Þjóðólfur - 04.04.1902, Qupperneq 3
55
Ur öðrum myndar af einum okkar merk-
asta bónda, en það er rnynd af Asgeiri
heit. Finnbogasyni dbrm. á Lundum 1 Staf-
^oltstungum, áður fyr á Lambastöðum á
Seltjarnarnesi. Hafi nokkur mynd verið
til af þessum ágætismanni, þegar hann lézt,
Þá ætti sá, er hana hefur í höndum, að
láta hana koma fyrir almenningssjónir, en
halda henni ekki lengur leyndri, þvi þar
var sá maður, er verðskuldaði, að minningu
kans væri haldið á lopti, ekki einungis
tneð því, að láta mynd af honum í Sunn-
anfara, heldur um leið að lýsa hans starf
sarna lífi, og jafnframt hans miklu mann-
kostum, er alstaðar komu í ljós við hvert
eitt og einasta tækifæri. Eg þekki marga
bændur hér á landi, og einnig suma af
þeim, er ( Sunnanfara eru nefndir, og að
mínu áliti tel eg hann fremstan allra þeirra,
að öllum þeim ólöstuðum, því Ásgeir var
einn af þeim helzt offáu mönnum, sem
hugsaði meir um að vera, heldur en sýn-
ast, eins og sumir nú á dögum leggja alla
stund á.
Eru nú Seltirningar allir dauðir, þeir
er höfðu kynni af þessttm ágætismanni á
meðan hann dvaidi meðal þeirra? Eru þeir
allir búnir að gleyma þeirri ástrlku vel-
vild, er hann sýndi þeim í orði og verki?
ef þeir geta ekki komið mynd af honum
í Sunnanfara, þá ættu þeir þó að minnsta
kosti að senda Sunnanfara æfiágrip þessa
merkismanns.
Mér er það kunnugt, að rnargur kom til
hans hryggur í huga, en fór frá honum
aptur glaður og ánségður, og ef nokkur
maður var til, er hvers manns vandræði
leysti, þeirra er hans leituðu, þá var það
hann.
Þér sveitungar hans, er þá voruð hon-
um samtíða, þér komuðtil hans sem ykk-
ar bezta föður, dvölduð hjá honum sem
föður og fóruð frá honum glaðir og ánægðir.
Er enginn ykkar enn á lífi, er opinber-
lega geti lýst þessum ágætismanni? Gekk
har.n engum ykkar í föðurstað, sem enn
eruð lifandi?
Viljið þér láta minning hans alveg deyja
út með honum, þér sem áttuð honum allt
hið góða að þakka í Ilfinu? J. S.
„Vesta“
kom hingað aptur af Vestfjörðum á
páskadaginn (30. f. m.). Fór ekki lengra
en til Isafjarðar, og hefði naumast lengra
komizt sakir hafíss, er þekur allan Húna-
flóa eptir sfðustu fréttum með pósti, svo
svo að lítil eða engin von er um að »Vesta«
komist norður um. Á Skagafirði og Eyja-
firði er lítill ís, að eins nokkurt hrafl. Með
»Vestu« komu hingað allmargir farþegar,
þar á meðal Lárus Bjarnason sýslumaður
úr Stykkishólmi, séra Guðm. Guðmunds-
soníGufudal, Guðrn. Jónasson verzlunar-
stj. í Skarðstöð, Jóhannes Ólafsson póstaf-
greiðslumaður frá Þingeyri o. fl. »Vesta«
fer aptur til Vestfjarða ( dag og reynir
að komast norður um.
Mannalát.
Látnar eru tvær merkiskonur á Vest-
urlandi.
Hinn 14. f. m. andaðist að Skarði á
Skarðsströnd ekkjtifrú Elinborg Krist-
j á n s d ó 11 i r (dóttir Kr. Skúlasonar Magnu-
sen kammeráðs), ekkja séra Jónasar Guð-
mundssonar prests að Staðarhrauni, er
andaðist á Skarði 1897. Meðal barna
þeirra er: Guðmundtir verzlunarstjóri í
Skarðstöð, Einar stúdent í Kaupm.höfn,
Ingibjörg kona séra Sveins Guðmundsson-
ar í Goðdölum, Margrét kona séra Guð-
laugs Guðmundssonar í Skarðsþingum o. fl.
