Þjóðólfur - 11.04.1902, Blaðsíða 3
59
ltosning þar, eins og lög gera ráð fyrir.
Og er hann ætlaði að fara að lesa á at-
kvæðaseðlana, stóðu þeir dr. Valtýr og
M. Torfason, upp úr sætum sínum, gengu
að forsetastóli og tóku stöðu að baki
aldursfors., V. til hægri, en M. til vinstri
handar, og lásu ásamt honum á seðlana.
Hafði doktorinn, sem er fremur væskils-
legur vexti, sýnilega ekki lítið fyrir því,
að teygja sig yfir olnbogabót Tryggva.
En furðu seyrinn innra mann þarf sá að
hafa, er getur látið sér detta í hug, að
forseti muni leyfa sér að falsa atkvæða-
greiðslu með röngum lestri á atkvæða-
seðlana. Enda væri innanhandar, að at-
huga seðlana á eptir, ef astæða þætti til.
Það hefur verið sagt í ísaf., að heima-
stjórnarmenn hefðu á alþingi í sumar
sýnt af sér svo mikla óstilling, að flykkj-
ast allir úr n. d. inn í e. d., þegarstjórn-
arskrármálið var þar til umræðu. Þetta
eins og fleira hefur blaðið sagt, til að
reyna, að fá þá til að trúa, er ekki vissu
hið sanna, það nfl., er öllum viðstöddum
er kunnugt, að úr báðum deildum voru
nokkrir þingmenn af báðum flokkum,
nokkurnveginn jafnt áheyrendur stundar-
korn 1 þeirri deildinni, er stjórnarmálið
var hjá til umræðu. Og þegar ein þýð-
ingarmikil atkvæðagreiðsla um þetta mál
fór fram í e. d., bar svo við — af til-
viljun? — að 4 Valtýingar (V. G., M. T.,
St. St., Sig. Sig.) stóðti í hvirfing bak við
stól Axels Tuliniusar meðan á atkvæða-
greiðslunni stóð. Þeir munu þó ekki hafa
tortryggt hann?!
Áhorfandi.
Til „hins dóleidda*'.
Sr. J. P.! Velkomið, að hafa ánægj-
una af því, að »leggja út« gerðir rntnar
og lesa orð nrín eins og —----biblíuna!
B. B.
Nýr sigur!
Á laugardagskveldið er var, stofnuðu
Valtýingar til stjórnarmálsfundar, er þeir
nefndu svo, og höfðu sigað Jóni bóksala
Olafssyni á undan sér — líkt og Búar reka
stórgripi fyrir sér í áhlaupum.
Fundur þessi átti að sýna gengi Valtýs-
flokksins hér í bænum og samþykkja í
ýmsum helztu landsmálum ofan í fund
þann- er and-Valtýingar héldu um daginn.
Undu Valtýingar illa við, hve gersamlega
þeirurðu undir þá, og ætluðu nú að sýna
sig; enda höfðu þeir „agiterað" fyrir fund-
inn, hann Hjálmar og aðrir sendlar ísafoldar.
Og sigur varð það líka — á „ísfoldsku",
en á réttu máli einhver sá hraparlegasti
ósigur, sem Valtýsklfkan hér f bæ hefur
beðið um langan aldur.
Á fundinum voru stóru spámenn Val-
týskunnar, Kr. yfirdómari og fleiri, en ekki
talaði Kristján á þeim fundi.
Þrjú þingmannaefni Reykvfkinga töluðu
— ásamt fleirum —- og skal hér nokkuð
minnst á frammistöðu þeirra á fundinum.
Jón Olafsson talaði, eins og vant er, af
mælsku en niinni hyggindum; hafði lítið
annað að segja, en að hann væri með
konur.gsboðskapnum, og engum pólitisk-
um flokk fylgjandi. í fundarlok boðaði hann
þau stórtfðindi, sem hann nú upp á
síðkastið hefur gengið þrunginn með, er
hann bauð sig fram til aiþingis hér í Reykja-
vík, — hér, þar sem allir þekkja hann!!
