Þjóðólfur - 30.11.1900, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 30.11.1900, Blaðsíða 3
213 fremst dr. Gudmundsson sjálfur (nfl. Valtýr) og Hallgrímur biskup, sem talið er til gildis, að hann sé tengdafaðir Thomsens konsúls, er hafi getið sér svo mikinn orðstír við dönsku stúdentaförina hing- að í sumar. Þriðja ráðgjafaefnið er taliðj: Brun(!) amtmaður frá Eyjafirði(l), er vera mun Páll Briem. Þessir þrír mega því lifa í voninni. Nr. i mun fara nærri um, hvernig horfurnar eru. Greinar- höf. gefur og í skyn, að hlaupi einhver snurða á valtýskuna i sumar komanda eða á væntanlegu aukaþingi 1902(1) þá verði líklega Goos ráðgjafi að ómaka sig hingað og semja við alþingi um breytingarnar, því að annars muni málið illa far- ið o. s. frv. Við grein doktorsins sjálts (»Politiken« i.nóv.) er lítið að athuga, því að frásögn hans um kosn- ingaúrslitin er að eins byggð á hinum öfuga útreikningi Isafoldar og tómum ímyndunum. Hann sér það vonandi, þegar á þing kemur, hversu fylgismenn hans verða einhuga. Einkennilegt er það, að doktorinn er alltaf að tala um frumvarp- ið sitt frá 1897, sem bráðlifandi(l) eins og bar- áttan sé nú háð um það, þótt allir viti, að það var steindrepið á þinginu 1897. Hann mótmælir því og harðlega, að þetta frumvarp sitt (sálaða frumvarpið(l)) sé nokkurt stjórnarfrumvarp eða stjórnartilboð, og kemur það í nokkuð beina mót- sögn við mál^agnið hans, sem ávallt er að tönnl- ast á stjórnartilboðinu frá 1897(1), er Valtýr hafi- verið sendur með á þing. En Valtýr vill eiga frumvarpið einn. Skyldi honum vera farinn að virðast tvísýnn heiðurinn af því hér heima, að koma hvað eptir annað fram á fulltrúaþingi Is- leudinga sem vikadrengur dönsku stjórnarinnar? Hver veit. Ónotin í garð Þjóðólfs tökum vér oss ekki nærri, því að það er engin furða, þótt doktorinn hafi enga ofurást á honum. Hann hefur verið svo sár þyrnir í iljum doktorsins, þegar hann hefur verið að spígspora ofan á landsrétt- indum Islands, að það hefur ekki tafið svo lítið fyrir manninum á þessari pólitisku krossferð bans til fyrirheitna landsins — ráðgjafasætisins. Og enn er markið engu eða litlu nær en 1897. En Þjóðólfur hefur aldrei Danafjandi verið, en hitt -er satt, að hann hefur aldrei verið Danastjórnar- sleikja og ætlar sér ekki að verða, enda tullyrða margir, að dr. Valtýr og ísafold hafi bæði feng- ið einkarétt fyrir Island til að bera það nafn. Og mun þá hagsmuna Danastjórnar vera nægi- lega vel gætt hér á landi. Ritstj. F r æ ð i 1 e i t. Það happ hlotnaðist mér í dag, að fá sem umbúð blað af Isaf. frá 21. þ. m. Eg hefi nfl. ánægju af sannsýnandi (realistiskum) skáldskap, og þar rakst eg á grein, er sýnir (forestiller) einn kunningja, Björn nokkurn Jónsson, svo vel, að nð betri sýning getur varla. I lýsingunni á B. M. Ó. og framkomu hans í stafsetningarmál- inn, leiðir skáldið Björn þennan Jónsson fram á sjónarsviðið, eins og hann er: sem sjúkling eða -ástríðumann, er ekki hefur taumhald á geði sínu og tilhneigingum. Hann fær »hviður« og sóttin elnar eða rénar öðru hvoru eptir kringumstæðum; enda er þetta ástand B. J. fyrir löngu orðið að þjóðsögu. Þannig gekk saga um heilsu-ástand hans á tímabilinu milli 12. og 22. sept. síðastl., með eðlilegum tilbreytingum eptir vegalengd: Sunn- an Hellisheiðar: »Björn er enn á róli, en talið víst hann leggist, ef Hannes nær kosningu«. Milli Hellish. og Þjórsár: »B. kvað vera lagztur, en talið víst hann deyi, ef H. nær kosningu«. Og austan Þjórsár: »B. er sagður dauður, en talið víst hann gangi aptur, ef H. nær kosningu«. Og þessu líkar sögur hafa opt gengið um hann. Þar