Þjóðólfur - 28.11.1893, Síða 2
222
engin opinber hátíðahöld skyldu eiga sér
stað við uppsögn sýningarinnar.
Ráðgjafaskipti eru enn einu sinni orð-
in á Grrikklandi. Hefur konungurinn falið
Trikupis enn á ný að mynda ráðaneyti.
Óaldarmenn (anarkistar) á Spáni láta
alimjög til sín taka. Að kveldi 7. þ. m.
var sprengikúlum varpað iun í leikhús í
Barcelóna og biðu þar 30 manns bana af,
en margir meiddust. Gimsteinakaupmaður
nokkur, er það kveld var staddur í leik-
húsinu og komst þaðan heill á hófi varð
þess var, er hann kom heirn til sin, að
bófar höfðu brotizt inn í hús hans og stol-
ið þaðan yflr 20,000 kr. virði. Fjórum
dögum áður kviknaði í dynamitfarmi á
höfninni í Santander og biðu þar bana
hátt á 3. huudrað mauna, en mjög margir
meiddust til skemmda og mörg hús, er
næst stóðu höfninni, hrundu. Ætla sumir,
að óaldarmenn hafi valdið þessu spellvirki.
Spánarstjórn kefur nú tekið alvarlegar og
strangar ákvarðanir gegn þessum bófum,
til að Btenuna stigu fyrir þessum óföguuði,
er varpar miklum ugg og ótta yfir landið.
Frá Vínarborg ritar fríherra von
Jaden Þjóðólfi á þesssa leið 1. þm.: „í
október liélt. Ferdinand von Saar í Vín
hátíðlegan 60. afmælisdag sinn. Síðan
Hamerling leið er Saar hið helzta austur-
ríska skáld á þýzka tungu. Við þetta
tækifæri var hann sæmdur miklurn heið-
ursgjöfum, og bæjarráðið í Vínarborg sendi
honum 1000 kr. í gulii. Sem leikrita- og
skáldsagnahöfundur er Saar í miklu áliti
og er kelzt að telja þessi rit hans: „Inno-
cens“, „Hinrik 4.“, „Bræðurnir de Witt“,
„ThassiIo“, „Vínarljóð11 o. s. frv.
21. des. næstk. verður hinn ágæti, þýzki
skáldsagnaköfundur Fhilipp Qalen 80 ára
gamall. Hann heitir réttu nafni Ernst
Philipp Lange og er dr. med. og yfirker-
læknir í Potsdam hjá Berlin“.
Látinn er 25. sept. Björn Pétursson
Únítara-prestur í Winnipeg 67 ára gamall
(f. 2. ágúst 1826). Hann var sonur Pét-
urs prests Jónssonar, er síðast hélt Val-
þjófsstað og Önnu Björnsdóttur prests í
Kirkjubæ Vigfússonar, lærði nokkur ár í
skóla en lauk ekki námi, kvæntist Ólafiu
Ólafsdóttur prests Indriðasonar og fór að
búa sem bóndi; var um tíma alþingism.,
en flutti til Ameríku með allt fólk sitt
1876. Fyrir milligöngu Kristofers Jan-
sons skálds og Únítara-prests i Minneapolis
varð hann trúboði Únítara meðal Vestur-
íslendinga 1887, og vann að því starfi til
dauðadags, með hinni mestu alúð og sam-
vizkusemi. Hann var að vitni þeirra, er
þekktu hann skýr maður og skynsamur
og vel að sér í mörgu, einkar skemtinn
og glaðlyndur og var því jafnan virtur
og velmetinn. Jafnvel blað andstæðinga
hans „Lögberg11 fer hlýlegum orðum um
hann látinn.
iætlun um gufuskipaferðir hins sam-
einaða danska gufuskipafélags næsta ár,
kom nú með póstskipinu. Er hún nokk-
uð lík áætluninni frá 1891, strandferðirn-
ar 5 að tölu norðan um land, (burtfarar-
dagar frá Höfn: 20. marz, 17. maí, 3.
júní, 17. júlí og 14. sept.) og jafnmargar
vestur og norður um land frá Reykjavík,
(burtfarardagar þaðan: 22. apríl, 14. júní,
4. júlí, 14. ágúst og 14. okt.) en á síð-
ustu ferðinni kemur skipið þó ekki nein-
staðar við fyr en á Sauðárkrók. Frá
Reykjavík til ísafjarðar fer Laura tvisvar
sinnum (í maí og október en ekki í sept-
ember). Á Borðeyri á „Thyra“ að koma
í einni ferð frá Höfn (1. ágúst), og í einni
ferð fráReykjavík (20. ágúst), en á Blöndu-
ós á „Laura“ að koma í einni ferð frá
Höfn (22. júní) og í einni ferð fráReykja-
vík (9. júlí).
Nýtt skip, er nefnist „Nidaros11 á að
koma eina aukaferð beina leið til Reykja-
víkur 16. júlí og fara þaðan aptur 24. s. m.
