Þjóðólfur - 30.04.1897, Blaðsíða 4
84
að komaí ljós í verkinu; orðið „vinátta", sem
Evrópa og heimnrinn hefði á vörunum væri
gagnslaust og verra en gagnslaust, og það er
auðvitað hverju orði sannara. Það hefur
komið í ljós, að Gfrikkir eiga formælendur
fá. þá er í nauðirnar rekur. Það stoðar
lítið, þótt GHadstone gamli skammi soldán
og stórveldin, þvi að þott enska þjóðin
heima fyrir sé hlynnt örikkjum í orði,
þá virðist það hafa harla lítil áhrif á
stjórnina, er situr svo föst í sessi, að
Balfour hefur á enska þinginu beinlínis
manað andstæðinga hennar til að bera fram
vantraustsyfirlýsingu gegn henni, en þeir
hafa, ekki séð sér það fært. Og svo mikið
er víst, að ýmsir brezkir hershöfðingjar hafa
einmitt boðið soldáni þjónustu sína til að
berja á Grikkjum, og einn þeirra bauðst
jafnvel til að útvega 30 manns til fylgdar
sér og standa- sjálfur í ábyrgð fyrir öllum
þar af leiðandi kostnaði, og þótti göfug-
mannlega(!!) boðið. — Stórveldin halda
Krít enn í herkvíum og horfa með ánægiu
á viðureignina, ávöxt verka sinna. Hefur
utanríkisráðherra Rússa, Muraviefl, lagt
það til, að stórveldin skipti sér ekkert af
ófriðnum, fyr en annaðhvort örikkir eða
Tyrkir óski þess, að þau skakki leikÍDn,
og umfram allt verði þau að halda hóp
og ekkert þeirra rjúfa sambandið, eða
taka sér neitt fyrir hendur upp á eigin
spýtur, og er mælt, að öll stórveldin hafi
fallizt á þetta. Þó er sagt, að trauðla
muni þau leyfa Tyrkjum að vaða langt
inn á Grrikkland. Annars væri það hæfi-
leg kóróna á allri svívirðingunni, að þau
leyfðu Hund-Tyrkjanum að brytja Gfrikki
niður, og eyða landið.
Aðrar fréttir utan úr heiminum eru
lítt markverðar, enda er þeim lítill gaum-
ur gefinn í samanburði við Grikkjastríðið.
Heimdallur handsamaði einn enska
botnskefilinn í landhelgi fram undan Njarð-
víkum 23. þ. m., hafði hann leitað þar inn
á Keflavíkurhöfn í roki, og fékk áminniugu
fyrir. En þá viidi svo til, að heil skips-
höfn íslenzk sór, að skefill þessi hefði fisk-
að í landhelgi 31. f. m., og fékk haun fyrir
það 1080 kr. sekt.
Landsynrréttardómur var uppkveðinn
26. þ. m. í málinu milli kaupfélags Þing-
eyinga og Húsavikurhrepps, og undirréttar-
dómurinn staðfestur, en málskostnaður lát-
inn niður/alla. Samkvæmt þeim dómum
er kaupfélagið dæmt skyldugt að greiða
sveitarútsvar til Húsavíkurhrepps. í lands-
yfirrétti veik Kristján Jónsson dómarasæti,
en Jón Magnússon landritari var skipaður
í hans stað.
„Vesta“ kom hingað á ákveðnnm degi
26. þ. m. með fullfermi af vörum. Far-
þegar með henni voru: D. Thomsen far-
stjóri, kaupmennirnir Ásgeir Sigurðsson,
Ásgeir Eyþórsson, W. Ó. Breiðfjörð, W.
Christensen, Gluðbr. Finnbogason, Jón Þórð-
arson, Chr. Johnasson frá Akureyri; enn-
fremur Þorgr. Johnsen fyrv. héraðslæknir,
cand. theol. Haraldur Níelsson, stud. mag.
Jón Jónsson (frá Mýrarhúsum), Guðm.
Oddgeirsson o. fl.
Elliðaárnar seldar. Eigandi þeirra,
kaupm. H. Th. A. Thomsen, hefur seit
Englending nokkrum, sir Payne, veiðina í
Elliðaánum ásamt jörðunum Ártúni og Bú-
stöðum fyrir 54,000 kr. (3000 pd. sterl.).
Látínn er í Kaupmannahöfn 10. þ. m.
