Þjóðólfur - 26.01.1894, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 26.01.1894, Blaðsíða 2
18 Nýtt veiðiáhald, er mun öldungis óþekkt hér á Suðurlandi, en hefur verið notað sumstaðar á Vesturlandi á síðustu árum, er eins konar gaddagrind eða plógur til að ná upp kúfskeljum af sjávarbotni. Fiskurinn í kúfskeljunum — kúffiskurinn1, sem svo er nefndur — er hin bezta beita, að vitni þeirra, er reynt hafa, engu síður en kræklingur, sem er sömu tegundar. Af þvi að mörgum ókunnugum mun þykja fróðlegt að heyra, hvernig plógur þessi er notaður til að ná beitunni, setjum vér hér stutta skýrslu um það efni frá Einari gullsmið öíslasyni í Hringsdal við Arnarfjörð (sunnanv.), einhverjum fram- kvæmdarsamasta dugnaðarbónda þar um slóðir. Hann segir svo: „Kúffiskurinn er áreiðanlega þar fyrir landi, sem hvítleitur sandur er með smá- um kúfskeljabrotum, optast við útnes, þar sem brim er á 5—8 faðma dýpi, en inn á fjörðum er hann grynnra, þetta á 2—4 faðma dýpi, og opt þar sem mikið er af honum má grafa hann upp um stórstrauma, helzt á útmánuðum. Aðferðin að taka hann upp af sjávarbotni er tvennskonar, eptir því sem mér er kunnugt. Önnur er sú, að maður hefur kaðal svo langan, er nái frá landi þangað sem kúffiskurinn er mestur fyrir. Kaðall þessi er svo festur í plóginn. Auk þess eru hafðar tvær „Iínur“ og er öunur fest framan í plóginn hjá landfestinni, en hin í grindina á plógn- um að aptanverðu. Pví næst er plógnum hleypt til botns þannig, að hann komi nið- ur á tennurnar. Svo eru menn á landi með litla vindu (gangspil), og draga plóg- inn svo langt að landi, sem þörf gerist. Að því búuu er hann dreginn upp í bát- inn og skeljunum hellt úr riðnum snæris- poka, sem festur er við plóggrindina að aptanverðu. — Hin aðferðin er sú, að mað- ur hefur stöðugan bát, sem lagður er við akkeri, og svo er höfð vinda í bátnum, plóglínan sett á hana og plógurinn dreg- inn að. Hæfilegt mun vera að flytja plóg- inn 30—40 faðma frá bátnum, sem vind- an er höfð í, og draga svo plóginn upp, þegar plóglínan fer að liggja ofslök frá vindubátnum, því að annars rífa ekki 0 í daglegu tali er jafnan talað um kúfisk og Mskeljar og ritað svo, en það er eflaust rangnefni og á að vera tó/fiskur, tó/skeljar o. s. frv. (af kúfw — ávöl bunga) sbr. húfungar, sem optast er ritað „kufungar“, er mun miður rétt („kuðungur" mun vera afbökun, þótt orðið komi fyrir í óeigin- legri merkingu í Biskupaannálum Jóns Egilssonar og sé nú mjög almennt í daglegu tali). tennurnar á kambinum nóg niður í kúf- fiskinn. Það verður að gæta þess, að plógtennurnar sljófgist ekki, því að þær þurfa að vera beittar vel, svo að plógur- inn hlaupi ekki upp af skelinni, því að hún liggur víða þétt saman“. Höfundur jskýrslu þessarar var stadd- ur hér í bænum fáeina daga næstl. haust (fyrstu dagana í okt.) og ætlaði hann sér þá að vekja eptirtekt manna hér syðra á plóg þessum og sýna, hvernig ætti að smíða hann, en sakir naumleika tímans gat hann ekki komið því við, en skildi eptir teikningu af verkfæri þessu hjá Birni Hjaltesteð járnsmið og mun hún vera til sýnis hjá houum. Má sjálfsagt smíða plóg- inn eptir þessari teikningu, og væri æski- legt, að einhverjir vildu taka sér fram um það. Að vísu höfum vér heyrt suma sjó- menn segja, að enginu kúffiskur væri hér við Faxaflóa, að minnsta kosti ekki að neinu ráði, en „sá veit ger sem reynir“ og það hefur mag. Bened. Q-röndal sagt oss, að ailmikið væri t. d. af honum inn á Kollafirði hjá Þerney, „inn í sundurn11, sem kallað er hér, og svo getur víðar verið. En það vill opt verða svo, þá er um ein- hverjar nýjungar til