Þjóðólfur - 04.12.1896, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 04.12.1896, Blaðsíða 3
223 Ur byggðaleysisins. Mongólska kynið hefur því nóg svæði til að þenja sig yflr i lang- an tima án þess að hvíta kynið þurfi alveg að bolast út. Jafnframt því að Kína og Japan fara að þreyta samkeppni við Evrópu og Ame- riku í verzlun og iðnaði, munu einnig opnast nýir og stórir markaðir í Afriku og Asíu fyrir bæði kynin, um leið og góðir markaðir geta enn verið um alllangan tíma fyrir Evrópuvarning í báðum hinum austrænu ríkjum. Er þá ekki sennilegt, að meðan þessu fer fram og Evrópa enn- þá nýtur góðs af mörkuðum þessum, að þá jafnist vinnukaup og lífshættir á þá leið, að bæði kynin geti starfað og sam- keppt með jafnari aðstöðu? Vinnukaup er þegar farið að hækka talsvert í Japan, og vel má vera, að kfnverski verkmaðurinn að 25 árum liðnum verði ekki orðinn ókaupdýrari en sá ameríski. Ekki mun Kínverjinn verða Iengi að læra að taka hærri borgun fyrir vinnu sína í Ameriku. Það er ekki óhugsandi að samkeppnin verði um tíma svo áköf, að Aríar neyðist til að gera toll- og hagsmuna-verndunar samband sín í milli gegn hinum. En ekki sakar það hið uiinnsta. Það er ekki ólíklegt, að upp úr því myndist „Bandaríki Evrópuu, enda fáir nú orðið sem efast um, að svo verði, — og að það verði ein- mitt þetta ytra aðhaid, sem knýja muni alla Aría til að taka sig saman um að verja sameiginlega hagsmuni. Með þessum hætti er vel möguiegt, að þess sé ekki alllangt að bíða, að tvö vold- ug bandalög skipti jörðinni á milli sín — hið ariska og mongólska. Þó ekki væri af öðru, þá munu Aríar af ótta fyrir Mon- gólunum neyðast til að halda frið sín í milli; til þess að geta þreytt við þá samkeppn- ina verða þeir að láta af hinum mikla herbúnaði. Hinsvegar munu Mongólar naumast fara að leggja undir sig lönd með herskildi. Þeir munu treysta á yfir- burði sína í friðlegum efnum. Að þessum tveimur bandalögum mundi lenda saman i ðfriði, er af mörgum ástæðum lítt hugs- anlegt. Hitt er öliu líklegra, að þau ein- hverntíma rynnu saman í eitt og að hug- sjónarorð enska skáldsins Tennysons, nm „parlament" mannkynsins, yrði að áhríns- orðum. Og Þar sem vér annars vegar gefum Mongólunum hina verkfræðilegu og vís- indalegu menningu, mætti svo vera, að vér lærðum af þeim dálítið ósjálfselskulegra 8iðferði í daglegu háttalagi voru og þegar á allt er litið að láta hugsjón blandast við veruleik, „ídeal“ við líf og líferni, himin við jðrðu. Hvað sem öðru líður er sá tími kominn að það verða meginkyn manna á jörðu en ekki einstakar þjóðir, sem hér eptir munu eigast við og hafa aðalhlutverkið í úrslitum heimsmálanna. Styrjöld milli Frakklands og Þýzkalands mun bráðum virðast vera smásmuglegur heimakritur þar sem mikil hætta vofir yfir öllu hinu hvíta* kyni. Að knýja þau til samtaka og samheldni mun því bráðum verða aðal markmið hinna miklu stjórnvitringa. Doiina Clara. (Eptir Heine). Aptanstund í aldingarði AlkadB-mærin þögul gengnr. Lúðrablástur, bumbuþytur berst frá höllu þangað