeir, sem sannara vita, leiðrjetti
það, sem missagt er. Ef jeg hef í öllu
verulegu lýst þessari verslun rjett, þá
þarf lijer umbóta við. Þessi verslun get-
ur sparað mikið fje og veitt bændum hag-
kvæmara og íslenskara viðurværi en ella
gjörist, ef þeir færu ekki að ráði sínu eins
og skrælingjar.
Bjarni Jónsson.
Búnaðarritið.
í 100. tölubl. ísafoldar 1890 hefur ein-
liver „Ólafur11 kveðið upp dóm sinn um