Þjóðólfur - 29.01.1902, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 29.01.1902, Blaðsíða 3
19 aðir menn eins og t. d. dr. Valtý ætti ekki að þurfa meira til þess að fylgjast með því, sem fram fer í heiminum, en að fara utan einu sinni og jafnvel tvis- var á hverju ári, eins og heimastjórnar- valdinu er ætlað. Og eitt af tvennu tel eg þ^ð affara=ælla, að raðherrann þekki fremur astandið á íslandi, svo hann sjái, hvað því vanhagar um, heldur en þó hann færi að þeysast á andlegum og verald- legum „Eimreiðum" utan úr löndum. Gætinn og djúphygginn maður í valda- sessi heimastjórnarinnar væri hið bezta, er vér gætum óskað Islandi nú til handa, og mun betri en sleipur og slægur er- lendur hcfðingi, þó hann í fyrstu flagg- aði með öllum nýmælum heimsins. Þetta er annars ekkert áhorfsmal fyr- ir þjóðina; hún getur í engum vafa ver- ið. Oski hún að komast nokkurn tima af höndum erlenda valdsins og verða sjalfrar sín í sérmálum sínum, þá á hún að byrja á því strax, — það er ekki seinna vænna. Ekki var síður alitamal með Noreg 1814, þegar hann varð sjálfs sín, hvort hann væri fær um það. Samt hef- ur honum farnazt nógu vel, og hafði hann þó ekki eins og vér haft löggjaf- arþing til þess að reyna sig á heilan mannsaldur aður. Vér værum sjálfsagt lengra á leið komnir nú. hefðum vér fengið fulla heimastjórn þegar á dögum Jóns Sigurðssonar. Því það er með sjálfsforræðið eins og annað þjóðunum áríðandi, það er bezt að byrja sem fyrst, svo ekki komi alltof mikið niður á ept- irkomendunum, svo þeir eigi ekki allt- of langt í land, þegar þeir leggjaútar- unum. Nú höfum vér barizt svo lengi fyrir formennskunni á fleytu vorri, að það er ekki vert að láta þá baráttu í arf eptir oss, ef oss nú bjóðast hin beztu friðarkjör. Og vonandi er, að þjóðin fari nú úr þessu að sjá við þeim mönn- um, sem virðast aldrei vilja henni heilt, en eru alltaf að reyna að draga hana eins og asnann á eyrunum. Sýnunr mönnum þessum, að vér get- um komizt af án þeirra og kunnum sæmi- lega að sjá fótum vorum forráð. Látum þa una sínum sjalfsdýrðardraumum út af fyrir sig og unnum þeim raðherratignar í tunglinu, en ekki á íslandi. Innræti þeirra virðist hvort sem er ekki svo ís- lenzkt. Það sýnir sig nú sem fyr á dr. Valtý, þessum hrökkál í íslenzkri pólitík. 26/n-1901. Ornólfur. Konungsboðskapurinn otr undlrtektir JjjóOarinnar. Svona langt erurn vér þá komnir í heimastjórnarbaráttunni, svona stórt og þýðingarmikið spor er þá stigið á þess- ari li3rðsóttu leið, að vér höfum fengið konunglegt fyrirheiti um að fá æztu stjórn vora búsetta í landinti sjálfu, ef vér að eins viljum; það ætti reyndar naumast að þurfa að bæta því við, því að trauðla viljum vér hyggja nokkurn islenzkan mann svo mikinn ódreng, svo magnað- an óþokka, að hann hafni með fyrirlitn- ingu jafn mikilvægum umbótum, sem hér eru í boði, og reyni að sporna af ftrasta mætti gegn því að þjóð vor verði sjalfri sér ráðandi. Svo langt afvega er uaumast nokkur leiddur, að hannhljóti ekki að viðurkenna,' hve afarmikill niunur er a frumvarpi síðasta alþingis með ráðgjafabúsetu í Höfn m. fl., og frumvarpi því, sem í vændum er frá sljórninni með raðgjafabúsetu hér o. s- frv. Hitt er annað mál, þótt vér fa- um ekki allra fyllstu sjálfstjórnarkröfum vorum nm landstjóra hér með ráðgjöf- Uni sér við hlið, framgengt að svo stöddu. sem nú er í boði