Þjóðólfur - 23.09.1898, Síða 2

Þjóðólfur - 23.09.1898, Síða 2
174 um, hljóta allar útigangssveitir að leggjast í eyði. En ekki tel eg búnaðinum það mikla framför. Og svo er nú reynslan þessi, í hið minnsta þau tæp 60 ár, sem eg hefhaft vit á eptir að taka, að almennur fellir á sér alls ekki stað, nema þegar harðindi og bjarg- leysur standa lengur eða skemur fram eptir sumri, og horfellir er, sem betur fer, að verða fátíðari miklu en hann var áður. Því skal þó eigi neitað, að til eru bænd- ur svo skeytingar- og fyrirhyggjulausir, að þeir bæði hirða fénað illa og ætla honum oflítið fóður, en þetta, er, sem betur fer, að eins örfáar undantekningar. En að gefa út al- menn lög, mjög dýr í framkvæmdinAi og að öðru leyti hér um bil óframkvæmanleg svo í lagi geti farið, álít eg bæði ósanngjarnt og vitlaust, þegar svo stendur á. Horfellislögin frá 1884 ættu að vera nóg aðhald fyrirslíka pilta, og þá var sannarlega ráð, að gera ráð- stafanir til að þeim lögum væri betur hlýtt. Eg vona því að næsta alþing fái fjölda bæna um að nema lög þessi úr gildi, og að þeir, sem eiga að framfylgja þeim geri það svo mannúðlega og varlega, að þau verði ekki áður búin að vinna mjög mikið tjón. Útlendar fréttir. Kaupmannahöfn, g. sept. Danmörk. 2. sept. fóru fram al- mennar kosningar (þ. e. a. s. allir kjósendur, hærri og lægri) til landsþingsins, og sam- kvæmt þeim munu vinstri- og jafnaðarmenn vinna 5 sæti frá hægri mönnum. I dag eiga hærri kjósendur að kjósa, en flestir þeirra fylla flokk hægri manna, svo að andstæðing- ar þeirra búast ekki við, að korna neinum sinna rnanna að; það skyldi vera, ef þeir ynnu í 2 kjördæmum hér í Höfn, og er þá ætlun þeirra að korna Marstrand bakara að, og yrði þá annaðhvor þeirra Matzens pró- fessors eða Nellemanns gamla að víkja. ' Gegn þeim félögum, Hoim skraddara og Larsen, á nú að hetja sakamál. Holrn hefur afsalað sér sæti sínu í bæjarstjórninni og þar með líka sagt af sér varaformennsk- unni, en í hans stað er P. Knudsen kosinn varaformaður. Hermálaráðgjafinn hér, Tuxen, hefur með samþykki hinna ráðgjafanna tekið úr ríkis- sjóði c V2 miljón króna til þess að kaupa sprengikúlur og önnur herföng fyrir, þrátt fyrir það, að þingið þver- neitaði að leggja fé til slíkra þarfa í vetur; hvernig þeir góðu herrar fara að bjarga sér úr þeirri klípu, þegar þingið kemur saman í haust, er ekki gott að vita, en vel sýnir þetta, hve lítið stjórnin kærir sig um samn- ingana frá 1894. Annars gengur sú flugu- fregn hér, að þeir Styhr og Rump syngi nú á útgönguversinu sem ráðgjafar, og aðStyhr taki við biskupsembætti sínu aptur, en Rump setjist á hala sinn sem amtmaður í Vejle. Drottningin varð 81 árs í fyrradag. Af heilsu hennar ganga ýmsar lausafregnir, bæði í innlendum og útlendum blöðum, og allar í þá áttina, að hún eigi skammt eptir ólifað, og þykir það benda til þess, að öll börn hennar og margt annað skyldmenni er hér samankomið, og það með litlum eða engum fyrirvara. Víst er um það, að blöðin hér segja, að ekki geti verið um meira en mán- uði ólifaða að tala, og