Þjóðólfur - 20.07.1891, Page 2
138
málinu. Voru hlutaðeigendur dæmdir í
nokkurra ára fangelsi fyrir að liafa selt
öðrum það, sem stjórnin hafði ke^rpt, og
borið út leyndarmál. í ráði er að höfða
mál gegn Leseps, út af reikuingsfærslu
hans við gröpt Panamaskurðsins. Hann
er nú 86 ára, og átti kona lians barn
í fyrra! Ekki hefur hann dregið einn eyri
undir sig, og þykir illa gert að skap-
rauna honum á ellidögum hans.
Norcgur og' Svíþjóð. Stórþingið liefur
samþykkt í einu hljóði, að sú grein í liin-
um norsku grundvallarlögum, er hljóðar
um vísikonungsembætti í Noregi, skuli úr
lögum numiu, og hefur Óskar konungur
samþykkt breytinguna. Steen, æðsti ráð-
gjafi, liefur lýst yfir á þingi, að Noregur
þyrfti að hafa sína eigin umboðsmenn í
utanríkismálum, þ. e. ráðgjafa, sem gegndi
að eins utanríkismálum Norðmanna, og
hann ekki sænskan. Frumvarp um að
auka járnbrautir laudsins að miklum mun
hefur verið grafið í nefnd.
Akerhjelm er farinn frá (í dag) og
Boström hefur tekið víð forustu ráðaneyt-
is í Svíþjóð.
Parnell hefur gengið að eiga frú O’Sliea
og stóð brúðkaupið í einum smábæ og
vissi enginn af því, fýr en allt var um
garð gengið.
Stórkostlegt járnbrautarslys varð í
miðjum júní í Sviss. Brú yfir Birsfljótið við
Mönchenstein iiðaðist sundur undir járn-
brautarlest. Fórust þar 73 en 131 skað-
skemmdust. Mörg slys hafa nýlega orðið
á járnbrautum í Bandaríkjunum, en ekkert
jafnstórt og þetta.
Edison hefur fundið vjel, sem hann
kallar fonofotograf eða fotofonograf og ætl-
ar að sýna á heimssýningunni í Chicago.
Getnr hann með henni sýnt mynd af
manni heima hjá sjer þannig, að myndin
talar og hreyfir sig. Hann tekur augna-
bliksljósmyndir af mönnum og vefur þær
í röð upp á hljóðritakefli. Þegar keflinu
er snúið, þá sýnist ljósmyndaröðin vera
ein hreyfing og hljóðritinn talar meðrödd
mannsins um leið. Með þessu móti má
sjá og heyra leikenda leika hvar sem vera
skal, þó þeir sjeu ekki viðstaddir. Times
flutti langa hraðfrjett um þetta furðuverk
galdramannsins, en svo sýnist sem Edison
muni umbreyta öllu jarðríki, ef hann held-
ur áfram með þessum hætti.
Kiabbamein hefur læknir í Stokkhólmi
læknað á fjórum. Kvað vera ár síðan,
en eptir er að sjá, hvort það tekur sig
ekki upp aptur. Hanu brúkar til þess
vökva, sem hann spýtir inn undir hör-
undið.
Fjórir morðingjar voru sviptir lífi með
rafurmagni í New-York þ. 6. þ. m.; er
þar lögtekið, að danðahegning skuli fara
fram með því móti. Segja sumir erfitt
hafi verið að murka lífið úr þeim, en aðr-
ir bera það aptur.
Ræningjar stöðvuðu járnbrautarlest ná-
lægt Adrianopel á Tyrklandi og liöfðu
þá, sem auðugastir voru í henni burt með
sjer. Slepptu þeir þeim fyrir ærið fje að
tíu dögum liðnum. En Tyrkjasoldán hef-
ur ekkert gert þeim enn.
Danmörk. Scavenius, kirkju- og kennslu-
málaráðgjafi, fjekk lausn 6. júlí eptir 11
ára ráðgjafasetu. Þótti hann hallast of-
mikið að andlegum stefnum hinna evro-
peisku vinstrimanna. Nellemann er skip-
aður í stað hans til bráðabirgða. Fundir
halda áfram meðal vinstri manna út um
! allt land, og þykjast hinir tveir flokkar
hvor um sig liafa betur. í bæjunum eru
þeir Hörups og Bergs liðar ofan á, en
upp til sveita þeir vinstrimenn, sem að
stjórninni hallast. Sýnist enn sem komið
er, að fleiri sjeu á bandi Hörups og Bergs
en hinna. Pólitiskum smápjesum rignir
niður.
