Þjóðólfur - 14.04.1897, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 14.04.1897, Blaðsíða 4
76 Epli. Apricots. Pickles. Hindbersaft. Kirsebersaft súr. ----- sæt. Capers. Citronolía. Gerpúlver. Syltetau. Yindlar. Reyktóbak. Sápa. Parfúme. Járnvara: Katlar. Pottar. Kasseroller. Kaffikönnur. Tepottar. Pottlok. Kökuform. Kökusprautur. Trektir. Buddingsform. Mjólkurfötur. Burstar. Hnífar. Gafflar. Vasahnífar. Úrfestar. Göngustafir. Harmonikkur. Karlmanns-úr. Kvenn-úr. Reykjarpípur. Speglar. Spegilgler. Olíumaskínur. Eldamaskínur. Barometer. Diskar. Bollar. Smjörkönnur. Vatnsglös. Vínglös. Pakjárn. Farfi. Fernis. Törrelsi. Terpentina. Kítti. Rúðugler. Allskonar saumur og margt fleira. „Vesta" til Austfjarða. Ejfiir ferðaáætluninni fyrir 1897 fer gufuskipið „Vesta" 2 ferðir í maímánuði frá Reykjavík til Austfjarða að öllu for- fallalausu, og er ferðum þessum hagað þannig: Frá Reykjavík ... 1. maí, 12. maí — Vestmannaeyjum 1. maí, 12. maí — Fáskrúðsfirði . . 3. maí, 14. maí — Eskifirði.....3. maí, 14. maí — Norðfirði .... 3. maí, 14. maí — Seyðisfirði .... 4. maí, 15. maí — Vopnafirði.... 5. maí, 15. maí Ferðirnar eru sérstaklega farnar vegna sjómanna og kaupafólks, og til þess að gera mönnum hægra fyrir með að nota þær, Jcemur skipið við á Akranesi, i Hafnar- lirði og Keflavík einum degi fyrir burt- farardag frá Reykjavih og tekur þar fólk og farangur. Heitt vatn geta farþegar fengið á skip- inu tvisvar á dag ókeypis. í umboði farstjóra D. Thomsen Hanncs ThorsteinssoD. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Félagsprentsmiðjan. 22 tuttugu hvít andlit allt árið, og voru vanir að ríða 15 enskar mílur í stryklotu, er þeir voru boðnir í samsæti á næstu varðstöð, þótt þeir ættu á hættu að fá eina af kúlum Khybereanna1 í magann, áður en þeir fengju nokkuð af matnum. Þeir réðu sér ekki fyrir gleði sakir þess, hversu óvenjulega óhultir þeir voru um líf sitt og limi á þessari stundu. Einn þeirra varð svo afarkátur, að hann leitaðist við að leika knattspil við samanhnipraðan broddgölt, er hann hafði fundið þar úti í garðinum, og annar hljóp með strykarann (markören) millum tannanna innan um salinn. Sex landeigendur voru komnir sunnan að og hófu lærðar samræður um hesta við hinn mesta lygalaup í Asíu, er leltaðist við að reka þá alla í vörðurnar undir eins. Var þar saman kominn allskonar lýður, og menn virtu bvorir aðra fyr- ir sér í krók og kring, hugðu að hverja vantaði og minntust þeirra, er höfðu andazt eða vikið burtu úr herþjónustunni árið sem leið. Það var glatt á hjalla þetta kveld, og eg man, að vér sungum hinn skozka þjóð- *) Svo nefnÍBt þjóðflokknr sá, er býr við Khyberea- (eða Chaibara-) skarð í Afganistan, þar sem aðalþjóðvegnrinn til Indlands norðan að liggur um. Nú hafa Englendingar fyrir skömmu náð þessu skarði á vald sitt og héraðinu þar umhverfis. Sú eDdastöð, er Kipiing hér talar um, hefur því verið einhversstaðar á þessu svæði við landa- mæri Afganistan. 23 söng „Auld Lang 8yneu, og studdum höndunum hver á annars axlir, um leið og vér horfðum upp í stjörnurnar og sórum hverir öðrum órjúfandi vináttu, en því næst kom berserksgangur á suma og lögðu þeir undir sig allt Birma á svipstundu, en sumir brutust óskelfdir inn í Súdan, og sumir börðust um riddarakrossa og verðlaunapeninga fyrir hreysti þeirra, sumir kvæntust, sem var vitleysa og aðrir gerðu aunað enn verra, en sumir sátu rólegir í hlekkjum sínum, og Ieituðust við að skapa sér höfuð- stól af ófullnægjandi reynslu. Fleete drakk í fyrstu „sherryM og „bittera", og þvi næst „sjampani“ með ábætinum og Benediktinalikör með kaffinu, þá 4—5 glös af sódavatni og whisky til að skola úr sér gremjuna yfir óheppninni við knattborðið, klukkan 21/, byrjaði hann á öli og klykkti út með gömlu konjakki. Af þessu leiddi, að hann var dálítið „blekaður", er hann kom út í morgunloptið kl. 31/, í 18 stiga kulda. Hann atyrti hestinn sinn, af því að hann hneggjaði, og leitaðist við að steypa sér kollhnís í hnakknum, svo að við Strickland urðum loksins að taka hann upp og reyna að koma honum heim. Leið okkar lá rétt fram hjá hinu litla musteri Hanu- man’s, guðs apanna, sem stendur ofarlega á tignarskrá guð- anna, og þykir eiga alla lotningu skilið. Eg ber sjálfur mikla virðingu fyrir Hanuman, og er ávallt vingjarnlegur við

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.