Þjóðólfur - 10.09.1897, Síða 2
172
hrundnm fram ferju og fluttum Tkorodd-
sen suður til Hrappseyjar.j Var okkur
vísað til stofu; hún var fornleg en vei
búin, hengu þar allir Aldinborgarkonungar
með tölu á þiljum. Þorvaldur bóndi var
allra manna hýbýlaprúðastur ogjglaðastur
við gesti sína; skorti þar og fátt til íagn-
aðar. Þeir bóndi og sýslumaður gengu
ýmist út eða inn, og vissum við ekki ræð-
ur þeirra. Þá kom í stofuua mær ein
forkunnar fríð, ljóshærð og litfríð. Það
var yngri dóttir bónda og hét Kristín. Um
hana mátti kveða það sem ort var um
aðra breiðfirzka stúlku:
„Há og grönn og hýr á brá,
horskum mönnum vekur prá,
bein sem hvönn af hvirfli að tá,
hrein sem fönn af nýjum snjá“.
Æjkan sér ávalit æskuua „gegnum glor“
—gegnum gier sinna eigin fegurðardrauma.
En ferð vor var biðilsför Jóns skálds og
sú hin fagra mær varð kona hans. Jón
Thoroddsen var vel á sig kominn, herða-
breiður og hvatlegur, ekki hár maður,
grannleitur, ekki fríðHr, en svipmikill og
og skarplegur. Þorvaldur var grannlegur,
léttur og lipur, glaðlegur, gáfulegur, skjót-
ur og skörulegur. • Hann átfi Eagnhildi
frá Skarði Skúladóttur, sem þá var önduð.
Þorvaldur var lengi umboðsmaður, stund-
um fyrir Snæfellsnessýslu; þingmaður var
hann og; fórst honum jafnan vel og hafði
mannhylli. — Árni Thorlacius var göfug-
menni mikið í sjón, svipmikill sem hers-
höfðingi og ekki þýður í fyrstu, en þó
manna skemmtilegastur; hann var mjög
vel framaður maður og vel að sér, eins og
kunnugt er, einkum í sumum náttúru- og
sagnafræðum. Hann var mikill vexti og
afburðamaður að hvatleik og hreysti,
„sportmaður" hinn mesti. — Hjaltalín var
meðalmaður, sívalur, dökkur á brún og
brá, ramur að afli. Áttu þeir Árni, að
sögn, stundum kappleik saman á yngri
árum, og sættust sjálfir; þótti Árni nokk-
uð stórgeðja, en hinu þrár og þéttur. —
Benedikt, rúðumeistari, sem hafði verið
stórkaupmaður í Khöfn, var þá hniginn
og fornlegur; lærður var hann allvel, eu
þótti vandfýsinn í lund og ekki viðfeldinn
við alþýðu, en þó valinn maður í mörgu.
Hann var hár vexti, en magur og gekk álútur
og boginn í baki. Brynjólfur bróðir hans var
honum ólíkur, og eflaust móðurfrændum
miklu líkari. Hann var meðalmaður vexti
og manna fríðastur og bezt á sig kominn,
fjörlegur og frækinn, svipmikill og fyrir-
mannlegur, augun fögur og andlitið bæði
góðlegt og gáfulegt, en svipurinn þó mjög
breytilegur, því lundin var ör en vitsmunir
skarpir. Hann var allra manna huglát-
legastur, trúfastur og hjartagóður, stór-
gjöfull og hinn mesti skörungur í flestu,
þeirra manna, er eg eg hef þekkt. Var
fle8tum yndi að sækja hann heim, og aidrei
þekkti eg skemmtilegri mann í viðræðum
og umgengni. Hann lét sér mjög og ein-
kennilega annt um aðra og þeirra hags-
muni, og fór þar ekki að mannvirðingum,
því hann var hjálpsemin sjálf; eu um síua
hagi var hann dulur. Þó var liann stund-
um barnslega opinskár; kom það af hrein-
skilni hans, örlyndi og frómlyndi. Kona
hans Herdís, fædd Scheviug, var og hin
bezta og göfgasta kona. En þótt eg vilji
forðast mannjöfnuð, vil eg segja, að Brynj-
ólfur ætti hvergi sinn jafningja um sína
daga í þeim landsfjórðungi. Hann var
metnaðarmaður og ekki smámenni í skapi,
en fór vel með, og aldrei átti hann óvini
eða öfundarmenn, svo eg vissi. Hann var
auðmaður ávaiit, en missti þó stórfé bæði
sakir óhappa og örlyndis. Brotnaði bolli
eða lirífuskapt, fáraðist hanu um og leit
hryggur í brotið, en þegar honum var
voveiflega sögð þau tíðindi, að hin kostu-
lega Reykhólakirkja hans, ný og alger,
hefði fokið og farið í smáspæni, varð hon-
um það eitt að orði: „Eg verð að byggja
aðra sterkari“, og — lék við hvern fingur.
(Meira^.
Lög
um skipun læknahéraða á íslandi o. fi.
(eins og þau voru samþykkt af alþingi).
1. gr.
íslandi skal skipt í 42 læknishéruð, þau er
hér segir:
1. Reykjavíkur hérað: Reykjavíkur kaupstaður,
Seltjarnarness, Bessastaða, Garða og Mosfells-
hreppar.
2. Kejlavíkur hérað: hinir 6 hreppar Gullbringu-
sýslu.
