Þjóðólfur - 06.05.1892, Síða 2
86
að vera kanzlari. En þá fórst það fyrir,
sem kunnugt er. — Það er talað um að
rífa niður hús þau, er standa um höll
keisarans í Berlín og gera þar trjágarða
umhverfis. Hyggja menn þá illa anda síður
munu rata þangað. En féð til þessa vilja
sumir útvega með „lotteri“, en aðrir kveða
það ósæmilegt. — Háskólinn í G-reifswald
hefur gert Zedlitz að heiðursdoktor fyrir
trúarfestu. — Látinn er Friederich Boden-
stedt (f. 1819). Hann var skáld gott og
ýms af ritum hans hafa verið þýdd á
mörg mál. Nafnkenndust af kvæðum hans
eru „Söngvar Mirza Schaffy’s“. Hanu var
73 ára og verður borinn til grafar með
mikilli viðhöfn.
Hanmörk. Kosningum er nú lokið.
Síðasta vetrardag var uppi fótur og fit í
Höfn, því nú átti að skríða til skarar með
vinstri mönnum og hægri. Vinstrimenn
sigruðu í sömu kjördæmum sem síðast og
allt situr við sama hér í bænum. Úti um
landið voru flokkarnir þrír, því að þar
hættust miðlungarnir við. í kjördæmi
Hörups, sem nú er helztur meðal vinstri-
manna, lögðust hægrimenn og miðlungar
á eitt og tókst svo að steypa honum. Var
það mikill skaði fyrir vinstrimenn. Staða
flokkanna á hinu nýja þingi verður þessi:
hægrimenn hafa 32, miðlungar 31 og
vinstri 30, en tveir eða þrír eru litlausir.
Svo fór um sjóferð þá.
England. Þaðan helzt tíðinda, að Glad-
stone mælir móti kosningarrétti kvenna í
smáritlingi einum. Heldur hann, að konan
missi nokkuð af hógværð sinni og blíðu,
ef hún taki þátt í keppninni og stríðinu.
Bandaríkin í Ameríku hafa nú bann-
að Kínverjum að ffytja inn í landið; hafa
Kínverjar orðið svo illir við, að þeir hafa
sagt sundur öllum friðsamlegum skiptum
við Bandamenn.
í Brasilíu voru óeirðir nokkrar og
voru ýmsir göfugir herforingjar grunaðir
um uppreistarhug og ýmsir gerðir útlægir.
Eitt fylki hefur sagt sig laust og vill ekki
lengur þýðast yfirráð Brasilíu.
í Argentina gerði stjórnin það bragð,
að taka fasta marga frelsisvini rétt á
undan kosningunum. Bar hún það fyrir
sig, að þeir hyggðu á uppreist, en það var
lygi-
Látnir eru þessir nafnkunnir menn er-
lendis auk þeirra, sem hér er getið: C. P.
Caspari háskólakennari í guðfræði í Kristj-
aníu, af þýzkum ættum (f. 1814), mikill
lærdóms- og vísindamaður; E. A. Freeman
háskólakennari í Oxford, merkur sagn-
fræðingur, (hefur ritað „The history of the
Norman conquest" í 6 bindum); E. J. Eenz
1 Berlín, forstjóri hinnar alkunnu trúð-
leikasveitar, sem við liann var kennd
(„Cirkus Renz“). Var bláfátækur í æsku,
en græddi margar miljónir á atvinnu sinni,
eins og sjálfur „konungur humbugsins“
Barnum gamli.
Itangárvallasýslu (Holtum) 12. apríl:
„Veturinn er nú orðinn einhver hinn gjaf-
feldasti, sem lengi hefur komið; gjafatími
á öllum fénaði orðinn 18 og 20 vikur, en
þó hefur hvergi heyrzt talað um heyþrot.
Frost varð mest í marzmánuði 19° (R.).
Mælt er, að nokkrir bændur á efri Rang-
árvöllum hafi mjög sjaldan geflð fé; t. d.
er sagt, að á Keldum hafl ekki verið geflð
optar eu 7 sinnum, og sé það satt og féð
samt í viðunanlegum vetrarholdum, sýnir
það, hve ótrúlega kjarngóðir landskikar
enn eru eptir innan um sandana, sem þeg-
ar hafa nær gereytt efri Rangárvelliua,
sem fleiri hin fegurstu og kjarnbeztu
héruð í þessari sýslu.
Ekki liefur heyrzt nein umkvörtun um
bjargarskort hjá fólki í vetur, því kál-
garðaávöxtur varð í bezta lagi og afli
gafst af sjó óvanalega snemma. Hlutir
hér fyrir Rangársandi eru orðnir all-
góðir eptir því sem hér er að gera, full
400 í Landeyjum, rúm 200 í Þykkvabæn-
um. Undir Eyjafjöllum hefur líka aflazt
allvel; fiskurinn sérlega vænn.
Fastráðið er nú, að reistur verði barna-
skbli í Þykkvabænum í vor og á hann að
standa á Hábæ; ætlazt er til, að hann
rúmi allt að 30 börn. Þetta er gleðilegur
vottur um menntunar- og menningarhug
Þykkbæinga, en meira er það gert af vilja
en mætti, hvað efni snertir, þar eð fátækt
er þar mikil sökum þéttbýlisins, enda mun
talsvert fé vanta enn til að koma skólan-
um sómasamlega upp, og er vonandi, að
þeir, sem unna framför í menntun og sið-
gæði, rétti þessari mjög þarflegu stofnun
hjálparhönd.
