Þjóðólfur - 23.07.1897, Page 2
140
Dýrarerndun. Frumvarp í þá, átt
flytja þeir Jóa Þór., Tr. G-unaarason og
Þorl. Gaðm.
Einkaréttur. Allstór iagabálkur í 22
greinum, sniðinn eptir útlendum lögum.
Flutningsm. Jens Pálsson. [1. gr. Allir
menn geta Öðlast einkarétt til að flytja
hingað til lands, útbreiða hér á landi, selja
eða á annan hátt nota sér til hagsmuna
nýjar uppfundningar, er þeir sjálflr hafa
fundið upp, og eigi hafa áður hagnýttar
verið hér á landi, og sem eru til veru-
legtar nytsemdar fyrir búnað eður iðnað.
Slíkur einkaréttur nefnist aðaleinkaréttur.
2. gr. Einkarétt má og fá fyrir sérhverja
nytsama breyting, er einhver finnur upp
að gera á uppfundning, er einkaréttur er
fenginn á, ef breytingin er svo veruleg,
að hún út af fyrir sig getur álitizt ný
uppfundning. Slíkur einkaréttur nefnist
auka-einkaréttur].
Lögaldur. Skúli Thoroddsen ber upp
frumvarp um, að hver karlmaður og ó-
giptur kvennmaður verði fjár síns ráðandi
með tilsjónarmanni 18 ára, en fuilráðandi
fjár síns 21 árs; þó geti enginn tekið að
sér ábyrgð (caution) í fjármálum nema 25
ára sé.
Greiðsla daglauna og verkakaups við
verzlanir. Sami þingm. flytur frumv. um
að mönnum, er vinna daglaunavinnu við
verzlanir, skuli goldið verkkaup í gjald-
gengum peningum, en borgun með skulda-
jöfnuði eða öðru sé óheimil, og allir samn-
ingar ógildir, sem þessu séu gagnstæðir.
Fátækramálefni. Frumvarp í 6 köfl-
um. Flutningsm. Þorkell Bjarnason. Kafl-
arnir eru um skylduframfæri, um sveit-
festi, ómagaframfærslu, vald sveitastjórn-
anna yfir þurfamönnum, viðskipti sveita-
stjórna og flutning þurfamanna.
Landssjóðskirkjur. Nefnd, er skipuð
var í n. d. til að íhuga frumvarp stjórnar-
innar um, að umsjón og fjárhald Bjarna-
nesskirkju sé fengin hlutaðeigandi söfn-
uði í hendur, hefur jafnframt lagt tii,
að fleiri landssjóðskirkjur verði fengnar
söfnuðunum i hendur, og eru tiliögur nefnd-
arinnar þannig:
1. Söfnuðinum í Bjarnanes-sókn í Aust-
ur-SkaptafelIs prófastdæmi umsjón og
fjárhald Bjarnaness-kirkju með þeim
kjörum, að sá helmingur jarðarinnar
Bjarnaness með hjáleigum, er lands-
sjóður á, verði afhentur söfnuðinum
ásamt kirkjunni.
2. Söfnuðinum í Prestsbakkasókn í Yest-
ur-Skaptafells prófastsdæmi umsjón og
fjárhald Prestsbakkakirkju með þeim
kjörum, að henni fylgi í álag kr. 3750,
en Kirkju- og Brúarfjara falli til lands-
sjóðs.
3. Söfnuðinum í Langholtssókn í Vestur-
Skaptafells prófastsdæmi umsjón og
fjárhald Langholtskirkju með þðim
kjörum, að henni fylgi í álag 2500 kr.
4. Söfnuðinum í Þykkvabæjarklaustur-
sókn í Yestur-Skaptafells prófastsdæmi
umsjón og fjárhald Þykkvabæjarklaust-
urkirkju með þeim kjörum, að henni
fylgi í álag 1000 kr. og fjörur þær,
er kirkjunni eru taldar, verði afhent-
ar söfnnðinum ásamt kirkjunni.
5. Söfnuðinum í Möðruvallaklausturssókn
í Eyjafjarðarprófastsdæmi umsjón og
fjárhald Möðruvallaklausturskirkju með
þeim kjörum, að skuld kirkjunnar við
landssjóð falli niður og að henni fylgi
í álag 4000 kr.
6. Söfnuðinum í Munkaþverárklaustur-
sókn í Eyjafjarðarprófastsdæmi umsjón
og fjárhald Munkaþverárklausturs-
kirkju með þeim kjörum, að henni
fyigi í álag 4000 kr.