heyrzt hefur, að það ætti að vera vatnssýki, sem að henni geng- ur, en ekki sel eg það dýrara en eg keypti. England: Loks eptir 13 ár hefur Englendingum tekizt að hefna Gordons hers- höfðingja, og ná aptur Khartum á Egypta- landi. Eins og flestir muna, þá féll hann þar árið 1885 fyrir *mahdianum« (þeim ept- irvænta Messíasi), og hefur eptirmaður . hans — hinn dó sem sé snögglega skömmu síðar — haldizt við með sveitir sínar í Efra-Egypta- landi síðan. Fyrir 3 árum byrjuðu Englend- ingar að reyna að reka hann á braut þaðan og tókst það loks til fulls 2. sept. síðastl., er þeir unnu algerðan sigur á honum við Om- durman; hann komst sjálfur á flótta við 150. mann, en um 16000 af mönnum hans féllu, en 500 af Englendingum. Herforingi Englend- inga heitir Kitchener. FrakkIar)d:Eins og lesendur Þjóðólfs muna, þá las Cavaignac hermálaráðgjafi, upp 3 bréf í sumar á þingi Frakka, og áttu bréf þau að sanna sekt. Dreyfus; í tveim af þeim stóð aðeins D., en í þriðja bréfinu stóð Dreyfus fullu nafni. Nú hefur það komist upp, að Henry ofursti, er var aðalvitnið gegn Dreyfus, hefur falsað hið síðastnefnda bréf, og sjalfur ritað það; Cavaignac lét kalla hann fyrir sig, og játaði hann þá sökina á sig; var var hann þá settur fastur, en skar sig á háls í fangelsinu daginn eptir. Þetta hefur kom- ið ákafri hreyfingu á málið og snúið huga flestra þeirra, er áður voru andstæðir Dreyfus, en Cavaignac þóttist engu að síður sannfærð- ur um sekt Dreyfus, og setti sig þveröfugan gegn því, að málið yrði endurskoðað, en var ofurliði borinn í ríkisráðinu, og hefur nú sagt af sér, en Zurlindén herforingi tekið við í hans stað, og verður nú ekki annað séð, en að málið verði innan skamms endurskoðað, og kemst þá vonandi sannleikurinn fram. Boisdeffre herforingi, er einnig vitnaði gegn Dreyfus, og var yfirboði Henrys, hefur sagt af sér, og síðustu fregnir segja, að du Paty de Clam sé tekinn fastur. -— það virðist hafa verið mál til komið með þann „kavallera" — en Esterhazy sé flúinn. Rússland: Eins og skrattinn úr sauð- arleggnum kom bréf um daginn frá sjálfum keisaranum til allra sendiherra í Pétursborg og biður hann þá, að bera það upp, hvern við sína stjórn, að stofna til fundar, þar sem mæti sendiboðar frá hverju einasta ríki, til þess að ræða og koma sér saman um minnkun á þeim ógurlega herkostnaði og herhaldi, sem hvílir nú eins og mara á hverri þjóð; vill hann helzt afnema allt þar að lút- andi, en koma á alríkja-úrskurðardómstól, til þess að skera úr, er ósátt kemur upp ámilli tveggja eða fleiri ríkja. Eins og nærri má geta, þá kom það eins og reiðarslag yfir menn, að slík tillaga skyldi koma úr þeirri átt, og vakti mikla gleði meðal almennings, og stjórnirnar tóku vel undir, en hvort sá fundur, ef hann verður haldinn, fær nokkru framgengt, skal ósagt; það er of mikil tor- tryggni meðal þjóðanna, til þess að líkindi séu til þess. Svíar og Danir hafa þegar samþykkt, að taka þátt í fundinum, sem heyrzt hefur, að keisarinn vilji að haldinn verði í Kaupmannahöfn, og verður það þá líklega með