Honum var mjög umhugað, að vita með
vissu, hvort nokkrir pólitiskir flokkar væru
nú til o. s. frv-
— Eg þykist ekki þurfa að lýsa því nán-
ar hér,hvaða fjarstæðaþað er fyrir Jón Olafs-
son að hugsa til þingmennsku hér. Kosn-
ingarnar munu þegjandi skýra frá því,
hvers virði Reykvíkingar álíta J. O. sem
pólitiska stærð. —
Tryggvi Gunnarsson sagðist álíta, að ad
því leyti, sem allir segdust vera konungs-
bod. fylgjandi, væru hér engir flokkar, en
með því að reynslan hefði kennt mönn-
að treysta ekki þeim um of, sem brugðizt
hefðu, þá hlytu hér að verða flokkaskipti
um kosningarnar — hverjum þjóðin vildi
treysta til að standa við sínar yfirlýsingar
og hverjum ekki. Tók hann það ennfrem-
ur fram, að Isafold sem málgagn Valtýs-
flokksins gangi ekki sem bezt á undan
sínum flokksmönnum að því er áreiðanleik
og sannsögli snertir, sem sjá mætti af því,
að hún hefði dirfzt að skýra algerlega rangt
frá því, sem fram fór á síðastliðnum póli-
tiskum fundi, þrátt fyrir að húsfyllir var
þá viðstaddur, sem hlaut að vera f fersku
minni, hvað gerzt hafði á fundinum. —
Hvernig ætti að treysta slíkum til þess að
standa við sínar yfirlýsingar?
— Þessari forsjálni var tekið með fögn-
uði af áheyrendum.
Jóni Jenssyni þótti ekki fallegt, að tor-
tryggja sig um það, að hann mundi taka
konungsboðskapnum, sagðist vera vand-
aður maður og lipurmenni — það dygði
ekki að koma fram eins og einhver bölv-
aður þjösni í pólitíkinni o. s. frv. Leidd-
ist mönnum þessi fyndni ekki svo mjög,
en hitt þótti mönnum leiðara, þegar hann
fór að þakka valtýskunni fyrir konungs-
boðskapinn.
—Er það nú orðið að almennri meiningu
manna hér í Reykjavík, að ef J. J. dettur
í hug að komast á næsta þing, þá sé hon-
um betra að sitja heima, en að koma á
pólitiska fundi og gera háð að sjálfum sér.
Þessir tveir nýafstöðnu pólitisku fundir
mega því vera sönnum heimastjórnar-
mönnum hið mesta gleðiefni, bæði að þvf
er snertir undirtektirnar undir konungs-
boðskapinn, og ekki síður bankamálið,
þar eð samþykkt var að hafna svonefndum
„stórabanka", sem Björn Kristjánsson hef-
ur verið að dragnazt með, en hugsa heldur
um að efla landsbankann.
Isafold getur því sagt að hún og henn-
ar nótar hafi unnið nýjan og stóran sig-
ur! — samkyns og endranær, er hún þyk-
ist hafa sigrað mótstöðumenn sína.
Aheyrandi.
Á sko p un.
Þá er Austur-Landeyingar urðu fyrir hinu
stórkostlega manntjóni árið 1894, urðu ýms-
ir, bæði utan og innan Rangárvallasýslu til
þess að rétta þeim hjálparhönd og skjóta
saman fé handa þeim, sem mesta neyðina
liðu. En það fé, sem þá kom inn, varð svo
mikið, að áliti þeirra, sem um það áttu að
fjalla, að eigi sýndist brýn þörf á, að brúka
það allt þá í svipinn. Og af afganginum.
550 krónum, var því stofnaður sjóður, er ber
nafnið: „Styrktarsjóður handa ekkjum og
munaðarleysingjum í Rangárvallasýslu". —
Eins og skipulagsskrá þessa sjóðs ber með
sér (sbr. Stjórnart. B. 8, 1895), er það til-
gangur þessarar sjóðsstofnunar, að styrkja
þær ekkjur og munaðarleysingja í sýslunni,
er þess hafa brýna þörf og efni sjóðsins leyfa,
sérstaklega þar sem um sjódrukknanir og
voveifleg dauðsföll er að ræða. — En þar
sem sjóðnum bætast ekki neinar vissar tekj-
ur, en hann nær, samkvæmt skipulagsskránni,
yfir allstórt svæði, þá gefur að skilja, að ó-
tal, ótal mörg ár hljóta að líða þar til hann
getur veitt nokkra verulega hjáip, ef hann
að eins verður að þroskast fyrir eigin krapta,
þ. e. a. skilja, fyrir hina árlegu vexti ein
göngu. Þess vegna leyfi eg mér, sem nú-
verandi í stjórn sjóðsins, að skora hér með
á alla sjálfstæða sjómenn úr Rangárvalla-
sýslu, en sérstaklega þó formenn — þar
þeir geta eðlilega haft góð áhrif á háseta
sína — að hafa sjóð þennan í huga á þess-
ari yfirstandandi vertíð eða við endalok henn-
ar- ~ Að vísu ganga allir daglega í dauð-
ans hættu, en þó ekki hvað sízt þeir, sem
um lengri eða skemmri tíma verða að sækja
lífsbjörg sína og sinna út á hið opna haf.
