Þjóðólfur - 05.01.1894, Page 7

Þjóðólfur - 05.01.1894, Page 7
7 un fyrir, og efast menn mjög um, að Danir hafi sjálfir slökkt meiru niður tím- ann, sem þeir urðu að bíða eptir hest- unum í Reykjavík og sem þeir kvarta yfir. Vera má, að eitthvað af þessu hafi verið fylgdarmönnunum að kenna, en hér a. m. k. er sökin látin bitna á ferða- mönnunum sjálfum, og hafa blaðagrein- arnar um för þeirra síður en ekki bætt fyrir þeim. Ef Danir leggja optar út í sams konar leiðangur væri óskandi, að þeir hefðu ofuriítið viðfeldnari náunga til að stýra förinni, en þessi Thomsen sýn- ist hafa verið, og svo væri ekki verra, að þeir skrifuðu það á bak við eyrun, að vér sveitamenn erum líkir öðrum mönnum, a. m. k. í því, að vér gefum ekki um, að gestir séu með nefin niðri í hverjum krók og kima í híbýlum vorum; köllum vér þá „búrsnata" er svo hegða sér, og eru þeir hverjum manni hvimleiðir. Um stjórnarmál er lítið rætt; þingtíð- indin eru nú á ferðinni milli manna. Það voru sérstaklega tvö mál, er þetta hérað snertu og eigi náðu fram að ganga, að aukalæknir væri settur í uppsveitum Árnes- sýslu, og að landssjóður keypti Geysi og Strokk. Að því er hið fyrra málið snert- ir, huggum vér oss við, að ekki vant- aði nema herzlumuninn til þess að því yrði framgengt, og búumst því við bæn- heyrslu næst. Að því er hið síðara snert- ir, þá fengum vér það sem mest var vert fyrir sveitina, að ákveðið var að gera flutningabraut alla leið frá Reykjavík til Geysis. Eigi teljum vér neitt að því, þó að brúartollurinn væri felldur; getum vér vel unnt mönnum austan Hvítár að eiga frjálsa för um brúna; vera má og, að þar komi einhvern tíma, að vér, sem búum utan Hvítár, leggjum leið vora til Eyrarbakka um þá brú. Vér vonum, að brúargæzlan þurfi eigi að kosta stórfé, eins og nú er, en auðsætt, að mikið hefði kostað að heimta inn tollinn, og tvísýnt, að afgangurinn af tollinum hefði orðið svo mikill, að hann borgaði þau óþægindi, er af honum leiddi. Yfir höfuð mun vera óhætt að segja, ad almenningur hér sé venju fremur ánægður með aðgerðir þingsins í sumar, og einkum er vegalögunum tekið með miklum fögnuði. Úr Mosfellssveit. Það er ekki með degi hverjum, að blöð- in flytja fréttapistla af Mosfellingum, eða héruðunum í kringum Reykjavík. Það er eins og þau sjái ekki það, sem næstþeim ir, eða taki ekki nálægari héruðin til greina, því að næstum í hverju blaði fáum við að iesa lengri eða skemmri fréttagreinar ut- ast af landshornum, okkur til mikils gagns og fróðleiks. Þess vegna mættum við ætla að þeir; „landshornabúar“ hefðu gagn og gaman af að frétta af þeim verum, sem lifa í kringum höfuðstað landsins. Eg er sannfærður um, að almenningur metur ekki að verðleikum gagn það, er sannar og glöggvar fréttagreinar geta kom- ið til leiðar. Því að ef menn mættu ganga að því vísu, að ágrip af gerðum, fram- kvæmdum eður háttalagi þeirra, væri jafn- óðum skráð á prenti mundi margt fara öðru vísi en farið hefur. Þá mundi sam- keppnin setjast á veldisstól sinn og knýja menn til meiri framfara. Veturinn er nú genginn í garð, og tals- verður kuldabragur á honum, það sem af er; skiptir ýmist á um útsunnan snjó eður norðankulda með allmiklu frosti. Þrátt fyrir hinn góða grasvöxt og ágætu nýtingu í sumar má ganga að því vísu, að ýmsir hafi ekki sett skynsamlegar á heybirgðir sínar en að undanförnu; það hefur verið ærið þrálát ættfylgja hjá mörgum hér, „íslenzki hor- innu, sem ætíð hefur sínar illu afleiðingar