Aðfaranóttina 27. f. m. andaðist í Stykk-
ishólmi frú Soffía Einarsdóttir
(systir frú Sigríðar Magnússon í Cambridge)
kona Sigurðar prófasts Gunnarssonar, rúml.
sextug. Af börnum þeirra lifa 2 dætur,
önnur Bergljót, gipt Haraldi Níelssyni
kand. theol. í Reykjavík.
Hinn 31. f. m. (2. f^áskum) lézt skyr.di-
lega Þorkell Gfslason snikkari hér
í bænum, ættaður úr Grímsnesi, (bróður-
son Jóns heit. Magnúss. á Snæfoksstöðum),
dugnaðarmaður og fjörmaður, vandaður
og áreiðanlegur í öllum viðskiptum.
Eptirmæli.
Hinn 21. f. m. dó Jón hafnsögumaður
Grímsson á Stokkseyri frá fjölskyldu mik-
illi og ómegð. Hann veiktist á sjó um dag-
málabilið á föstudaginn, en var dáinn kl. 3V2
á laugardagsmorguninn, úr lífhimnubólgu.—
Jón sál. var framúrskarandi mikill iðjumað-
ur, einn meðal hinna beztu og ötulustu for-
manna hér eystra og hafnsögumaður frá því
fyrsta, að skip fóru að sigla inn á höfn á
Stokkseyri, enda var hann mörgum manni
glöggskyggnari á veður og sjó og jafnað-
gætinn sem djarfur í sjósókn. Konu sína,
Ingveldi sál. Jónsdóttur frá Húsatóptum á
Skeiðum, missti hann mjög sviplega fyrir
tæpum 4 árum frá mörgum börnum í ó-
megð. Voru þau hjón víða góðkunn af öllu
því, er til góðs mátti verða fyrir hvern þann,
er þau gátu hjálparhönd rétt, enda voru þau
hvers manns hugljúfi.
Umgengilegri, hógværari, alúðlegri mann
en Jón sál. Grímsson, er naumast hægt að
hugsa sér, enda varð honum jafnan gott til
vina og ekki sízt þá er honum lá mest á,
en það voru vinir, sem eflaust hafa skilið
hans viðkvæma hjartalag og séð, hve þarft
og fagurt verk það var, að hjálpa jafnmikl-
um mannkostamanni og hann var, þegar
hann sjálfur fékk ekki rönd við reist, og hafa
flestir þessir vinir hans látið þá hjálp vera
meira en nafnið tómt. Jóns sál. Grímssonar
er af öllum, er hann þekktu að maklegleik-
um sárt saknað. Uppkomin börn hans eru:
Ingvar verzlunarmaður á Stokkseyri, Grím-
ur, sjómaður á fiskiskipi syðra og Aldís, öll
mjög mannvænleg og góðsöm. Hin börn
hans eru öll enn á æskuskeiði. — Jón sál.
mun hafa verið nál. fimmtugu.
Nýdáinn er og Eirikur Eiríksson á Brú
í Flóa, gamall og góður búhöldur, greindur
vel og fróður um margt. (N).
Hér með kunngerist andlát heiðurskon-
unnar, Va/gerðar F/alldórsdóttur frá Lamb-
haga í Borgarfirði.—Hún var fædd á Möðru-
völlum í Kjós árið 1828; hún ólst þar upp
hjá ömmu og afa og ga'ddist lífs- og sálar-
þreki. 16 ára fór hún frá sínum ástríku fóst-
urforeldrum í vinnukonustöðu að Meðalfelli
og dvaldi þar 4 ár; svo fluttist hún I Þern-
ey og þar giptist hún þeim nafnkenda óð-
alsbónda og ekkjumanni, Þórði Tómassyni,
24 ára. Þar bjuggu þau sómasamlegu búi
( 5 ár; svo fluttust þau að Melum og bjuggu
þar 11 ár; þau eignuðust 7 börn og lifa 2
látna elskumóður, en hin fimrn heim flutt á
helgar brautir og leika þar með ljúfum föð-
ur, og faðm nú breiða móti móður. —
Þessi heiðurskona varð ekkja árið 1868
og var það henni sár sorg að sjá á bak ást-
ríkum ektamaka og gáfuðum börnum, en
hún athugaði gang lifsins og bar mótlætið
með djörfung. Hún iifði þannig ekkja í 33
ár, er hún dvaldi meðal frænda og vina.
