Þjóðólfur - 16.05.1900, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 16.05.1900, Blaðsíða 2
I ast er sllk skurðagerð aðeins kák og ekkert ann- að, enda þótt það hjálpi stöku sinnum í svip. Þessir smásktirðir, ef skurðir geta heitið, hafa tíðast ekkert frárennsli; en vatnið, er þeir bera með sér, fer á glæður, þar sem þeir enda, og opt eruþeir grónirsaman eptir 2—4 ár. A stórum svæðum vantar alla aðalskurði, og meðan svo er, þarf eigi að vænta, að veruleg framræsla geti átt sér stað. Það sem því fyrst og fremst rlður á er, að gerðir séu öflugir skurðir, affærslu- skurð ir nokkuð vlða, einkum þó þar, sem land- ið er lægst. Þessir aðal affærsluskurðir, sem gera þarf um Flóann, þurfa að hata góða fram- rás, annaðhvort í Ölfusá, eða fram í sjó. Þessir skurðir þurfa að vera fleiri þúsund faðmar á lengd, — sumir þeirra 4—6 þúsund faðmar, — og 8— 12 fet á breitt að ofan. Þegar þessir einstöku afíærsluskurðir eru gerðir, og þá þarf að gera sem fyrst, er kominn tími til að gera frekari gangskör að framræslunni, og þurka jörðina ept- ir því, er þurfa þykir. En framræslan á þessum víðlendu mýrarsvæðum, bæði í Flóanum og víðar, hlýtur ætíð að verða kostnaðarsöm, einkum þar, sem landið er flatt eða hallalítið. Sem dæmi skal eg nefna skurð í Sandvíkurhreppnum, sem byrjað er á fyrir nokkru, en sem þarf að lengja og endurbæta. Hann verður þá verkinu er lok- ið, allt að 7 þúsund föðmum á lengd og 8—10 fet á breidd að ofan. Það varðar miklu, að þess- ir affærsluskurðir, sem og allir aðrir skurðir, séu vandaðir að allri gerð, og lagðir á hagkvæmum stöðum. Til þess að verkið eða framræslan fari vel úr hendi, og komi að fullum notum, þurfa bændur um fram allt, að sýna samheldni og fé- lagsskap. Hina stærri aðalskurði, sem liggja um iörrtb margra jarða, þurfa menn að gera í félagi, undir góðri verkstjórn. Þegar hver sker eða ræsir fram, aðeins fyrir sínu landi, eins og stundum ber við, getur svo farið, að verkið við það líði baga, og framræslan fyrir þá sök lendi í hálf- gerðum handaskolum, og komi eigi að fulltim notum. Tíma og tækifæri er spillt, og peningum eytt í ráðleysi. Þegar um hina stærri skurði er að ræða, — affærsluskurðina, — sem minnst hef- ur verið á, að gera þyrtti, verður bezt að fela einstökum mönnum alla umsjón með þeim, og aðal- eða yfirverkstjórnina. Verkamönnunum er bezt að skipta í smáhópa, eptir ástæðum og fyrirkomulagi verksins, og sé tilnefndur maður í hverjum hóp, er sjái yfir og stjórni. Búnaðar- félög sveitanna, ættu að leggja fram einhvern styrk til þessara skurðagerða af sjóði sínum, eða styrk þeim, er þau fá af landssjóði, Áður en verkið er byrjað, þarf að fara fram skoðun og mæling, og gera áætlun um kostnaðinn. Njóti fyrirtækið styrks af opinberu fé, auk þess, sem hreppsbún- aðarfélagið leggur því, þá leiðir það af sjáltu sér. að verkið verður að takast út, er því er lokið. Yfir höfuð varðar það mjög miklu, að öll þau verk og fyrtæki, hvort heldur eru skurðir eða annað, sem kosta töluvert og lengi eiga að standa og gera gagn, séu hyggilega stofnuð, og vand- virknislega af hendi leyst. Þetta verður vel að hafa hugfast strax í byrjun, og leggja því aðeins út í fyrirtækið, að það, eptir áliti skynbærra manna, geti komið að notum og borgað sig. Sé um stór framræslufyrirtæki að ræða, ættu hlutaðeigendur að leita álits og upplýsinga hjá »Búnaðarfélagi Islands«, eða stjórn þess, og gæti þá svo farið, að það tæki að sér aðal umsjónina með verkinu, og teldi eg það vel við eiga. H. Það, sem minnst hefur verið á framræslu hér á undan, er eins og séð verður, miðað við ræslu á mýrarflóum og engjalöndum. Þeir eru nú margir, er hafa þá skoðun, að ef jörðin (út- jörð) sé ræst fram, hætti hún að spretta. Þetta er að nokkru leyti rétt, þó ekki ávallt eða ætíð. Sú jörð, sem er blaut, og vön vatni frá aldaöðli, hættir að spretta vel, um lengri eða skemmri tíma, ef hún er gerþurkuð, meðon breytingjarðvegs- ins fer fram og nýr plöntugróði er að myndast. 