vorinu. Þýzkaland: Nú hefur Vilhjálmur keisari haldið tvær ræður, það gat ekki minna verið. Samkvæmt annari vill hann beita hegningarhúsvinnu gegn hverjum þeim, er hvetur til verkfalls, með öðrum orðum, hann vill taka fyrir munninn á foringjum jafnaðar- manna og blöðum þeirra, og taka frá verka- mönnum hið eina friðsama vopn þeirra gegn yfirgangi auðkýfinganna; ekki fyrir það, það! er lítið útlit fyrir, að hann nái tilgangi sín- um, en — viljinn er þar. í hinni ræðunni segir hann meðal annars, að hann vonaði, að atvinnuvegir ættjarðarinnar vildu allir taka saman höndum, en það væri að eins mögulegt með verndun friðarins, en þá verndun gæti að eins veitt her, sem við öllu væri búinn! „Guð gefi, að oss verði ætíð mögulegt með svo ágætu og vel viðhöldnu vopni að sjá fyrir því, að friðurinn geti ríkt í heiminum". Hvað skyldi „vor elskulegi, keisaralegi bróðir og vinur“ á Rússlandi segja við þessu ? Það leikur orð á, að Þjóðverjar og Eng- lendingar hafi gert samband sín á milli, en eins og vant er um þess háttar hluti; þá veit enginn, hvers efnis það er. Holland: Vilhelmína, Hollandsdrottn- ing, varð 18 ára 5. þ. m., og átti þá að taka við stjórninni sjálf, en móðir hennaa hefur stjórnað fyrir hana á meðan hún var ómyndug; hefur hún nú verið krýnd í Am- sterdam þessa daga með miklu hátíðahaldi. Alltaf öðru hverju koma lausafregnir um Andreé, en á þeim eru engar reiður hend- andi, og ekkert af þeim skipum, sem ferð- azt hafa um Norðuríshafið, kringum Spitz- bergen og Frans-Jósepsland, hefur orðið vart við hann, Milli Bandamanna og Spánverja er nú ófriðnum lokið og friðarskilmálarnir til bráða- birgða þegar fastsettir og undirritaðir, og hefir það gengið furðu fljótt og greiðlega. Þessi eru aðalatriðin: 1.) Spánverjar sleppa yfirráðum sínum yfir Kúba. 2.) Bandamenn fá yfirráð yfir Portorico og öðrum eignum Spánverja á Antillaeyjunum og þar að auki Ladronaeyjunum. 3.) Bandamenn halda Man- ila undir sér á meðan á friðarsamningum stendur. 4.) Spánverjar eiga þegar í stað að hypja sig burt af Kúba, Portorico og öðrum Antillaeyjum. 5.) Bandamenn og Spánverj- ar útnefna, hvorir fyrir sig, eigi fleiri en 5 menn, er semja eiga friðarskilmálana, og eiga þeir að vera samankomnir í París fyrir 1. október. — Þá eru loks síðustu eignir Spán- verja í Vesturheimi gengnar úr greipum þeim , og geta þeir kennt sjálfum sér urn, Það er talið víst, að ekki líði á löngu, áður lát páfans í Róm, Leos 13. heyrist;. hann talar lítið og óheyrilega, getur hvorki hugsað, skrifað né gegnt embættisstörfum. Viðauki: Þau hryllilegu tíðindi höfðu spurzt til Skotlands, rétt áður en »Vesta« fór þaðan, 13. þ. m. að ítalskur þorpari hefði myrt keisaradrottninguna í Austurríki, Eliza- betu frá Bayern, — stungið hana með rýt- ing til bana. Frá nánari atvikum við þenn- an svívirðilega glæp verður síðar skýrt betur. Elizabet drottning var rúml. sextug að aldri (f. 1837), fyrirtaks fríð kona sínum og há- menntuð, en veikluð á geðsmunum síðari ár- in af ýmsu mótlæti. 1

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.