Ný lög staðfest af konungi 26. okt.
1. Fjárlöq fyrir árin 1893 og 1894.
2. Fjáraukalög fyrir árin 1890 og 1891.
3. Lög um skaðabœtur fyrir gœzluvarð-
hald að ósekju m. fl.
4. Lög um atvinnu við siglingar.
5. Lög um að stjbrninni veitist heimild
til að selja nókhrar þjóðjarðir.
Fyrsta erlend gjöf til liáskólasjóðs-
ins. Með þessari póstskipsferð voru rit-
stjóra þessa blaðs send 50 gyllini (rúmar
70 kr.) sem gjöf til íslenzka háskólasjóðs-
ins, frá félagi nokkru í Bollesö í Waag-
thal á Ungverjalandi. Fylgdi þar með mjög
vingjarnlegt bréf frá aðalforstöðumanni fé-
lagsins Adalbert von Majerszky, dags. 14.
f. m., ásamt stuttri grein um þetta fyrir-
tæki vort, er hann hafði látið prenta í
blaði félagsins, og er húu samhljóða á-
skorun, sem fríherra von Jaden í Vínar-
borg hefur sent ýmsum austurrískum
blöðum, eins og áður hefur verið minnzt
á hér í blaðinu. — í nafni hinna annara
nefndarmanna leyfum vér oss að votta
hinu ungverska félagi og formanni þess,
■f
vort innilegasta þakklæti fyrir gjöf þessa,
hina fyrstu, er oss liefur hlotnazt frá er-
lendum þjóðum, og ætti þessi hluttekning
ókunnugra manna, að hvetja landa vora
til að sinna þessu framtíðarmáli voru af
alliuga, enda væri það þjóð vorri til mestu
minnkuuar, að þiggja gjafir frá öðrum,
en gera iítið sem ekkert sjálf til að hrinda
fyrirtækinu áíeiðis. Vér viljum því nota
tækifærið til að skora enn einu sinni á
þá landa vora, er liafa fengið samskota-
áskoranir frá oss nefndarmönnum, að taka
nú þegar til starfa, og safna samskotum
hver í sinni sveit.
Bókasafn Kricgcrs á landsbókasafnið
í Reykjavík að fá alit, samkvæmt arfleiðslu-
skrá hans, að því leyti, sem háskólasafnið
í Kaupmannahöfn þarf ekki að vinsa úr
því handa sér. [Eptir ,,Sunnanfara“].
Póstskipið „Laura“ kom hingað loks
aðfaranóttina 26. þ. m. Hafði legið lengi
í Færeyjum. Með því kom Einar Finns-
son vegfræðingur frá Noregi, Jóhannes
stúdent Sigurjönsson frá Ameríku og 3
aðrir íslendingar þaðan.
Dáinn er 15. þ. m. í Stykkishólmi
Sigurður Jónsson sýslumaður Snæfellinga,
systurson Jóns Sigurðssonar, að eins 42
ára gamall (fæddur á Steinanesi við Arnar-
fjörð 13. okt. 1851). Hann var útskrifað-
ur úr Borgaradyggðaskólanum í Kaup-
mannahöfn 1870, varð kandídat í lögum
1875 með 2. einkuun og sýslumaður í Snæ-
fellsnes- og Hnappadalssýslu 1878. Hann
var kvæntur Guðlaugu dóttur Jens rektors
Sigurðssonar, og áttu þau ekki börn. Sig-
urður sýslumaður var rnikill vexti og gervi-
legur sýnum, drengur hiun bezti og yfir-
höfuð vel látinn af sýslubúum sínum.
Dáinn er 7. növember Jón Magnússon ekkju-
maður á Kúludalsá 83 ára gamall: Hann varfædd-
ur og uppalinn í Norðurárdal, þríkvæntur, eignað-
iat að eina 1 barn, sem dö ungt, bjó i 57 ár á 13
jörðum i Mýra- og Borgarfjarðarsýslum; hann var
aldrei auðugur maður en jafnan við góð efni; lítill
var bann jarðabótamaður, en greiðamaður góður,
0g skilamaður mikill á almenn gjöld, enda hvíldu
þau mjög á konum. Hann sagðist hafa goldið
skatt öll sín búskaparár, meðan skattur var gold-
inn, 48 ár, og offur til prests, nema allra fyrstu
árin. Slíkir bændur greiða mikið fé til al-
uiennra þarfa. Til sýslumanns, prests, kirkju að
óglcymdu sveitarútsvari, sem opt var þungt, mun
Jón sálugi hafa goldið að meðaltali fullar 100 kr.
árlega eða sjálfsagt alls 5,700 kr. 20/ii 93- S.
Þótt seint sé, skal þess hérmeð getið, að hinn
11. maí siðastl. andaðist hér á eyju veitingamaður
Johann Jörgen Johnsen, hálfbróðir Sigfúsar alþm.
Árnasonar og þeirra bræðra. Dauðastríð Jóhanns