3° Þetta á sér þó því aðeins stað, að jörðin sé ekki tekin til yrkingar, plægð eða brotin, og borinn á hana áburður. Það er því undir ýmsum kring- umstæðum vandasamt, að ræsa fram eða þurka á fullkominn hátt, llkt og um ræktað land væri að ræða, blautlendar þjóttu- og mosamýrar, ef þeim er annars ætlað að spretta, nema því að eins, að þeim séu veitt einhvér áburðarefni, annaðhvort föst eða fljótandi, t. d. veitt á þær nægu vatni. En hér að framan, þar sem minnst var á fram- ræsluna, er alls eigi gert ráð fyrir fullkominni framræslu, eða þeirri ræslu, sem yrkt land kref- ur. En það sem eg einkum og sér í lagi miða við, er það, að útjörð, og þó helzt blautar mýrar eða engjar, sem notaðar eru til slægna, séu ræstar svo fram, að heyskapur verði stundaður á þeim, sakir vatns eða vatnsfylli. Eramræslan verður, að mmnsta kosti að vera svo fullkomin, að vatnið ekki hindri menn frá að standa við verk, eða með öðrum orðum, að það ekki valdi verkatöfum til muna um hásláttinn. En til þess að það megi verða, þurfa marga og öfluga skuiði, að minnsta kosti um Flóann, og svo mun víðar vera. Skurðirnir þurfa að vera svo margir ogstórir, að þeir að sumrinu um hey- annir, geti flutt vatnið brott á tiltölulega skömm- um tfma, þegar rigningaköst koma, og allt ætl- ar í kaf að keyra. Og fyrst af öllu þarf að gera affærsluskurðifia, og á þeim verður að byrja, er um framræslu er að ræða, hvort heldur er í stærri eða minni stíl. — Auk þess, sem framræslan létt- ir undir með heyskapnum, og styður að betri heyverkun, er eigi óhugsandi, að hún geti haft einhver bætandi áhrif á veðuráttuna. Það er auðsætt, að þar sem landið er mjög fiatt og hallalltið, og framræsla þess mjög ó- fullkomin, hlýtur mjög mikill hluti þess vatns, er kemur niður, að gufa upp aptur, áður en það nær að síga niður eða renna burt. En til þess að það geti orðið, krefst eigi lítill hiti. Hitinn, sem eyðist við uppgufunina, er því tapaður fjár- sjóður fyrir það mesta, og getur því eigi komið að gagni jarðveginum eða jurtagróðanum. Fyrir því er það nauðsynlegt, að vatninu sé greiddur vegur, til þess það geti runnið burt, sem fyrstog fljótast, þegar það gerir ekki gagn, heldur þvert á móti ógagn. En jafnframt því, sem landið er ræst fram, verða menn að hafa betri stjórn á vatninu, en verið hefur, og láta það eigi ráða sér sjálft, Þegar vatnsins er þörf, og það getur gert gagn, skal því haldið, og notað eins og bezt á við. En þá tíma, sem’ það ekki bætir, eða jafnvel gerir skaða, ber að hleypa því af. En til þess það verði gert, þarf skurði á hentugum stöðum, fleiri eða færri eptir landslagi, halla o. s. frv. Komist framræslan í það horf, sem tal- ið verður æskilegt, er á allt er litið, getur ekki hjá því farið, að það hefði góð áhrif á veðurátt- una. Loptið verður þurrara, jarðvegurinn lausari, og nyti því hitans betur, það færi minna for- görðum eða til ónýtis af honum en áður var. Það hefur því afarmikla þýðingu, að ræsa jörð- ina fram, svo vel sem auðið er, og bezt á við undir ýmsum kringumstæðum, eins og áður er tekið fram, verður að haga framræslunni eptir því, hvers konar jörð það er, sem um er að ræða. Nú er hér verið að ræða um blautar mýrar og flóa, þar sem votlendisjurtir vaxa og þrífast. Þessa jörð má ekki gerþurka, eins og áður er sagt, nema því að eins, að hún sé tekin til fullkominn- ar ræktunar. Framræslan verður því að miðast við það, að hægt sé að stunda þar heyskap að sumrinu, enda hvernig sem viðrar. En svo er eitt enn, sem kemurtil greina ogþarf að athuga, og það er áveita eða vatnsveiting á þetta land. Skal minnst á það atriði nokkrutn orðum í næsta kafla. Stóra rúsínan — stóri bankínn, Það er svo sem engin nýlunda, að Dana- málgagnið hér í bænum leitist við að sarga inn í almenning hvað ofan í annað ýmsum óþjóðleg- um og varúðarverðum