Þjóðólfur - 04.03.1892, Qupperneq 1
Kemur út á, íögtudög-
um — Verð árg. (60 arka)
4 kr. Krlendis 5 kr. —
Borgist fyrir 15. Júli.
ÞJÓÐÓLFUR
Uppsögn skrifleg, bundin
við áramót, ógild nema
komi til útgefanda lyrir 1.
október.
XUVTárg:
Skrípanöfn—Fleirnefni—Ættarnöfn,
i.
í 1. bindi landshagsskýrslnanna, er bók-
menntafélagið gaf út, er, eins og menn
vita, ritgjörð nokkur um mannaheiti á ís-
landi 1855, samin af Sigurði Hansen skrif-
ara eptir manntali, er tekið var her á
landi það ár (1855). Ritgjörð þessi er
að mörgu leyti markverð og einkar fróðleg,
en engin samskonar skýrsla hefur síðan
verið gefin út í nærfellt 40 ár. Það er
vonandi, að hún verði samin innan skamms
eptir síðasta manntaiinu(haustið 1890), því
að ekki væri það nein ýkja fyrirhöfn.
Væri mjög fróðlegt að hafa þá skýrslu
til samanburðar við liina eldri frá 1855,
svo að sjá mætti, hverjum nöfnum hefði
mest fjölgað, hver fækkað eða dáið út og
hver ný komið í staðinn o. s. frv., því að
auðvitað hefur margt breyzt á svo löng-
um tíma. En þar eð engin ný skýrsla í
þessu efni er nú fyrir hendi, verðum vér
að byggja á hinni gömlu frá 1855. Ritgjörð
Hansens skiptist í þrennt. Er fyrst talað um
skírnarheiti karla og kvenna, því næst um,
hversu margir af hvoru kyni heiti fleir-
um skírnarnöfnum en einu og loks um
ættarnöfn. Hefur hann ritað stuttar
athugasemdir um hvert þetta atriði fyr-
ir sig. Þá voru alls 530 karlmannaheiti
á landinu, en 529 kvennalieiti, en miðað
við fólkstölu urðu karlmannaheiti tiltölu-
lega fleiri. Hér er ekki rúm til að gefa
ueitt almennt yfirlit eða ágrip af skýrslu
þessari, enda er það í sjálfu sér óþarft,
þar eð hún mun vera í margra manna
höndum.
Af karlmannaheitunum er auðvitað
nafnið Jón langtíðast. 1855 bar 6. hver
maður á ölllu landinu þetta nafn eptir
hinni þáverandi fólkstölu, eða alls 4827,-
og varla hefur þeim fækkað síðan. AI-
gengast karlmannaheiti næst Jóns nafninu
er nafnið fí-uðmundur, en þó kemst það
ekki í hálfkvisti við það. 1855 bar 14.
hver maður þetta nafn eða alls 2135. Þar
næst kemur Sigurður 20. hver og svo
Magnús 30. hver. Þessi 4 nöfn eru lang-
nlmennust. fíuðmundur og Sigurður eru
æfagömul og norræn nöfn, en Jóns nafnið
ekki. eins og kunnugt er. Það kemur
Iteykjavík, föstudaginn 4. marz 1892.
ekki fyr en með kristninni til Noregs.
Einhver hinn fyrsti maður í Noregi með
þvi nafni mun hafa verið Jón Árnason, faðir
Yiðkunnar í Bjarkey og bróðir Kálfs og
þeirra bræðra, enda mun hann fæddur
um árið 1000. Hinn fyrsti Jón á íslandi
hefur að vorri ætlun verið Jón biskup
helgi Ögmundsson, er var fæddur 1052.
Hver veit nema nafn þetta eigi heilagleika
biskupsins að þakka hina óvenjulegu út-
breiðslu og vinsældir, er það hefur náð
hjá þjóð vorri framar öllum öðrum nöfn-
um (!). Óskandi væri samt, að Jónarnir
fækkuðu heldur hér eptir, þvi að Jón
Jónsson t. d. er sama sem ekkert nafn út
af fyrir sig, svo að það er jafnvel nauð-
ugur einn kostur að hnýta við það ein-
liverju ættarnafni til leiðbeiningar, enda
hafa margir Jónar Jónssynir gjört það,
Magnúsar nafnið er, eins og margir
munu þekkja, runnið frá Magnúsi góða
Noregskonungi, er var heitinn eptir Karla-
magnúsi keisara. Hinn fyrsti íslendingur
með þessu nafni var Magnús son Þorsteins
Síðuhallssonar, afl Magnúsar biskups Ein-
arssonar. Hann mun vera fæddur um 1040
eða litlu fyr, því að Magnús biskup son-
arson hans var fæddur 1098.