sem lýst er fundarhaldinú í Breiðfjörðs- Eúsi 20. þ. m., sem eg var við staddur, og undir- búningi þess — auðvitað þvert öfugt við það, ■sem átti sér stað — er öll frásögnin, aðferðin «g hvatirnar, sem rektor og fundarmönnum eru eignaðar, svo aðdáanlega sannbjörnskt, eins og Björn hefði samið það sjálfur, leiddur af sínum eigin tilfinningum: allt byggist á falskri »fore- stilling« og ódrengshætti. Mér fer nú eins og mörgum öðrum, að mig fýsir að vita nafn höfundarins, er eg sé listavel samið mál. Getið þér, hr. ritstjóri, frætt mig um, hver gert muni hafa þetta björnsýnandi lista- verk, greinina: »Mans-umskiptingurinn«? Bóndi í grenndinni. * * * Hinum háttv. spyrjanda er fljótsvarað, því að fingraför Bjarnar Jónssonar eru alstaðar auð- þekkt. Það er ávallt sama snildin, sama listin í öllU, sem hann lætur frá sér fara, og það var eðlilegt, að honuni tækist vel að lýsa »mans- umskipting«, því að hver er sínum hnútum kunn- ugastur. Spyrjandinn þarf alls ekkert ^ð furða sig á skáldskapnum, andagiptinni og stílfegurð- inni hjá B. J., því að hann hefur lengi lötrað seigt karlinn sem smekkmaður og orðsnillingur. Hann hefur lengi skáld verið, þótt hann hafi ekki ort eða »orkt«, sem talin er röng mynd á einum stað, en rétt mynd á öðrum(l) í fyrirmynd- arorðabókinni hans. Hann þekkir víst orðtæk - ið: salténd ertu skáld« í vissu sambandi, þá er einhverjum fer eitthvað frámunalega klaufalega úr hendi eða farið er með ósannindi. Björn Jónsson er frægasta »skáld« landsins í þeirri merkingu orðsins. Ritstj. Póstskipið ,Ceres‘ (kapt. Jacobsen ekki Oest-Jacobsen) kom hingað að kveldi 26. þ. m. Með henni kom Hallgr. Melsteð lands- bókasafnsvörður úr skemmtiferð suður í löndum. Hafði farið til Lundúna og Parísar og þaðan til Norður-Ítalíu og Vínarborgar. Einnig kom með skipinu kaupmaður Björn Kristjánsson og Th. Thorsteinsson, Guðm. Ólsen verzlunarm., Karl Finsen o. fl. ,Skálholt‘ er væntanlegt hingað í næstu viku aukaferð. Átti að leggja af stað frá Höfn 21. þ. m. koma við í Leith — til að taka þar ensk- ar vörur, er »Ceres« gat ekki tekið—og á 3 hafn- ir í Færeyjum. Hingað kemur því ekkert skip um nýársleytið frá því »savneinaða« eins og 1 fyrra. Skipstjóraskipti eiga að verða á »Laura«. Christiansen, sem mörg ár hefur verið skipstjóri hennar hættir, og tekur við öðru skipi, (»Louise«) sem verður í förum í Eystrasalti (millum Königs- borg og Hafnar). Ekki er enn fullvíst, hver við skipstjórn á »Lauru« tekur. Christiansen var all- duglegur sjómaður og heppinn í förum, en átti ekki miklum vinsældum að fagna almennt; leit út fyrir, að hann kynni betur við sig 1 Færeyj- umen hér og dvaldist »Lauru« þar optdrjúgum. í raun réttri mundum vér einnig með ánægju sjá á bak »Lauru« úr förum hingað, því að bæði er hún mjög seinfara og að mjörgu leyti óhent- ugt og óþægilegt farþegaskip, þótt gott sjóskip sé að ýmsu leyti. Dómur í barsmlðamáli séra Halldórs Björns- sonar fyr prests í Presthólum, er uppkveðinn í hæstarétti. Sekt prests lækkuð úr 200 kr. niður í 100 kr., en skaðabætur sömu sem í yfirrétti (120 kr.). Sækjandi málsins var P. G. C. Jensen, en Hindenburg verjandi. Íslenzka sýningardeildln á Parfs- arsýningunni hefur fengið hæstu verðlaun (»grand prix«) hjá sýningarstjórninni. Fjárskaðar allmiklir urðu sumstaðarhér sunnanlands í ofsaveðrinu 2. þ. m. Meðal ann- ars missti Sæmundur bóndi í Stakkavík í Selvogi um 60 fullorðið fjár í sjóinn, flæddi þar á skeri. Hjá Grími bónda Eiríkssyni f Gröf í Grímsnesi fórust rúm 40 lömb, er hröktu þar í ós einn. Átti hann um helming þeirra sjálfur, en hinn helming- in Guðjón bóndi