Síðustu 12 ár dvaldi hún stöðugt hjá dóttur
sinni, Margrétu, konu Sigurðar homopaþa
í Lambhaga, og andaðist þar um miðjan
desember síðastliðinn, þá 73 ára. Eitt barn
hennar er Ingimundur trésmiður í Reykjavík.
— Þó mótlætið mæddi, mikil var djörfung,
trygglyndið trausta og trúföst meðaumkvun.
Hún mæddist í lífinu, en mjög bar sig vel,
þó mætti opt vífinu þrautanna él;
hún treysti æ drottni með trúfastri dáð,
að traustasta mundi hann veita sér náð.
Ástríkum maka nú unir þú hjá
og elskuðu börnunum þínum fimm smá
í friðarins sælu við farsælan glaum
frálosuð þessa lífs tímanna straum.
Nú kveðja þig börn tvö með kærustu þökk,
af kærleikans anda og mæla svo klökk:
þú innræta vildir í æsku oss dyggð
og indæla veittir æ móðirin tryggð.
Við vonum að sjá þig, þá sofnum hér blund
síðastan fallvaltri lífsins á grund
í ununarsælu og systkinin smá
sínum er Ieika sér foreldrum hjá. (S)
Skákdálkur Þjóðólfs.
(Eptir Pétur Zóphóníasson. Box 32 a. Rv(k).
Nöfntn d reitunum.
Alltaf í skák er miðað við hvítt, hvítt á
leikinn, þannig ætíð í taflþrautum-, hvít-
ur reitur á að vera til hægri handar, og
drottning á sérlitum reit. Þegar eg vil
vita, hvað hver reitur heitir, byrja eg til
vinstri handar hjá hvítu, á a, og held
svo áfram, b, c, d, e, f, g, h, hef eg þá
8 stafi, sinn fyrir hverja línu. Yzta lína
til vinstri handar hjá hvít heitir þannig
ætíð a, drottning stendur þegar sett er upp
á di.
Þá er að vita hvað hver a-reitur heitir
fyrir sig, byrja eg þá aptur hjá hvítu á
1. og held til 8. Þegar sett er upp til
þess að tefla skák, standa svörtu menn-
irnir ætíð á línunni 8, svörtu peðin á
líunni 7, hvítu peðin á línunni 2, og hvítu
mennirnir á línunni 1.
Taflþrantir.
3. eptir Georg Szabó
Hvítt: Kb4, Db2, Rg8, Be5 = alls 4 menn-
Svart: Ke4, Pb5> e6 = alls 3 menn.
Hvítt mátar í 3. leik.
4. eptir Jokann Smutzy.
Hvítt: Kc7, Dh7, Rfi, g2, Pb3 = alls
5 menn.
Svart: Ke6, Pc6 alls 2 menn.
Hvitt mátar í 3. leik.
5. eptir Eduard Mazel.
Hvitt: Kbi, Dd3, Ha8, c6, Pe6 = 5 menn.
Svart: Kb7, Rb8 = 2 menn.
Hvítt mátar í 2. leik.
(5. eptir Hermann v, Gottschall.
Hvítt: Kh7, Db3, Rf7, Be^, Pg7, = 5 menn.
Svart: Kf6, Pe6 = 2 menn.
Hvítt mátar í 2. leik.
7. eptir Konrad Bayer.
Hvítt: Kdi, Df7, Rd8, Pc2, g2 = 5 menn.
Svart: Kd6, Pd2 2 menn.
Hv(tt mátar í 4. leik.
(Taflþraut þessi er mjög fögur).
8. eptir IV. A. Shinkman.
Hvítt: Ke7, Df^, Bh5, h2 = 4 menn.
Svart Kc6, Ba4, PI14 = 3 menn.
Hvítt mátar í 3. leik.
Taflendir. 1.
Hvítt: (W. J. Ferris). Kgi, Dei, Hai, fi,
Rbi, I13, Be3, Pa2, 1)2, d^, f2, g3, h2.
Svart: (J. E. Narrawáy) Kg8, Dd8, Hb8,
f.3, Rg4. Bds, d6; PC4, C7, g7, h6.
Svart mdtar í 5. leik.
Fréttir.
