Þjóðólfur - 20.07.1891, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 20.07.1891, Blaðsíða 3
139 höfðingi með úrskurði til sekta allt að 400 kr. fyrir hvern þann mann, sem skip- stjóri tekur á skip sitt gegn banni þessu, og greiðist sektarfjeð af upphæð þeirri, er útflutningsstjóri hefur að veði lagt. Nú afhendir maður öðrum vegabrjef sitt, og varðar það jafnháum sektum sem áður er talið. Þau sektamál skal sækja sem almenn Iögreglumál. Undanskilin þessum ákvæðum eru eigin- leg póstskip og seglskip þau, er eigi flytja fleiri útfara en 10. 4. gr. Allar sektir eptir lögum þessum renna í landssjóð. Mngiuannafrumvörp. 32. um eyðing svartbakseggja (Jens P, Páll Briem og Sig. Jensson). 33. um búsetu fastakaupmanna á íslandi. 34.-35, um löggilding versl- unarstaða: við Vogavík (Jón Þórarinss.), við Ingólfshöfða (Sv. Eir. og Ól. P.). 36. um skipting á Prestsbakka-og Kálfafells- sóknum í tvö prestaköll (Ól. P.). 37. um að meta til dýrleika nokkrar jarðir í Vest- ur-Skaptafellssýslu (Ól. P.). Fallin frumvörp. 2. um að stjórninni veitist heimild til að afhenda nokkrar þjóð- jarðir í skiptum fyrir aðrar jarðir (stj. frv.), fellt í neðri d. með 15 atkv. móti 3. 3. um sölu silfurbergsnámanna í Helgastaða- fjalli (stj. frumv.), fellt í neðri d. með 20 samhlj. atkv. 4. um almannafrið á helgi- dögum þjóðkirkjunnar (stj. frumv.), fellt í neðri d. með 12 atkv. móti 11. 5. um breyting á prestakallalögunum 27. febr. 1880 (o: um skipun Borgar-, Staðarhrauns-, Hítarness- og Miklaholtsprestakalla), fellt í neðri d. með 12 atkv. móti 10. t Ingibjörg Eggertsdóttir á Tjörn á Vatnsnesi. Hvað? Ertu horfin, og farin oss frá? ó, fæ eg þá aldrei þig, kæra! að sjá ? Þú kastaðir geislura minn æfiveg á. Jeg elskaði ljósið, sem skein þjer af brá. Þú komst, þegar grima lífs grúfði’ yfir mjer, og gleðin og hamiugjan fylgdist með þjer. Þú komst eins og geisli með líknandi ljós og lífgaðir anda míns deyandi rós. Því þú varst svo hrein eins og himinsins ljós. Vjer hljótum að meina og Begja þitt hrós. Já, hrein varstu’ og björt og svo guðlega góð! Vjer geymum í hjörtum þinn minningar óð. Ol'úf Sigurbardðttir. Flutningur Fróöárkirkju. Með þessari fyrirsögn hafið þjer, herra ritstjóri, tekið grein í 21. og 22. tbl. Þjóðólfs, semjegætla að leyfa mjer að svara fáeinum orðum, til þess að leiðrjetta ýmislegt ranghermi, er hún hefur með- ferðis. Grein þessi skýrir frá ýmsum fundarhöldum í Fróðársókn út af flutningi kirkjunnar til Ólafsvík- ur. Greinarhöfundarnir virðist vilja vefengja þá yfirlýsingu prófasts, að kirkjan væri ekki messu- fær, en þessi vefengingartilraun er ljettvæg gagn- vart vottorðum þriggja smiða, sem hafa skoðað kirkjuaa og látið í ljósi undrun sína yfir því, að hún skyldi ekki vera alveg fallin um koll, þar sem hún sje gengin úr bindingnum og viðir meira og minna fúnir. Um fundarskýrslu greinarhöfundanna ætla jeg ekki að vera langorður, en lýsa því yfir, að frá- sögn þeirra er alveg röng, því ýmist fór það ekki fram á funduuum, sem þeir bera fram eða fundirn- ir voru ekki haldnir, til að ræða um kirkjuflutning, svo