Þjóðólfur - 01.01.1892, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.01.1892, Blaðsíða 3
3 ársins 1891 ekki að eins sem merkisárs í sögu þjóðar vorrar yfirhöfuð, heldur og sem merkiárs fyrir nýtt tímabil verklegra fram- fara á landi voru. Þótt sumum þætti síðasta þing nokkuð afkastalítið og fremur magurt, vann það samt að minnsta kosti þarft verk með því að auka drjúgum fjárstyrkinn til gufu- skipsferða með ströndum fram og til póst- ferða, og kemur sú breyting til fram- kvæmda á þessu ári, sem nú fer í hönd, að minnstá kosti að því er póstferðirnar snertir, en eins og kunnugt er neitaði gufuskipafélagið danska að halda uppi strandferðum hér við land samkvæmt skil- yrðum fjárlaganna, sem reyndar mátti bú- ast við. Aptur á móti ætlar það að halda áfram strandferðunum styrklaust af lands- sjóði með svipaðri ferðaáætlun og 1889. Þessi aukna fjárveiting þingsins til strand- ferða og póstferða var allstórt spor í fram- faraáttina, þótt sumir þingmenn óskuðu, að stærra yrði stigið, einkum að því er gufu- skipsferðirnar snertir. Þótt vér séum þess- um háttvirtu herrum alveg samdóma um, að það væri gott og blessað að geta hrund- ið samgöngumálum vorum í æskilegasta horf á einni svipstundu, hyggjum vér samt tiltækilegra að sækja jafnt og þétt í sig veðrið við aukna reynslu, heldur en eiga það á hættu að hlaupa af sér hornin á ofsnörpum spretti í fyrsta skipti. — Þá ber og að geta þess, að Sigfús Eymunds- son bóksali í Reykjavík og fleiri í félagi með honum keyptu næstliðið vor lítinn gufubát („Faxa“), er þeir ætluðu að halda úti til flutninga um Faxaflóa, enda fór hann nokkrar ferðir um sumarið, og var tiltölulega allvel notaður, þegar þess er gætt, að hann kom á óhentugum tíma seinast 1 júnímánuði, þá er flutningsþörfin var rénuð. Ekki verður varið, að bátur þessi var fremur óhentugur til flutninga og fornfálegur, en slysalega fór þó, að hann skyldi sökkva á Reykjavíkurhöfn í nóvembermánuði, sem kunnugt er orðið. Var það mikið tjón fyrir eigendurna, er höfðu kostað stórfé til þessa fyrirtækis, einkum aðalkostnaðarmaður þess og hvata- maður hr. Sigfús Eymundsson, og ekki verður honum eða sameignarmönnum hans geflð að sök, þótt báturinn væri ekki sem ákjósanlegastur, þar eð aðalgöllum hans hefur verið leynt af seljanda. Það er sorg- legt, þegar fyrirtæki, sem til framfara horfa, falla svona um koll og það er ó- sæmilegt og ódrengilegt að hrósa jafnvel happi yfir því eða varpa í laumi óverð- skuldaðri rýrð á gagnleg fyrirtæki þeirra manna, er hafa dug og dáð í sér til fram- kvæmda. Þeir eru líka svo ógnarlega fá- ir þessir áhugamenn hjá oss, að það er varhugavert að draga úr þeim kjark til frekari framkvæmda með óþökk og óþörf- um aðfinningum fyrir aðgjörðir þeirra. (Niðurl. nœst). Kjörfundur. Hinn 8. og 9. þ. m. verður haldinn kjör- fundur hér í bænum, fyrri daginn til að velja einn mann í bæjarstjórnina úr flokki hinna hærri gjaldenda í stað E. Th. Jónassens amtmanns, er andaðist í haust. Vér vilj- um fastlega ráða kjósendunum til að velja annaðhvort Kristján Jónsson yfirdómara eða Halldór Jónsson bankagjaldkera, enda vitum vér, að margir bæjarbúar hafa ein- mitt augastað á þeim öðrumhvorum. Síð- ari daginn á að velja báða endurskoðunar- menn bæjarreikuinganna. Verði Halldór Jónsson, sem nú er aunar þeirra, kosinn í bæjarstjórnina, þarf að minnsta kosti að velja annau í stað hans og viljum vér þá leyfa oss að benda á Eirík Briem presta- skólakennara, sem hæfastan mann til þess starfa. 4 fór um mig allan, svo að eg hljóðaði upp yfir mig, datt um koll og kippti þræðinum niður við fallið. Eg heyrði að eins ákafan bjölluhljóm, en Schmiedlein hvarf eins og kólfi skyti út í myrkrið, og hefur að líkindum sloppið burtu sama veg og við komum þangað. Eg hef aldrei séð hann síðan. Þegar eg datt niður, skall eg með höf- uðið á vegg, svo að eg missti meðvitundina við högg- ið, en rafurmagnsbjallan — er á þeim tíma var fágæt — hljómaði í sífellu. Þá er eg raknaði við aptur, komst eg að raun um, að eg var fjötraður og gat hvorki hreyft legg né lið, enda furðaði mig ekkert á því, þar eð eg vissi fullvel, að eg var tekinn til fanga. Loksins er eg hafði alveg ránkað við mér, kom mér til hugar, að það hlyti að vera í einhverjum sérstökuin tilgangi, að eg var bundinn á þaun hátt, sem eg var, því að eg var allsnakinn og 14 á kaldri hellu, er stóð hér um bil borðhæð frá gólfl, en lítil léreptspjatla var breidd undir mig of- an á steininn. Beint uppi yfir mér hékk stór lampi með fægðum hjálmi, er varpaði björtu ljósi um allt her- bergið, og þegar eg litaðist um sá eg nokkrar hyllur fullar af fiöskum, glösum og alls konar efnafræðislegum verkfærum. í einu horninu stóð heil beinagrind af manni og hingað og þangað á veggjunum liéngu ýmsir einstak- ir hlutar mannlegs líkama. Þá komst eg að raun um, að eg lá á líkskurðarborði læknanna, og má geta nærri, í þarfir vísindanna. IÞýzk saga. „Hann Georg Martin hafði lengi verið kunningi minn“ — segir sá, er þessa sögu hefur í letur fært — „en það er þó ekki langt síðan, að hann trúði mér fyrir hinu mikilvægasta leyndarmáli lífs síns. Eg vissi reynd- ar fullvel, að Iéttúð og alls konar óregla hafði leitt hann á glapstigu á æskuárum, en samt datt mér ekki í hug, að hann jafnvel einu sinni hefði komizt svo langt og lágt að gjörast innbrotsþjófur. Án frekari málalenginga ætla eg að skýra frá aðalatriðunum úr sögu hins ein- kennilega manns: „Hagur minn var bágborinn”, mælti hann, „og loksins varð eg .. . innbrotsþjófur. Robert Schmiedlein stakk einhverju sinni upp á því við mig, að við skyld- um fremja þjófnað í húsi nokkru afskekktu, er tveir læknar Engler og Landner bjuggu í, og féllst eg þegar í stað á þá uppástungu. Báðir þessir læknar höfðu all- mikið orð á sér fyrir vísindaiðkanir, og annar þeirra

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.