TadfélagAkureyrar. Stjórnendur þess eru:
kaupm. Tulinius, kaupm. Ásgeir Pétursson
og söðlasmiður Jón Jónsson.
Taflfélag Reykjavikur. Stjórnendur þess
eru: cand. phil. Jens Waage, gjaldkeri Pét-
ur Pétursson, verzlm. Pétur Zóphóníasson.
Fundir á hverju laugardagskveldi kl. 8.
Yeðuráttiifar í Rvík í marz 1902.
Meðalhiti á hádegi. + 0.7 C.
—„ nóttu . -+ 3.9
Mesturhiti „ hádegi. + 7 „ (h. 11.).
—kuldi „ —1„— . -+- 8 „ (h. 22).
Mestur hiti „ nóttu . + 2 „ (h. 3.).
—- kuldi,, „ .+-13 „ (aðfn.h.23.).
Austanátt fram yfir miðjan múnuð. er hann
gekk til norðurs með stöðugu frosti — opt
rokhvass á norðan. Um þetta leyti ! fyrra
við það klakalaus jörð.
1 /4 J Jónassen.
Jörð til sölu og ábúðar.
Heimajörðin Stóru-Vogar í Gull-
bringusýslu með hjáleigunni Garðhps-
um ertil sölu nú þegar, og fæst til ábúðar í
fardögum 1902. Vænt steinhús fylgir jörð-
inni, 14 ál. langt og 10 ál. breitt. I með-
alári fást 3 kýrfóður af töðu; útheysslægj-
ur eru litlar, en landkostir góðir, og út-
beit fyrir sauðfé er í bezta lagi, bæði í
fjöru og heiðarlandi. Flesta vetur gengur
sauðfé þar af gjáfarlaust. Við Vogastapa
var árlega til skamms tíma bezta veiði-
stöð við Faxaflóa, og við Vogavík er lög-
giltur verzlunarstaður. Verðið er lágt og
borgunarskilmálar mjög góðir.
Lysthafendur snúi sér til stjórnár Lands-
bankans.
Tryggvi Gunnarsson.
KRAhSAR, stórt úrval, BLÓM-
KRANSBOliDAR og SLAUFU-PÁLMA-
(tREINAR. Einnigr allskonar
KORT
fást ffitfð hjá mér.
Skólavörðustíg 5.
Svanl. Benediktsdóttir.
—&
| V E RZLU NIN |
l |
£&♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ________ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦0i
!:
////////////////
■«rE DINBOR G^pb
....................—.........I.
í Reykjavík
fékk nú með „Laurau" og „Ceres", fjölbreyttar birgðir af vörum, sem allt
selst sérlega ódýrt.
*
í Pakkhúsdeildina.
Melis, kandfs, kaffi, hveiti, riis, rúgmjöl, bankabygg, overhead, margarine, lín-
ur allskonar, baðlyf, olíuföt, netagarn o. fl.
í Nýlenduvörudeildina.
Rúsínur, sveskjur, gráfíkjur, reyktóbak mjög margar tegundir, niðursoðið alls-
konar, cigarettur, brjóstsykur fleiri tegundir o. fl.
í Vefnaðarvörudeildina.
Silki allavega litt margar tegundir, ensku vaðmálin, svart hálfklæði, misl. do.
margar tegundir. 30 tegundir af svörtum kjólatauum, mjög margar tegundir
af mislitum kjólatauum, fermingarkjólaefni hvít og mislit, ballkjólaefni ýmsar
tegundir, muslin fl. teg., lenon fig, tvisttauin breiðu, enska vaðmálið á 75 aur.
í mörgum litum, sængurdúkar fleiri teg., lérept bl. og óbl., lakalérept, borð-
dúkar hvítir og mislitir, servíettur, ljósdúkar, handklæði, handklæðadreglar,
ítaliensk klæði fl. teg., nankin, shirting, millifóður, ermafóður, mohren, vasa-
klútar hvítir og mislitir, flauel fl. teg., silkibönd allskonar, flauelsbönd, regn-
slög, regnkápur, regnhlífar, karlmannshúfur, drengjahúfur, rúmteppi hvít og
mislit, ullar- og bómullarnærföt, tvinni, shetlandsgarn, prjónagarn fl. teg.
gólfvaxdúkar, borðvaxdúkar, gardínutau hvít, gardínubönd, blúndur ýmiskon-
ar og m. m. fleira.