Þjóðólfur - 07.03.1902, Page 1
54. árg.
Reykjavík, föstudaginn 7. marz 1902.
M 10.
Kosningarnar í vor
Og
konungsboðskapurinn.
Frekari kröfur óráðlegar.
Að því er frétzt hefur víðsvegar af
landinu, er konungsboðskapnum frá.io.
janúar um ráðherra búsettan hér á landi
hvarvetna vel tekið, einkum í flokki
heimastjórnarmanna. Hafnarstjórnar-
rnenn láta einnig í veðri vaka, að þeir
saetti sig allvel við hann, hafa séð sér
þann kost vænstan að ganga ekki í
berhögg við hann, að minnsta kosti
ekki fram yfir kosningar. En mikla
áherzlu kvað þeir ei að sfður leggja á
að komast nú fjölmennari á þing en
hinir, annaðhvort til þess, að þeim
verði eignuð endileg úrslit málsins, eða
til þess að sundra öllu samkomulagi,
er þeir sjá sér það fært, og þá ástæð-
una telja flestir líklegri. Hinsvegar
liggur það í hlutarins eðli og er sjálf-
sögð skylda heimastjórnarmanna að
kosta kapps um að geta haft yfirtök-
in við Hafnarstjórnarflokkinn á næsta
þingi, þvf að með því er girt fyrir
óhappaleg úrslit málsins, er þjóð vor
mundi aldrei bætur bíða, f jafngott
horf sem það nú er komið, og jafngott
tækifæri sem nú býðst til að ráða því
til farsællegra lykta, fýrir land og lýð.
Það væri hraparleg ógæfa, ef vér ís-
lendingar værum þeir ólánsgeplar að
kunna ekki að hagnýta oss hinn rétta
tíma og láta málið fara í hundana,
annaðhvort af blindu flokksofstæki, per-
sónulegri heipt við einstaka menn eða
öðrum enn verri hvötum. Vérgerum
ekki ráð fyrir, að annað eins endemi
komi fyrir á fulltrúaþingi íslendinga.
En allur er varinn góður, og til þess
«ru víti að varast þau. Hafnarstjórn-
menn hafa opt sýnt það áður, að þeir
hafa ekki verið svo »hjartveikilega sam-
vizkusamir* þá er þeir hafa haft afl
til að geta beitt sér eptir vild. Þess
‘Vegna er VÍSSðSt að tefla ekki átvær
hœttur með þá pilta lengur, lofa þeim
sem flestum að hýrast heima nú við
kosningarnar, hversu fagurt sem þeir
tala á kjörfundum.
Jafnvel þótt stjórnarfyrirkomulag það,
Sem nú er í boði fullnægi alls ekki hin-
urn fyllstu kröfum þeirra heimastjórn-
art«anna, er jafnan hafa talið og telja
enn endurskoðunina frá i 893 og 94 ^ið
a|'raæskilegasta, þá væri samt. hinmesta
^sinna, að hreyfa nú þeim kröfum
(iandstjóra hér með ráðgjöfum sér við
hl,ið) einmitt af þeirri ástæðu, að nú
þá er vinstrimannastjórnin er komin til
valda, er öldungis vonlaust um, að vér
fáum þeim kröfum framgengt, er ganga
lengra en þessi stjórn vill veita oss,
°S nú hefur hún lýst því skýrt yfir, að
það geti ekki komið til greina að veita
oss landstjórafyrirkomulagið. Menn
verða að gæta þess, að þessu vék allt
öðru vísi við, meðan hægrimannastjórn-
in sat að völdum í Danmörku og mikl-
ar eða jafnvel vissar líkur voru fyrir,
að frjálslynd stjórn—vinstrimannastjórn
— mundi þá og þegar komast til valda.
Meðan svo stóð var algerlega réttmætt
og sjálfsagt af okkar hálfu að halda
fast fram hinum fyllstu og ítrustu sjálf-
stjórnarkröfum, þvert ofan f og þrátt
fyrir stöðuga neitun hægrimannastjórn-
arinnar, því að þá áttum vér í vænd-
um, að með meiri sanngirni yrði litið
á vort mál, er stjórnarskipti yrðu. En
nú er ekki lengur á slíkri von að byggja.
Nú getum vér alls ekki vænt þess, að
minnsta kosti ekki í næstu framtíð, að
sú ráðherrastjórn komist til valda í
Danmörku, er vilji ganga nokkru fram-
ar, en sú stjórn, sem nú situr við stýr-
ið. Eins og það var öldungis rangt
áður að tala um vonlausa, árangurs-
lausa stjórnarskrárbaráttu hjá oss gagn-
vart neitun hœgrimannastjórnarinnar,
eins væri það réttmœtt itú að tala
um vonlausa, árangurslausa baráttu fyr-
i r fyllstu sj ál fstj órnarkröfum vorum, gagn-
vart neitun vinstrimannastjórnarinnar.