niður. „Jeg er þreytt ú þeBsum dansi, þessum væmnu’ smjaðuryrðum, riddurum, sem hræsnishætti biminsnnnu við mér líktu“. „Allt mér leiðist síðan sá jeg síðast þegar máninn lýsti riddarann, sem ljúfum ljóðum lokkaði mig fram að glugga“. „Þegar hann svo hár og djarfur, hreinn á svip og tiginfólur, stðð þar úti eins hann sýndist eins og sjálfur Georg helgi“. Þannig hugsar hefðarmærin, höfði síðan þögnl drepur. En þegar upp hún aptur lítur er þar kominn sveinninn fagri. Arm í arm með ástarhvískri um þau ganga í mánaljðsi. Aptanblærinn blíði kveður, blðmin anda huliðskveðju. Blómin anda blíðri kveðju, boða ást með kvikum roða. „En elsku mær, af orsök hverri „allt í einu lit þú bregður?" „Fluga beit mig, bezti vinur, bitvarg þann jeg ávallt hefi næstum því eins napurt hatað og nefjalanga Júðastráka“. „Sleppum flugum, sleppum Júðum", Sveinninn kvað með ástarhðtum. Og af trjánum ofan falla ■ ðtal smáblðm, hvít og fögur. Ótal smáblðm unaðsfögur angan BÍna ljúft út breiða. „En elsku meyja, inn með sanni, • anntu mér af fullu hjarta?" „Já, jeg ann þér elsku vinur, af allri sál við Krist jeg sver það þann er drottindæmdir Júðar drápu fyrrum, vonzku slungnir“. „Sleppum Kristi, sleppum Júðum“, sveinninn kvað með ástarhðtum. Blakta sem í blíðum draumi bleikar liljur geislum sveiptar. Bleikar liljur Ijðsi sveiptar líta upp til gyltra stjarna. „En elsku meyja, enn mér seg þú, er það víst, að rétt þú særir?“ „Svik eru engin í mér framar, en í hjarta mínu dropi blððs úr hinum hlökku Márum né blððsaurguðu, skitnu Júðum". „Sleppum Márum, sleppum Júðum“, sveinninn kvað með ástarhðtum. Og að kofa laufi luktum leiddi hann þá Alkads dóttur. Ástarmjúku munarneti meyna hefur sveinninn vafið. Lítt fðru orð, en langir kossar, loks varð hjörtum út úr flða. Næturgalinn ljúfan ljððar, líkt og vildi’ hann brúðsöng kveða. Ljðsormarnir leika á foldu líkt og blysadans þeir stigju. Hljððnar allt í léttu laufi, lítill þytblær að eins heyrist. Það var kvískur kænna murta, og hvítra blðma andardráttur. En lúðrablástur, bumbuþytur berst frá höllu allt í einu. Klara vaknar við af móki og vefst tir armi tigínsveinsins. „Einhver kallar, elsku vinur, en þú verður fyrr en skiljum nafn þitt segja, sem þú hefur svona lengi við mig dulið“. Glotti sveinn og glöðu bragði greip um hennar mund og kyssti, kyssti munn og kyssti enni og kvaddi loksins þessum orðum: „Jeg min lafði, ástsveinn yðar, eg er son hins fræga Rabbis, ritningfrðða, aldna öðlings Israels frá Saragossa". H. H. f Dr. (íríinur Thomsen andaðist að heimili sínu Bessastöðam úr lungnabólgu 27. f. m., 761/* árs að aldri. Hann var fæddur á Bessastöðum 15. maí 1820, og voru foreldrar hans Þorgrímur Tómasson (Thomsen) gullsmiður ogkonahans Ingibjörg Jónsdóttir systir Gríms amt- manns. Dr. Grímur lærði í heimaskóla hjá Árna stiptpróf. Helgasyni í Görðum og var útskrifaður af honum 1837, sigldi þá til háskólans, og las fyrst málfræði og lög- fræði, en síðar fagurfræði, fékk 1841 svo-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.