Finnsson á Reykjanesi þar í sveit. í Kjós urðu og fjárskaðar (í Hækingsdal og víðar). Skiptjón. Fregn hefnr borizt um, að gufuskipið »Egill«, er lengi hefur verið í förum hér (einkum milli Noregs og Austfjarða) hafi sokkið á ferð milli Björgvinar og Englands, en skipverjum verið bjargað. Hafði annað skip rek- izt á það og þannig sökkt þvf. íslenzkir sagnaþættir. Frá Árna Gíslasyni í Höfn, föður Hafnarbræðra. Arni Gíslason var fæddur 1726. Hann ólst upp hjá föður sfnum séra Gfsla Gíslasyni gamla á Desjarmýri (f 1784). Árni var höldamenni og vildi eigi læra til prests; hann hét eptir Áma presti Álfssyni í Heydölum, móðurafa sínum. Hann var allt að 3 álnum á hæð og sæmilega gildur, bar sig hvorki mikillega né stoltlega; hann var held- ur mjór um niðurandlitið (eins og fleiri, sem kall- aðir voru hamramir); hann hafði dökkt hár, grá- leit augu og greindarleg; hann var fremur fáskipt- mn og hægur í viðmóti; heldur var hann trassa- fenginn og hirti eigi um mikinn gróða; hann var letingi, en tröllaukinn að burðum og bezti sjóliði; hann var liðugt skáld og var opt skemmtilegt að tala við hann, ef vel lá á honum og var hann þægilegur við flesta aðkomandi. Þegar Árni var í föðurgarði var eitt vor mjög hart í ári; lenti þá Þórunn í Hvannstóði í Borg- arfirði, ekkja Hallgríms, er þar var, til Gísla prests að Desjamýri með eitt barnið; hún var þar helzt við niðriverk og gekk um beina, var hún mesti kvennskörungur; hún var hjá séra Gísla 2 eða fleiri ár; þeim Árna syni hans kom vel saman og átti hann með henni stúlku, er Þórunn hét. Árni vildi sfðan eiga Þórunni, en faðir hans vildi ekki lofa honum að taka saman við ekkjuna með börn- um, svo fátæka, að börn hennar voru um tíma á sveit; úr því varð Árni sem enginn vinur föður síns, en séra Gísli vildi að hann fengi ríka gipt- ingu, því hann þekkti son sinn sem letingja og taldi hann á að ganga að eiga Guðlaugu (f. 1734) frá Hafursá, dóttur Torfa stúdents á Stóra-Sand- felli; hún var jarðeigandi; þau giptust og fóru að búa í Höfn í Borgarfirði; gekk þeim í meðallagi og áttu tvo drengi, Hjörleif og Jón. Árni var bezti sjómaður eptir því, sem þá var siður með sjómennsku og uppólust drengir hans við sjósókn og fiskuðu opt vel einkum á fullorðins árum; voru þeir bræður Jón og Hjör- leifur optast tveir einir á sjó, án þess að hafa aðra með sér; þó hlutarmaður væri hjá þeim, þá var það optast verk hans að taka á móti fiskafla og gera honum gott, fékk svo einn hlutinn af bátn- um fyrir það. Árni var hálfstirður við konu sína Guðlaugu, en ekki mátti hann heita slæmur við hana. Hjörleifur Einarsson frá Hafursá, Þorvarðar- sonar, barnlaus maður og fóstri Guðlaugar var hjá þeim Árna. Það bar einhverju sinni við meðan Hjörleifur var á lífi, að talað var um sitthvað inni á palli í Höfn; eitt var það að Hjörleifur mundi deyja, svo Guðlaug (hún lifði þó mann sinn og bæði urðu gömul), en Árni yrði eptir í Höfn. Þá kvað Árni: Þá Lauga er og Leifi dauður líka fallin kýr og sauður uppi stend eg álnasnauður, eitthvað mun eg bralla þó, ræki vel að róa á sjó ; gefst mér þá með gipting auður, geðug verður snótin sú, reisi eg aptur rausnarbú; þó mun löstur á raunum rauður að rækals kerlingin hlutsöm í horni hvert og eitt sinn. Eitt sinn var vinnukona á Desjarmýri að vefa spjaldabönd inni í rúmi í baðstofunni seint á helgi- degi; þá kom Árni inn og annar maður til. Árni spurði: „Viltu ekki að eg kveði til þín vísu, svo þú vefir betur“; hún kvaðst geta ofið án kveð- skapar hans. Ámi kvað þó: Ofið hefur fölsk og flá fjandans heimskuálfur;

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.