Þjóðólfur - 04.10.1895, Page 4
194
eptir, er lifa fram á vorið, og þð að þessi fáu lömb
lifi af sumarið á eptir, eru þau að öllum líkindum
svo spillt innan, að þau verða ekki jafngóð og b(ia
svo áfram að þessu skemmda fóðri, ef þau ekki
drepast úr fjárpestinni á næsta hausti.
Ekki fer betur, þegar ánum er gefið sterk-
ornað bey seinni part vetrar, þegar „eldið“ er farið
að ganga á þær, þá er það svo sem sjálfsagt, að
þær veikjast og láta dauðum lömbunum. Þet.ta er
bú venjulegasta afleiðing af skemmdu heyi, og þó
þetta eigi sér nú ekki stað, að skepnurnar drepist
eða ærnar láti lömbunum, sem þó er allt of opt,
þá má eins vel fóðra 3 lömb á óskemmdu heyi, eins
og 2 á skemmdu, og er öllum auðséð, hverju það
munar, þó ekki sé litið á framtíð skepnunnar, en
lambsfóðrið verkar á framtíð hennar, eins og eðli-
legt er, og af öllum skynsömum mönnum er viður-
kennt, hvað uppeldinu viðvíkur.
Þegar þið bændur ætlið að hirða töðuna ykkar
heim um sláttiun í heygarðinn eða heyhlöðuna og
ykkur finnst hún illa þurkuð, þá flytjið hana elcki
heim þann daginn, og ekki heldur þó loptsútlitið
sé vætusamt, heldur setjið hana upp í „sæti“ og
látið hana svo biða í sætinu, þar til kemur á ný
þerridagur, og þó ekki sé nema hálfur þerridagur,
það er ykkur fullnægjandi, breiðið þá töðuna og
þá fáið þið hana vel þurra að kveldi, svo hún verð-
ur hvanngræn einmitt fyrir það, að þið breidduð
hana í annað sinn. Þá verður hún í sínu fulla
gildi, já, svo miklu gildi, að bún verður ykkur
seinna að fullum notum, því miklu síður eru dæmi
til, að þau hey, er hirt eru vel þur skemmist i
heygarðinum, en þau blauthirtu.
Alveg er sama að segja um engjaheyið; hirðið
það ekki blautt heim, heldur setjið það upp í „sæti“
og breiðið það seinna í Dæsta þerri; þá er aðal-
tilganginum náð.
Þetta er allt of mikið umstang og fyrirhöfn,
mun mér verða svarað, en eg vil segja ykkur og
það með fullri vissu, að þessi fyrirhöfn borgar sig
mjög vel, og mikið betur en margur hyggur, og
eg get ábyrgzt, að engum tíma er betur varið
heldur en þeim, er gengur tii þess. Um það mund-
uð þið fljótt sannfærast, ef þið breytið, eins og hér
að framan er á vikið.
Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Krist-
jáns konungs 9. hafa fengið bændurnir
Magnús Sigurðsson á Q-rund í Eyjafirði
og Guðmundur Jónsson á Miðengi i Grirns-
nesi 140 kr. hvor fyrir „framúrskarandi
dugnnð og framkvæmdir í jarðabótum og
öðru því, er að búnaði lýtur“.
Latínuskólinn var settur 1. þ. m. með
allmikilli viðhöfn vegna rektorsskiptanna.
Voru þar viðstaddir landshöfðingi, amt-
maður og biskup allir í einkennisbúningi.
Flutti biskup þar ianga ræðu fyrir hönd
yfirstjórnenda skóians, minntist hinna frá-
farandi æztn kennara við skólann, rektors
og yfirkennarans og ávarpaði nýja rektorinn
m. fl. Halldór Kr. Friðriksson flutti því
næst nokkur skilnaðarorð til skólans og
loks talaði rektor dr. Björn Ólsen.
Veðurátta hefur verið mjög stirð hér
syðra næstl. 3 vikur, sífelldar stórrigning-
ar að kalla má og nú síðast snjókoma og
rosaveður. í gær útsynnings hríð og hafrót.
Prestaskólakennari, sóra Jón Helga-
son prédikar í dómkirkjunni á sunnudaginn kem-
ur kl. 5 e. h.
Fundur verður haldinn í „bind-
indisfélagi íslenzkra kvennau 11. þ. m. kl.
