Þjóðólfur - 17.06.1898, Side 3
III
manna,, sem þróast og dafna t óhreinindum
þeim, sem eru í spenum og júfrum kúnna.
Þarf því að strjúka vel spenann og júfrið á
kúnum með votri tusku, svo þessar bakteríur
náist burtu og falli ekki niður í mjólkur-
ílátið, um leið og mjólkað er.
Hin algengustu ráð til að hreinsa mjólk-
ina frá þessum og þvíl. efnum, sem berast
meira eða minna í hana, jafnvel þótt alls
hreinlætis sé gætt, er kæling, sýjun og mið-
flóttaafl. Sé mjólkinni haldið hæfilega kaldri
(6—8 stig) á meðan hún er að setjast, þá eru
verkanir bakteríanna óskaðlegar fyrir smjör-
myndunina. En sýja þarf vd öll óhreinindi
frá mjólkinni, áður en hún er látin í það ílát,
sem hún á að setjast í.
Miðflóttaaflið hreinsar Hka mjólkina vel.
Sú mjólk, sem hreinsuð er í hinum svo nefndu
miðflóttaaflsstrokki, geymist vel í marga daga,
sem ný væri.
Af hverju er ísl. smjörið víðast hvar
engu betra en smjörlíki, og á stundum miklu
•óhollara? Af því að mjaltakonurnar eru
sumar óhreinar um hendur, þegar þær mjólka,
hreinsa hvorki spena eða júfur á kúnum né
ílátin, sem mjólkin er látin í, eins og vera
ber. Og svo eru áir, hár og annar óþverri
hafður fyrir krydd í smjörinu. Þetta gerir
smjörið hjá sveitabændum bæði slæmt og lít-
ið, litljótt og bragðslæmt.
Sig. Þórólfsson.
Látinn er um miðjan f. m. Eirikur Jónsson
bóndi á Sólheimum í Hrunamannahrepp, vandað-
ur maður og vel látinn. Hann var kominn í bein-
an karllegg frá Eiriki Jónssyni í Bolholti, er hin
fjölmenna Bolholtsætt er frá komin.
Sjálfsmorð: Aðalbjörg Sigurðardóttir ó-
gipt stúlka á Seyðisfirði 33 ára gömul réð sér
sjálf bana 23. f. m. Magnús Jónsson járnsmiður
i Æðey steypti sér útbyrðis af báti á ísafjarðar-
djúpi 30. f. m. og drukknaði.
bakari, sonur gamla D. Bernhöft bakara, er lát-
inn fyrir mörgum árum. Meðal barna þeirra
hjóna eru: Daníel bakarameistari, Wilhelm tann-
læknir, Lucinde, gipt kaupmanni í Slagelse, Mar-
ia kona Ludvigs Hansen verzlunarm. hér í bæn-
um, Fransiska kona Guðm. Olsen verzlunarstjóra
i Hafnarfirði og Wilhelmína. — Frú J. Bernhöft
var umhyggjusöm móðir, trygglynd, oghjartagóð.
Eptir lát manns síns og tengdaföður rak hún
í íélagi við Daníel son sinn hina elztu og stærstu
bakaraiðn hér í bæ með miklum dugnaði.
Guðmunduz- Guðmundsson lækmr (fyr íLaug-
ardælum) flytur alfarinn héðan úr bænum með
fjlskyöldu sína austur að Stokkseyri. 20. þ. m.
Hefur hann keypt þar timburhús og mun "'ætla
sér að stunda lækningar þar í héraðinu m. fl.
Komið og sjáið
hinar mfldu birgdir af Vasahnífum,
Vasabókum og Peningabuddum hjá
Magnúsi Benjaminssyni.
Veltusundi j.
Guðjón Sigurðsson,
Austurstræti M 14. úrsmiður.
Mikið Íirval af VASAÚRUM af öllum sortum í Gull-, Silfur- og Nikkelkössum,
er seljast vandlega aftrekt með fleiri ára ábyrgð.
Stofu-úrin fallegu og góðu. — Regulatorar -— sem enginn sér eptiraðhafa
keypt. Úrfestar og Kapsel af öllum mögulegum teg. -— Verð 65 aur. til 75 kr.
Enn fremur Skrautgripi hina hentugustu til tryggða- og vingjafa svo semiSHfS-
nálar, Broschur-Ármbönd, Manschettuhnappar, Steinhringir og síðast, en ekki sízt:
TRÚLOFUNARHRINGIR, — nafn ókeypis — af öllum stærðum, gerðir úr
skíru gulli.
Allskonar sjónfæri; Gleraugu, Stækkunargler og Kíkirar, mjög margar
teg. — Verð 5 til 30 kr.
Ingileifur Loptsson.
Söðlasmiður Vesturgötu 54.
Selur reiðtygi bæði ný og brúkuð, hnakk-
töskur, púða, gjarðir, ólar, beizli og reiða.
Verð mjög lágt, sérstaklega mót peninga-
borgnn.
