Þjóðólfur - 18.03.1891, Page 3
51
leifsson ætlaði að leita sjer atvinnu annar-
staðar. En það stóð ekki lengi. því að
með 4. tbl. hætti Jón Olafsson algjörlega
við ritstjórnina, en Einar Hjörleifsson
tók við henni aptur og er nú einn rit-
stjóri Lögbergs.
Heiðursmerki. Landsh. M. Stephen-
sen hefur af frakknesku stjórninni
verið sæmdur offiœrsnafnböt heiðursfylk-
ingarinnar, og háyfirdómari L. E. Svein-
björnsson hefur verið gerður að riddara
dannebrogsorðunnar.
Sýslumaður settur í Skaptafellssýslu
11. þ. m. yfirrjettarmálfærslumaður Guð-
laugur Guðmundsson frá 1. maí næst-
komandi.
Brauð veitt, Stafafell í Lóni 9. þ. m.
prófasti Jóni Jónssyni í Bjarnanesí.
Amtsráðskosning eins manns og tveggja
varamanna í Norður- og Austuramtinu
hefúr nýlega fram f'arið og var alþm.,
umboðsm. Ólafur Briem kosinn amtsráðs-
maður í stað umboðsm. B. G. Blöndals,
sem frá fór, en B. G. Blöndal og sjera Ein-
ar Jónsson á Kirkjubæ voru kosnir vara-
menn.
Yestmannaeyjum 10. mars: „Frá
byrjun f. m. hefur veðráttan verið æði
stirð, umhleypinga- og stormasöm; allan
f. mánuð voru nálega sífeldir stormar og
rok, og vindstaðan optast frá suðaustri,
suðri eða suðvestri, snjór fjell litill i
þeim mánuði. enda var veðrið optast
hlýtt, en það rigndi þvi meira, kaldast
var dagana frá 10.—12., harðast frost var
aðfaranótt hins 11. -4- 12°. Með byrjun
þ. mán. hófst kuldi fyrir alvöru, og
gjörði hjer grimmdar norðanbál frá 5.—
9. þ. mán. með hörkufrosti, mestur var
gaddurinn aðfaranótt hins 7. -5-16,6° Cels-
ius. Fyrstu 4 daga mánaðarins fjell býsna
mikill snjór, en norðanveðrið hefur sóp-
að mestu af honum á sæ út.
Sjógæftir hafa nál. engar verið, að eins
örsjaldan hafa menn getað skotist út
stutta stund, og hefur þá optast orðið
vel vart síðan Góa byrjaði. í gær var
fyrst gott sjóveður, og fiskaðist þá all-
vel, tvennir hlóðu af vænum þorski.
Landmenn komust fyrst út hingað 7. þ. m.
Kíghóstinn gengur hjer enn, hafa þeg-
ar dáið 3 börn úr honum, flestum hinna
batnað eða á batavegi. Að öðru leyti hef-
ur heilbrigði verið góð síðan nýár.
Fyrsta Frakkneskt fiskiskip sást í gær
og er eigi ólíkl. að Frökkum hafi fund-
ist svalt fyrirfarandi daga“.
Aflabrögð. í fyrra dagöfluðu Akurnes-
iugar allvel vestur á sviði, mest ýsu, en
þó vel þorskvart, hæst 40 í kiut. VeL
fiskvart hjer í gær.
Fróí' í ingeniör-vísindum hefur Sigurður
Thoroddsen nýlega tekið við háskólann
með I. einkunn.
Lr brjeíi úr Kaupmannaböfn 28. febr.;
„Margir kvarta undan því, að brjef til
þeirra liggi eina ferð yfir á pósthúsinu
i Reykjavík. Jeg er nú einn á meðaL
þeirra, sem hefi reynt það. Þannig fjekk
jeg brjef með kolaskipinu, sem kom tif
Reykjavikur i desember, frá einum manni
í Keykjavik, þar sem hann tjáir mjer
frá því, að áríðandi brjef eitt til mín sje
komið á pósthúsið og jeg fái það nú með
þessari ferð. Jeg fjekk ekki brjefið og
skrifaði það heim í janúar með Lauru;.
hann skriíáði mjer aptur og var að leiða
getur að þvi, hvernig brjefið hefði getað
glatast. Það væri kannske ekki svo ó-
hætt að senda brief yfir England? Það
er síður en svo.
Jeg fjekk nú brjefið með Lauru 20,
febrúar og hafði það verið í jólagleði á.
pósthúsinu i Reykjavík“.
Mlsþrentast hefur í 11. tbl. fyrstu bls. 3. d.
12. 1. að neðan : Sandfellin fyrir Sauðafellin.
52
spekisfyrirlestrunum um veturinn. Hann átti kjólföt,
sem reyndar voru ekki sjerlega snotur, en voru þó alls
ekki gömul. En það vildi jeg, að jeg hefði aldrei feng-
ið þann blessaðan kjól, því að engum manni, sem
hafði sjeð okkur báða, liefði getað komið til hugar, að
við gætum brúkað föt hvor af öðrum, því að hann var
heldur grannvaxinn, hár og mjór. Þegar jeg var kom-
inn í vestið flegið niður á maga — ja, livað sje jeg þá,
mjer til skelfingar og gremju, ekki nema það, að brjóst-
ið náði ekki hálfa Leið og að stórt bil var milli þess og
vestisins, þar sem skyrlan gægðist fram. Annaðhvort
var að hætta við kjólinn eða reyna að útvega sjer
manchetskyrtu, og að því var nú ekki auðgengið og
tíminn var orðinn naumur. Jeg hafði líka byrjað of
seint að dubba mig upp, því að áður hafði jeg brugðið
mjer niður á „Helvíti111 til að styrkja mig. Eptir langa
mæðu gat jeg drifið einhverstaðar upp gamla manchet-
skyrtu og þá þóttist jeg góður. Jeg flýtti mjer aptur
í vestið og það fór vel, og smellti mjer svo í snatri í
kjólinn og — á því sama augnabliki stóð jeg þarna á
gólfinu þráðbeinn eins og merkikerti og gat bókstaflega
hvorki hreyft legg eða lið. Svo fór jeg að lypta ósköp
1) Helvíti lieitir veitingastaður einn í Kaupmanuahöfn; mðti
því í sömu götu er anuar veitingastaður, sem kallaður er Himna-
ríki.
49
hörmulegum og vonlausum framtíðarhorfum. En síðan
munu, eins og uuaðslegur morgunroði, hinar stóru og
skóglausu grassljettur bera fyrir liugskotsaugu vor.
Yjer munum sjá hinar grænu hæðir, grasið ganga
í bylgjum eptir sljettunum og í fjarska yst út við sjón-
deildarhringinn blá fjöll, sem eins og renna saman við'
himinblámann. Og opt mun hugurinn flótara en fugl-
inn á flugi fljúga yflr hinar stóru sljett.ur, grænu skóga
og spegilflöt stórvatnanna, upp yfir hálsaua og hæðirnar
og sækja æ hærra og hærra. Hann mun leika um
fjallatindaua, sem hefja hin hvitu höfuð sín við himin
hátt upp yfir hin afríkönsku landfiæmi; hann mun hlusta
á nið fossanna og ánna í giljunum og gljúfrunum, sem
skerast inn í lilíðar „skýjakonungsins“ rnikla, líta hiu
vatnsþrungnu regnský og endalausu þokur í Usongora
og fljúga áfram yfir þúsundir miina, ýmist frjóvsamar
sljettur eða visnar eyðimerkur eða fen og forræði og loks
ná að farartakmarki voru: Indverska hafinu og dást
að kinum fagra, bláa vatnsfleti þess.