Þjóðólfur - 26.05.1893, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 26.05.1893, Blaðsíða 2
94 á hugsunarhátt manna og liegðun þarf naumast að búast við, en sjaldan er „góð vísa of opt kveðin“. Hin íslenzka þýðing séra Ólafs „Hjálp- aðu þér sjálfur" er ein þeirra bóka, sem hefur vekjandi og getur því einnig haft bætandi áhrif á hugsunarhátt og breytni manna. Hún er mjög aðgengileg og skemmtileg til lesturs. Málið er hreint og lipurt og yfir höfuð betur vandað, en almennt gerist. Yiðaukar þeir, er þýðand- inn hefur hleypt inn, einkum um íslenzka menn, eiga dável við. En þó finnst oss, að hann hefði getað tekið einhver fleiri dæmi úr bændastétt vorri en Jón á Gaut- löndum. Það hefði ekki þurft að lengja bókina til muna. En hvað sem því líður á þýðandinn þökk skilið fyrir rit þetta, sem hin uppvaxandi kynslóð vor ætti að kynna sér rækilega. íslendingasögur. 6. hepti (Kormáks saga), 7. h. (Vatnsdæla saga), 8. h. (Hrafnkels saga freysgoða), 9. h. (Gtunnlaugs saga ormstungu). Búið hefur (allar) til prent- unar Váldimar Ásmundarson. Kostn- aðarmaður Sigurður Kristjánsson. Fornsögur vorar hafa iöngum átt vin- sældum að fagna hjá þjóð vorri, og má því ætla, að hún taki feginshendi við þess- ari ódýru alþýðu-útgáfu. Það á vel við, að Vatnsdæla saga sé gefin út á þessu ári, sem einskonar minningarrit um þúsund ára bygg- ingu þess héraðs, því að eptir því sem dr. Guðbrandur telur, hefur Ingimundur gamli tekið sér þar bólfestu 893. Er mælt, að Vatnsdælir ætli í sumar að halda þúsund-ára-hátíð á líkan hátt og Eyfirð- ingar. Var fyrst vakið máls á þessu með „Áskorun til Húnvetninga11 (frá einum sýslubúa) í 35. tölubl. „Þjóðólfs" f. á. Fáein orð um víkinga Norðurlanda og Sigurð Jðrsalafara. Bg sé á „Fjallk.“ (X, 3.), að herra Beneelikt Gröndal er svo sem ekki af baki dottinn með að lasta hina fornu víkinga frá Norðurlöndum og setja þá skör lægra en mér fiunat rétt vera, þótt þeir væri grimmir óvinum sínum, enda sýnist hann vera tregur til að kannast við, að nokkuð gott hafi leitt af herferðum þeirra, en með því að mikil umræða um þetta efni mun ekki þykja hentugt blaðamál, þá mundi eg ekki hafa farið lengra út í það mál að sinni, hefði ekki sá maður átt í hlut, sem fyrir margra hluta sakir er mikilsverður, og hefur tek- izt á hendur það vandasama verk, að safna til þjóðmenningarsögu Norðurlanda, svo að líklega ætti honum að þykja vænt um vinsamlegar bendingar þessu máli til skýringar. Hauu segist ekkert vita um víkingana annað en rán og dráp, og það lítur jafnvel svo fit, af því sem hann hefur áður ritað, sem honum þyki það ofgott handa þeim,| að vera kallaðir „hermenn“(en það er einmitt kallað í sög- um að fara „hermaunlega“, þegar sem mest rán og dráp voru framin, svo sem þá er Egill rændi á Aski, og þau orðatiltæki eru sömu merkingar: að „fara i hernað“, „taka upp hermanna sið“ og „fara i víking"). Bg þykist þess fullvis, að jafn-víðlesinn maður og Gröudal hafi séð nóg dæmi í fyrri og síðari hernaðar-sögum til