er svo mikilvægt, svo stórkostlegt spor í áttina til algerðr- ar heimastjórnar, að mismunurinn á því og öfuga sporinu, er valtýskan ætlaði að stíga, er eins mikill eins og á hvítu og svörtu. Eptir birtingu konungsboðskaps- ins getur enginn Hafnarstjórnarmaður haldið því fram í alvöru, að hin svonefnda „ valtýska" sé enn tórandi, og hafi hún ekki verið margrotuð áður, þá ætti boðskapur- inn að minnsta kosti að hafa gert alveg út af við hana. Fyrir mannlegum sjónum lítur að minnsta kosti svo út. En um það er í sjálfu sér óþarft að deila. Það liggur hverjum manni svo í augum uppi. Oþarfter einnig að deila um það, hvorum flokknum — heimastjórnar eða Hafnar- stjórnarmönnum — er að þakka þessar alitlegu horfur, sem nú eru á stjórnar- bótarmáli voru, því að enginn mun dirf- ast að neita því. að heimastjórnarflokk- urinn hefur með 4 ára alvarlegri mót- spyrnu gegn „valtýskunni “ varðveitt þjóðina fyrir þessum ófögnuði og með afskiptum sínum af málinu í sumar, sendi- för Hannesar Hafsteins o. s. frv. aunn- ið það, að konungsboðskapurinn er svo álitlegur oss til handa, eins og hann er. Um þetta þarf ekki að deila, enda er það að eins aukaatriði í malinu, snert- ir ekkert eðli þess eða kjarna i sjálfu sér. En hvað er þá deiluefnið millum flokk- anna nú ? Getur það verið nokkuð, er snertir aðalatriði eða merg málsins ? Vér segjum nei, því að höfuðatriðið. þunga- miðjan, mergurinn málsins er flutningur valdsins inn í landið — ráðgjafabúseta hér — eða flutningur þess út úr landinu — ráðgjafabúseta í Höfn. Og milli þess ætti ekki að vera erfitt að velja. Um hið rnínara íyrirkomulag hinnar innlendu stjórnar vorrar eða samband hennar við raðaneytið ytra er að sjálfsögðu ekkert ákveðið í konungsboðskapnum. Það er að eins lauslega vikið á það í ritstjórn- argreininni í „Politiken", sem auðvit- að er samkvæmt skoðun raðaneytisins. En alþingi er í sjálfsvald sett að búa^ þetta sem bezt og haganlegast úr garði fyrir vora hönd, svo að eptirlit danska raðaneytisinsmeðheimastjórn vorri, verði að eins að nafninu til, en frekar ekki, svo að segja megi að hag alríkisins sé gætt, því að eptirlit getum vér hvort sem er afdrei losazt fullkomlega við, með- an vér erum í nokkru satnbandi við danska rikið. Eins og malið horfir nú við væri ekki hyggilegt að vekja miklar stælur um þetta „nanara fyrirkomulag" nú fyr- ir þing. Aðalatriðid er þetta, sem hvtr mað- ur hlýtur að skilja og verður að skilja, að úr því að vér eigum ekki nú sem stendur kost á landstjóra (jarli)= algerðri heimastjórn, þá er einsætt að taka því sem nœst kemst þessu fyrirkomulagi og í boði er: búseta ráðherrans h tslandi en hafna algerlega öllu Hafnarstjórnarkáki, sem gengur í þveröfuga átt við heima- stjórn. Um þetta œttu allir að geta orð- ið sammála. Flokksmenn Valtýs œttu ekki að vera í neinum vafa um, að nú sé korninn tínn til að láta dr. Valtý sigla sinn eiginn sjó, þennan mann, sem í áheyrn Dana á opinberum fundi hef- ur sagt, að hann vildi ekki hafa æztu stjórnina búsetta annarstaðar en í Höfn, þennan mann, sem haft hefur í hót- ununi um, ,ið hann gæti með ofbeldi komið í veg fyrir, að nokkuð annaðen frumvarp hans(!) yrði lagalegasamþykkt af þinginu (sbr. viðaukablaðið). Hvað segja menn um annan eins leiðtoga í fslenzkri pólitik ? Er það ekki svfvirð- ing fyrir ísl. þjóðina, að nieðal hennar skuli fyrirfinnast