í för með sér, ekki sízt í efnalegu til- liti, heldur og einnig að svipta skepnuna þeim rétti, er við skyldum ætla, að náttúr- an mundi veita henni, þeim rétti, er við sjáum ganga sinn eðlilega gang á sumrin, en sem maðurinn hefur tekið að sér að beina götu yfir vetrartímann, en heppnast æði misjafnlega. Það virðist því heil furða, hve menn eru seinir á að átta sig á þeirri götu, er þeir upphaflega lögðu út á; það kemur æði opt fyrir, að þeir villast svo hraparlega, að þeir koma aptur á sömu endastöðvarnar, er þeir lögðu frá. Þeir hafa algert hausavíxl á áformi sínu; þeir láta skepnuna vaxa inn í sjálfa sig, unz hún verður urtum þeim að bráð, er áttu að endurlífga krapta hennar með vorinu; þeir framleiða þannig plöntur í stað dýra. Hvað félagsskap snertir, vill það vera á sömu bókina lært, hver potar sér og þykist sæll og heppinn, ef hann dettur niður á eitthvert fangaráð til að draga fram lífið á sem einfaldastan hátt. — Það er altítt hér, að menn hafa ekki þol til að bíða uppskerunnar, hvort sem um fé- lagsskap eða annað er að ræða, heldur neyta frækornsins um sjálfan sáðtímann. Eg álit þeim mönuum þannig varið, sem flytja heyið í kaupstaðinn jafnóðum og þeir losa það á sumrin, til að fá aura fyrir til að lifa á þann og þann daginn, eða þeim, sem láta sig muna um að vera samtaka í góðum félagsskap fyrir 1—2 kr. virði. Allur fé- lagsskapur og allar framkvæmdir Mos- fellinga koma eingöngu fram í tveimur félögum: búnaðarfélagi og Iestrarfélagi. Lestrarfélagið var stofnað fyrir 3 ár- um af nokkrum ungum mönnum, körlum sem konum; aldurinn er nú ekki hár, enda má með sanni segja, að það sé enn í bernsku, þrátt fyrir sívaxandi lestrar- fýsn, sem virðist þó vera að vakna hjá fólki. Hvað búnaðarfélagið snertir, þá hefur það komið talsverðu góðu til leiðar, fyrst og fremst með að útvega mönnum verk- færi til að vinna með, og svo nú tvö sið- ustu árin með verðlaunum, sem það hefur veitt fyrir unnar jarðabætur. Heiztu jarðabœtur hér eru túnasléttur. og hlöðubyggingar. hvorttveggja sumstað- ar í nokkuð stórum stíl, en sumstaðar alls ekki neitt. Samgöngumál eru hér dauð og dofin, enda hafa menn ekki af góðum samgöngumeðulum að segja innan héraðs, þó að margur mundi hugsa annað, sem veit af því, að milli 30 og 40 manns hafa unnið að akbrautalagningu eptir endilöngu héraðinu í sumar; en því er a'!t öðruvísi varið. Braut þessi liggur hér svo algert á bæjabaki, að hver meðal hugsunarsamur maður mundi hafa valið sér þá leið, ef hann hefði ætlað sér að strjúka úr Reykjavík austur yfir Mosfellsheiði. — Hreppsvegir eru hér allir steyptir í gamla mótinu: þverfets breiðar, en miklu dýpri, hlykkjóttar moldar- og melgötur, að mestu leyti myndaðar af hestahófunum og fram- rennsli vatnsins. Á Eligiusmessu 1893. ’ Heyrandi í Holti. Mannalát. Hinn 19. október f. á. andaðist að Snæ- foksstöðum í Grímsnesi merkiskonan Sig- ríður Guðmundsdöttir, fædd 1824. For- eldrar hennar voru Guðmundur Þorkelsson frá Ásgarðí og Katríu Bjarnadóttir frá Kotferju í Flóa Bjarnasonar. Guðmundur og Katrín bjuggu í Öndverðarnesi og þar var Sigríður fædd og uppalin. Hún gipt- ist vorið 1852 Jóni Magnússyni Hjörts- sonar frá Snæfoksstöðum og bjuggu þau jafnan síðan að Snæfoksstöðum. Þau áttu tvö börn, son og dóttur. Sonurinn, Guð- mundur, drukknaði rúmlega tvítugur í fiskiróðri úr Þorlákshöfn með Ólafi Jó- hannessyni frá Dísastöðum, en dóttirin,

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.