Þjóðólfur - 04.01.1895, Page 1

Þjóðólfur - 04.01.1895, Page 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr.—Borgiat fyrir 15. júll. Dppsögn, bundin yið úramöt, ögild nema komitilútgefanda fyrir 1. oktöber. ÞJÓÐÓLFFE. XLVII. árg. ReykjaYÍk, fðstndaginn 4. janúar 1895. Nr. 1. Til kaupenda Þjóöólfs. Ofurlítið ávarp þykir Pjóðólfi hlýða að flytja kaupendum sínum nú um áramótin, um leið og hann þakkar þeim fyrír gamla árið og óskar þeim gleðilegs nýárs að gömlum og góðum sið. Það hefur löngum verið kvartað yfir óskilvísi blaðakaupenda á íslandi og ef- laust ekki um skör fram, því satt mun það vera, að sumir telja sér ekki skylt að borga blöð, þótt þeir kaupi þau. Þeir ímynda sér, að þær skuldir séu réttminni en aðrar skuldir, en hafa þó stundum komizt að raun um, að svo er ekki, ef í hart hefur farið, enda munu flestir nú horfnir frá þeirri skoðun. En hitt er annað mál, að ritstjórar beita sjaldnast lögsókn- um við kaupendur sína fyr en í fulla hnefana, og af því mun þessi öfuga skoð- un sumra manna á blaðaskuldum vera sprottin. Eins og það er sjálfsagt að víta óskil- vísi og prettvísi manna, þá er ástæða er til, eins er það sjálfsagt að geta þess, sem betur fer, ef kaupendur leitast við að sýna góð skil. Hvað „Þjóðólf" snertir þessi 3 ár, er hann hefur verið í vorum höndum, þá getum vér yfir höfuð þakkað löndum vorum fyrir þann velvilja, er honum hefur verið sýndur, og eins fyrir dágóð skil. Það eru auðvitað nokkrir menn, og þeir ekki allfáir, er hafa reynzt miður áreiðanlegir í viðskiptum sínum við oss, en hinir eru miklu fleiri, sem hafa reynzt mjög vel, og væri rangt að láta þánn raeiri hluta eiga óskilið mál með hin- um, en þess hefur ekki jafnan verið gætt, heldur öllum verið gert jafnhátt eða rétt- ara sagt jafulágt UDdir höfði. Einkenni- legt er það, að skilvisi manna er allmjög mismunandi í hinum einstöku héruðum. Einna mestur hluti óskilvísra blaðakaup- enda er tiltölulega í Glullbringusýslu og Reykjavíkurbæ, og getur verið, að efna- hagur manna eigi nokkurn þátt í því, en alls ekki að öllu leyti. Þó eru skilamenn- irnir í þessum plássum fleiri en hinir, svo er fyrir þakkandi, og þeir skilvísu eru þó sumir hverjir alls ekki efnaðri en hinir. Góður vilji og samvizkusemi er einatt drjúgari í þessu efni heldur en geta. Þau 3 ár, sem vér höfum stýrt „Þjóð- ólfi“, höfum vér sannfærzt um það betur og betur, að sú stefna, sem hann hefur fylgt í þjóðmálum, sé mjög þokkasæl öll- um meginþorra þjóðarinnar, og þykir oss það bera gleðilegan vott um, að allur stjórnsleikjuskapur, hálfvelgja, stefnuleysi og hringlandi á öllum áttum, sé fráhverf- ur þjóð vorri, eins og vera ber og bet- ur fer. Já, því fer betur, að sjálfstæðis- þrá íslendinga er ekki að dvína, heldur að dafna. Það hefur ekki enn tekizt að kreista kraptana úr kögglum íslendinga eða að kúga og kyrkja kjark þeirra og þrek í baráttunni fyrir frelsi og framför- um. Að glæða og örfa sjálfstæðismeðvit- und og framsóknarþrá þjóðarinnar hefur „Þjóðólfur" Ieitazt við að gera og mun halda þeirri sömu stefnu eptirleiðis, þrátt fyrir mótspyrnu og meginhatur nokkurra manna, er ekki virðast trúa á né tigna annað meir í víðri veröldu en útlent drottn- unarvald og sjálfa sig. Ekki verður því neitað, að „Þjóðólfur11 hefur lent í nokkrum erjum og orðahnipp- ingum síðastl. 