Þjóðólfur - 23.02.1900, Qupperneq 4
36
4 ágæt
legum stað. Sig.
loptherbergi, 2 og 2 saman, fást
til leigu frá 14. maí á skemmt.i-
Þóróifsson VesturgÖttu 35 vísar á.
Yfirfrakka,jakka og Karlmannaalfatnadi
selur verzlun Björns Kristjánssonarí
Reykjavík.
Mikið af ódýrum
og sterkum KARLMANNAFÖTUM er nú
til sölu hjá mér, saumuðum á vinnustofu
minni.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri. ,
Ágætt hveiti og hafra selur
verzlun
Björns Kristjánssonar í Reykjavík.
Yetrarhúfur
sauma eg, og sel mönnum, ef þeir óska, úr
mjög góðu efni.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri.
0
0'
Kristján Þorgrímsson
selur:
ELDAVÉLAR og OFNA frá beztu
verksmiðju í Danmörku fyrir innkaups-
verð, að viðbættri fragt. Þeir, sem
vilja panta þessar vörur, þurfa ekki
að borga þær fyrirfram, aðeins lítinn
hluta til tryggingar því, að þær verði
keyptar, þegar þær koma.
0
**»
Þessar sendingar eru
óútgengnar við afgreiðsluna:
Jóhann Jónsson, Reykjavík 1 koffort og 1 kassi.
Pétur Halldórsson, 1 skjóða.
Stefán Ólafsson, 1 poki.
Sæm. Jónssoná Minnivatnsleysu, 1 smjörböggull.
Þ. Sigurðsson í Víðinesi, 1 poki ull.
Sveinn Jónsson í Amesi, 1 pokabúnt
Gísli Arinbjamarson, Hlíðarenda 1 búnt ritti.
F. Þ., 1 búnt madressur.
A. M. 1 pakki ull.
Þorfinnur 1 pakki.
M.Jónsd., merkið óglöggt. 1 kassi með kjöti og smjöri.
Arni Pálsson, ísafirði 1 gult koffort.
Guðrún í Reykjafirði, 1 söðull.
Ó merkt.
3 pokar með trosi og hval.
1 do. — kvennfötum.
1 do. — sjófötum.
1 do. — pilsi, sokkum og pokum.
1 brotin regnhlíf.
x byssa.
1 stóll.
1 orf.
i dúnkur.
1 kassi og í honum böggull, merktur: Jónína Jóns-
dóttir, falinn á hendur Önnu Lárusdóttur á ísafirði.
Tros og hvalur verður selt, sé það óútgeng-
ið h. 1. marz þ. á. Hinar sendingarnar verða
seldar í byrjun júlím. þ. á., séu þær þá óútgengnar.
Hinir heidrudu afgreidslumenn félagsins úti um
landiS, eru vinsamlega bednir að senda mér lista yf-
ir sendingar pcer, er kynnu að vera í óskilum hjd
feim.
Afgreiðsla hins sameinaða gufuskipafélags.
Reykjavík 22. febrúar 1900.
C Zimsen
,Bazar Thorvaldsensfélagsins.
Thorvaldsensfélagið hefur í hyggju að hafa opinn „bazar" eða útsölu á næsta sumri
mánuðina júní, júlí og ágúst. — Á „bazarinn" verður tekinn til útsölu allskonar innlendur
iðnaður, svo sem tóvinna, fatnaður, hannyrðir og smíðar allskonar (eldri og yngri), sem ekki
eru fyrirferðarmildar. Félagið skorar því á alla þá, sem vilja koma munum til útsölu á
„bazar" þennan, að afhenda þá einhverri af oss undirskrifuðum gegn kvittun. Utanbæjar-
menn verða að hafa hér umboðsmann, er afhendi hlutinn og taki móti annaðhvort andvirði
hlutarins, þegar hann er seldur eða hlutnum sjálfum, ef hann ekki selst á þessu sumri. í
ráði er að hata „bazar" á sama tíma næstkomandi 3 sumur. Nafni eiganda verður haldið
leyndu, sé þess óskað. Hlutirnir verða í ábyrgð félagsins, meðan þeir eru í þess vörzlum.
