Þjóðólfur - 04.04.1896, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 04.04.1896, Blaðsíða 4
68 Jens Hansen Testergade 15, K,jöbenliavn K hefur hinar etærstu og ódýrustu birgðir í Kaupmannahöfn af eldavélum, ofnum og steinolíuofnum. Eldavéiarnar fást hvort menn vilja heldur fríttstandandi eða til þess að múra upp og eru af mörgum stærð- um frá 17 kr. Yfir 100 tegundir af ofn- um. Magasinofnar, sem hægt er að sjóða í, líka öðruvísi útbúnir frá 18 kr. af beztu tegund; ætíð hin«r nýjustu endurbætur og ódýrasta verð. Nánari upplýsingar sjást á verðlista mínum, sem er sendur ókeypis hverjum, er þess óska og sem skýrir frá nafni sínu og heimili. Yerðlistinn fæst einnig ókeypis á skrifstofu þessa blaðs. Hannyrðabókin og Rauðbetta fæat á skrifstofu „t>jóð61fs“. Uppboð. Hér með auglýsist, að föstudaginn hinn 15. maímán. næstkomandi verður að Árbæ í Holtum haldið uppboð á allskonar bús- munum og skepnum, sauðfé, kúm og hross- um, tilheyrandi Páli amtmanni Briem á Akureyri. Uppboðið byrjar kl. 11 f. m. og verða uppboðsskilmálar þá birtir. Skrifstofu Rangárvallaaýslu 26. marz 1896. Magnús Torfason. Flutningsgóss vantar frá „Thyra“, Kommóða, sem eptir „Manifest“ Fr. Wendels á að hafa farið frá Þingeyri á Dýrafirði með ágústferð „Thyra“ 1895 og átti að fara til Reykjarfjarðar við Húna- flóa, er ekki kominn og hefur ekki spurzt til hennar enn. Adressan var: Læknir Oddur Jónsson. Reykjarfjörð. Hver, sem veit, hvar hún er niðurkom- in, er beðinn mót þóknun að gera mér aðvart. Smáhömrum við Steingrímsfjörð 1. febr. 1896. Oddur Jónsson. Singers-saumavélar fást avaiit í verzlun Sturlu Jónssonar. Prjónavélar. Undirskrifaður hefur, eins og hingað til, aðal-umboðssölu fyrir ísland á hinum vel þekktu prjónavélum frá Simon Olsen, og eru vélar þessar að líkindum þær beztu, sem fást. Af vélum þessum eru nú hér um bil 40 í gangi hér á landi, og hef eg ekki heyrt annað, en að öllum hafi reynzt þær mjög vel. Vélarnar eru brúkaðar hjá mér, og fæst ókeypis tilsögn til að læra á þær. Þeir, sem ekki nota tilsögnina, fá eptir- leiðis vélarnar 10 krónum ódýrari. Vélarnar sendast kostnaðarlaust á all- ar þær hafnir, sem póstskipið kemur við á. Nálar, fjaðrir og önnur áhöld fást alltaf hjá mér, og verðlistar sendast, ef þess er óskað. Áreiðanlegir kaupendur geta fengið borgunarfrest eptir samkomulagi. Pantanir óskast sendar hið fyrsta til P. INTlelsen, Eyrarbakka. Bigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorstelnsson, cand. theol. FélagsprentsmiDjan. 30 arnir farnir að segja, að það mundi vera ímynd vonar- innar um vesturheimssæluna. Að þessum þrem dögum liðnum fóru þeir, sem næst áttu heimili, að tínast burt aptur; þó var „agentinum" ekki mjög um það gefið. Svona leið hálf þriðja vika; ekki kom skipið. Fólk- ið beið flest á ströndinni, sumt í kaupstaðnum, sumt á bæjunum í kring. Fargjöldin tóku fremur að skerðast. Á hverjum degi komu menn i hópum til „agents- ins“ að tjá honum vandræði sín og spyrja hann ráða, en hann hafði alltaf að eins sömu svörin: að skipið hlyti nú að koma í nótt, og það væri ekkert annað en að taka því með ró, þótt ekki yrði hægra að losast frá íslandi en lifa þar; Ameríka skyldi bæta það margfallt upp aptur, þegar þangað væri komið. Þórður fór aptur heim að Grund. Hann talaði fátt. Stöku sinnum varð honum þó að segja, að það væri auma andskotans útgerðin þetta. Anna varð hress- ari með hverjum degi sem leið. Og loks fór hún að vona — og síðast var það nærri því vissa — að hún mundi fá að verða kyr heima á íslandi, án þess að hafa mikið fyrir því. * * * En — það var á sunnudagsnótt. Klukkan á Grund hafði rétt ný-slegið tvö. Smali stökk upp fram í göng- 31 um með svo miklu gelti, að allt fólkið vaknaði í bað- stofunni. Það hlaut einhver að vera kominn. Litlu síð- ar heyrðust dynkir, svo skruðningar við baðstofuvegg- inn, og þar með fylgdi mannamál, orð og orð á stangli: „anskots,, — „hvar í helv..." Loksins var skriðið að einum glugganum, og kallað með organdi rödd:| „Gott kvöld!“ „Gott kvöld!“ var svarað inni. „Er Þórður frá Seli hér?“ Því var játað. „Eg þarf að finna hann út, fljódd!“ Svo skreið maðurinn burt aptur og tautaði í sífellu. Allir í baðstofunni stóðu á öndinni. Þórður flýtti sér að tína utan á sig eitthvað af klæðum og komast til dyra. Hann kom brátt aptur, og fylgdi honum þá hljómurinn framan úr dyrum: „Veri’ þi nú helvídi fljód; eg rek eptir“. „Það er nú loksins komið þetta skip, trúi eg“, sagði Þórður þunglamalega, „og á ekki að stanza lengi. Það á að fara af stað klukkan tvö í dag“. Allir í baðstofunni þrifu fötin sín og stukku á fæt- ur. — Heimapiltar fóru undir eins að leita hestanna. Það gekk illa að finna þá, því kafdimm þoka var. Anna var eins og þrumulostin. Hin eina von, sem orðin var svo rík, hvarf nú allt í einu, og ekkert und-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.