Af kvennmannaheitum er fíuðrún al-
gengast, og slagar hátt upp í Jónana, því
að 1855 bar 8. hver kvennmaiður á land-
inu þetta nafn, eða alls 4363. Þar næst
er Sigriður, svo Margrét, Kristín, Ingibjörg
0. s. frv., sem öll voru algengari en Magn-
úsar nafnið eptir skýrslunnni 1855.
Nöfnin Guðrún, Sigríður og Ingibjörg
eru öll fornnorræn, en nöfnin Margrét og
Kristín komu á Norðurlönd eptir að kristni
var lögtekin. Hér á landi mun Margrétar
nafnið fyrst koma fyrir á fyrri hluta 12.
aldar, því að einhver hin fyrsta með því
nafni mun hafa verið Margrét Höskulds-
dóttir, móðir Þorfinns Þorgeirssonar ábóta
á Helgafelli (f 1216). Aptur á móti kem-
ur Kristínar nafnið ekki fyrir hér á landi
fyr en um 1300. Hinar fyrstu með því
því nafni munu hafa verið: Krístín sú, er
vígð var abbadís að Stað í Reyninesi 1332,
og Kristín nunna í Kirkjubæ á Síðu, er
þar var brennd 1343, fyrir það, að hún
„hafði gefizt púkanum með bréfi“, segir í
íslenzkum annálum.
Nr. 11.
Yér viljum geta þess hér, að bókmennta-
félagið hafði einu sinni í hyggju að láta
birtast á prenti ritgjörð um uppruna, þýð-
ingar og sögu nafnanna, sem nokkurs
konar áframliald eða viðauka við ritgjörð
Sigurðar Hansens um mannaheitin, en
ekki er oss kunnngt um, að Jón Sigurðs-
son, er einna fyrstur mun hafa vakið máls
á þessu, eða nokkur annar hafi tekizt
þetta starf á hendur. Slík ritgjörð
gæti verið einkar fróðleg og þýðingar-
miki'l, ef hún væri samin með vandvirkni
og alúð, og öll stuðningsrit, sem til eru um
þetta efni, væru notuð, en þau eru eigi
allfá, liingað og þangað í handritasöfnum,
þar á meðal talsvert eptir Jón Ólafsson
frá Grunnavík 0. fl., er allt gæti orðið til
mikillar styrktar við þessa ritsmíð.
En aðáltilgangurinn með þessum línum
vorum var að vekja athygli landa vorra
á því, liversu mörg mannaheiti hér á
landi eru skrípaleg og afkáraleg, 0g svo
ósamboðin tungu vorri og lubbaleg í
samauburði við fornu nöfnin, að vér
finnum skyldu vora að áminna alla landa
vora alvarlega um að leggjast á eitt og
leitast við af fremsta megni, að útrýma
öllum þessum hneykslisnöfnum, sem eru
þjóð vorri og tungu til mestu vanvirðu,
satt að segja. Yér erum að vísu sann-
færðir um, að sum hégiljunöfnin, er standa
í nafnaskránni frá 1855, muni nú vera
útdauð, en svo eru komin önnur ný í
þeirra stað, sem ef til vill eru enn hneyksl-
anlegri og auðvirðilegri en hin.
Vér skulum láta oss nægja að taka fá-
ein dæmi úr nafnaskránni 1855, svona
rétt af handahófi, því að rúmið í blaðinu
leyfir oss ekki að taka upp svo langa
romsu, sem öll ónefnin eru. Hér verða
þá fyrst talin fáein dáfalleg 0g dável
mynduð karlmannaheiti (!), t. d. svo sem:
Arent, Árnibjörn, Askalon, Bernótus, Bert-
hold, Blansifiúr, Dalholí, Danival, Demas,
Dinus, Dósóþeus, Edílon, Ektor, Elíden,
Elífas, Elínes, Elínmundur, Elís, Elíseus,
Fertram, Filpó, Folmer, Friðsemel, fíedeon,
Georg, Guðbjarni, Hannibal, Híram, Hug-
glaður, Ingimar, James, Jedrosky, Jesper,
Jess, Job, Jónadab, Júlínus, Júst, Kaífónas,
Karfi, Karlemíl, Karvel, Kasper, Kasten,
Lars, Leó, Leví, Lindal, Lýsimundur,