framkvæmda er að ræða, ekki sízt hér á Suðurlandi, að eng- inn nennir að hefjast handa eða byrja á neinu. Áhugaleysið er svo mikið og deyfð- in og vanafestan svo rótgróin, að furðu gegnir. Vestfirðingar standa Sunnlending- um yfir höfuð mikíu framar, að því er allan sjávarútveg og sjómennsku snertir, enda græða þeir miklu meira á þessum atvinnuveg, af því að þeir stunda hann með meiri hagsýni og dugnaði. Það er viðurkennt. Að því er áhald þetta snertir, sem áður er umgetið, virðist ekki hundrað í hættunni, þótt einhverjir útvegsbændur reyndu það hér, því að þótt það kæmi í ljós, að ekki fengist nægur kúffiskur til beitu hér á Faxaflóa, þá mætti eflaust nota þetta sama áhald til að ná upp kræklingnum. Væri þá ekki mikið unnið að sleppa við alla þá vosbúð, allan þann hrakning, sem menn hér verða að þola í „beitufjöru“? Enginn sjómaður mun neita því, að beitufjöruvinna sé eitthvert hið versta verk er hugsazt getur, einkum í misjöfnu veðri, sem opt ber við. Væri það ekki þess vert, að sjómenn, eða rétt- ara sagt útvegsbændur hér syðra, tækju þetta málefni til athugunar, og hugsuðu um að fá sér hentugt verkfæri til að ná beitunni með, hvort heldur það væri kúf- fiskur eða kræklingur.? Vér höfum nú bent á þennan plóg, sem reynzt hefur mjög vel á Vesturlandi. Hér er opt mik- ill hörgull á kræklingsbeitu og afarillt að ná henni, og væri það mikil framför fyrir sjávarútveginu hér syðra, ef menn gætu fengið kúffisksbeitu jafnframt, og það án þess að kafa eptir henni ofan í sjóinn. Það er óneitanlega eitthvað hálf viðvaningslegt við þessa köfunaraðferð, auk þess sem hún stofuar lífi manna í hættu sakir kulda og vosbúðar. Hver vill nú verða fyrstur til að ríða á vaðið og gera tilraunir í þessa átt? Að halda góðum, gömlum venjum er gott en að brjóta bág við gamlar óvenjur og setja eitthvað nýtt og betra í staðinn, er til framfara og umbóta horfir, það er bein skylda, og sá er fyrstur gerir það í verkinu á miklar þakkir skilið Dómur í „plankamálinu“ svonefnda úr Vestur-Skaptafellsýslu var kveðinn upp í landsyfirrétti 22. þ. m. Tildrög máls þessa voru þau, að sýslumaðurinn í Skapta- fellssýslu, Guðlaugur Guðmundsson, hafði látið selja á þremur uppboðum þar í sýalu mikið af samkynja söguðum plankavið m. fl. smáspýtum, er rekið hafði á fjörur í Leiðvalla- Álptavers- Hvamms- og Dyr- hólahreppum í febrúar, marz og snemma í apríl. f. á. Skoðaði sýslumaður reka þennan sem „strand“ eptir 1. gr. í opnu bréfi 4. maí. 1778, sbr. lög um skipströnd 14. jan. 1876, 4. og 22.—25. gr., og var hinn setti amtmaður, Kr. Jónsson á sama máli og hann, eins og tekið er fram í dómsástæð- unum, en á uppboðsþíngi í Loptsalahelli í Mýrdal 17. apríl f. á. mótmæltu eigendur og umráðamenn rekatjaranua í Hvamms- og Dyrhólahreppum þessari sölu sýslumanns fyrir hönd hins opinbera og gerðu tilkall til rekans fyrir sjálfa sig og báru fyrir sig 2. og 3. gr. í opnu bréfi 4. maí 1778, sbr. opið bréf 2. apríl 1853, en sýslum. tók ekki mótmæli þeirra til greina, og lét selja rekaviðinn, um 80 tylftir. Áfrýjuðu þá 23 fjörueigendur þessum úrskurði sýslu- manns til landsyfirréttarins til ógildingar. í dómsástæðum yfirréttarins er tekið fram, að í hreppum þessum hafi ekki rekið af skipsbrotum nema smábrot ein, er ekki hafi numið því verði, er kansellíbréf 26. ág. 1809 tiltekur, og til þess að planka- reki þessi geti heimfærzt undir 1. gr. í opnu bréfi 4. maí 1778, þá verði hann að geta haft „Navn af strandet Skib og Gods“, en það verði því að eins sagt, að skips- skrokkur fylgi rekanum, eða að hann

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.