Þjóðólfur - 11.07.1902, Page 1
OLFUR.
54. árg
Reykjavík, föstudaginn 1 1. júlí
1902.
M 28
Kosningasigur
heimastjórnarmanna.
Svar þjöðarinnar.
Það ætti að vera hreinasti óþarfi, að
þrátta minnstu vitund um það, hvor
flokkurinn, heimastjórnar- eða Hafnar-
stjórnarflokkurinn, hafi borið efra hlnt
við kosningar þær til alþingis, sem
fram fóru í næstl. mánuði. Enginn
maður með óbrjálaðri skynsemi getur
haldið því fram í fullri alvöru, að
Hafnarstjórnarflokkurinn hafi unnið
„mikinn og frægan sigur"(!!). Og samt
er þessi langavitleysa kaldhömruð fram
í „fúlustu" alvöru, að því er virðist
hjá málgagni því, er Hafnarstjórnar-
menn hafa hnýtt aptan í sig og dans-
að með frammi fyrir þjóðinni næstl.
5 ár. Þessi konungsgersemi, þessi
pólitiska skopparakringla, hefur gert
þá meistaralegu uppfundningu í stærð-
fræðinni, að 12 sé meira en 18. Mik-
il er vizkan!. Sú uppfundning ætti
að verða heimsfræg. Þetta pólitiska
allragagn ætlar nfl. að fara að telja
fólki trú um, að flokkstnenn þess 12
að tölu séu liðsterkari en 18 heima-
stjórnarmenn(!l). Með þeim reikningi
er auðvelt, að telja sig ávallt í meiri
hluta, en hitt er annað mál, hvernig
sá reikningur reynist í framkvæmdinni.
Menn hafa einnig gert óvenjulega mik-
ið gys að þessum barnaskap málgagns-
ins og hreystiyrðum þess. jafnt vinir
sem óvinir. Þá fer „Þjóðviljinn" skyn-
samlegar að, til að leyna ósigrinum,
og láta það að minnsta kosti líta svo
fit á pappírnum, að flokksmenn hans
séu liðsterkastir á þingi. Hann gerir
sér nfl. lítið fyrir og klýfur heima-
stjórnarflokkinn sundurítvénnt(!!),í „um-
bótamenn" og „freka íhaldsmenn “(!!).
Auðvitað er sú flokkskipting á engu
viti byggð, tóm haugavitleysa, smíðuð
að eins til þess að kljúfa sýona ápapp-
írnum þennan fjölmenna flokk, svo að
Hafnarstjórnarmenn geti orðið liðflestir.
En vitleysan verður á þennan hátt dá-
lítið ísmeygilegri í fljótu bragði, en
hjá systur hans elskulegri, þótt tilgang-
urinn sé hinn sami og allt beri að
sama brunni, þá er farið verður að
gera upp reikningana í framkvæmd-
inni. Þá verður klofningur Skúlaþarna
á pappírnum alveg jafn áreiðanlegur
og þýðingarmikill eins og hin stærð-
fræðilega uppfundning Bjarnar. Þar
hallast ekkert á, nema þetta, að Björn
hefur lært „margskonar tölur" hjá
Indriða og B. Kr., og gert uppfundn-
ingu sína í sambandi við þann vísdóm,
en Skúli hefur lært deilingu eina af
latneska málshættinum: „divide et im-
pera" (dreifðu og þú munt stjórna),
sem hann einmitt vitnar til í þessu
sama blaði, sem hann er að „deila"
heimastjórnarflokknum.
Þessar tilraunir Hafnarstjórnarblað-
anna til að leyna óförunum, gera hvorki
til né frá. Það er bara hlegið að þeim
og annað ekki. Það er nokkurskonar
skrípaleikur, sem þau. eru að leika
frammi fyrir þjóðinni. „skemmtun fyrir
fólkið", sem þau veita svo opt á sinn
eiginn kostnað, sitja með sveittan
skallann yfir að búa til ýms kringil-
yrði, er geti geymzt í minningu þjóð-
arinnar, eins og t d. það snilliyrði hjá
Foldinni nýlega, að frumvarp stjórnar-
innar hið nýja væri „alveg orðrétt að
mestu leyti" eptir valtýska frumvarp-
inu frá síðasta þingi. Hið frægasta
hirðfífl konunga á fyrri tímum mundi
ekki hafa getað komizt kynduglegar að
orði. „Foldin" er sjálfsagt að búa sig
undir einhverja slíka embættisþjónustu
hjá Valtý við tignartróninn hans til-
vonandi, sem sumir eru þegar farnir
að krjúpa við, mænandi löngunarfull-
um, bráðsólgnum augum í bitana af
borði hans og Warburgs.
