Þjóðólfur - 30.04.1897, Blaðsíða 2
82
þekkja og hafa traust á, og álít eg sjálf-
sagt Zöllner beztan til þess. Það er von-
andi, að viðskipti íslendinga við Frakka
með fé á fæti verði eins happasæl, eins og
við Englendinga um mörg ár undanfarin,
jafnvel þótt búast megi við, að ekki fáist
fullt eins hátt verð fyrir féð, eins og þar.
í Belgíu er einnig mjög mikið selt af
sauðakjöti, en þar vill svo illa til, að nú
er komið innflutningsbann (22. jan. þ. á.)
fyrir allt fé, sem flutt er sjóveg, þó með
þeirri undantekningu, að flytja má inn
rýrt fé, ef hægt er að sanna, að það sé
eingöngu selt til eldis í Belgíu. Auðvitað
getur enginn útlendingur átt undir því,
að senda fé fyrir eigin reikning með þess-
um kjörum. Þess vegna hef eg gert mér
far um, að fá belgiskan kaupmann tii þess
að koma tii íslands og kaupa fyrir sinn
reikning, og mér hefur tekizt að fá stærsta
fjárkaupmanninn þar, hr. Aug. Schmidt í
Verviers, til þess að lofa því, að koma í
haust og kaupa fé á íslandi. Auðvitað
hef eg enga aðra tryggingu fyrir þvi, að
hann komi en orð hans sjálfs, en með því
að hann í fyrra hefur verið í Noregi til
fjárkaupa, virðist hann hafa reynslu í fjár-
kaupum og flutningi á fé sjóveg, og þá
er vel skiljanlegt, að hann fáist til að
kaupa einnig á íslandi. Hann mun í fyrra
hafa gefið um 14 aura fyrir pundið á fæti
(lifandi vigt) í Noregi. Innflutningstoll-
ur á fé er í Belgíu 1 kr. 40 a. fyrir hverja
kind, og borgast auðvitað af innflutnings-
manni.
Til Hollands er ekki til neins að senda
fé. Hollendingar borða ekki sjálfir sauða-
kjöt svo nokkru nemi, en senda út feikna-
mikið sauðakjöt til annara landa. Þar
eru opt mikil veikindi í fé, og er því inn-
flutningur á lifandi fé þaðan bannaður í
flestum öðrum löndum.
Frá Þýzkalandi er einnig sent mikið
fé til annara landa, helzt til Frakklands,
en þar er mikil verzlun með rýrt fé, sem
selt er til fitunar á ýmsum stöðum, t. d. í
Ditmarsken, og einnig í Braunschweig og
Magdeburg, þar sem mikið er ræktað af
sykurrófum. Verð á sauðakjöti er um 45
aura pundið í stórkaupum; síðar mun eg
senda nákvæma skýrslu um allt, sem að
sölunni lýtur. Fjárskip til Þýzkalands
ættu helzt að afíerma féð í borg, er Tönning
heitir, Þar í nándinni eru stórir markaðir
fyrir fé á fæti. Fyrir rýrt fé fást 12—18
kr. Innflutningstollur er 90 aurar fyrir
hverja kind.
Eins og áður hefur verið tekið fram,
mun eg síðar semja ýtarlega skýrslu um
þessa ferð mína; hér eru aðeins tekin
fram helztu atriðin í upplýsingum þeim, er
eg hef safnað.
Khöfn 31. marz 1897.
VirðingarfyJIst
D. Thomsen.
Áskorun
um liúsliygging á Þingvúllum.
Vér undirskrifaðii-, sem höfum gengið
í félagsskap um, að koma upp húsbygg-
ingu á Þingvelli, er bæði gæti verið fyrir
samkomur innlendra manna, og til afnota
fyrir erlenda ferðamenn, sem eins og kunn-
ugt er, sækja fjölmargir á hverju ári til
Þingvalla og öeysis, leyfum oss hér með,
að bjóða almenningi á íslandi, að taka
þátt í þessu fyrirtæki, með því, að kaupa
einn eða fleiri saman tuttugu og fimrn krbna
hluti í hinni fyrirhuguðu húsbyggingu.
