Þjóðólfur - 22.08.1902, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 22.08.1902, Blaðsíða 3
i35 hinn versti. Væri botnvörpuveiðar stund- aðar af landi, mætti búast við, að sá fisk- ur færi saman við annan fisk, og væri þá jafnframt spillt því góða orði, er íslenzk- ur fiskur hefur á sér á útlendum markaði. Leiddi leyfið til þess, að upp kæmi þar eystra stór botnvörpuskipastóll, mundi það fækka enn meir vinnufólki til sveita, og er þó sfzt á það bætandi. Þá má og búast við því, að eptirlitið á á þessum stöðvum yrði enn minna, er varð- skipið yrði svo að segja að Iesa þau skip- in úr, er leyfi hefðu, enda viðbúið, að Danir yrðu tregari til að auka eptirlitið, er þeir sæju, að vér létum oss ekki annara nm landhelgi vora en svo, að vér hleypt- nm inn á hana útlendum mönnum undir forustu íslenzkra leppa. Að vísu ætlast i. gr. frv. til þess, að fyrir veiðunum standi hérlendir menn, en það má sjá á 5. gr., á því að borga á 2000 kr. fyrir hvert leyfisbréf, 100 kr. fyrir hvert skip og að auki 3 kr. fyrir hverja smálest, að fyrirtækið er ætlað útlendum auðmönn- um, en ekki Islendingura. Islendingar mundu ekki bera annað úr býtum, en kaup- ið fyrir að leggja til nafnið og útvega leyfið. Svo sem hér er á vikið, mundi fara, ef nokkur yrði til að nota leyfið, að því við- bættu, að þingið ætti miklu óhægra með að neita öðrum sýslum um samskonar leyfi, en langlíklegast er, að enginn yrði til þess að kaupa leyfið. Það er allsendis ótrúlegt, að útlendingar færi að leggja fram stórfé fyrir það, sem þeir, að sögn flutningsmanna, nú taka fyrir ekkert, og væri þá um leið horfin eina átyllan fyrir þessu frumvarpi, hags- munavonin fyrir Skaptfellinga, enda mundu hagsmunirnir alltaf verða meiri í orði en á borði. Það gæti ekki komið til mála, að leyfishafendur mundu, svo sem flutn- ingsmenn frumvarpsins hafa haldið fram, fara að leggja fé svo hundruðum þúsunda skipti í hafnargerð þar eystra, auk hins háa leyfisgjalds. I 3. gr. frumv. er gert ráð fyrir, að lands- höfðingi geti sett hin og þessi skilyrði fyrir leyfinu, 'en engin ábyrgð lögð við, þótt skilyrðin kunni að verða brotin. Þar er og gert ráð fyrir bótum á spjöllum þeim, er fiskiveiðar sýslubúa kynnu að verða fyrir, en ólíklegt er, að nokkrar bætur fengjust. Það mundi verða lltt mögulegt að sanna, að sýslurnar hefðu skaðazt á veiðunum, og enn órnögulegra a.ð sanna, hve mikið tjón þær hefðu beðið. Auk þess er hér farið fram á það nýmæli, að umboðsvald- ið geri út um dómsmál. Það er margt fleira athugavert í frum- varpi þessu, þótt ekki finnum við sérstak- lega að því. Það er þannig lagað, að því verður ekki breytt, og því ráðum við háttv. deild til að fella það". Lagarfljótsbrúin. Sigurður Thoroddsen verkfræðingur kom rakleiðis norðan úr landi nú fyrir skömmu, og fór aptur að fám dögum liðnum. Hafði hann fengið pata af því, að eitthvað væri að honum sneytt í athugasemdum við fjár- aukalagafrumvarp stjórnarinnar, út af því, að hann lét hætta vinnunni við Lagarfljóts- brúna í fyrra sumar. Þá er hann kom suður, ritaði hann fjáraukalaganefndinni 1 efri deild langt og ítarlegt bréf, þar sem hann gerir grein fyrir gerðum sfnum, og ber af sér ákúrur stjórnarinnar, Windfeld Hansens forstjóra og verksmiðjunnar dönsku, er hafði tekið að sér brúarsmíð- ina. I bréfi þessu, sem prentað er sem fylgiskjal við álit