2 ár, sérstaklega við einn stirðlyndan náunga á næstu grösum, sem margir munu kannast við, og þarf ekki frekara um það að tala hér. „Þjóðólfur“ hefur aldrei að ástæðulausu seilzt í neina einstaka menn með illindum að fyrra bragði, en þótt hann hafi stundum stjakað ofurlítið við nærgöngulum ófriðarseggjum, mun enginn geta vítt hann fyrir, er hlut- drægnislaust vill líta á málavexti. Því fer fjarri, að vér viljum eingöngu þakka ritstjórn vorri hina auknu útbreiðslu, er blað vort hefur fengið á þessum tíma, því að miklu fremur þökkum vér það ljúf- um undirtektum, umburðarlyndi og góð- vilja landa vorra, er margir hverjir hafa stutt blaðið drengilega með kaupendafjölg- un og góðri skilsemi, frekar en vér gátum búizt við í upphafi, þá er vér tókum við blaðinu í fremur bágu árferði og bllum ókunnir. Það var alls ekki glæsilegt út- lit og allmikið á hættu lagt, hvernig fara mundi, enda mun fáum hafa verið það ljósara en oss, hve mikill vandi fylgdi því starfi, og hversu teflt væri á tvær hættur að ráðast í það. En þá er jafnvel hefur úr því ræzt, eins og orðið er, þá getum vér nú verið miklu ókvíðnari fyrir fram- tíð blaðsins, en vér vorum þá, sérstaklega sakir þess, að nú erum vér kunnir orðnir kaupendum þess og höfum fengið ýmsa góða útsölumenn víðsvegar um land, er vér vonum, að sýni blaðinu jafnmikinn góðvilja og áreiðanleik í viðskiptum eptir- leiðis, eins og þeir hafa gert hingað til. Hvað oss snertir persónulega, þá höf- um vér gert oss mikið far um að rækja starf vort sem samvizkusamlegast og lát- ið oss litlu skipta, þótt blað vort hafi bakað sér óvild á sumum stöðum eða meðal vissra stétta. Hjá því verður ekki komizt, enda kemur engum skynbærum manni til hug- ar, að ætla sér að geðjast öllum. Það er líka sannast að segja, að „Þjóðólfur“ hefur ekki átt því að fagna. Með lögsóknum og öðrum gauragangi, rógi o. fl. hefur verið reynt að hnekkja honum, en lítt munu þau ráð duga til þess. Að kúga málfrelsi á landi voru á þann hátt mun naumast takast. Að svo mæltu óskum vér og vonu'm, að þetta nýbyrjaða ár verði landi voru heilla- og hamingjuár, og að vegur og velmegun þjóðar vorrar eflist og blómgist meðan aldir renna. Ritstj. Kvæði, ort af Gesti Pálssyni þá er hann var í skóla, (áöur óprentaö). Líð þú rótt af himni háum, helga sól, að ægi bláum; foldu faðmar nótt. Blundar þjóð að baki drauma, blundar alda’ á djúpi strauma, jörð og haf er hljótt. Einn eg sit með bleika brá, blund ei nokkurn festa má, festa má, ei festa má. Svala hverjum særðum barmi, sveiptu’ hann þínum friðararmi, blundsæl blíða nótt; þerrðu tár af þreyttum hvörmum, þýðum svefni léttu hörmum; ó, hve allt er hljótt! Yak þú einn við úthaf blátt. íslands vörður, Snæfell hátt.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.