Lægri menntamál. Nefndin í þeim
málum hefur borið upp frumvarp um stofn-
un kennaraskóia í Fiensborg við Hafnar-
fjörð. Þar skal kenna: uppeldisfræði, guð-
fræði, íslenzku, dönsku, ensku, iandafræði,
sögu, náttúrufræði, tölvísi, dráttiist, skóla-
iðnað og leikfimi. Þar skulu vera 3 fastir
kennarar, forstöðumaður, er hefur í árs-
laun 2400 kr. auk ókeypis bústaðar í
skólahúsinu og ábúðar á Flensborg, annar
kennari með 2000 kr. árslaunum og þríðji
kennari með 1600 kr. árslaunum. Öll
laun og allur kostnaður við skólann greið-
ist úr landssjóði.
Sama nefnd hefur borið upp tillögu til
þingsályktunar um skilyrði fyrir styrkveit-
ingum úr landssjóði til barnaskóla og
sveitakennara.
Dómsvald hæstaréttar. Benedikt
Sveinsson flytur frumvarp um að uema
dómsvald hæstaréttar í Kaupmannahöfn
sem æzta dóms í íslenzkum málum úr lög-
um. Samhljóða fyrra frv. um það efni.
Sami þingmáður flytur og frumvarp um
að gera landsyfirdómiun í Reykjavík að
æzta dóms í íslenzkum málum, og auka
tölu dómendanna í þeim rétti um tvo, er
hafi 3500 kr. árslaun hvor.
Álit nefndariunar í stjórnarskrármál-
inu er nú loks fullbúið, og verður víst út-
býtt prentuðu á þingi í dag. Það er því
ekki unnt að minnast frekara á það í
þessu blaði. Að sögn er Valtýr einn síns
liðs með frumvarpið sitt, en álit meiri
hlutans nokkurn veginn í samræmi við
landshöfðingjatillöguua.
Ný lög. Þessi lög eru nú að fullu
samþykkt af þinginu: 1. Um að sijslu-
nefndinni í Arnessýslu veitist heimild til
að verja allt að 12,000 hr. úr sýsluvega-
sjöði til flutningabrautar. 2. Um kjörgengi
Jcvenna. 3. Um heimild til að ferma og
afferma skip á helgidögum þjöðkirkjunnar.
4. Um stœJckun verzlunarlóðarinnar á Eski-
flrði. 5. Um uppreisn á œru án konungs-
úrskurðar. 6. Um undirbúning verðlags-
skráa. 7. Um nýbýli.
Til ritstjóra „Þjóðviljans unga“.
Þér hafið, herra ritstjóri, sent mér
nokkurskonar opið bréf í blaði yðar 19
þ. m. Eg hef fátt við það að athuga.'
Hvað kærleika yðar og landshöfðingjans
snertir, þá getur vel verið, að „þar sé allt
með eðlilegu móti“, og hef eg ef til vill
farið oflangt í því, að tala um „ litla kær-
leika" ykkar á millum. Eg hélt, að það
lægi ekki neitt móðgandi í þeim ummæl-
um.
Það er aðeins eitt atriði í bréfi yðar,
sem eg gjarnan óskaði, að fá nánari skýr-
ingu á, og það er, að hverju leyti eg liafi
brugðizt „trausti“ yðar í stjórnarskrár-
málinu nú, og »ð hverju leyti framkoma
mín þar hafi verið óhyggileg. Það getur
þó naumast í yðar augum verið fólgið í
því, að eg hef verið ósamþykkur Valtýs-
flugunni. Annars hygg eg að réttara væri
fyrir okkur, að skemmta ekki þeim Vonda
með því að fara að yrðast út af stjórnar-
skrármálinu í þetta sinn. Eða eruð þér
ekki á sama máli um það?
a2'/7. ’97. Hannes Þorsteinsson.
Mannalát. Nýdáin er frú Ágústa Vigfús-
dóttir (borgara Sigfússonar frá Vopnaflrði) kona
Olgeirs verzlunarstj. Friðgeirssonar á Vopnafirði,
ung kona og vel látin. Einnig er nýdáinn Hall-
grímw Jónsson ungur merkisbúndi á Skeggjastöðum
í Fellum.
Skipakomur. Qufnakipið P. V. Grove kom
hingað 19. þ- m. frá Höín með áhöldin til vitanna
hér á Qróttu og Garðskaga. Farþegi með því
Markús F. Bjarnason skólastjóri. — Póstskipið Laura
kom hingað 20. þ. m. og með því allmargir ferða-