Tímarnir hafa breytzt að þessu leyti og
vér hljóturn að taka tillit til þess. Vér
verðum að láta oss nægja að ala þá
von í brjósti, að upp úr því stjórnar-
fyrirkomulagi, sem nú er f boði, rísi
síðarmeir — hve langt eða skammt þess
verður að bfða veit enginn — það stjórn-
arfyrirkomulag, sem fylliHga samsvar-
ar þörfum vorum og óskum um alfull-
komna innlenda stjórn, því að það fyrir-
komulag, sem vér nú eigum kost á, verð-
ur vafalaust, ef skynsamlega er á hald-
ið, það millistig, er vér verðum að stíga
til fulls sjálfsforræðis. Rómaborg var
ekki byggð á einum degi. Vér get-
um ekki vænzt þess, að ná allt í einu
efsta sporinu. Aðalatriðið er, að vér
höldum í rétta átt, komumstsvo langt
á rétta leið, sem unnt er, og það kom-
umst vér með því að taka nú fegins-
hendi við ráðherra, búsettum hér á
landi, sjá hvernig það fyrirkomu-
lag reynist og læra af því, svo að vér
verðum síðar færari um að taka við
meiru, ef oss kynni að standa það til
boða, sem ekki er óhugsandi, ef vér
hrindum nú ekki frá oss, því sem boð-
ið er.
Engum skynsömum, þjóðræknum ís-
lendingi ætti því að blandast hugur
um, að nú er einmitt tækifærið til að
ná svo góðum sjálfstjórnarvísi fyrir þjóð
vora, sem allir geta sætt sig við, og
ekki hefur fyr verið völ á. Þessvegna
væri fásinna mikil að brydda nú á ein-
hverjum útúrdúrum, spenna t. d. bog-
ann svo hatt, að allt brysti og eyða
þannig málinu. En auðvitað er það
skylda vor, að laga stjórnartilboðið svo,
að það geti orðið sem bezt við vort
hæfi, án þess að reka nokkra þá fleyga
í málið, er gætu orðið því að falli hjá
stjórninni, því að það verðutn vér að
varast, og þess munu heimastjórnar-
menn einnig gæta. En hinn flokkur-
inn er til alls vís, samkvæmt framkomu
sinni áður, því að í stað þess að ganga
einlæglega og undanbragðalaust að
» prógrammi« heimastj órnarflokksins,
ráðherrabúsetu hér á landi, hefur Hafn-
arstjórnarflokkurinn verið að flensa í
kring um það með vöflum og vífilengj-
um, út og suður, upp og niður, og það
er ekki dyggð þess flokks að þakka,
þótt hann hafi neyðzt til að lýsa því
yfir, að hann mundi fylgja því. Neyð-
in kennir naktri konu að spinna, og
það verður margur að dansa, þótt hann
dansi nauðugur. En hvernig sem því
er varið, þá heitum vér á alla góða
drengi nú við kosningarnar í vor, að
gæta þess vel, hve afarþýðingarmiklar
þær kosningar eru, og gefa ekki öðr-
um atkvæði, en þeim, sem þekktir eru
að staðfestu í stjórnarbótarmáli voru,
mönnum, sem ekki hafa svikizt undan
merkjunum, og afdráttarlaust munu
fylgja því fram, að þessu velferðarmáli
voru verði happasamlega til lykta ráð-
ið á aukaþinginu í sumar, samkvæmt
skýru prógrammi heimastjórnarflokks-
ins. Þá getum vér verið hér um bil
vissir um, að nýjar kosningar vorið
1903 falli á líkan hátt sem nú, og að
endileg fullnaðarúrslit af hálfu þings og
stjórnar fáist í málinu, þau fullnaðar-
úrslit, sem allur þorri þjóðarinnar geti
vel við unað. Og með árinu 1904
mun þá renna upp nýr tími, nýtt og
happasælt tímabil í stjórn vorrar fá-
mennu, fátæku og afskekktu eyjar.
Árin 1902 og 1903 eiga að verða
og hljóta að verða þýðingarmikil merk-
isár í hinni pólitisku sögu lands vors.
Það er oss sjálfum að kenna, ef vér
gerum þau að óheillaárum.
Frá útlöndum
hafa borizt blöð til 26. f. m. Engin
ný stórtíðindi. — Látinn er 15. f. m.