nokkur maiinsmynd, er enn geti bundið trúss við Valtý og póli- tík hans. Er ekki kominn tími til, að þjóðin varpi af sér þessari Kaupmanna- hafnarmöru, sem hefur troðið hana síð- an 1897 með aðstoð skósveina sinna hér heima. Geri þjóðin það ekki rækilega nú við kosningarnar, þá sýnir það ekki annað en það, að í henni er meira af blóði frskra þræla en norskra höfðingja og að henni þykir betra að afsala sér réttindum og skríða undir jarðarmen hjá erlendu valdi, heldur en að borga nokkra aura fyrir að ráða sínum eigin málum og ganga uppréttir. En vér vonum, að þrælahugsunarhátturinn sé ekki ríkjandi hjá þjóð vorri. Nú verða allir góðir drengir að taka höndum saman til þess að nota „hinn rétta tíma" og ná þeim kostum fyrir þjóð vora, sem unnt er að fá bezta, eins og stendur. Háttvirtu kjósendur! Hafnið því valtýskunni—Hafnarstjórn- inni — eindregið og óskorað, við kosning- arnar í vor og kjósið engan þann á þing, erekki afneitar skýrtogumsvifalaustHafn- arstjórnarfrumvarpisíðastaalþingiseðaað- alatriði þess — ráðgjafabúsetunni í Höfn. Og ef þér hafið ekki þrek til að varpa al- staðar af ykkur þeim mönnum, er at- kvæði greiddu með þessu frumvarpi í sum- ar, sem vissast væri þá takið af þeim eiða þunga og alvarlega, svo alvarlega, að eng- inn þeirra þori að svíkja, og afneiti Val tý og öllu hans athæfi fyrir fullt og allt. Þá en ekki fyr er nokkurnveginn um hnútana búið, þótt malshátturinn segi, að aldrei verði tóa trygg. Þessvegna væri auðvitað langréttast að þjóðin lof- aði öllum þeim fulltrúum, er Valtý fylgdu á siðasta þingi að hvíla sig í þetta sinn. En fyrir einlæga iðrun og yfirbótogtil að greiða fyrir almennum samtökum í þessu velferðarmáli munu heimastjórnar- menn ekki hrinda frá sér höndum hinna »betri manna« í hinum flokknum, er nú vilja ganga í endurnýjungu lífdaganna, taka höndum saman við heimastjórnar- flokkinn og ganga óhikað, óskorað og vafningalaust að prógrami hans við nœstu kosniugar, sem með tilliti til kon- ungsboðskapsins verður hreint og beint: búseta æztu stjórnarinnar hér á landi — ráðherra-búseta í Reykjavik með því nanara fyrirkomulagi, sem þingið sjalft akveður bezt og haganlegastgagn- vart eptirliti alt íkisstjornarinnar og heillaríkast fyrir land vort í nútíð og framtíð. Annað og meira getnr ekki komið til greina að þessu sinni. Fylkið yður nú landar góðir, sem einn maður. um þetta „program" heimastjórn- arflokksins við kosningarnar í vor, og látið ekki lengur villa yður sjónir með neinum rangfærslum,eða blekkingar grýl- um, sem ef til vill verða hafðar á lopti til að sundra, rugla. spilla og drepa ein- ingu þjóðarinnar í þessu þýðingarmesta velferðarmáli hennar. Það væri sorglegt, ef sú Júdasariðja bæri nokkurn árangur. Um konungsboðskapinn flytur blaðið „Dannebrog",— er samhliða „Politiken" er annað aðalmálgagn stjórn- arinnar—- ritstjórnargrein 12. þ. m., og er þar lögð aherzla á sömu atriði eins og í „Politiken" og skýrt frá fyrirkomu- lagi hinnar fyrirhuguðu innlendu stjórn- ar a líkan liátt og þar. Skýrt er það tekið fram í gri ininni, að ríkisraðið hafi engin afskipti af sérmálum íslands. Auðvitað bólar á dalitlum misskiln- ingi f baðum þessum greinum í einstök- nm atriðum t d. það, að ráðherrastjórn búsett hér á landi sé alfullkomin sjálf- stjórn, og landstjórafyrirkomulagið hafi því enga kosti fram yfir þetta væntanlega