kenningum, er vildarmenn þess hafa spýtt í það, til að láta það stagast á. Staglið og sargið væri í sjálfu sér mjög afsakan- legt, ef um það væri að ræða að beina skilningi fólksá rétta og skynsamlega braut. En þ a ð hlutverk tekur málgagnið sjaldnast að sér. Það hefur optast einstaklega gott lag á því að fara í öfuga endann á málunum, taka að sér þáhliðina, sem ver gegnir, og höggva þar í sama farið, með' sömu orðunum og sama skilningsleysinu viku eptir viku, mánuð eptir mánuð. Það er alveg eins og það sé fyrirmunun. En kátlegast er þó, hvað málgagnið lætur drýgindalega, sjálfsagt til að glepja fáfróðum sýn, og telja þeim trú um, að allt sé mesta speki, sem málgagnið sjálft flytur, en allt bláber heimska hjá öllum öðrum, sem aðra skoðun hafa. Þess- ari yfirlætisfroðu á fólkið svo að kyngja án þess að kynna sér málefnin. En almenningur er nú ekki svo grænn, sem Dana-málgagnið hyggur. Hann -kann furðanlega vel að greina sannleika frá ósannindum, skynsemi frá lokleysu. Dómur Danamálgagnsins um sjálft sig verður því harla léttur á metunum, því að vestheimskur gorgeir hef- ur aldrei verið og verður aldrei þungur í vigtina. Það er hreinasta sultarfæða og sannkallaður vand- ræðamatur til frambúðar fyrir stjórnarmálgaagnið. Það dræpist hreint og beint úr hor af þessum vesturheimsku flautum, öðru eins þunnmeti, á hverri viku, ef rúslnugrauturinn danski héldi ekki í því líftórunni. Nú er einnig sfór rúsína í vændum, sem til- vinnandi er fyrir málgagnið að fá á diskinn sinn. Og þessi rúsína er stóri hlutafélagsbanldnn danski. Þar er björgunarhringurinn, sem á að forða oss öllu fári, draga oss á »þurt land« í efnalegu til- liti. En ef hann í þess stað drægi oss niður, drægi oss »til vatns«, hvenær mundi oss þá skjóta upp aptur? Dana-málgagnið er núna slðast 10. þ. m. að gylla fyrirtæki þetta, eptir því sem það hefur vit og vilja til. Meira verður ekki af því heimtað. Því er meinilla við, að Þjóðólfur hefur sýnt frarn á ómótmælanlega, að markmið þessa stóra, danska banka,íslandsbanka(!!) svo kallaða, er alls ekki aðstyðja landbúnaðinn íslenzka. Hlutverk bankans liggur á öðru svæði, því að hann á að- allega að verða »disconto« — eða víxilbanki, en ekki það sem kallað er »hypotek« — eðaveðlána- banki. Málgagnið getur sannfærzt um þetta, ef það nennir að líta í bráðabirgðarreglugerð þá, er forsprakkar fyrirtækisins gáfu út næstl. sumar. En nú segir málgagnið, að þótt bankinn sé ekki beinlínis ætlaður landbúnaðinum til nota, þá verði hann það óbeinlínis með því að kippa verzluninni í lag, því að hún sé fóturinn undir landbúnaðinum og enginn hafi enn dirfzt að efast um, að banki þessi yrði verzlun lands- ins til mikilla framfara. Vitnar það meðal annars máli sínu til sönnunar í álit kaupmanna hér í bænum næstl. sumar, og er feikilega hreyk- ið af því. En nú er þess að gæta, að málið var lítt kunnugt, lítt hugsað og svo sem ekkert rætt um það leyti, er þetta kaupmannaálit kom í ljós. Það hefur skýrzt mikið sfðan, margir agnúar á því fundizt, er þá var ekki veitt eptirtekt. Ept- ir því sem hagur landsbankans stóð þá, mátti til vorkunnar virða, þótt menn litu þá mest á þetta, »slagorð« eða einkunnarorð: »öfluga peningastofn- un í landinu«, sem síðan hefur verið veifað ótæpt til að kitla íhugunarleysi manna, svo að menn festi ekki augun á öðru en þessu eina: »pening- ar, peningar inn í landið«, því að slíkar glósur eru svo auðsagðar og glæsilegar í skjótu bragði. En þegar fárið var að brjóta þessa »öflugu pen- ingastofnun« til mergjar, þá komu annmarkarnir í Ijós, þeir annmarkar, sem gerðu fyrirtæki þetta mjög ísjárvert, já, háskalegt frá íslenzku sjónar- miði. Jafnvel sumir þeirra kaupmanna, er mælt höfðu með þessu í fyrstu urðu á báðum áttum við nánari íhugun, og vér vitum, að minnsta kosti um einn þeirra, að hann er alls ekki trú- 1

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.