Eigandi tiltaki sjálfur útsöluverð hlutarins á „bazarnum", en félagið áskilur sér 10 af hundr-
aði í útsölukostnað, þó ekki nema hluturinn seljist. —
Ingibjörg Bjarnason. Ingibjörg Johnsen. Lovisa Finnbogasen.
Pálína Þorkelsson. Þórunn Jónassen.
Allar tegundiraf farfavöru, einn-
ig ýmsar tegundir af lökkum, bronze,
terpentínolia, fernisolía, blackfern-
is, grijákvoða, (þólitur), benzin, sal-
míakspiritus, stearinolía, Vinar-
kalk, skósmiðavax, seglgerðar-
mannavax og margt fleira, sem
hvergi fæst annarsstaðar.
Allt þetta selzt mjög ódýrt
í verzlun
Sturlu Jónssonar.
1 verzlun
Vilhjálms Þorvaldssonar
á Akranesi
eru keypt a 11 sk onar brúkud islenzk
frímerki.
Inntökupróf
til 1. bekkjar hins lœrða skóla
verður haldið föstudaginn 29. júní næstkom-
andi. Um inntökuprófsskilirðin vísast til
reglugjörðar firir hinn lærða skóla 12. júlí
1877 3. gr, og til síðustu skólaskírslu. Ní-
sveinarnir verða að hafa lesið alt ágripið af
íslandssógu frá upphafi til enda.
Þeir nísveinar, sem vilja setjast ofar enn
í nedsta bekk, verða að vera komnir til Reikja-
víkur í byrjun júnímánaðar, til þess að þeir
geti gengið undir prófmeð lærisveinum skólans.
Reikjavíkur lærða skóla 15. febr. 1900.
Björn M. Ólsen.
NORDISK BRANDF0R8IKRING
tekur í ábyrgð hús, vörur, húsgögn o. fl. fyr-
ir lœgra iðgjald en önnur félög eru vön að
gera hér á landi.
Halldór Jónsson bankagjaldkeri er um-
boðsmaður fyrir Reykjavík, Kjósar- og Gull-
bringusýslu, Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Lefoliis verzlun á Eyrarbakka hefur um-
boð fyrir Árnessýslu og Rangárvallasýslu.
Hálstau
svo sem lérepts- flibbar, kragar og
mannséttur, slips, slaufur, (mislit, hvít
og svört) brjósthlífar, hálskragar og
mansét-hnappar, bómullarhanzkar o. fl.
fæst hjá undirrit. fallegt Og Ódýrt.
M. Johannessen.
í verzlun
Vilhj, Þorvaldssonar
á Akranesi
eru nýkomnar ýmsar vörur, svo sem mat-
vara, kaffi, sykur, margskonar brauð, stein-
olía, skotföng o. fl., ásamt allskonar tóbaki,
er selst óbreyttu verði þrátt fyrir tollhækk-
unina.
Rjúpur verða teknar þangað til „Laura"
fer 23. marz n. k. og að nokkru leyti borg-
aðar í peningum, ef þess er óskað.
Smjör og haustull er alltaf tekið hæsta
verði.
Ekta anilinlitir
c
'E
nj
ctf
■H
UJ
'UIJIUB
VOTTORÐ
Kona mín hefur árum saman þjáðst af
taugaveiklun og illri meltingu, og hefur árang-
urslaust leitað ýmsra lækna. Eg réð því af,
að reyna hinn fræga Kína-lífs-elixír frá hr.
Valdernar Petersen í Frederikshavn, og þá
er hún hafði brúkað úr 5 flöskum, fann hún
mikinn bata á sér. Nú hefur hún brúkað úr
7 flöskum og er orðin öll önnur en áður,
en þó er eg viss um, að hún getur ekki ver-
ið án elixírsins fyrst um sinn.
Þetta get eg vitnað af beztu sannfær-
ingu og mæli eg því með heilsubitter þess-
um við alla, sem þjást af svipuðum sjúkdómum.
Norðurgarði á Skeiðum.
Einar Árnason.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum kaup-
mönnum á íslandi.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta
Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel
V P
eptir því, að-þý- standi á fiöskunum 1 grænu lakki,
og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku
miðanum: Kínverji með glas f hendi, og firma-
nafnið Waldemar Petersen, Nyvej 16, Köbenhavn.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Glasgow-prentsmiðjan.