fjáraukalaganefndarinnar segir hr. Thoroddsen meðal annars: »Aðalorsökin liggur í því, að Barth hef- ur ekki rannsakað botninn nægilega eða ekki gert ráðstafanir til þess, að hann yrði nægilega rannsakaður(með prófniðurrekstri) áður en byrjað var á brúarsmíðinu; þar af leiðandi kom það í ljós, þegarbotninn reyndist svo blautur, að staurarnir urðu of stuttir, efni var ekki nær því nægilegt til þess að fullgera stauraniðurreksturinn og þótt timbrið hefði verið nægilegt, var ekki hægt að fullgera stauraniðurreksturinn, nema ef til vill á 3—4 staurum, því að nær því allir staurarnir urðu að vera þann- ig úr garði gerðir, að hver og einn þurfti að vera samskeyttur úr 2 minni staur- um með galvaniseruðum járnplötum og boltum, sem voru ekki til. Þetta var að- alástæðan til þess að hætta varð við verk- ið, og á þessu átti verksmiðjan enga sök; en verksmiðjan var samt sem áður ekki alveg saklaus og hrein; hún hafði ekki haft fyrirhyggju til þess að afla grjóts til landstöplanna, sem hún átti að gera ept- ir samningnum ; hún hafði ekki sent nógu duglega menn, sem gætu eða treystu sér til að reka niður 24 álna staurana með þeim áhöldum, sem þeir voru útbúnir með, og verkamenn verksmiðjunnarhöfðu jafn- vel látið skera 4 af þessum staurum þvert yfir. -—Þess vegna hefði verksmiðjan ekki getað lokið við verkið árið 1901 eins og áskilið var, þótt ekkert hefði verið í veg- inum með botninn. Þess vegna álít eg, að verksmiðjan eigi engaheimtingu á borg- un fyrir ferðakostnað verkamanna og vinnu- tap þeirra«. Lagafrumvðrp samþykkt af þinginu í viðbót við þau, sem getið er um í síðasta blaði. 7. Um heimild til að selja hluta af Arnar- hólslód í Reykjavík. 8. Utn brúargerð d Jökulsá í Oxarfirði (stjórninni veitt heimild til að verja allt að 50,000 kr. úr landssjóði til brúargerð- arinnar, þegar fé er veitt til þess í fjár- lögunum). 9. Viðaukalög við lög 6. apríl 1898 um bann gegn botnvörþuveiðum. 1. Hver sá maður, er leiðbeinir skipi við botnvörpuveiðar f landhelgi við ísland, eða liðsinnir því við slíkar veiðar, eða hjálpar hinum brotlegu til þess að komast undan hegningu fyrir þær, skal sæta 50 til 1000 kr. sektum, er renna f landssjóð. 2. gr. Hérlendur maður, er leggur það í vana sinn, að dvelja á útlendum botnvörpu- skipurn við veiðar þeirra við Island, skal, ef eitthvert þessara skipa á því ári gerir sig sekt í fiskiveiðum í landhelgi, sæta sektum eptir 1. gr, Sömu hegningu skal hver sá hérlendur maður sæta, sem er í útlendu botnvörpuskipi eða á bát við skipshliðina, þegar það er að veiðum í landhelgi, nema hann geti gert þá grein fyrir dvöl sinni þar, að auðsætt er, eða að minnsta kosti senni- legt, að hann eigi enga hlutdeild í hinum ólöglega veiðiskap þess. 3. gr. Ákvæði undanfarinna greina gilda eigi um þá menn, sem eru lögskráðir skip- verjar á botnvörpuskipinu. 4. gr. Skipstjóra þann, er gerir sig sek- an í ítrekuðu broti, eða broti, er mjög mik- ið kveður að, gegn 1. gr laga 6. apríl 1898, má auk hegningar þeirrar, sem getur um f 2. gr, þeirra laga, dæma í fangelsi (sbr. alm. hegningarlög handa íslandi, 26. gr.). 10. Urn hehningsuppgjöf eptirstöðva af Idni til brúargerða d Ölfusd [helmingur láns þess, er upphaflega var 20,000 kr. og hvíl- ir á sýslufélögum Arness- og Rangár- ivallasýslu, og jaínaðarsjóði Suður- amtsins fellur niður frá 6. sept. 1903]. 