3. Kjósar hérað: Þingvallahreppur, Hvalfjarðar-
strandarhreppur út fyrir Hrafnabjörg og Kjðs-
arsýsla nerna Mosfellshreppur.
4. Skipaskaga hérað: Hvalfjarðarstrandarhreppur
inn fyrir Ferstiklu og hinir 4 syðstu hreppar
Borgarijarðarsýslu.
6. Borgarfjaröar hérað: binn hluti Borgarfjarð-
arsýslu og Mýrasýeia austan Langár.
6. Mýrahérað: hinn hluti Mýrasýslu og Hnappa-
dalssýsla.
7. Ólafsvíkur hérað: syðri hluti Snæfellsness-
sýelu frá Straumfjarðará að Búlandshöfða.
8. Stykldshólms hérað: hinn hluti Snæfellsness-
sýslu; læknirinn í héraði þessu er enn fremur
skyldur, þegar því verður viðkomið og þess
or leitað, að vitja sjúklinga í Fellsstrandar-
hreppi vestan Kjallaksstaðaár og Skarðstrand-
arhreppi sunnau Ballarár, ásamt eyjunum i
þessum hreppi, nema Kauðseyjum, Búfeyjum og
Akureyjuin.
9. Ðala hérað: Dalasýsla nema Bauðseyjar og
Búfeyjar.
10. Reykhðla hérað: Geiradals, Beykhðla og Gufu-
dals hreppar; læknirinn í héraði þessu er enn
fremur skyldur, þegar þess er leitað og því
verður yið komið, að vitja sjúkliuga í Múla-
hrcppi og á Hjarðarnesi.
11. Flateyjar hérað: Flateyjarhreppur, Bauðseyj-
ar og Búfeyjar í Dalasýslu, Múlahreppur og
Hjarðarnes að Yatnsfirði; læknirinn í héraði
þessu er enn fremur skyldur, þegar því verður
við komið og þess er leitað, að vitja sjúklinga
í Barðastrandarhreppi milli Vatnsdalsár og
Hagavaðals.
12. Barðastrandar hérað: Barðastrandarsýsla fyr-
ir vestan Vatnsdalsá.
13. Þingeyrar hérað: Vestur-ísafjarðarsýsla.
14. ísafjarðar hérað: ísafjarðar kaupstaður ásamt
Eyrar, Hóls og Súðavíkur hreppum og Vigur
i Ögurhreppi.
I 16. Nauteyrar hérað: Ögurhreppur nema Vigur,
Beykjarfjarðar, Nauteyrar og Snæfjalla hrepp-
ar.
16. Hesteyrar hérað: Grunnavíkur og Sléttu-
hreppar.
17. Steingrímsfjarðar hérað: Nyrðri hluti Stranda-
sýslu að Ennishöfða.
18. Hrúlafjarðar hérað: Óspakseyrar- og Bæjar-
hreppar i Strandasýsiu, Staðar-, Torfastaða-
(Fremri og Ytri) og Kirkjuhvamms hreppar í
Húnavatnssýslu.
19. BlöncluósB hérað: Hinn hluti HúuavatnBsýslu,
neina Svartárdalur.
20. Sauðárkróks hérað: Skefilsstaða, Sauðár, Stað-
ar, Bípur, Viðvíkur, Hóla og Hofs hreppar.
21. Seilu hérað : Seilu, Lýtingsstaða og Akra
hreppar í Skagafjarðarsýslu, og Svartárdalur i
Húnavatnssýslu,
22. Siglufjarðar hérað: Fells- og Holts hreppar í
Skagafjarðarsýslu, og Hvannneyrar og Dórodd-
staða hreppar í Eyjafjarðarsýslu. Læknirinn i
héraði þessu er enn fremur skyldur til að vitja
sjúklinga í Grímsey, þegar þess er leitað og
því veröur við komið.
23. Höföahverfis hérað: Svarfaðardalshreppur og
Arnarnesshreppur inn að Hiilum i Eyjafjarðar-
sýslu, Grýtubakkahreppur og Hálshreppur norð-
an við Hálssókn i Dingeyjarsýslu.
24. Akureyrar hérað: hinn hluti Eyjafjarðarsýslu,
(nema Grímsey) og Svalbarðs3trandarkreppur í
Dingeyjarsýolu. Læknirinn i héraði þessu er
skyldur tii, þegar þess er leitað og því verður
við komið, að vitja sjúklinga í þeim hluta Höfða-
hverfishéraðs, sem er að vestanverðu við Eyja-
fjörð.
26. Reykdœla hérað: Hálshreppur út að Dralla-
staðasókn, Ljósavatnshreppur ofau fyrir Dór-
oddsstað, Beykdæla og Skútustaða kreppar.
26. Húsavíkur hérað: Grímsey í Eyjafjarðarsýslu,
Ljósavatushreppur upp undir Dóroddsstað, Að-
aldæla og Húsavíkur hreppar.
27. Axarfjarðar hérað: Kelduuess-, I’jalla- og
Skiunastaða hreppar og Presthólahreppur að
Skinnalónsheiði.
28. Þistilfjarðar hér&ð: Hinu hluti Norður-Ding-
eyjarsýslu.
29. Vopnafjarðar hérað: Skeggjastaða og Vopna-
fjarðar hreppar. Læknirinn í héraði pessu er
skyldur til að vitja sjúklinga í Möðrudal og
Víðidal, þegar hans er vitjað og því verður
við komið.