Áætlað er, að húsið muni kosta allt
að 5000 kr., eða um 200 hluti alls, og er
gert ráð fyrir, að það geti verið fullgert,
áður en ferðamanna er að vænta næsta
sumar. Það er ákveðið, að hlutir þeir,
sem koma inn, skuli geymast í sparisjóði
Reykjavíkur, en eigi verður byrjað á bygg-
ingunni, fyr en séð verður, að nóg fé muni
fást; að öðrum kosti verður peningunum
skilað aptur til eigendanna.
Komist byggingin upp, eins og að fram-
an er sagt, skulu hlutaeigendur njóta
tiltölulega ágóða af húsinu, þeim er verður
umfram viðhaldi og umsjónarkostnaði ept-
ir árlegri skilagrein.
í hússtjórnar-nefnd skal kjósa 3 menn
þannig, að formaður Þjóðvinafélagsins
nefnir einn, sýslumaðurinn í Árnessýslu
annan, og ferðamannafélagið í Reykjavík
hinn þriðja. Nefndin skal kosin til 2 ára
í senn, í fyrsta sinn jafnskjótt sem húsið
er fullgert.
Allt það, sem að framkvæmdum bygg-
ingarinnar lítur önnumst vér undirskrif-
aðir.
Hlutaupphæðir skulu sendar til gjald-
kera félagsins Sigfúsar Eymundssonar með
glöggri skýrslu um nöfn og heimili hluta
eigenda, og sendir hann þeim þá hluta-
bréf með fyrsta pósti, eða afliendir þau
þeim, sem borga utanpósts. Til þess að
hægt sé að byggja húsið næstkomandi
sumar, verða félagshlutir að vera borgaðir
innan loka þessa árs.
Vér treystum því, að góðir menn veiti
þessu máli greiðar undirtektir, bæði vegna
landsmanna sjálfra og vegna þess, að slík
bygging mundi, einkum ef henni fylgdi
akemmtibátur til veiða og siglinga á Þing-
vallavatni, stuðla mjög að því, að auka
heimsóknir erlendra ferðamanna til íslands,
sem hingað til hafa ekki getað vegna skýl-
isleysis haft neina dvölj á hinum forna,
víðfræga þingstað íslendinga.
Reykjavík 24. apríi 1897.
B. Sveinsson. Tr. Uunnarsson
formaður.
Sigf'. Eymundsson Helgi Helgason.
gjaldkeri.
Sigurður Kristjánsson. D. Thomsen.
Hannes Þorsteinsson.
* * *
Áskorun þessi verður send sérprentuð
víðsvegar um land nú með skipum og
landpóstum, að nokkru leyti með Þjóðólfi
til útsölumanna hans, en að sumu leyti
sérstaklega frá hinum einstöku nefndar-
mönnum. Er vonandi, að mál þetta fái
hinar beztu undirtektir, því að það er
meira en meðalskömm fyrir þjóðina, að
ekkert skýli hefur hingað til verið reist á
hinum fornhelga, fagra alþingisstað vorum,
og má svo búið ekki lengur standa. „Mjór
er mikils vísir“. Það má hérumbil segja
með vis8U, að húsbygging á Þingvöllum
muni hafa í för með sér ýmsar fleiri um-
bætur þar til þæginda fyrir útlenda
ferðamenn. Virðist mega treysta því,
að Sunnlendingar, sérstaklega Árnesingar
og Rangvellingar, taki drengilegan þátt i
þessu nauðsynjamáli. Það væri hinn sæmi-
legasti þakklætisvottur, er þeir g*tu látið
útlendingum í té fyrir hinar miklu land-
skjálftagjafir, um leið og þeir gerðu sjálf-
um sér og landinu í heild sinni sóma með
almennri hluttöku í þessu.
H. Þ.
Sumarið og Hlíðin.
Kom nú Bumar-sólin há
sæi til íslands fjalla,
þú sem deyfð og dauða frá
dregur krapta alla.
Þínum ljóma viljum vér
verðuga sýna lotning,
heimurinn allur heilsar þér
himins fagra drottning,
Þú, sem vekur vorsins ljðð
og veröld dapra gleður,
gjörvalt líflð unaðs óð
um þig létt því kveður.
Móti þinni bliðu brá
hrosir allt, sem liflr,
þegar þú í heiði há
heiminn Bvífur yflr.