En hvað kosningarnar sérstaklega
snertir, þá þarf ekki að deila um það
að þjóðin hefur þar tekið af skarið,
sýnt hversu hún hefur matið framkomu
Hafnarstjórnarflokksins á síðasta þingi
með því að endurkjósa að eins helm-
ing þeirra manna, er atkvæði greiddu
með Hafnarstjórnarfrumvarpinu, en
varpa hinum helmingnum af sér, auk
5 annara, er áður áttu sæti á þingi,
og þennan flokk fylltu. Það eru að
eins 8 menn, sem nú eru á þingi og
samþykkt hafa frv. síðasta þings (Björn
Kristjánsson, Guðl. Guðmundsson,
Magnús Andrésson, Olafur Briem, Sig-
urður Jensson, Skúli Thoroddsen, Stef-
án Stefánsson, Þórður Thoroddsen),
en 7 þeirra hafa fallið: Axel Tulinius,
Einar Jónsson, Jóh. Jóhannesson, Magn-
ús Torfason, Ólafur Ólafsson, Valtýr,
Þórður Guðmundsson) og hinn 8. lagði
ekki út a djúpið aptur (Sig. Sigurðs-
son). Hér hefur þvi fallið réttur helm-
ingur af hinu þjóðkj'órna þingliði þeirra
síðast, því að Einar Jónsson telst að
því leyti í þeirra flokki, að hann greiddi
Hafnarstj.frumvarpinu atkvæði í neðri
deild, bjargaði því með atkvæði sínu
út úr deiidinni, þótt hann iðraði þess
seinna, er hann vissi um ráðaneytis-
skiptin.
1 stað þessara 8 manna, er Hafnar-
stjórnarflokkurinn hefur misst af þing-
bekkjunum, hafa þeir að eins fengið
2, líklega nokkurnvegin dygga fylgis-
menn (Sig. Stefánsson og Þorgrím
Þórðarson), svo að í raun réttri eru
þeir io-menningar nú á þingi. En til
þess að lofa þeim að fylla tylftina,
geta hinir staðið sig vel við, atkvæða-
fjöldans vegna, að lofa þeim að telja
þá Jón Magnússon og Eggert Bene-
diktsson í þeirra flokki, enda þótt
Þjóðviljinn sé svo hæverskur, að vilja
ekki eigna sér J. M. heldur telja hann
„flokkleysingja", sem sjálfsagt er Hka
réttara. Erl sú niðurskipun Þjv. staf-
ar auðvitað af engu öðru, en þykkju
við J. M., fyrir það að hann steypti
Valtý.
Skakkafall það, er heimastjórnar-
menn hafa orðið fyrir við kosningarn-
ar, hefur hinsvegar að eins verið fall
Hannesar Hafsteins í ísafjarðarsýslu,
Biðjiðætíð u m
•------------•
OTTO M0NSTED S
DANSKA SMJÖRLÍKI
sem er alveg eins bragðgott og notadrjúgt og smjör.
Yerksmiðjan er hin elzta off stærsta í Danmörkn, og býr til óefað hina beztn
vörn og ódýrnstn í samanbnrði við gæðin.
Fæst hjá kaupmönnum.
og að vissu leyti fall Bjarnar Bjarnar-
sonar í Borgarfirði. Af öðrum fram-
bjóðendum þess flokks hafa 7 fallið
við kosningarnar, margir með mjög
litlum atkvæðamun, en úr hinna flokki
15, þar á meðal 5, er áður höfðu set-
ið á þingi, en ekki hinu síðasta.