jafnmikiila grimmdarverka og sögð eru um „hina dönsku vikinga11 af römm- ustu hatursmönnum þoirra, sagnariturum þeirra þjóða, er stóð mest ógn af harðneskju vikinganna, og svo að eg taki eitt dæmi, þá mun óvíða hafa verið farið ver með sigraða raenn, en með Gyðinga, þá er Jórsalir voru eyddir af Kómverjum undir forustu Títusar, þess manns, er siðar varð svo fræg- ur af mildi sinni og mannúð, að hann var kallaður „yndi og eptirlæti alls mannkyns". Það sýnist þvi ekkert á móti því, að margir þeirra fornmanna, er voru „grimmir sem ljón“ i hernaði, hafi verið „ljúfir sem lömb“ á heimilum sínum og í hópi vina sinna. Ef víkingarnir eru höfundar Balduvssögunnar, eins og sumir halda, þá sýnir það, að þeir hafa hugsað um eitthvað fleira, en rán og dráp. Bn livað sem því líður, þá sýnist iítil ástæða vera til að rengja það, sem stendur svo víða i fornsögnnum um víkinga, að þeir hafi átt festarmeyjar og unnað þeim hug- ástum. Og að 'þvi er drenglyndi snertir, þá má það vera kunnugt Gröndal sem fleirum, að Ingi- mundur gamli skaut banamanni sínum undan hefnd sona sinna, að Þorsteinn tjaldstæðingur tók að sér skipshöfn sjúkra manna, er enginn vildi lið veita, og þjónaði þeim sjálfur meðan þeir lifðu, og að Þorvaldur víðförli varði mörgum mönnum til hjálpar hlutskipti því, er hann fékk í hernaði, og sendi hertekna menn aptur til feðra sinna og frænda. Um hina sögulegu þýðingu vikingaferðanna get eg ekki rætt á þeBsum stað, enda nægir að vísa til ágæts kafla, sem að þvi lýtur í landfræðissögu Þ. Th., og um Buðurferð Sigurðar Jórsalafara skal eg að eins taka fram, að eg var búinn að sjá rit- gerð Gröndals í Tímaritinu, þá er eg skrifaði seiuni hluta greinar minnar i „Þjóð.“, 55. thl., og fannst hann ekki draga þar neitt úr hinum fyrri ummæl- um BÍnum, heldur einmitt herða á þeim með því að láta menn skilja, að enginn útlendur rithöf- undur geti neitt um ferð Sigurðar nema Yilh. af Malmesbury. J. Skýring. Herra ritstjóri! Það mun vera alveg rétt, eins og drepið er á í blaði yðar 12. þ. m., að Guðmundur Guðmundsson sterki sé fæddur eptir bóluna 1707, en þó minnir mig, að faðir hans missti börn úr bólunni og nokkur systkin, en höfuðatriðið er rétt, eins og það stendur í eptir- málanum. Guðmundur var hálfbróðir Elínar Guð- mundsdóttur, sem eg vitna til, og hann var til lækninga hjá Þórði rektor ÞorkelsByni, og var meira að segja rekkjunautur hans og hafði margar sögur eptir honum. B,eykjavik 13. maí 1893. T. Þ. Holm. * * * Atlis. ritstj. Guðmundur faðir systkina þeirra, sem hér ‘eru nefnd (Guðmundar sterka og Elínar) var son Brynjólfs prests Guðmundssonar á Kálfa- felli í Hornafirði (KálfafellsBtað). Séra Brynjólfur er útskrifaður úr Skálholtsskóla 1720, tvítugur að aldri; Guðmundur sonur hans er því naumast fædd- ur fyr en á árunum 1720—25, og getur þá ekki staðizt tímans vegna, að hann hafi átt son, er mundi glögglega Þórð Vídalin, sem andaðist 1742, Hitt er miklu sennilegra og kemur vel heim við tímann, að Guðmundur Brynjólfsson (faðir Guðm. sterka og Elínar) hafi í æsku verið til lækninga hjá Þórði og að frú T. H. hafi farið feðgavillt. Ekki nær það heldur neinni átt, að Guðmundur Brynj- ólfsson hafi misst börn i stórubólu 1707, því að faðir hans var þá á barnsaldri, eins og áður er sagt, en árið 1762 gekk hér bóla og dó margt manna, og þá er allsennilegt, að Guðmundur hafl misst nokkur börn af fyrra hjónabandi sínu. Lík- legast er, að hér sé málum blandað á þann hátt, að Guðmundur sterki, sem mun fæddur um 1750, hafi heyrt sagnirnar um Jón biskup hjá föður sinum eptir frásögn Þórðar, og að hann hafi svo sagt þær Elínu hálfsystur sinni, er mun hafa verið 20—30 árum yngri. En auðvitað er þetta að eins senni- leg getgáta. Suðurþingeyjarsýslu 1. raai: „Yeturinn var hér almennt mjög harður; mátti heita að hann byrjaði 28. septbr. og létti af 18. marz. Síðan hefur verið ágætis-veðurátta þangað til síðastliðna 3 daga, að verið hefur kaldur norðanstormur með hríð. Töluvert var farið að minnka um hey og horfði til mikilla vandræða, en nú er öll hætta um garð gengin. Litur nú út fyrir, að fjárhöld verði góð í vor, því bæði er jörðin góð til beitar, þegar hún hefur legið svo lengi undir fönn, og svo er farið að votta fyrir gróðri, sér i lagi á við og þar sem sendið er. Sýslunefndarfundur var settur á Ljósavatni 10. f. m. af cand. jur. Einari Benediktssyni. Fá merk mál voru þar á dagskrá, nema ef telja skyldi gufu- bátsmálið, sem Þingeyingar gera ráð fyrir, að taka þátt í með vestur-sýslunum. Úr sýslunefndinni voru kosnir 3 menn til að mæta á fundi þeim, sem á að ræða þetta mál til hlítar, og hlutu kosningu: Einar umboðsmaður í Nesi, Árni prófastur á Skútu- stöðum og Sigurður bóndi á Yztafelli. Sjónleikir hafa verið leiknir á Húsavík Biðari hluta vetrarins, til eflingar harnaskólasjóði, sem Húsvíkingar eru að koma á fót hjá sér. Fyrsta kveldið áður sjónleikirnir byrjuðu hélt cand. jur. E. Benediktsson fyrirlestur um rétt og skyldur“. MANNALÁT. Sigríður Jónsdóttir á Torfalæk í Húnavatns- sýslu var fædd á Höskuldarstöðum 22. sept. 1806. Foreldrar hennar voru: Jón Jónsson, af bændaætt á Vatnsnesi, maður vel að sér í mörgum greinum, og Sigurlaug Jónasdóttir prófasts Bcnediktssonar á á Höskuldarstöðum. Þar ólst Sigriður upp til þess hún var H ára. Fluttist hún þá með foreldrum sinum að Ytrahóli, og dvaldi þar bjá þeim, til þess árið 1829, að móðir hennar dó; fór hún þá að Hvammi i Yatnsdal til sýslumanns B. Blöndals og dvaldi þar sem þjónustustúlka í 5 ár. Þar giptist hún (1834) liinum nafnkunna Jóni Sveins- syni hreppstjóra í Sauðanesi, sem þótti í sinni tíð vera fremri fiestum, ef ekki öllum leikmönnum í Húnavatnssýslu, að náttúrugáfum, dugnaði, hag- sýni og góðum drengskap í hvívetna, er Danakon- ungur sýndi viðurkenningu fyrir, með því að heiðra hann með medalíu (heiðurspeningi). Með manni sínum var Sigríður næsta ár í Sauðanesi. Því næst reistu þau bú í Tungunesi, og bjuggu þar til 1842,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.