Þjóðólfur


Þjóðólfur - 03.03.1893, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 03.03.1893, Qupperneq 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlenflia 5 kr. — Borgist fyrir 15. júll. TJppsögn,bunclm viB áramftt ðgild nema komi til útgef- anda fyrir 1. oktöber. ÞJÖÐÓLFUR XLY. árg. Mikill hátíðisdagur er dagurinn á morgun (4. marz) um öll Bandaríkin, því að þá fiytur hinn nýi for- seti þjóðveldisins Cleveland litlu fyrir há- degi inn í „hvíta húsið“ í Washington, og tekst öðru sinni á hendur æztu stjórn hins voldugasta lýðveldis í heimi, eptir 4 ára hvíld frá stjórnarstörfum, en á þeim tíma hefur hann leitað sér atvinnu sem málafiutningsmaður. Oss finnst vert að leiða atliygli manna að því, að einmitt þennan dag (4. raarz) fyrir 100 árum tók hinn mikii Washington einnig öðru sinni við forsetavöldum á bernskudögum lýð- veldisins (1793) og má ætla, að Ameríku- mönnum sé ekki ókunnugt um það og alliiklegt, að fylgismenn Clevelands að minnsta kosti noti tækifærið til að gera emhættisviðtöku hans sem veglegasta og glæsilegasta með samanhurði á 1793 og 1893. Þá er Bandaríkin völdu fyrsta forseta sinn, Washington, 1789, var „hvíta húsið“ ekki reist, og forsetinn hjó í leiguhúsi, er auðmaðurinn Benedikt Arnold hafði áður búið í. Nú býr forsetinn leigulaust i „hvíta húsinu“ og allt er lagt ókeypis upp í hendurnar á lionum að heita má, nema maturinn; ráðskona, sem sér um allt í húsinu, er launuð af almannafé, einnig ráðsmaður eða bryti, hestasveinn og einn þjónn forsetans, en eldabuskur, þjónustu- stúlkur, aktygi og ökumann verður hann sjálfur að annast. Umsjón, viðgerð og endurnýjun húsbúnaðarins við „hvíta húsið“ kostar nál. 450,000 kr. á ári, auðvitað allt á kostnað ríkisins. Mestur hluti hússins eru skrifstofur og forsetinn hefur að eins lítinn hluta þess til eigin afnota, þar á rneðal ekki nema 5 gestaherbergi. Þá er hinn fyrverandi forséti Harrison kom til Washington fyrir 4 árum til að taka *við völdum, bauð Cleveland honum að dvelja hjá sér, þangað til hann tæki algerlega við embættinu, en Harrison af- þakkaði þetta vingjarnlega boð. í þinghöllinni (Capitolium) í Washing- ton er sérstakt herbergi handa forseta, á- kaflega skrautlegt, en ekki kemur hann þangað nema að eins einu sinni annað- hvert ár til að skrifa uudir lagafrumvörp, Reykjavík, föstudaginn 3. marz 1893. er þingið hefur samþykkt. Að kveldi hins 3. marz (þ. e. í kveld) fer Harrison þang- að og dvelur þar til miðnættis við undir- skriptir, svo að frumvörpin geti orðið að lögum, áður en hinu 52. þingi er slitið. Verður þetta hið síðasta embættisstarf hans, því að um hádegi á morgun ekur hann til þinghallarinnar með Cleveland forseta, er heldur þar ræðu, og skýrir frá meginreglum þeim, er hann muni fylgja í stjórn sinni. Að því búnu snúa þeir forsetarnir aptur til „hvíta hússins" og Harrison skilar öllu af sér, kveður nýja forsetann og hefur upp frá því ekki meiri áhrif á opinber málefni, en hver óvalinn borgari. Síðari hluta dagsins hefjast hátíða- göngur miklar og þá er uppi fótur og fit um alla borgina. Allir vilja sjá nýja for- setann, er hann gengur með konu sinni út á veggsvalirnar og heilsar múgnum, er ryðst fram og aptur með miklum gleði- látum og óþrjótandi húrraöpum. En for- setaskiptunum er samt ekki heilsað með jafnmiklum fagnaði af öllum, og allrasízt af þeim, er komizt hafa til einhverra valda á stjórnai'árum Harrisons, því að nú vita þeir, að þeir hljóta að rýma sætið fyrir áliangendum og vildarmönnum nýja for- setans. Þessar rniklu byltingar í embætta- skipaninni, er fylgja hverjum forsetaskipt- um í Bandaríkjunum, mundu víðast livar annarstaðar hafa ískj^ggilegar afleiðingar í för með sér, en þar gengur allt fremur friðsamlega, því að menn vita, að þetta er gömul liefð og verður svo að vera. Úr- slit forsetakosningarinnar hafa þegar varp- að teningunum og það tjáir ekki að mögla. Sigraðir menn verða að sætta sig við allt. Ekki er og heldur að sjá, að þjóðveldið bíði neinn halla við þetta fyrirkomulag. Það verður miklu fremur til að efla fjör og framtakssemi æðri sem lægri, og kemur í veg fyrir liinn skaðlega hugsunarleysis doða og drunga, er einkennir svo marga embættismenn annara þjóða, er komast í feit embætti og vita, að þeir geta setið þar æíilangt, hvernig sem allt veltist. Forseti Bandaríkjanna hefur meira vald en margir stjórnendur í Evrópu. Hann liefur meðal annars á hendi æztu stjórn yfir öllum her Bandaríkjanna á sjó og Nr. 10. landi. Hann getur upp á eigin hönd svipt tuttugu þúsundir embættismanna völdum og skipað í þeirra stað jafnmarga ítalska umrenninga, ef honum þóknast. Hið borg- aralega hegningarvald hefur engin yfirráð yfir honum. Hann getur með nokkrum línum, hvenær sem vera skal, kvatt heim alla ráðgjafa, konsúla og aðra fulltrúa Bandaríkjanna víðsvegar um lieim, án þess að ráðgast um það við nolckurn, en ferðakostnað heim til sín geta þeir fengið af almannafé. Vilji forsetinn aptur á móti losast við þá fyrir fullt og allt, fá þeir engan eyri af landsfé til að komast heim aptur. Eu Ameríkumenn vilja ekki láta sama manninn liafa þetta mikla vald lengi í höndum. Enginn forseti Bandaríkjanna kefur hingað til setið lengur að völdum en tvö kjörtímabil (8 ár). Verzlunarfélag Dalasýslu. Skýrsla eptir alpm. Guðjón Guðlaugsson. Næstliðið ár keypti verzlunarfélag Dala- manna vörur af Zöllner, sem námu með félagsverði um 82,200 krónur. Auk þess mun það hafa fengið rúm 15,000 kr. í peningum og ávísunum. Móti þessum vörum lét félagið 6976 kindur og fékk fyrir hverja að meðaltali um 9 kr. 13 aura. UU lét það fyrir 7,600 krónur, 30 tunnur af lýsi, 24 hross, dá- lítið af dún og fáein selskinn, sem hvoru- tveggja var óselt, þegar reikningarnir voru gerðir upp af ZöIIner. Félagið skuldar Zöllner 17,900 kr. sam- kvæmt reikningum hans. Verðmunurinn á félagsfénu eptir þyngd á fæti varð þessi: 90 punda kind á kr. 5,84 100 — — - — 7,12 110 — — - — 8,91 120 — — - — 10,70 130 — — - — 12,50 140 — — - — 14,28 150 — — - — 16,07 160 — — - — 17,86 170 — — - — 19,64 Þetta verð að frádregnum öllum kostn- aði innlendum og útlendum.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.