Til frekari skýringar og fróðleiks,
birtum vér hér skýrslu um, hvernig at-
kvæði hafa verið greidd á öllu land-
inu við þessar kosningar. Sést ljós-
ast af henni, hve miklu fleiri atkvæði
hafa fallið á heimastj órnarmenn en
Hafnarstjórnarmenn, þ. e. nál. 700 fleiri.
Þau atkvæði eru talin á „milli flokka",
sem vanta til þess að fylla alla tölu
greiddra atkvæða, þá er lögð eru sam-
an atkvæði þeirra tveggja frambjóð-
enda sitt úr hvorum flokki, er fæst at-
kvæði hafa fengið. Með því næst
mest nákvæmni um flokkaskiptinguna.
Alþingiskosningar 1902.
Heima- stjórnarm. Hafnar- stjórnarm. Milli flokka. Alls kusu:
Reykjavík 224 179 5 408
Borgarfjarðarsýsla 180 »> » 180
Mýrasýsla 46 67 w 113
Snæfellsnessýsla 52 » » 52
Dalasýsla 82 77 »» «59
Barðastrandarsýsla 15 34 »» 49
ísafjarðarsýsla 118* 230 12 360
Strandasýsla 50 » » 50
Húnavatnssýsla 146 94 3i 271
Skagafjarðarsýsla 118 129 »» 247
Eyjafjarðarsýsla 262 » » 262
Suður-Þingeyjarsýsla .... 139 » „ «39
Norður-Þingeyjarsýsla .... 65 n »» 65
Norður-Múlasýsla 140 134 »» 274
Suður-Múlasýsla 153 49 9 211
Austur-Skaptafellssýsla .... 35 52 »» 87
Vestur-Skaptafellssýsla .... „ 58 » 58
Rangárvallasýsla 213 163 9 385
Árnessýsla 161 145 26 332
Vestmannaeyjasýsla 28 23 »> 5i
Gullbringu- og Kjósarsýsla . 67 175 47 289
Samtals: 2294 1609 139 | 4042
Svona hefur þjóðin svarað.
Skýrsla þessi, sem er mjög fróðleg
til yfirlits, sýnir svart á hvítu, svo að
ekki verður á móti mælt, hversu sig-
ur-staðhæfingar Valtýinga eru fjarri
öllu viti — með nál. 700 atkv. minni
hluta. Þeir hafa ekki fengið nánda-
nærri helming allra greiddra atkvæða,
ekki nema 2/5- En væri lögð saman
atkvæðatala heimastjórnarmanna, þeirra
er kosnir hafa verið og hinna, án þess
hins rétta hlutfalls væri gætt, þá yrði
munurinn miklu meiri, en sú skýrsla
væri ekki eins nákvæm eins og þessi.
Af þessari skýrslu sést einnig, hversu
margir kjósendur hafa greitt atkvæði
í hverju kjördæmi fyrir sig. Er Reykja-
vík þar hæst, eins og eðlilegt er (408),
en milli 3—400 hafa greitt atkvæði í
þessum 3 sýslum: Rangárvalla- (385),
ísafjarðar- (360) og Árnessýslu (332).
í samanburði við kjósendatjölda mun
kjörfundur langbezt sóttur í Rangár-
vallasýslu af öllum kjördæmum lands-
ins, að Vestmannaeyjum auðvitað und-
anskildum, enda er atkvæðajalan hæst
í Rangárvallasýslu á eptir höfuðstaðn-
um, og er það sæmd fyrir kjördæmið.
Að öðru leyti sannar skýrsla þessi
betur en langar málalengingar, hversu
mjög Valtýingar hafa lotið í lægra
haldi við þessar kosningar. Það má
því á sama standa, hvað „ísafold" og
„Þjóðviljinn" þvaðra um þetta fram-
vegis. Þau geta hvort sem er aldrei
hnekkt þessum tölum. Allar slíkar
skýrslur eru óþægilegar viðureignar.
Þær geta verið skrambans ónotalegar
bláberar tölurnar, þá er verja þarf ó-
sannindi og lausaflimt gagnvart þeim.