frumvarp stjórnarinnar 111. fl En þetta er skiljanlegt frá dönsku sjónarmiði. Dan- ir þykjast nú bjóða oss svo ágæta kosti, að betur verði ekki gert. Vér erum einnig mjög þakklátir stjórninni fyrir þetta boð, og gátum naumast vænzt þess betra. Þess vegna eigum vér nú að hafa vit á að hagnýta oss það sem bezt. Uppfundning Marconi’s fullkomnuð. Þráðlaus hvftðskeyti þvert yflr Atlantshaf. Þau stórmerku tíðindi hafa borizt hing- að í enskum blöðum, að Marconi hafi nú tekizt að senda þráðlaus hraðskeyti þvert yfir Atlantshaf frá St. Johná Nýfundnalandi til Corn- wallis á Englandi. Segir svo frá í merku Lundúnablaði (»Reynolds-Newspap- er«) 19. þ. m., að Marconi hafi fyrir meir en ári síðan verið sannfærður um það af til- raunum sfnum, að þetta gæti tekizt, en lét engan vita um það nenia tinnustu sína (ung- frú J. B. Holman, dóttur dómara í Indíana), er hann ætlar nú að kvongast eptir þetta stórvirki. Blaðið getur þess, að Marconi hafi nú fundið, að rafmagnsbylgjurnar ganga ekki í beinni línti, eins og ætlað var heldur f boga eptir bungu jarðarhnattarins, og þess vegna hefur verið unnt að senda hraðskeytið þessa feikilegu vegalengd. Enn- fremtir segir Marconi, að sér hafi nú al- gerlega tekizt að einangra svo skeytið, að því verði ekki náð nema af hinum rétta móttakanda. Hve afarmikla þýðingu og byltingu þessi stórkostlega uppfundning eða fullkomnun hennar hafi í framtfðinni er ekki unnt að lýsa. Hún er fvrsta frámfarastórvirki 20. aldarinnar, þótt grundvöllur þess væri lagð- ur á gömlu öldinni. Vonandi, að vér Is- lendingar innan skamms fáum að njóta góðs af þessari þráðlausu hraðritan, sem er margfallt ódýrari, en með gömlu að- ferðinni, þótt skeytin berist ekki jafnhratt, etin sem kornið er. En það gerir minna til. Stjórnarskrármálið í Stúdentafélaginu. I sfðasta blaði er þess getið, sem fram fór í stúdentafélaginu 20. þ. m., þar seni eg hóf umræður um stjórnarskrármálið ept- ii áskorun félagsstjórnarinnar, og hef eg þar nokkru við að bæta. Eg tók það fram í upphafi, að tfminn væri ekki vel vaiinn, ef stjórnarsvarið skyldi koma nú með skipinu, en við því bjóst eg ekki, né aörir sem tóku til máls,- Aherzl- an lá á því hjámér og fleirum, að sameina sig nú um aðalkröfu, er báðir flokkar gætu att saman, og hún væri, að fá landstjóra með miðlunarfyrirkonmlaginu, til að afstýra þeim ófögnuði, að flokkarnir væru að kaldhamra »varaskeifurnar«; b á ð u m frumvörpum síð- asta þings þyrfti að sleppa. Fyllstu kröfurnar svo nefndu komu ekki frá mér. Hitt tók eg mjög skýrt fram, að spilla eigi bezta færinu, sem komið hefur, með kröfum, jafnóaðgengilegum fyrir hverja alríkisstjórn sem er. Beint í þessu efni reyn- ir niest á greind og góðan htig kjósenda næst. Stjórnartilboðið nýja verður vonandi til þess, að báðar »varaskeifurnar« detta úr sögunni, og báðir flokkar geta þakkað sér úrslitin, og þar sem nú epiir tveim helztu málgögnum stjórnarinnar eru sárlitlar horf- ur á því, að lándstjórinn faist um sinn, væri fásinna að gera kappsmál úr því, eins og stendur á. Reykjavík 27. janúar 1902. I’órh. lljftrnarson. * * Hérvið skal því að eins bætt, að »vara- skeifa« heimastjórnarmanna hefur ekki ver- ið hið svonelnda 10 manna eða tveggja ráðgjafafrumvarpið í lieild sinni, heldurað- alatriði þess— ráðgjafabúsetan hér,alveg

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.