Þjóðólfur - 04.03.1898, Page 4
44
drjúga atvinnu við það verk. Aðaldyrnar á banka-
húsinu verða eigi út að Pósthússtræti, eins og á-
kveðið var í fyrstu, heldur að Austurstræti. Bald
bygginga meistari hefur tekizt á hendur að reisa
húsið. Þá er nýi barnaskólinn á einnig að byggj-
ast í sumar og breyta skal gamla skólahúsinu i
pósthús, auk annars, munu smiðir bæjarins fá nóg
að gera, en þeir verða heldur ekki einir um hit-
una, því að mælt er, að smiðir víðsvegar að ut-
an af landi, haíi þegar tryggt sér atvinnu hér í
sumar, við þessar miklu húsagerðir, sem fyrir hönd-
um eru á þessu ári.
Finnbogi G. Lárusson verzlunarmaður hér í
bænum, er fyr bjó í Kringlu á Akranesi, alkunn-
ur sjógarpur og atorkumaður, flutti héðan i gær
með fólk sitt alfarinn suður að Gerðum í Garði.
Hefur hann keypt þá jörð hálfa, og ætlar að stunda
þar útveg, og jafnvel setja á stofn verzlun.
Heyrst hefur og að Þórður Guðmundsson út-
vegsbóndi (fyr í Glasgow) heíði og í hyggju að
flytja héðan suður í Garð, en eigi mun það fullráð-
ið enn.
Hluta velta fyrir hússtjórnarskól-
ann verður haldin í Iðnaðarmannahúsinu á
laugardaginn og sunnudaginn, 5. og 6. marz,
frá kl. 5—7 og 8—10 e. h.
Þeir, sem vilja svo vel gera að gefa
til hlutaveltu þessarar, eru vinsamlega beðnir
að koma gjöfum sínum til einhverrar af oss
undirrituðum.
Elín Eggertsdóttir. Friðrikka Briem.
Flólmfríður Gísladóttir.
Sj ómenn.
Munið eptir því, áður en þér nú farið
á þilskipin, að hafa með ykkur nóg af áburði
á stigvél yðar, því þar með er mikið sparað
að halda stigvélunum símjúkum, en áburð-
inn ættuð þér þá að kaupa þann bezta,
sem hægt er að fá hjá
Rafni Sigurðssyni.
Prédikun í Good-templarhúsinu sunnudag
kl. 6'A síðdegis, aðgangur einungis með miðum er
óðar fást hjá D. Östlund (bústaður: Norðfjörðs
hús, Grjótagata).
Sjóvetlingar
rónir og órónir eru langbezt borgaðir í
verzlun
B. H. Bjarnason.
í VERZLUN
Th. Tliorsteinsson, Reykjavík
fæst
allt til þilskipaútgerðar
svo sem:
Manilla tóg af öllum tegundum.
Blakkir einf. og tvöf.
Mastursbönd
Kompásar.
Loggeglös.
Þokulúðrar.
Jullugaflar.
Sköfur, kósur, lásar og m. m. fl.
Hollenzkir vindlar og hollenzkt reyk-
tóbak (2 sfjörnur) ásamt ýmsum öðrum teg-
undum af tóbaki eru nýl. komnar í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Fundur verður haldinn í Bindindis-
fjel. íslenzkra kvenna á föstud. 4. marz kl.
8V2 e. m. í Good-Templarhúsinu.
Kol fást bezt og ódýrust hjá
Ásgeir Sigurðssyni.
Ostur, allskonar tegundir nýkomnar í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Fiður fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Brjóstsykur, ótal tegundir, hvergi
jafn Ódýr í stórkaupum sem í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Hvalur fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Farfi allskonar, kítti, rúðugler gott og í
stórum skífum, Fernis- og Terpentínolía ný-
komið með „Laura" í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Fataefni og tilbúinn fatnaður fæst bezt-
ur og ódýrastur í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Jurtapottar af ýmsum stærðum
komu nú með „Laura" til verzlunar
Sturlu Jónssonar.
Borð- og gólfvaxdúkur fæst í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Harðfiskur, saltfiskur, skata, keila,
ög blautt tros, fæst í verslun
Sturlu Jónssonar.