Ekta anilínlitir
ikta anilínlitir. fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og' í verzlun Sturlu Jónssonar Aðalstræti Nr. 14. r+ P P3 3 F p+
■jiþi[uil!UB up13
Jurtapottar af ýmsumstærðum fást f
verzlun. Sturlu Jónssonar.
,,Bjarkí“ hefur tekið aptur meðmæli sín
með Þingvallafundi og snýst nú á móti honum,
þá er hann sá, hvað „Isafold" og „Nýja Öldin“
lögðu til málanna (!!!) Mjög kyndug blaðamennska
þetta. En svo öslar hann aurinn upp í kvið út
af því, að Reykjavíkurblöðin skuli vilja láta leggja
fréttaþráðinn frá útlöndum til Reykjavíkur eða
í grennd við hana, en eigi til Austfjarða og nefn-
ir það hina auðvirðilegustu „hreppapólitik" m. fl.
talar um, að þessi blöð ætli að „drepa verzlun og
atvinnu Austfirðinga" (!!!) og menn ættu að muna
þeim það m. fl. óvönduðum orðatiltækjum. Rit-
stj. hlýtur að hafa skrifað þetta í einhverju óvita-
æði; það eru svo ódrengileg ummæli, að þau þarfn-
ast engra andsvara og dæma sig sjálf. Það ligg-
ur víst hverjum heilvita manni i augum uþpi, að
fréttaþráðarsamband höfuðstaðar vors við útlönd
er landinu öllu mikilsverðara en samband annara
kauptúna landsins. Þar er ekki um neina hreppa-
politik að ræða. En ritstj. Bjarka virðist ekki
sjá út yfir gæruskinnið, sem dr. Valtýr hefur feng-
ið honum til að sprikla á þar eystra. Annars
vildum vér ráða Bjarka til að hafa hægt um sig
1 þessu máli, þangað til Valtýr hefur samið við
ráðaneyti stórveldanna, og útvegað fyrir þeirra
milligöngu vlsindalegar áætlanir um, að langheppi-
legast sé að leggja landþráðinn frá Austfjarðum
til Reykjavíkur yflr skriðjöklana í Skaptafells-
sýslu. Þá fytst getur Bjarki hrópað húrra fyrir
vizku sinni og almætti Valtýs.
Reykjavík 17. júní.
Prestvígður var 12. þ. m. cand. theol. Sig-
urður P. Sivertsen sem settur prestur að Útskál-
um.
Dáin er hér í bænum 1 fyrradag (15. þ.
m0 ekkjufrú Jokanne Bernhöft. Hún var dönsk
í báðar ættir, en maður hennar Wilhelm Bernhöft
Hita- ogf loptþyngdarmælar, hina vönduðustu og m. fl.
STÁLSAUMAVÉLARNAR viðurkenndu komnar aptur.
Ailt selt fyrir lægsta verð, einungis mót peningum út í hönd.
1871 — Júbileum — 1896.
Hinn eini ekta
Brama-Lífs-Elixír.
(Heilbrigðis matbitter).
Allan þann árafjölda, sem almenningur hefur notað bitter þennan, hefur hann rutt sér í
fremstu röð sem matarlyf og lofstír hans breiðzt út um allan heim.
Honum hefur Þilotnazt haesíu verðlaun.
Þegar Brama-lífs-elixír hefur verið brúkaður, eykst öllum líkamanum þróttur og þol,
sálm endurliýnar og fj'órgast, maður verður glaðlyndur, hugrakkur og starffús, skilningar-
vitin verða næmari og menn hafa meiri ánœgju af gæðum lífsins.
Enginn bitter hefur sýnt betur, að hann beri nafn með rentu en Bpama-lífs—
elixir, en sú hylli, sem hann hefur náð hjá almenningi, hefur gefið tilefni til einskis nýtra
eptirlíkinga, og viljum vér vara menn við þeim.
Kaupið Brama-1 ifs—elxir vorn einungis hjá útsölumönnum vorum, þeim
sem fengið hafa umboð frá oss, sem eru þessir:
Akureyri: Hr. Carl Höepfner.
----Gránufélagið.
Borgarnes: Hr. Johan Lange
Dýrafjörður: Hr. N. Chr. Gram.
Húsavík: Örum & Wulffs verzlun.
Keflavík: H. P. Duus verzlun.
, -----Knudtzon’s verzlun.
Reykjavlk: Hr. W. Fischer
Einkenni: Blátt Ijón og gullhani
Mansfeld-Bullner
Raufarhöfn: Gráfiufélagið.
Sauðárkrókur:---------
Seyðisfjörður:-------
Siglufjörður:--------
Stykkishólmur: Hr. N Chr Gram.
Vestmannaeyjar: Hr. J. P. T. Bryde.
Vik í Mýrdal: Hr. Halldór Jónsson.
Ærlækjarsel: Hr. Sigurður Gunnlögsson.
á einkennismiðanum.
& Lassen,
hinir einu, sem búa til hinn
verðlaunaða Brama-lífs-Elixir.
Kauþmannahöfn, Nörregade 6.