sem annar fundurinn, er þeir uefna (fundurinn að Fróðá), sem eingöngu var um það, hvort söfn- uðurinn vildi taka að sjer umsjón og fjárhald Fróð- árkirkju. Eu það þykir mjer kátlegast, að þeir minnast alls ekki á hinn þriðja fund, er haldinn var 9. mars f. á. og samþykktur hafði verið af sjálfum greinarhöfundunum á Fróðárfundinum, því á þessum fundi var samþykkt með 58 samhljóða at- kvæðum af 80 atkvæðisbærum, að söfnuðurinn tæki að sjer kirkjuna með því skylyrði. að hún fengist cndurbyggð í Ólafsvik, og er það ósannindi, að nokkur þeirra, er atkvæði greiddu, liafi ekki verið 108 sjer skot nje skóhljóð. Svo rjeði jeg af að borða, hátta, og bíða dagsins að finna Jón, ef liann. kæmi ekki til sæluhússins fyrir dag. Jeg var nýbúinn að borða, þegar siðasta skarið á þessu eina kerti í hinu afskekkta sæluhúsi fjell ofan i stjakann og dó; við sátum í myrkrinu; að minnsta kosti var engin önnur birta, en rauðleitur glampi, sem lagði af arninum, því að það Iifði þar enn í nokkurum feyskj- um eptir af eldinum, sem húsmóðirin liafði soðið við baunirnar handa mjer. „Þetta er fallegt“, sagði Hartin Seccó, „við höfum enga ljóstýru til, þó að nokkur lægi á að kveikja á guðs altari, og þjer verðið svo, herra Caballeró, að liátta í myrkrinu!“ „Kærið yður eigi um það“ svaraði jeg, „jeg er hermaður, eins og þjer sjáið, og vanur óþægindum“. „Það er gott, því að jeg er viss um, að herrann hefur ekkert fundið fyrir sjer nema óþægindi í fátæk- lega sæluhúsinu okkar. Þegar jeg er orðinn nógu rík- ur, ætla jeg mjer að halda gistihús á Alameda; og þá ætti Caballeró að koma aptur til Malaga og muna eptir Martin Seccó“. Við þetta heyrði jeg það hoppaði hlátur niðri í húsmóðurinni. En ekki vissi jeg þá, hvort það var af voninni um að eignast fallegt gistihús, eða af því, að 105 mína ósjálfrátt, „ef sögurnar hans Pedrilió skyldn nú vera sannar“. Jeg skoðaði þau nú vandlega sæluhúshjónin. Martin var breiðleitur og mikilleitur og snareygur, og liafði svart skegg eins þjett og hrossfax. Hann var munnvíður, og ljek alltaf bros um varirnar; en aldrei náði þetta bros upp til augnanna — munnurinn hló, en augun voru köld eins og gler, — það var illt merki. Ennið var apturkembt, og eyrun voru fjarska ofarlega. Jeg sá það óðara, að liann var dyggðasnautt fúlmenni. Hann var álitlegur maður á velli, var í brúnni treyju, brúnum stuttbuxum og svörtum sokkum. Hann hafði hárnet um hár sjer, og bar gult belti yfir um sig. Kona lians var baskisk, og spænskan liennar var nærri óskiljandi. Hár hennar var kolsvart og fljettað í einn digran fljettiug, er náði nærri ofan á hæla. Hún var í kjól úr stórgerðu, rauðu klæði, með þröngum ermum og stuttum upphlut, en að neðan var hún í gulum ullar- sokkum, og með lága leðurskó, sem voru bundnir með böndum upp um öklana. Andlit hennar var hrikalegt og uppblásið, og augnaráðið var voðalegt. Það var eitthvað á milli þess að vera hið skarpa, grimmilega augnaráð snáksins, og hið óstöðuga augnaráð í útþvældu drykkjusvíni. Hún glápti á mig, og jeg sá ekki betur

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.