Hattar, Húfur, Waterproof-Kápur, Regn-
hlífar og m. fl. nýkomið í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Rónir Og órónir sjóvetlingar keypt-
ir hæsta verði í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Mér dregið lamb, mark: sneitt fr. biti a. h.
hálft af fr. v., hornmark: miðhlutað h. stúfrifað, biti
a. v. Hornmarkið á eg ekki. Eigandi gefi sig
fram.
Galtafelli í Hrunamannahrepp, 3. jan. 1898.
Jón Bjarnason.
Leiðarvísír til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med.
J. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Prentsmiðja Dagskrár.
af öllum stærðum.
38
rúðunni, sá eg glöggt andlit á manni, er stóð fyrir utan og horfði
inn, en það hvarf á samri stund. Eg þreif marghleypuna mína,
opnaði gluggann og skyggndist um í allar áttir, en sá alls ekk-
ert. Það hvein ákafllega í lestinni og hún hélt áfram með svo
miklum hraða, að eg var nærri því búinn að missa húfuna, er
eg stakk höfðinu út um gluggann. \
„Þú gerir mig hræddan", sagði Alexis, er vaknaði af blundi.
„Hvers vegna stendur þú þarna og starir út“f
„Eg sá rétt áðan andlit á rúðunni", svaraði eg.
„Nei, vinur minn, nú ertu farinn að sjá ofsjónir. Þú hefur
séð andlit þitt speglast í rúðunni og það er alltogsumt".
„Nei“, svaráði eg alvarlega, „eg sá andlit með miklu, Ijósu
skeggi. Eg er dökkhærður og hef aðeins dálítið varaskegg".
Alexis stakk nú upp á, að við skiklum skipta um ' sætí, til
þess að við gætum gengið úr skugga um þetta og það varð til
þess, að hann sagði skömmu síðar, að mér hefði ekki skjátlazt.
„Þetta er mjög varúðarvert" sagði hann, „við verðum að
gefa nákvæmlega gaum að gluggunum".
Við fórum ekki aptur í hin fyrri sæti okkar, en sátum þarna
kyrrir og höfðum báðir marghleypuna okkar í annari hendinni.
Eg gáði á víxl út um báða gluggana og bað Alexis að gera
það líka, en hann var ekki eins athugull og sneri sér opt við
til þess að tala við mig. Þá sá eg allt í einu, að eitthvað
hreyfðist fyrir utan gluggann, sem Alexis sat við, og þegar eg
beygði höfuöið, sá eg andlit og hönd, er miðaði marghleypu á
höfuð vinar míns.
„I guðs bænum beygðu höfuðið niðurl“ æpti eg, og í sama
vetfangi heyrði eg hvell; kúla þaut gegnum rúðuna og Alexis
hné niður.
Eg skaut af marghleypu minni og flýtti mér svo að glugg-
39
anum, þá sá eg mann hlaupa burt eptir gangborðinu og að apt-
asta vagninum og skaut eg undir eins á eptir honum. Því næst
fór eg að hjúkra veslings vini mínum, og þar eð járnbrautarlest-
in staðnæmdist skjótt, lét eg hefja rannsókn eins og framast var
auðið, en það kom fyrir ekki. Morðinginn hefur annaðhvort
hlotið að vera einn sér í vagnklefa eða staðið í einhverju sam-
bandi við vagnþjónana. En einskis varð eg vísari, því enginn
þóttist hafa séð neitt, er gæti vakið minnsta grun.
Til allrar hamingju var vinur minn ekki dáinn, eins og eg
fyrst óttaðist, en andlit hans var skaðskemmt alla æfi.
Félagið »Rauða höndin« hefur að líkindum aldrei orðið vart
við misgáning sinn, en haldið að það hafi ráðið mig af dögum.
Morðinginn hefur þó með naumindum komizt lífs af; kúlan mín
hafði farið gegnum kollinn á húfunni hans, er seinna fannst við
járnbrautina.
Áhrif fegurðarinnar,
Eptir Wilh. Östergaard.
Við ferðuðumst í sama járnbrautarklefa frá Prag til Pilsen1
og hann var einstaklega viðfeldinn og skemmtilegur samferða-
maður. Hann var frá Suður-Þjóðverjalandi og átti heima í
Miinchen, en þótt hann að eins væri lítið yfir tvítugt hafði
hann ferðast víða til þess að skoða listina í ýmsum myndum,
1) Pilsen er smábær í Bæheimi. Við hann er kennt „Pilsner-öl"'
sem er þjóðdrykkur Bæheimsmanna.