Hinn 1. júlí öðluðust gildi hin nýju lög
um styrk til aldraðra og örvasa og mun-
ar það stórum í bæjum, þar sem margir
uppgjafa vinnumenn búa. En lögin um
bjórtoll ganga í gíldi 1. október.
Frönsk flotadeild var hjer í viku og
| var forkunnarvel fagnað. Nú er hún í
Rússlandi.
Krónprins Dana, sem hefur haft stjórn
á hendi meðan konungr var á Þýskalandi,
hefur sent systur sinni, drottningu Rússa-
keisar, skjöl og skýrteini viðvikjandi Gyð-
ingum. Vildi hann leggja gott orð í belg,
en hún þorði ekki að sýna keisara. Hann
sá þau af hendingu og varð fokreiður. Er
nú kalt miili þeirra keisara og krónprins-
ins.
Morðinginn Philipsen var dæmdur til
dauða af hæstarjetti, en konungur hefur
í dag náðað hann með æfilöngu fang-
elsi.
Alþingi.
IV.
Lög- afgrcidtl frá alþingi. I. Lög um
breyting á lögum 19. septr. 1879 um kirkju-
gjald af húsum.
1. gr. Af öllum húsum í kaupstöðum
og verslunarrtöðum landsins, sem eru fullra
500 kr. virði, skal greiða gjald til hlutað-
eigandi kirkju ýý kr. af hverjum þúsund
krónum af virðingarverði húsanna. Sama
gjald skal greiða af öðrum húsum, sem eru
fullra 500. kr. virði, þótt eigi standi þau
í kaupstað eðajverslunarstað, nema þau sjeu
notuð við ábúð á jörð, sem metin er til
dýrleika. Upphæð sú, sem gjaldið er greitt
af, skal ávallt vera deilanleg með 100;
það, sem þar er fram yfir, skal ekki koma
til greina gjaldinu til hækkunar,
2. gr. 1. gr. í lögum 19. september 1879
um kirkjugjald af húsum er felld úr gildi.
3. gr. Þessi lög öðlast gildi þann fyrsta
janúar 1892.
II. Lög um viðauka við lög 14. janúar
1876 um tilsjón með flutningum á þeim
mönnum, er flytja sig úr landi í aðrar
heimsálfur.
1. gr. Enginn útflutningsstjóri eða um-
boðsmaður útflutningsstjóra rná taka við
neinu innskriptargjaldi eða neinu fje und-
ir nokkru öðru nafni sem borgun upp í
væntanlegt fargjald eða meðalgöngu fyrir
að útvega útförum far, nje heldur nokk-
urri skuldbindingu um gjald síðar í þessu
skyni, nema liann jafnframt gefi útfaran-
um skriflegt loforð um flutning fyrir fast-
ákveðið verð á tilteknum tíma og frá til-
teknum stað.
Brotum gegn þessum ákvæðum hegnir
landshöfðingi með úrskurði til sekta allt
að 2000 kr. af upphæð þeirri, er útflutn-
iugsstjóri hefur að veði lagt; útflutninga-
leyfið má og af honum taka, ef tilefni
þykir til.
2. gr. Nú tekur útflutningasfjóri eigi við
útförum á þeim tima og stað, er hann eða
umboðsmenn hans hafa um samið eða
auglýst, enda sje eigi lögmætum forföllum
um að kenna, og getur þá útfari hver
kært útflutuingastjóra fyrir landshöfðingja;
en hann ákveður bætur útförum til handa
af veði því, er útflutningastjóri hefur sett,
enda hafi útfarinn eigi vanhaldið sínar
skuldbindingar.
3. gr. Skip, sem flytja útfara af landi,
mega hvergi hjer við land taka neinn far-
þega um borð, sem ekki hefur útfarar-
samning áteiknaðan af lögreglustjóra eða
umboðsmanni hans löggiltum, áður en hann
fer á skip, nema liann hafi vegabrjef frá
lögreglustjóra umdæmisins, eða löggiltum
umboðsmanni hans, þar sem hann fer á
skip.
Brotum gegn ákvæði þessu hegnir lands-