Mikið hefur þessi vetur verið spakur
með allar pölitislcar hreyfingar og virðist
sem þingið í sumar hafi gert alla orð-
lausa, en geta má til, að eitthvað verði
farið að lifna við úr þessu dái fyrir sept-
embermánaðarlok næstk.
Þeim, sem búnir eru að sjá alþingis-
kostnaðinn í sumar, þykir það ekki vera
réttnefni að kalla það þingið magra, nfl.
ekki nema á aðra hliðina, fyrir þjóðina,
eu fyrir þá, sem hafa orðið aðnjótaudi
þessara 38,376 króna, sem þingkostnaður-
inn nemur, má það kallast þingið feita.
Þessi gífurlegi kostnaður fram yfir það
sem áður hefur átt sér stað vekur sára
gremju meðal þeirra, sem nokkuð hugsa
um meðferð á landsfé, þegar litið er til
þess, hversu sáralitið eptir þingið lá af
því, sem landiuu má verða til framfara“.
Yestur-ísiifjarðarsýslu (Dýraíirði) 16. apríl.
„Þessi útliðandi vetur liefur verið í þyngra lagi
mest sakir þess, hve sueinma hanu kom á; urðu
flestir að taka ailar skepnur sinar á hús og hey
fyrir og um jólaföstu, og var samfelld innistaða i
20—22 vikur. Hefði Jivi orðið almennur heyskort-
ur, Jirátt fyrir hinn góða heyskap síðastliðið sum-
ar, ef eigi hefði kornið góður bati viku af einmán-
uði, en þá komu alstaðar upp góðir hagar, og hafa
þvi að eins örfáir komizt i heyþrot. Nú aptur
nokkra fyrirfaraudi daga hefur verið kuldalog tið,
hitinn -r- 6—10° á K. á morgnana, og aðeins sár-
litið slakuað um hádaginn, er því útlit fyrir að
algerlega geöst upp þau litlu hey, sem almenning-
ur nú á eptir. — Um b'ýrjun einmánaðar kom
vöruskip til Þingeyrarverzlunar og var þess öll
þörf, þvi vöruskortur var orðinn i öilum eða flest-
um verzlunum hér vestanlands og einnig á Þing-
eyri, sem þó mun opt birgari flestum verzlunum
á Yestfjörðum.
Lítið þokar menntuninni áfram hér i vestur-
sýslunni, og eigi veit eg til, að barnakennsla hafi
verið nein að ráði, nema eitthvað i Önundarfirði;
hefur þó af einstaka manni verið gerð tilraun til
að farandkennarar yrðu fengnir til hreppanna,
en allt strandar á hinu sorglega áhugaleysi al-
mennings. — Búnaðarfélög eru i Hosvalia-, Mýra-
og Þingeyrarhreppum, en ekki eru þau enn þá orðin
svo öflug, að þau geti hrundið landbúnaðinum á-
fram til verulegra bóta, enda gengur hanu hér á
sannkölluðum tréfótum, en vonaudi að það takist
með tíð og tíma. Yon er á tveimur þiljubátum
hér til fjarðanna. Annar er eign 4 bænda í Mýra-
hreppi, hinn er eign Gisla bónda Oddssonar i Loð-
kinnuhömrum. Yonandi væri að slíkum bátum fjölg-
aði; með því eina móti getur lag komizt á fiski-
veiðar vorar, sem nú eru i mesta ólagi. — Hval-
fangarar hafa aflað mæta vel. Amalie og Ellefsen
eru búnir að fá 30 hvali hvor, en Berg 15. Er
alls ekki að sjá sem hvölunum fækki, aldrei hefur sézt
önnur eins ósköp af hval i ísafjarðardjúpi, sem
fyrri hluta marzmánaðar siðastliðinn. — Um póli-
tik litið talað nú seui stendur, en sjálfsagt vakna
menn þegar að kosningum liður. Margir óska hér
eptir Þingvallafundi og telja hann afar-nauðsyn-
legan til að koma fastari stefuu á helztu áhuga-
málin. — Heyrzt hefur, að próf á ungmennum frá
11 til 14 ára eigi fram að fara i Mýraþinga-
prestakalli um suinarmálin. Væri óskandi, að sem
flestir pre3tar tækju upp slik próf á vorin, því þau
hljóta að gagna meira en vorhúsvitjanirnar, sem
auk þess munu viða vera vanræktar“.
Póstskipið Laura kom aðfaranóttina 3. þ. m.
og með henni margir farþegar, þar á meðal kaup-
mennirnir: Ditl. Thomsen, Eyþór Felixson (með
konu sinni), Fríðrik Jónsson, W. Breiðfjörð (með
konu og fósturdóttur); Þ. Egilsen úr Hafnarfirði,
H. Clausen frá StykkishóJmi (með konu sinni); S. E.
Sæmundsson frá Ólafsvik; Björn Sigurðsson frá