Þjóðólfur - 26.05.1893, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 26.05.1893, Blaðsíða 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. ErlendiB 5 kr. — Borgist fyrir 15. jtili. Uppaögn.bundin við áramðt, ógild nema liomi til útgef- anda fyrir 1. október. ÞJÓÐÓLFUR XLY. árg. „ÞJÓÐÓLFUR" kemur út einu sinni í viku og stundum tvisvar, eða alls 60 tölublöð um árið, og kostar ekki nema 4 kr. hér á landi. Með þessum yfirstandandi árgangi fylg- ir ökeypis handa öllum (skilvísum) lcaup- endum blaðsins fyrsta hepti hinnar fróðlegu og skemmtilegu sögu af „Þuríði formanni og Kambsránsmönnum“ (sem nú er alprent- að). Br það 4 arkir að stærð, en öll verð- ur sagan líkl. 18—19 arkir eða um 800 bls., og kemur út í 4 heptum (eitt hepti á ári). Hún verður alls ekki til lausasölu og geta því enqir eignazt liana nema lcaup- endur „Þjbdblfs“. Nýir kaupendur að þessum 45. árg. fá auk 1. heptis sögunnar sérprentun af Sögusafni „Þjóðólfs“ 1892, 144 bls., með 11 skemmtisögum. Peir, sem gerast áskrifendur að hálf- um árgangnum (frá júlíbyrjun þ. á.), verða sömu hlunninda aðnjótandi, að því er fylgi- ritin snertir, og fá þá 30. nr. af blaðinu og yfir 200 bls. í kaupbœti fyrir einar 2 kr. Notið tækifærið og sætið þessum vilkjörum, svo að þér getið eignazt upphaf fylgiritsins. Það er ekki seinna vænna, því að þeir, sem ekki gefa sig fram á þessu ári, sem nýir kaup- endur, eiga á hættu að fá aldrei fyrsta hepti sögunnar. Útlendar fréttir. Kaupmannaliöfn 7. mai. Noregur. Pess var áður getið, að kon- ungs var von til Kristjaníu. Settist hann þá á rökstóia með ráðgjöfum sínum, en sam- lyndið fór heldur út um þúfur. Konungur kvaðst ekki mundu samþykkja ákvæði stór- þingsins í umboðsmannamálinu. En það hafði samþykkt og ákveðið að veita skyldi 50,000 kr. til að búa allt undir aðskilnað við Svía í þeim efnum. En áður en málið væri lagt undir úrskurð konungs á þann hátt, sem lög eru til, bað ráðaneytið lausnar og Keykjavík, föstudaginn 36. maí 1893. kvaðst ekki vilja bera ábyrgð á neitun hans. Pá bað konungur Sivert Nielsen að verða forseta í nýju ráðaneyti, en hann aftók með öllu og réð konungi, að sam- þykkja ákvæði þingsins, en ekki þekktist konungur það, Leitaði hann þá til Stangs, þess er áður var ráðaneytisforseti, og hann varð við bæn konungs, en áskildi sér, að frestað væri málinu. Stang er foringi hægrimanna, en þeir eru minníhluti þíngs. Þykja vinstrimönnum aðfarir Stangs illar og gera honum allt til bölvunar, sem þeir geta. Þeir neita um fjárveitingar og hafa í hótunum að minnka laun ráðgjafa og konungs. Þingið hefur þegar lýst van- trausti sínu á ráðaneytinu og hagað orð- um sínum sem líkast því, sem Stang gerði, þá er hann hratt Sverdrúp úr sessi, en Stang situr. Það er haft á orði, að Steini verði veitt laun úr fjárhirzlu ríkisins, og á það að vera viðurkenning á dugnaði hans og alúð við Noreg. „Yíkingur“ er farinn á stað til Vestur- heims. Það er skip, sem Norðmenn hafa látið gera í líki drekanna gömlu, er vík- ingar höfðu í hernað. „Víkingur" á að vera til sýnis í Chicago í sumar. Finnland. Alltaf kreppa Rússar meir og meir að Finnum. Áður höfðu þeir sett ritnefndir til að gæta þess, að blöð þeirra Finnanna flyttu ekki annað en það, sem væri stjórninni geðfelt, en nú hafa þeir bannað allar aðfinningar við stjórn og kirkju og rítnefndir, og leggja við harða refsing, ef brugðið er af. Þýzkaland. Nú er lokið þreflnu um heraukalögin og þau urðu málalokin, að frumvarpið var fellt. Foringi miðmanna hafði reynt að miðla málum, en það varð að engu. Þegar lokið var atkvæðagreiðslu, las Caprivi í heyranda hljóði þingslitabréf frá keisaranum. Þar var skipað svo fyrir, að nýjar kosningar skyldu fara fram 15. júní og þingið koma saman aptur í júlí. Vilhjálmur keisari fór fyrir skömmu til Ítalíu og var þar vel fagnað. Þess er og getið, að hann hitti páfa í þeirri ferð og gatst þar hvorum vel að öðrum. Belgía. Öldungaráðið samþykkti kosn- ingarlögin óbreytt, og nú ríkir friður og sátt þar í Iandi. Nr. 34. England. Heimastjórnarlög Grladstoue’s voru samþykkt við aðra umræðu og all- miklar líkur eru nú til, að þau verði sam- þykkt í neðri málstofunni. Mótstöðumenn- irnir hamast og gera allt, sem þeir geta til að hnekkja því, en lítið verður þeim ágengt. Þess er getið, að einn dag, er ö-ladstone var genginn til þings, heyrðist skot við hús hans. Fannst þar þá mann- ræfill einn, er kvað hafa ætlað að drepa Gladstone, og fann það til, að Englandi væri hætta búin af heimastjórn þeirra ír- anna. Hann hafði þá upp orðrétta kafla úr æsingaræðum Salisbury’s, og fannst það á, að maðurinn var ekki með öllum mjalla. En það sagði hann bjargað hafa G-Iadstone, þegar hann fór að heiman um morguninn, að honum sýndist hann sjá föður sinn, svo mikinn svip þóttist hann sjá með þeim. Bókmenntir. Hjálpaðu þér sjálfur. Bendingar til ungra manna, skyrðar með sönnum dæm- um og rökstuddar með œfisögubrotum ágætra manna. íslenzkað og samið hef- ur Ólafur ólafsson prestur í Gruttorms- haga. Kostnaðarmaður Sigurður Kristj- ánsson. 167 bls. 8. Aðalefni rits þessa er tekið úr enskri bók, er nefnist „Selfhelp“, eptir Samud Smiles, er ritaði ýmsar bækur í líka stefnn og fengu þær allar hinar beztu viðtökur. Kaflar úr þessari bók hafa áður birzt á íslenzku í „Lestrarbók handa alþýðu“, og þótti þá mikið til þeirra koma. „Auðnu- vegurinn“ eptir W. Matthews mun og mörg- um löndum vorum góðkunnur. Allar slík- ar bækur eiga skilið að vera lesnar með eptirtekt og umhugsun. Þær œttu að vekja meira en stundaráhrif, en því miður munu þeir sárfáir, er kemur til hugar að færa sér í nyt, það sem þeir lesa, hversu mikið, sem á því getur verið að græða. Gragn- legar bendingar og góðar lífsreglur, á- minningar um þolgæði og þrautseigju, spar- semi og sjálfsafneitun, dáð og dugnað í framkvæmdum o. s. frv., það eru allt pré- dikanir, sem íslenzka þjóðin að minnsta kosti lætur inn um annað eyrað og út um hitt. Verulegum áhrifum slíkra kenninga

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.