8V2 í Kirkjustræti 2 (fyrv. hótel Reykja-
vík). Allir meðlimir félagsins eru beðnir
að koma.
Nýkomið með „Laura“
— til —
J. P. T. Brydes verzlunar
í Revkjavík:
Schweitzerostur
Mejeriostur.
Lax, Hummer, Sardiner, Anchovis, Capers,
Zarepta, Liebigs kjötextrakt, reykt Side-
flæsk, reykt Skinke, grænar baunir, Cham-
pignons margar tegundir af Syitetöj.
Þurkaðar jurtir.
Snitbaunir, Purre, Rauðkál, Hvítkál,
Rosenkál, Qrænkál, Silleri, Spinat, Vas-
bönner, Karætter, Julienne.
Kaffi, Kandís, Melís, Farin, Te, Sveskjur,
Rúsínur, Kirsebær, Corenner, Succat, Canel,
Husblas, Stearinljós, Chocolade, 0. s. frv.
Allt mjög ódýrt gegn peningaborgun.
Aktiengesellschaft vormals
Frister & Rossmann í Berlín
selur hinar beztu
Singers-saumavélar.
Einka-útsölumaður á öllu íslandi:
Sturla Jónsson.
NB. Pöntunum á ísafirði veitir móttöku
Magnús Árnason kaupmaður.
Nýkomið með „Laura“
— til —
J. P. T. Brydes verzlunar
í Eeykjavík:
Margar tegundir af smásjölum, ðO tegundir
af Buckskins fataefnum, sængurdúkur,
Tvisttau, Flonel, hvítt Ljerept. Dowlas,
Nankin, Segldúkur, Handklæði, Tvistgarn,
hvitt og mislitt, Skraddarakrít, stk. 3 a.,
hvítir og svartir karlmannshanzkar, hvítir,
svartir og mislitir kvennhanzkar, óheyrt
ódýrir. Kragar, Flibbar, Manchetter, Hum-
bug, Slaufur, hvítar og svartar. Manchet-
hnappar, Bijósthnapiiar &c., Bfjósthlífar
með’ SelIuloid-FIibbum, harðir og linir karl-
mannshattar, Odderskinns-húfur.
Farfi, fernisolía, terpentína, líltti,
kopallakk og rúðugler fæst i
vcrzlun Sturlu Jónssonar.
J. P. T. BRYDES VERZLUN:
ENCORE WHISKY, fl. kr. 1,60.
Fataefni mjög góð og 0-
dýr fást í
verzlun Sturiu Jónssonar.
Nýkomið með „Laura“
— til —
J. P. T. Brydes verzlunar:
alls konar járnvara, Isenkram, smíðatól,
hengilásar, smáar og stórar skrár, lamir
og hengsli, skrúfur og saumur alls konár,
emaileraðir katlar og könnur, og alls kon-
ar eldhúsgögn. Lampar, lampaglös og
kveikir.
Harðfiskur, saltfiskur og trosfiskur
fæst í
verzlun Sturlu Júnssonar.
J. P. T. Brydes verzlun
— selur —
ágæt skozk ofnkol
á 3 kr. skpd., ef 5 skpd. eru tekin.
Smíðakol.
Royal daylight steinolíu.
Glært íslenzkt, Dobbelt-Spath,
bæði stór og lítil stykki, verð-
ur keypt fyrir hátt verð hjá
J. Salomon, Bredgade 20, Kjö-
benhavn.
Hvar fæst ódýrast fyrir peninga í
Reykjavík?
í Brydes verzlun.
X—QOOO smáar blikkdósir kaupir
Bafn Sigurðsson.
Tímaritið „Kringsjaa“
gefið út af Olaf Norli i Kristjaniu kemur
út tvisvar í hverjum mánuði, eða alls 24
hepti um árið, og kostar 12 krónur. Hvert
hepti 80 bis.
Fjölskrúðugasta og skemmtileqasta tíma-
rit á Norðurlöndnm. Ómissandi fyrir hvern
menntaðan mann, er vill fylgja með tím-
anum.
Tímaritið má panta hjá flestum bóksöl-
um á íslandi eða beint frá útgefandanum.
Eigandí og ábyrgðarmaður:
Hannea Þorstelnsson, cand. theol.
Félaga{>rentBini8jaii.