Pétur Thorberg, einkaeonur Bergs Thor-
bergs landshöfðingja og ekkju hans, frú
Elinborgar Pétursdóttur (biskups), rúmlega
tvitugur (f. 4. des. 1876), og ætlaði að taka
stúdentspróf í vor. Hauu var mesti efnis-
piltur, ve) gáfaður, prúður í framgöngu og
hugljúfi allra, er honum kynntust.
Embættlsveiting. Norður-Múlasýsla er
veitt 13. þ. m. Jóhannesi Jóhannessyni,
settum sýslumanni í Húnavatnssýslu.
Lansn frá embætti hefur Benedikt
sýslumaður Sveinsson fengið 13. þ. m.
Prófastur skipaður í Árnessýslu séra
Valdimar Briem á Stóranúpi. — Séra Jónas
Jónassou á Hrafnagili er settur prófastur
í Eyjafjarðarsýslu í stað séra Davíðs Q-uð-
mundssonar, er hefur sagt af sér, en séra
Ólafur Petersen á Svalbarði settur prófast
ur í Norður-Þingeyjarsýslu í stað séra
Halldórs Bjarnarsonar í Presthólum, er vik-
ið hefur verið frá embætti.
Þorvaldarmálið svo nefnda millum
Valdimars ritstj. Ásmundssonar og Þorv.
lögregluþjóns Björnssonar, var dæmt í und-
irrétti í gær, af settum dómara Jóni Magn-
ússyni landritara, og var Valdimar dæmd-
ur í 40 kr. sekt og 30 kr. í málskostnað.
Skaðabótakrafa stefnanda (Þ. B.) var eigi
tekin til greina.
Athugrasemd. Bf nokkur yæri sá, maður, er
ekki kynni að lesa „fsafold" eins og vera ber, má
geta þess, að til að fá út hið rétta, á að snúa orð-
unum við — þvert um —, til dæmis: að lesa 400
fyrir „200“, ef um heybyrgðír óvildarmanns ritstj.
er að ræða, og ef hún segir, að hann sé heylaus
„með þorra“, þá er hann byrgur fram á sumar.
B. B.
Póstskipið „Laura“ kom hingað í
gærkveldi. Með því kom Jón Ólafsson
fyrv. ritstjóri Skuldar og Þjóðólfs, alkom-
inn frá Chicago. — Grikkjum vegnaði held-
ur betur í ófriðnum síðustu dagana, en
nánari fréttir bíða næsta blaðs (aukablaðs),
er kemur á mánudaginn 3. maí.
Lækningabók dr. J. Jónassens,
„Hjálp í viðlögum“, „Auðnuvegurinn" og
„Sparsemi", auk margra annara bóka, er
til sölu hjá
Runólfi Bjarnasyni á Hafrafelli.
Verzlun C. P. Knudtzon & Sön
1 Hafnarfirði
hefur til sölu nægtir af velverkuðum salt-
fiski (ýsu, upsa og keilu).
KLíirtÖfllir fást í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Gott tún
með matjurtagardi er til sölu. Bær stend-
ur á lóðinni. Góðir borgunarskilmálar.
Ritstj. vísar á seljanda.
Orgelharmonium
frá 125 hr. frá vorum eigin verksmiðjum.
Fengu silfurmedalíu i Málmey 1896. Auk
þess höfum vér harmóníum frá hinum beztu
þýzku, amerikönsku og sænsku verksmiðj-
um. Vér höfum selt harmóníum til margra
íslenzkra kirkna og margra prívatmanna.
Hljóðfæri má panta hjá kaupmönnum eða
hjá oss sjálfum.
Petersen & Steenstrup.
Kjöbenhavn V.
pví optar sem eg leik á orgelið í dóm-
kirkjunni, þess betur líkar mér það.
Keykjavík 1894.
Jónas Helgason.
Bg finn mig knúða til að flytja innilegt þakk-
læti mitt settum póstmeistara Hannesi Ó. Magnús-
syni og hÚBfrú hans, fyrir velgerning þann, er þan
sýndu mér í erfiðum kringumstæðum mínum, þar
sem þau allmikinn hluta hins nýliðna vetrar tóku
á fæði beima hjá sér Bon minn, sýndu honum ein-
staka alúð og leystu hann að síðustu út með rausn-
arlegum gjöfum. Sjálf er eg að eins fær um að
þakka með óskum og orðum þetta kærleiksverk,
en það er mín vissa von, að það muni eigi látið
ólaunað á hinum mikla degi umbunar og endur-
gjalds.
Beykjavík 23. apríl 1897.
Vilborg Pétursdótiir.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorstelnsson, cand. theol.
Félagsprentsmiðjan.