Þjóðólfur - 21.03.1899, Page 1

Þjóðólfur - 21.03.1899, Page 1
ÞJÓÐÓLFUR. 51. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 21. marz 1899. Nr. 13. Suðræna stjarnan. — Náttúran öll er svo köld og kyr sem kirkja þögul, með auðum bekkjum. Vindarnir læðast um ljósgeimsins dyr og landbáran sefur i frosnum hlekkjum. Allt er svo hljótt. Það er heilagt í kvöld. Nú hyljast öll lífsins öfl og völd. En hugur minn glæðist af auðn þess ytra — 1 anda jeg sje gegnum blámans tjöld, finn strengina á heiðloptsins hörpum titra. Jeg horfi á þig tindrandi töfrahöll; hver taug mín er hrifin af skrautsins spili. Nú glampa við opin gullportin öll, og graikyrt hvert ský eins og málverk á þili. Það glitrar á spegla um voga og völl — og vegghá sig reisa hvítmöttluð fjöll. Gólfið er íslagt og ofið með rósum, en efst uppi í hvolfi, yfir svellum og mjöll, er krónan með miljón af kvikandi ljósum. Hún ljómar og skín út á ysta álm af eldum með blikandi gimsteinaliti; einn brennur þó ríkast á röðlanna hjálm með rúbínsins loga, með smaragðsins gliti. Suðræna stjarnan mín, stolt og há sterkasta ljósið, sem hvelfingin á! — Jeg elska þig, djásnið dýrðarbjarta, demant á himinsins tignarbrá, geisli af kærleik frá guðdómsins hjarta. Hvað veldur að þú ert ást mín ein, af öllum blómum í stjarnanna kransi? Svo margt skin þó eplið á glitmeiðsins grein, og gott er um sólbros í hnattanna dansi. — Mín jarðneska hugsun, þitt himneska bál, hittust eitt kvöld eins og tinna við stál, og síðan man jeg þig, svipurihn fríði, sje þig í draumi, við gleðinnar skál, finnst allt, sem er fagurt, þjer einum til prýði. Um þig kveður aldan og andvarans sog, þjer ómar hvert ljóð, sem mitt hjarta á grafið, til þín horfa loptsalsins þjótandi log, til þin streymir sál mín, sem lindin í hafið. Almáttka fegurð, hrein og há, jeg hneigi þjer, ann þjer með brennandi þrá. Stjörnudjásnið mitt dýrðarbjarta demant á guðdómsins tignarbrá. I jós, gegnum dauðadjúpið svarta. Einar Benediktsson. Útlendar fréttir. Kaupm.höfn 4. marz. Frakkland er viðburðanna land; þótt alstaðar annarsstaðar sé hljótt, ber þar ætíð eitthvað til tið- inda. Seinasti merkisviðburður þar syðra erlát Felix Faure’s ríkisforseta. Hann andaðist snögglega 16. f. m.. kl. 10 um kvöldið; sýktist kl. 8. og lézt tveim stundum síðar. En Frakkar eyða ekki tímanum með dundi og draumórum; 1 r/2 degi síðar hófðu þeir skipað sæti hins framliðna for- seta nýjum manni, Emile Loubet, fyrrum ráð- gjafa og nú forseta öldungaráðsins. Kosning þessi kom þó engum óvænt, því að L. er marg- þvældur og þaulæfður »politikus« og að þvíleyti næstur til forsetatignarinnar, sem hann áður sat í næst hæsta sessi sem forseti öldungaráðsins. Þegar Faure dó, héldu margir, að fráfall hans mundi stofna Frakklandi í hættu. Æsing- arnar út af Dreyfusmálinu hafa raskað friði þjóð- urinnar svo mjög, að menn hafa einatt óttast stjórnarbylting og borgarastríð; hættan var þvx meiri, sem keisara- og konungsinnar, Bonapart- istar og Orleanistar, vitanlega brenna í skinninu eptir tækifæri til þess að brjótast til valda og eru því stöðugt á spöðunum; en það sýndi sig, að lýðveldismennimir eru ofaná, og nýi forset- inn var undir eins kosinn slykkjalaust. Faure var enginn afbragðsmaður að gáfum eða dugnaði, en lipurmenni, snyrtimaður mikill og hafði lag á að umgangast háa og lága án þess að rekast á. Alit hans og hylli á Frakk- landi jókst sérstaklega við ferð hans til Rúss- lands hér um árið; honum tókstloksins að veiða upp úr Rússakeisara htð margþráða orð »alli- ance«, með öðrum orðum, hann fékk keisara til að lýsa því yfir opinberlega, að Frakkar og Rúss- ar hefðu svarizt í fóstbræðralag. Það studdi og veg Faure’s, að hann lifði rfkmannlega og horfði ekki í skildinginn, eins og t. d. Grevy, sem var mesti nirfill og því ætíð litinn hornauga af Frökkum, sem