Þjóðólfur - 28.11.1893, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 28.11.1893, Blaðsíða 1
Árg. (60 arklr) kostar 4Jkr Erlenflls 5 kr. — Borgist íyrir 15. Júll. JÓÐÓLFUR Uppsögn.bundin viö áramöt, ögild nema komi til útgef- anda fyrir 1. oktöber. XLY. árgo Reykjavík, þriðjudaginn 28. nóvember 1893. Nr. 56. Nýir kaupendur að 46. árgangi „Þjóðólfs" 1894 fá ókeypis 1. Söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum, 1. hepti, 64 bls. 2. Sömu sögu, 2. hepti, um 64 bls., er verður prentuð á næstkomandi vori, og fá hana einnig allir gamlir kaup- endur blaðsins, er í skilum standa við það. 3. Sögusafn Þjóðólfs Y., 1892, 144 bls. 4. Sögusafn Þjóðólfs VI., 1893, um 140 bls., er verður fullprentað í árs- lok. Alls yflr 400 bls. ókeypis. Útlendar fréttir. Kaupmannahöfn 7. nóvbr. Danmörk. Degar Þjóðverjar fóru að grafa skurð gegnum Jótlandseiðið í ná- Wunda við Egðuna, urðu Danir hræddir otn, að sá skurður mundi draga verzlun frá Kaupmannahöfn. Þeim hugkvæmdist Þá að gera höfn, þar sem erlendir menn gsetu geymt vörur án þess að borga toll af þeim. Höfn þessi er nú komin Iangt á leið, og er hið mesta stórvirki. Skipa- kvíarnar eru þegar fullgerðar og var far- ið að hleypa sjónum inn í þær 1. þ. m. Þó allmikið ógert enn. Það er haldið að höínin muni kosta 20 milljónir króna, en því trúa Danir, að það sé vel til vinn- andi. Frá þingi Dana eru engin tíðindi Noregur og Svíþjóð. Margir munu kannast víð Jónas Lie. Hann er eitt af beztu skáidum Norðmanna, og vinsæll mjög. Enda sýna landar hans það þessa dagana, að þeim er vel til lians, því að nálega allur Noregur tekur þátt í 60 ára afmæl- ishátíð hans, á einhvern hátt. Norðmenn eiga nú sem stendur allra manna bezt skáld, enda kunua þeir flestum betur að sýna þeim þann sóma, sem þau eiga skil- inn. Óskar konungur hefur nýlega haldið stórmenni Norðmanna veizlu i Kristjaníu. Flutti hann þar langt erindi um samband Iandanna, og hve nauðsynlegt það væri að geyma það vel. Kvaðst hann vona, að Norðmenn hefðu það hugfast við næstu þingkosningar og sýndu í því ættjarðar- ást sína. Ræðan hné einkum að umboðs- mannamálinu. Þess má geta, að Steinn þá ekki boðið. Frakkland. Mac Mahon hershöfðingi er dáinn. Hann varð 85 ára gamall. Hann hafði átt í hernaði mörgum sinnum, og þótti jafnan röskur foringi og sigur- sæll. En í ófriðinum milli Frakka og Þjóðverja 1870 sneri hamingjan baki við honum. Þá beið hann ósigur mikinn við Sedan og varð handtekinn. Frakkar virtu hann jafnan mikils og var hann forseti þar árin 1873—79. Charles Gounod er og dáinn. Hann var söngskáld ágætt og er heimsfrægur. En Frakkar höfðu naum- ast tíma til að jarða þessa merkismenn, því að þeir þurftu að knékrjúpa Rússan- um og lofa hann og halda honum veizlur. Flotadeildin rússneska, sem send var til Toulon, hefur verið borin á höndum um allt Frakkland og veizluhöldin hafa verið eiuna líkust því, sem segir í sögunni um orustuna á Heljarslóð. England. Þingið enska var svo lengi með heimastjórnarmál þeirra íranna, að því varð lítið annað að verki í sumar. Þess vegna hefur Gladstone nú kallað til auka- þings. Þar á að ræða ýms merkismál, sem urðu að sitja á hakanum. Það þyk- ir óvíst, hvort heimastjórnarmálið verður á dagskránni á næsta þingi. Hefur það orðið til þess, að Redmond, formaður Par- nellssinna, hefur heitazt við Gladstone að ganga úr liði hans, ef næsta þing fæst ekki við það mál. En andstæðir Parnells segja það ástæðulaust, og lofa Gladstone fylgi sínu sem áður, enda mun þá Glad- stone þola að missa Parnellssinna, því að þeir eru ekki nema 9. Ensku verzlunarfélagi Ienti saman við þjóðflokk þann í Suður-Afríku, er kallast Metabelar. Þeir eru hraustir menn og hugprúðir og hafa sýnt ágæta framgöngu, en fallið hafa þeir, eins og hráviði fyrir skotum Eugla. Stjórnin enska skarst að síðustu í leikinn, en áður en lið hennar kom, höfðu Metabelar beðið ósigur og ver- ið flæmdir úr landi. Eru þeirnú nauðug- lega staddir. Austurríki. Kosningarlög í Austur- riki eru mjög ófrjálsleg, og er kosningar- réttur byggður á fjáreign, og hafa auð- menn mörg atkvæði. Þetta vildi Taafíe ráðaneytisforseti laga, og bar upp frum- varp, er rýmkaði kosningarréttinn mikið. Hver sá, er verið hefur í einhverjum skóla á að fá kosningarrétt, og slíkt hið sama þeir, er borga beina skatta eða hafa ver- ið í her Austurríkismanna. En vinnumenn og fátækir borgarar eiga að fá kjörgengi. Móti þessu frumvarpi risu þingmenn með svo miklum ákafa, að Taaffe varð að víkja úr sæti; en ekki mun sá betri, sem eptir hann kemur. Sá heitir Windischgrátz. Bandaríkin. Silfurlög þau, er kennd voru við Shermann, stofnuðu fjárhag Bandamanna í mikla bættu. Cleveland hefur því látið sér annt um að afnema þau, enda tókst það nú um daginn. En þó varð áður orrahríð mikil í öldungaþinginu, og var sótt og varið af miklu kappi. Cleve- land og hans menn báru þó af hinum. Y i ð a u k i (eptir enskum blöðum til 11. þ. m.). Borgarstjórinn í Chicago, Carter Harrison, var myrtur 28. okt. af manni nokkrum, Prendergast að nafni, ættuðum frá Englandi. Hafði hann áður veriðlög- regluþjónn, en var vikið frá því starfi og vildi nú komast að því aptur. Þóttist liann hafa stutt Harrison til að ná endur- kosningu til borgarstjóraembættisins og ritaði honum hótunarbréf, ef hann sinnti ekki beiðni sinni, en er það tjáði ekki, gekk hann rakleiðis heim til hans, fékk inngöngu í herbergið, þar sem Harrison lá á legubekk, og hleypti þegar af 4 skamm- byssuskotum, og beið Harrison bana af þeim að 20 mínútum liðnum. Morðinginn var óðar tekinn höndum og fluttur ívarðhald, en nærri lá, að múgurinn hrifí hann úr höndum Iögreglunnar og dræpi hann. At- burður þessi vakti mikla gremju meðal borgarbúa, og sýningarstjórnin ákvað, að

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.