Þjóðólfur - 24.07.1891, Side 2
142
þykkis konunnar, fram yíir það, er hann
hefur rjett til, eða þarm skaða, sem hann
hefði bakað búinu með veðsetningu eða
sölu fasteignar án samþykkis konunnar,
sömuleiðis þau útgjöld, sem maðurinn hef-
ur bakað búinu með refsingarverðum laga-
brotum eða glæpum, t. d. sektir, sakamáls-
kostnað o. s. frv. Á þennan hátt er rjett-
ur konunnar nokkurn veginn tryggður og
þetta eru hvorki flóknar nje óframkvæmi-
legar reglur.
Það eru ýms fleiri ákvæði, sem þyrftu
að komast inn í lög um þetta efni og
standa í sambandi við það, sem vjer höf-
um drepið á. Þetta mál er ekki vanda-
laust. Það þurfa allýtarleg lög um það.
Því verður ekki komið í viðunanlegt horf
með lögum, sem eru að eins nokkrar lín-
ur, sem kastað er höndunum til og eru
rispuð upp í hugsunarleysi.
Alþingi.
y.
Lög' afgrcidd frá alþingi. III. Lög
um breyting á konungsúrskurði 25. ág. 1853
viðvíkjandi Ásmundarstaðakirkju í Prest-
hólaprestakalli.
Sú 15 Rdl. aukaþóknun, er sóknarbænd-
um Ásmundarstaðakirkju hefur verið skylt
að greiða prestinum á Presthólum sam-
kvæmt kunungsúrskurði 25. ág. 1853, skal
niður falla við næstu prestaskipti.
IV. Lög um b&nn gegn eptirstœling frí-
merkja og annara póstgjaldsmiða.
Ákvæðin í lögum 9. ágúst 1889 um
bann gegn eptirstæling peniuga og pen-
ingaseðla o. fl. skulu einnig ná til þeirra,
er hjer á landi búa til eða útbreiða eða
flytja til landsins þá hluti, sem að lögum
ag annari gerð eru verulega líkir að ytri
ásýndum innlendum eða útlendum frímerkj-
um og öðrum póstgjaldsmiðum.
Þingmaimafrumvörp. 38. um breyt-
ing á lögum nr. 30, 11. júlí 1890 um
amtaskipunina (Sv. Eir., Sig. Gr. og Ól. P.).
39. afnám vistarskyldunnar og um heimilis-
fang verkmanna (frá nefndinni í lausa-
mannamálinu). 40. um stækkun verslun-
arlóðarinnar í Keflavík (Jón Þórariusson).
41. um brýrnar á Skjálfandafljóti og Laxá
í Þingeyjarsýsiu (Ben. Sv.). 42. um stofn-
un háskóla á íslandi (sami). 43. um af-
nám 200 kr. árgjalds af Staðarprestakalli
á Reykjanesi (Sig. Jeusson). 44. um breyt-
ing á lögum um friðun hvala (Sig. St. og
Gunnar). 45. um meðferð á markaðs-
hrossum (Þorl. Guðmundsson). 46. um af-
nám amtmannaembættanna og biskupsem-
bættisins (Skúli Thoroddsenk 47. um breyt-
ing á 14. og 15. gr. stjórnarskrárinnar
(o: að 14 þingmenn sitji í efri d., en 28 í
neðri d. þingsins; flm. Ólafur Ólafsson).
Fallin frumvörp. 6. um hafnsögu í
Reykjavík. 7. um friðun á skógi o. fl.
8. um að nema dómsvald hæstarjettar sem
æðsta dóms í ísl. málum úr lögum. 9. um
breyting á safnaðarlögunum (að halda
safnaðarfundi í maí og hjeraðsfundi í júní);
þessi 4 felld í efri d. 10. um skipting á
Prestsbakka- og Kálfafellssóknum i 2
prestaköll. 11. um almenna þjóðjarðasölu.
12. um þóknun til þeirra, er bera vitni
í opinberum málum; þessi 3 síðasttöldu
felld í neðri deild.
Stjórnarskármálið aptur komið frá
nefndinni (sjá 32. tbl.). Hún ræður til að
samþykkja frumvarpið óbreytt, neina með
þessari viðbót við 17. gr.: „Bráðabirgðar-
fjárlög má þó aldrei gefa út. Nú hefur
alþingi ekki samþykkt fjárlög eða þau
haía ekki náð staðfestingu og gilda þá
fjárlög þau, er þingið hefur síðast sam-
þykkt“. — Frumv. er, eins og áður er get-
ið, fumvarpið frá þinginu 1887 óbreytt,
nema þessari málsgrein sleppt úr 33. gr.:
„Enga skatta eða tolla má innheimta fyr
en fjárlög fyrir það tímabil eru samþykkt
af alþingi og .hafa öðlast staðfestingu“.