eru skrautgjarnir og hégómlegir. F. var for- ríkur, áður en hann varð forseti og gat þvl þótt launin hrykkju ekki til, lifað og látið eins og hann vildi. Öðru máli er að gegna með nýja forsetann; væri hann á Islandi með þeim efnum, sem hann hefur, gæti hann reyndar staupað sig án þess að fara á sveitina, hann á eitthvað nálægt 400 þús- und krónur, en fyrir forsetann á Frakkl. eru þess- ar reitur eins og krækiber í sjó. Hann er held- ur ekki svo lipur í framgöngu sem Faure, en sem stjórnmálamaður stendur hann sjálfsagt skör framar. Loubet er af bændafólki kominn; móðir hans lifir enn og er á níræðisaldri; eptir mynd- um af henni lítur hún út, eins og fátækleg sveita- kona. Forsetinn er fæddur 31. desbr. 1838 í Marsonne f fylkinu Drðme, las lög, gerðist mála- færslumaður, seinna borgmeistari, kornst 1876 inn í fulltrúaþingið og 9 árum seinna inn í öldungaráðið, 1892 ráðgjafaforseti, 1896 forseti í öldungaráðinu og nú ríkisforseti. Forsetakosningin fór fram 18. f. m., kl. x. e. h. Það voru lýðveldismennirnir, frjálslyndu flokkarnir, semstuddu Loubet, apturhaldsmennirnir og nationalistarnir (þjóðvinirnir) studdu þar á móti Meline, sem var ráðgjafaforseti næst á undan Brisson. Loubet fékk 483 atkvæði, en Meline að eins 279. Nationalistarnir hömuðust og hótuðu L. öllu illu; þeir neru L. einkum þvf í nasir, að framkoma hans í hinu svokallaða Panamamáli hér um árið hefði hvergi nærri ver- ið vítalaus, en annars var ekki mikið urn rnann- inn að segja, því að hann kvað vera mesti sóma- maður. Það urðu þó ekki nein veruleg brögð að ólátum þessum fyrensama kvöldið, sem Faure var jarðaður; þá brutust óróaseggirnir, þar á með- al fremstur í flokki Paul Derouléde, þingmað- ur og forseti hins svonefnda Þjóðvinafélags^ inn í hermannagarð í París og hvöttu foringja og dátana til þess að gera uppþot. En D. og fl. voru teknir höndum og settir í varðhald og verður nú höfðað mál á móti þeim og efþað sannast, að D., sem hafði verið svæsnastur hafi ætlað að æsa til stjórnarbyltingar, verður gaman- ið honum grátt, þvi að eptir frakkneskum lögum getur hann þá fengið sömu hegning sem Drey- fus. Rannsóknirnar í málinu standa nú sem hæst, stjórnin kvað ætla að nota tækifærið til þess að róta eitthvað upp í Þjóðvinafélaginu og öðrum svipuðum pólitiskum félögum. Hæstiréttur hefur í gær fellt úrskurð um það atriði, hvort mál Picquart’s ofursta skuli dæmt af herrétti eða borgaralegum dómstól, Að því er aðalákærurnar snertir, þar á meðal ákæruna fyrir fölsun á bréfi Esterhazy til Schwartzkoppen ofursta hins þjóðverska, ákveður hæstiréttur, að P. skuli dæmdur við borgaralegan dómstól; her- rétturinn fær þar á móti að svala sér á nokkr- um smámunum, sem P. varla getur fengið neina hegning fyrir. Hagur P.'s stendur þannig bet- ur eptir en áður. Til forseta í öldungaráðinu (senatinu) í stað Loubet’s er kosinn Falliéres með 151 atkvæð- um. Constans, sendiherra Frakka í Konstanti- nopel, fékk 85 atkv. F. er 58 ára að aldri, var upphaflega málafærslumaður, en hefur seinna set- ið í ráðaneyti Ferry’s, Tirard’s og Freycinet’s. Embætttismaður í utanríkisráðaneytinu Juss- eraud er skipaður sendiherra Frakka í Kaup>- mannahöfn. Þingmaður Slésvíkinga Gustaf Jóhannsen lagði nýlega áþýzka þinginu fyrirspurnfyrirstjórnina út af ofsóknum í Slésvík. Hohenlohe ríkiskansl- ari neitaði að svara og gekk út úr þingsalnum- en umræðurnar urðu langar og það sýndi sig, að mikill hluti þingmanna var andstæður stjóm- inni í þessu máli og fór hörðum orðum um að- ferð Köllers þar nyrðra. Vilhjálmur keisari hefur nýlega haldið ræðu, þar sem hann meðal annars talaði um ferð sína til Jórsala, þegar hann stóð á Olíufjall- inu og minntist þess, er Kristur hafði gert fyrir mannkynið, ásetti hann sér að hjálpa Þjóðverj-

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.