Höruþ. samgöngumálaráðherra Dana,
rúmlega sextugur (f. 22. maí 1841)
nafnkunnur stjórnmálamaður, og lengi
(1884—1901) ritstjóri „Pólitiken’s", er
hann stofnaði 1884, ásamt dr. Edward
Brandes. Mun hann ýmsum löndum
vorum kunnur af því blaði. Var hann
manna pennafærastur, skýr og skarp-
ur, hæðinn og fyndinn og allóvæginn
í ritdeilum. Sigur vinstrimanna í Dan-
mörku er að miklu leyti honum að
þakka, en mörgum fiokksmönnum hans
líkaði miður, er hann tókst á hendur
ráðherraembætti í hinu nýja ráðaneyti
Deuntzer’s 24. júlí f. á. En honum
auðnaðist ekki að sýna í þeirri stöðu,
hvort hann var jafnfær um að „reisa"
eins og „rífa niður".
Lík hans var brennt 23. f. m., en
áður fór mikilsháttar sorgarathöfn fram
í „Lörups Ridehus". Var þar fjöldi
manna viðstaddur, þar á meðal ýms
félög með sorgarfánum. Kistan var
prýdd mörgum sveigum, þar á meðal
12 úr silfri. Ræður héldu: Deuntzer
ráðaneytisforseti, H. Trier formaður
fólksþingsins, Octavius Hansen hæsta-
réttarmálafærslumaður, Oscar Johann-
sen yfirréttarmálafærslumaður, dr. Edv.
Brandes ritstjóri „Politiken’s" og Ove
Rhode ritstjórnarfulltrúi við það blað—
Hage fjármálaráðherra hefur fyrst um
sinn verið skipaður til að gegna em-
bætti Hörups ásamt sínu.
Óeirðir hafa verið allmiklar á Spáni,
einkum í Barcelona og herlið orðið að
skerast í leikinn. Blása Karlungarþar
að kolunum í skjóli klerkastéttarinnar.
Jarðskjálftinn í Shemakha í Kákasus,
er getið var um í síðasta blaði, hefur
verið voðalegur. Ætla menn að farizt
hafi um 4,000 manns, en 30,000 hafi
orðið húsvilltir. Um 30 þorp þar í
grenndinni hafa gersamlega lagzt í eyði.
Neyðin meðal þeirra, sem eptir lifa,
afarmikil, og menn eru hræddir um,
að drepsótt komi upp, því að hálf-
rotnuð, ógreptruð lík eitra loptið. Við
fyrsta jarðskjálptakippinn hrundi svo
að segja allur bærinn til grunna á svip-
stundu, en jörðin sprakk í sundur og
gaus eldur og ólyfjan upp úr sprung-
unum.
Frá Búaófriðnum eru fáar nýjung-
ar umfram það, sem getið var í síð-
asta blaði. En við og við gera Búar
Bretum ýmsar skráveifur, hlaupa að
þeim óvörum hér og hvar og drepa
nokkra menn, en hverfa svo oðar frá
aptur.
Tolstoj liggur enn hættulega veikur.
Varð fyrir skömmu uppþot meðal stúd-
enta í Kiew, af því að það fréttist, að
Tolstoj væri látinn. Og gengu þá hóp-
ar af stúdentum um götur bæjarins og
hrópuðu: „Lengi lifi Tolstoj, mesti
maður Rússlands. Niður með Roman-
owættina" (keisaraættina). Urðu þá
stympingar milli stúdenta og herinanna,
og margir stúdentar teknir höndum.
Var 3 háskólum þar í landi (Péturs-
borg, Kiew og Charkow) lokað um
þær mundir. — Tolstoj hefur sent þakk-
arávarp til hinna sænsku vísinda- og
listamanna, er höfðu lýst óánægju sinni
yfir, að Nobelsverðlaunin voru ekki
veitt honum. Kveðst Tolstoj hafa
orðið því feginn, að hann fékk ekki
þessa peninga, því að hann hefði orð-
ið í vandræðum með að verja þeim
heppilega. En hann kvaðst gleðjast
yfir hluttekningu þeirri og velvild, er
sér væri sýnd af mönnum, er hann
þekkti ekki.
í norskum blöðum má sjá, að það
er komin allmikill geigur í Norðmenn
við Rússa, eptir ofbeldi þeirra við
Finna. Segja Norðmenn nú, að þess
muni ekki langt að bíða, að Rússar
færi sig vestur á bóginn, til að ná á
sitt vald höfnum á norðvesturströnd
Noregs, svo að þeir hafi opna leið til
Atlantshafsins, enda eru ekki nema fá-
ar mílur til sjáfar frá landamærum Finn-
lands og Noregs ; þurfa því Rússar ekki
að taka nema Tromsö og Finntnörk.
Þykir Norðmönnum meðal annars dá-
lítið ískyggilegt, að Rússar eru nú í
óða önn að reisa 28 varðstöðvar eða
hermannakofa (Barakker) á landamær-
unum milli Noregs og Svíþjóðar ann-
I