Og er því ekki ósennilegt, — miklu fremur
til þess ætlandi, — að mönnum I slíkum
kringumstæðum komi iðulega til hugar, hver
forlög blði konu og barna, ef ferjuna ekki
ber að landi þann og þann daginn. Og sé
slík hugsun vakandi fyrir mönnum, þá ætti
þeim ekki að vera óljúft, að styðja með 1
eða 2 fiskvirðum stofnun, sem hefur þann
tilgang, að styrkja þeirra eða annara eptir-
látna ástvini og einStæðinga, en sem ekki
fær notið sín vegna fátæktarinnar og þess,
hversu fáir þeir eru, sem um gagn hennar
og tilgang hugsa á meðan neyðin etgi krepp-
ir að. — Frá aldaöðli hafa áheit átt sér
stað, sumpart að vísu vegna hjátrúar, en
sumpart líka til guðsþakka og vegna þess,
að menn hafa álitið þann, sem á er heitið
alls góðs maklegan. Og með tilliti til þessa
sýnist ekki illa viðéigandi, að þeir sjómenn
úr Rangárvallasýslu, sem eigakonu og börn,
bíðandi heima með kvíða og þrá í brjósti,
geri það áheit með sjálfum sér, að rétta
sjóðstofnun þessari sína veiku og vanmátt-
ugu hjálparhönd, ef drottinn leiði þá heila
á hófi og með sæmilegum afla heirn aptur,
þessari stofnun, sem hefur þann aðaltilgang,
ef efnin leyfdu, að svara fyrir þeirraogann-
ara slíkra' manna líf, frá efnalegu sjónar-
miði skoðað. — Að vísu hefur reynsla síðast-
liðinna ára sýnt oss Rangæingum það, bæði
þegar slysið hitti Austur-Landeyinga 1894
og nú á síðastliðnu vori Austur-Eyfellinga,
að hönd bræðranna og systranna í fjarlægð
er alls ekki lokuð, þegar þörfin kallar að,
heldur örlátlega fram rétt. En þótt gott sé
að taka slíkum vottum mannkærleikans, sem
vér Rangæingar höfum orðið aðnjótandi og
þeir séu mikillar þakkar verðir, þá ber oss,
þá ber hverjum einum, að hafa það hug-
fast, ad betra er hjd sjd/fum sér ad taka, en
sinn bródur að bidja. — En að vér Rangæ-
ingar yrðurn í framtíðinni færari um, að taka
á móti slíkum og þvílíkum slysum, sem oss
hefur á liðnum árum af sjáfarins völdum
hent, það hefur óefað verið tilgangurinn
með þessari sjóðstofnun, enda bendir og
skipulagsskráin til þess. En eigi þessi
sjóður fyrir ekkjur og munaðarleysingja í
Rvs., að bafa aðra og rneiri þýðingu, en
nafnið tórnt, þá verður það að verða vakandi
fyrir mönnum þeim, sem hlut eiga að máli,
að nafnið eitt getur ekki styrkt eða hjdlpað
peim, sem hjálpina purfa i framtfðinni., held-
ur verður sjóðurinn fyrir almenna og drengi-
lega tilstuðlun þeirra, sem hlut eiga að máli
að geta tekið þroska og framförum, svo til-
gangurinn náist. Og að því, að þeir menn,
sem þetta sérstaklega snertir, leggi hver ög
einn fram sinn litla skerf, eiga þessar
línur að miða. En hafi þessi mín áskorun
einhverja þýðingu, þá mundi það nægja, að
þeir, sem vildu rétta sjóði þessum styrkt-
arhönd sína skrifuðu inn þær krónur eða
þá aura við þá verzlun, er þeir ættu við-
skipti við, því að að óumsömdu ber eg það
traust til allra siíkra verzlana, að þær mundu
borga mér eða þeim, sem þá stæðu fyrir
sjóði þessum krónurþær og aura í peningum
umtölulaust og heldur hvetja en letja við-
skiptamenn sína til að rétta honum hjálp-
arhönd.
Breiðabólstað 14. rnarz 1902.
Eggert Pálsson.
VOTTORÐ.