Framhald 1. umr. var í neðri deild í
gær. Enginn talaði, nema Ben. Sv. og
var frumv. vísað til 2. umr. í einu hlj.
Háskóli. Frumv. um hann ákveður, að
stofna skuli háskóla í Rvík fyrir íslensk
embættismannaefni; þar á að kenna guð-
fræði, lögfræði og læknisfræði, svo og lieim-
speki og önnur vísindi eptir því sem síðar
verður áveðið með lögum.
Brýrnar á Skjálfandafijóti og Laxá
í Þingeyjarsýslu vill B. Sveinsson láta
verða landssjóðs eign og endurborgun á
landssjóðsláni, sem á þeirn hvíla, þar með
niður falla, en árlegt viðhald, er eigi
getur talist aðalaðgjörð á brúm þessum,
skal borgast af sýsluvegasjóði Suður-Þing-
eyjarsýslu.
Afnám vistarskyldunnar. Nefndin í
lausamennskumálinu (sjá 31. tbl., bls. 124)
hefur lagt til að felia bæði lausamannafrv.
og þeir Þorlákur Guðmundsson og Páll
Briem hafa tekið aptur sitt frumv. í þess
stað hefur nefndin komið fram með nýtt
frumv. þess efnis, að það sje úr lögum
numið, að nokkur maður sje skyldur að
vera í víst og er hverjum manni heimilt
að ráða sig til vinnu um svo stuttan tíma
sem vera skal, en skylt er hverjum verk-
manni að eiga víst árskeimili hjá einhverj-
um húsráðanda, sem eigi er á sveit, og
þar á verkmaðurinn að greiða lögboðin
gjöld, en geri liann það ekki, er húsráð-
andi sá, er verkmaðurinn á heimili hjá,
skyldur að greiða gjöldin fyrir hann.
Amtaskipunin. Frumv. um það mál á-
kveður, að Austuramtið skuli ná yfir Múla-
sýslurnar, Norður-Þingeyjarsýslu og Aust-
ur-SkaptafellssýsIu. Landshöfðingi úthluti
með ráði aintmannsins sunnau og vest-
an Austuramtinu tiltölulegum liluta Aust-
ur-SkaptafellssýsIu af sjóðum, eignum og
skyldum Suðuramtsins.
Dýralæknar. Nefndin í neðri deild
(Dr. Jónassen, Kjerúlf og Þorlákur Guð-
mundsson) rjeð frá að samþykkja stjórnar-
frumvarpið um stofnun tveggja dýralækna-
embætta, með því íslenskir dýralæknar
væru ekki til i þau, en rjeð aptur á móti
til að veita styrk þann, er læknaskólakand.
Sigurður Magnússon og stúdent Karl Niku-
lásson hafa sótt um til þiugsins til að
nema dýralæknisfræði. Þrátt fyrir þess-
ar tillögur nefndarinnar er frumv. komið
gegn um neðri deild og vonandi, að það
komist einnig með heilu og höldnu gegn
um efri deildina. En jafnhliða þyrfti
nauðsynlega að veita styrk þann, sem þeir
Sig. Magnússon og Kari Nikulásson hafa
beðið um, til þess að sem fyrst fáist ís-
lenskir dýralækuar. Útlendir dýralækuar
geta naumast orðið að tilætluðum not-
um.
Þingfararkaup. Frumvarpið um fast-
ákveðið þingfararkaup alþingismanna heim-
anað til þings og frá þingi heim er uú
komið gegn um efri deild; var samþykkt
þar við 3. umr. í gær eptir miklar um-
ræður og mótstöðu, eiiikum frá dr. Grími
Thomsen og Júlíusi Havsteen amtmanni;
auk þeirra greiddu og atkvæði móti því
Árni Thorsteinssou landfóg. og amtm. E. Th.
Jónassen, en hinir allir (7) í efri deiid
með því.
Landsbankinn. Meiri hluti nefndar-
innar í því máli (Lár. H., Sig. St., Skúli
Th. og Jón Jónsson þm. N.-Þ.) hefur lagt
til að samþykkja írumv. um launahækkuu
bókarans og fjehirðis með þeirri viðbót, að
laun framkvæmdarstjórans sjeu einnig
hækkuð upp í 5000 kr. og að hann megi
aldrei hafa önnur embættisstörf á hendi.