Eg hef síðustu 6 ár verið þungt hald-
inn af geðveiki og brúkað við því ýmis-
leg ineðul, en árangurslaust, þar til eg
fyrir 5 vikum fór að brúka Kína-ltfs-elix-
ir Waldemars Petersen í Fjiðrikshöfn.
Þá fekk eg undir eins reglulegan svefn;
og þegar eg var búinn með 3 glös af
elixírnum, kom verulegur bati, og vona
eg, að mér batni alveg, ef eg held á-
N fram með hann.
Staddur í Reykjavík.
Pétur Bjarnason
frá Landakoti.
A.ð framanskráð yfirlýsing sé af frjáls-
um vilja gefin og að hlutaðeigandi sé
með fullri skynsemi, vottar
L. P á 1 s s o n
prakt. læknir.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjáflestum
kaupmönnum á fslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðið er öldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir
v.p.
að líta veleptirþví, að p standi á flösk-
unum I grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið VValde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Glasgow-prentsmiðjan.
Reikningur
yfir tekjur og gjöld sparisjóðsins í Stykkis-
hólmi fyrir árið 1901.
Tekjur:
1. Peningar í sjóði frá f. á.....1.650. 26
2. Borgað af lánum:
a. fasteignarveðslán . 670. 00
b. sjálfskuldarábyrgð-
arlán.............9.697. 00
c. lán gegn annari
tryggingu......... 4Q°- 00 10.767. 00
3. Innlög í sparisjóðinn
á árinu .............6.786. 37
Vextir af innlögum
lagðir við höfuðstól. . 573. 80 7.360. 17
4. Vextir:
a. af lánum .........1.019. 23
b. aðrir vextir . . . 35- 10 1.054.33
5. Ymislegar tekjur.............. 50. 07
6. Ógreiddir vextir.............. 16. 65
7. Fasteign...................... 857.85
Alls 21.756. 33
Gjöld :
1. Lánað út á reikningstímabilinu:
a. gegnfasteignarveði 850. 00
b. — sjálfskuldaráb. 11.595. 00
c. — annari trygg-
ingu................1.100. 00 i3.i;a^. 00
2. Utborgað af innlögum
samlagsmanna .... 5.272. 96
Þar við bætast dag-
vextir 16. 23 5.289. 19
3. Kostnaður við sjóðinn
a. laun 75. 00
b. annar kostnaður . Lri tJ O 127. IO
4. Vextir;
a. af sparisjóðsinnlög-
um 573- 80
b. aðrir vextir .... 573- 80
5. Til jafnaðar móti tekjulið 6 . . . 16. 65
6. Fasteign útlögð sjóðnum .... 667. 60
7. í sjóði hinn 31. des. 1.536.99
AIls 21.756.33
Jafnaðarreikningur
sparisjóðsins í Stykkishólmi 31. des. 1901.
(I !ok reikníngstímabilsins).
Akti va.
1. Skuldabréf fyrir lánum:
a. fasteignarveðskulda-
bréf.............1.865. 00
b. sjálfskuldarábyrgð-
arskuldabréf .... 13.833. 00
c. skuldabréffyrirlán-
um gegn annari
tryggingu . . . . . 1.300. 00 i6.qq8. 00
2. Fasteign...................... 667, 60
4. Utistandandi vextir, áfallnir við
lok reikningstímabilsins....... 16. 65
5. í sjóði.................... 1.536.99
Alls 19.219.24
Passi va.
1. Innlög 157 samlagsmanna alls 17.670.86
2. Fyrirfram greiddlr vextir, sem
eigi áfalla fyr en eptir lok reikn-
ingstímabilsins................ 524. 09
3. Tiljafnaðarmóti tölulið ^íaktiva 16.65
4. Varasjóður....................1.007.64
Alls 19.219.24
Stykkishólmi 31. desenrber 1901.
Stjórn sparisjóðsins.
Lárus H. Bjarnason, Sœm. Halldórsson.
S. Richter.
*
* *
Reikning þennan höfum við undirritaðir
endurskoðað og finnum ekkert við hann að
athuga.
Stykkishólmi 21. marz 1902.
Agúst Þórar insson, Armann Bjarnason.
KRANSAR, stórt nrval, BLÓM-
KRANSBORDAR og SLAUFU-PÁLMA-
fJREIJíAR. Eiiinig allskonar
KORT
fást ætíð hjá mér.
Skólavörðustíg 5.
Svanl. Benediktsdöttlr.
Verzliin
Sturlu Jónssonar
hefur nú með „Laura" fengið mikið
af alls konar
RAMMALISTUM,
semseljastódýrara en nokkru sinni áður.