11. Um breyting d lögum 4. nóv. 188I um gagnfrœðaskóla d Möðruvóllum [að gagn- fræðaskóli sé reistur í Akureyrarkaup- stað og til þess varið allt að 50,000 kr. úr landsjóði]. 12. Stjórnarskrdin. 13. Viðaukalög við lög um stofnun veðdeild- ar í landsbankanum (200,000 kr. aukn- ing). 14. Um breytingar á kosningalögunum 14. 14. sept. 18’j’f [Skipting ísafjarðarsýslu í 2 kjördæmi]. Fallin frumvörp. íe. d.. Afnám gjafsókna og afgjald af hvölum. í n. d.: breyting á yfirsetukvennalögunum ogvinnu- hjú og daglaunamenn. Sannleilcsást ísafoldar. í 51. tölublaði »ísafoldar«, 14. þ. m., lætur ritstjórí þessa virðulega blaðs reiði sína ganga út yfir Guðjón alþingismann Guðlaugsson og mig út af því, að við vor- um á móti frumvarpi því til laga um gjaf- sóknarrétt embættismanna, sem féll í efri deild fyrir skemmstu, en hinna getur hann ekki, sem einnig voru á móti frumvarpinu, svo sem biskups, asséssors Kristjáns Jóns- sonar, Jónasar Jónassens og Eiríks Briems. Fyrst kemur hann með þau ósannindi, að eg hafi verið 3. maður í nefndinni, auk Skúla Thoroddsens og séra Eggerts Páls- sonar; það var eg ekki, heldur séra Ei- ríkur Briem, en það tekur sig vitanlega betur út, að eg hafi verið í nefndinni, og eigi getað orðið meðnefndarmönnum mín- um samdóma. Svo kemur síðar í grein- inni þessi klausa: »Amtmaður, sem einna mest mun eptir liggja af sanngjarnri og viturlegri hagnýting gjafsóknarréttarins hin síðari árin, eða hitt heldur!! » Aðdróttun þess- arium, að eg hafi misbrúkað heimild þá, sem eg hef til þess að veita þeim embættis- mönnum gjafsókn, sem skipað er að fara í mál út af ærumeiðandi áburði, svara eg á þá leið, að eg hef einu sinni á þeim 8 árum, sem eg hef verið amtmaður yfir Suður- ogVesturömtunum, veitt embættis- manni gjafsókn í slíku máli, og var það í samhljóðun við skipun biskups Hall- gríms Sveinssonar, að eg veitti embættis- manninum, sem í hlut átti, gjafsókn, en það mál fór svo, að sá maður, sem mál- ið var höfðað á móti, var dæmdur í sekt- ir og málskostnað, og orð hans dæmd ómerk. Svo hef eg skipað sýslumanni Lárusi H. Bjarnasön að fara í- mál við ritstjóra Einar Hjörleifsson, og veitti lands- höfðingi gjafsóknina í þessu máli, sem fór svo, að E. H. var dæmdur í sektir og málskostnað og orð hans um sýslumann- inn dæmd dauð og marklaus. Þetta er nú allt og sumt. Það væri óskandi, að ritstjórinn misbrúkaði ekki blað sitt meir en eg hef misbrúkað heimild míriatil þess að veita mönnum gjafsókn. Framkona hans hér er dæmi upp á loflega blaða- mennsku hans, eða hitt heldur. Reykjavík 15. ágúst 1902. J. Havsteen. Sérréttindamálið. Þegar eg haf ði boðað til fundarÞess með- al kjósenda og borgara í Reykjavík, sem haldinn var hér í bænum 11. þ. m. bjóst eg auðvitað við því, að „Þjóðólfi" mundi ekki falla vel í geð sú kenning m(n, að stjórnar- skrárfrumvarp það, sem nú var lagt fyrir al- þing og samþykkt hefur verið í deildum þings- ins, riði í bága við skoðanir Islendinga á sérstöðu landsins í ríkinu, er haldið hefur verið fram allt til þessa, og einkum við skoð- anir þess flokks að undanförnu er „Þjóðólf- ur“ hefur verið helzti formælandi, fyrir. — Þessu bjóst eg við — en hinu ekki, að blað þetta mundi fara að gefa í skyn eða láta lesa á milli línanr.a, að eg tæki ekki þessa skoð- un upp hjá sjálfum mér, eins og „Þjóðólfur" sýnist þó gera í grein sinni með fyrirsögn: „Einkennilegar aðferðir". — Ritstjóra „Þjóð- ólfs“ er fullkunnugt um það persónulega, að eg hef um langan tíma litið svo á, sem blað hans sé nú vikið frá fyrri stefnu sinni og skoðunum um sérréttindi Islands — og hann er alltof minnisgóður maður til þess að hafa gleymt því, hvenær eg sagði honum þetta í fyrsta sinn. Eg þarf ekki að endurtaka hér opinberlega, hvað eg hef sagt við ritstjóra „Þjóðólfs" um þetta mál meðan við tveir töluðumst við sem fyrverandi fylgismenn sömu stefnu. Kunningjar okkar beggja vita- þetta vel — og eg hef þá trú á sanngirni hans og hyggindum, að hann neyði mig ekki út í neina deilu við sig um það atriði. Og eg verð að bæta því við, að eg trúi því ekki, að hann hafi sjdlfur skrifað þessar dylgjur um mig. Hann veit af eigin revnslu eins vel og eg, að hagsmunir eða vinsældir hafa til þessa sjaldnast fylgt meðhaldsmönnum sérréttind- anna — jafnvel ekki meðan fjöldinn játaðist opinberlega undirþá stefnu. En hvað mundi þá vera nú um mig einan — á móti öllum þings- og stjórnaryfirlýsingum. En úr því að ritstjórnargrein þessi kom fram { blaðinu — þó rituð væri af öðrum manni — varð eg að snúa leiðrétting minni til ritstjórans. Eg virði hann persónulega svo mikils fyrir margra hluta sakir, að mér fannst eg geta ekki skipað honum í þessu efni á bekk með ýmsum öðrum, sem halda, að persónulegt sorplcast til mín sé góð sönn- un og röksemdir í sérréttindamálinu. — Þeim mun eg svara á þann hátt, sem þeir verð- skulda. En eg vona, að við ritstjóri „Þjóð- ólfs“ þurfum ekki að deila á sama hátt, þó við verðum pólitiskir andstæðingar — vegna þess að rás viðburðanna er orðin sú — vegna þess að eg er enn pd d móti valtýskunni, og sömu skoðunar um þýðing sérréttindanna eins og áður. Reykjavík 18. ágúst 1902. Einar Benediktsson. * * * Með því að birta þennan greinarstúf fyr- ir hr. E. B. hef eg veitt honum þau „sérrétt- indi“, sem eg mundi ekki öllum veitt hafa, ,,sérréttindi“, er hann sjálfur mun viðurkenna, að hann hafi ekki sjálfur átt heimtingu á í sambandi við greinina í síðasta blaði Þjóð- ólfs, þar sem mjög lauslega var á allt það vikið, er almenningur fetti mest fingur út í við framkomu hr. E. B., en það var stuðn- ingur sá, er hann virtist hafa og gjarnan þiggja hjá valtýska flokknum. Nú hefur hr. E. B. lýst því yfir, að hann væri á móti val- týskunni, eins og áður, og má vel vera, að svo sé, en þá hefði hann átt að fara nokkru gætilegar og hafa minni mök við suma for- sprakka Valtýinga, er hann virðist hafa haft. Það er og einnig heilræði fyrir hann, að fara enn varlegar eptirleiðis, að því er slík mök snertir, brenna sig ekki á því soði, því að flokkursá, hverjum fjöðrum sem hann skreyt- ir sig, er hvorki vænlegur til giptu né geng- is nokkrum málstað. En auðvitað fer hr. E. B. í þessu sem öðru, að sínum en ekki mín- um ráðum, enda sennilegast, að hvor okkar þykist upp úr því vaxinn að þiggja ráð af hinum. Annars finn eg enga ástæðu til að svo stöddu að rita langan eptirmála við þessa grein hr. E. B., en að eins geta þess, að eg og enginn annar hefur skrifað þessa grein í Þjóðólfi, sem hr. E. B. er að eigna einhverj- um öðrum. Greinin var ritstjórnargrein og eg er aldrei vanur að eigna mér það, sem aðrir eiga. Hefði einhver annar skrifað greinina, er allhætt við, að farið hefði verið öðrum orðum og öllu ákveönari um þessa nýju pólitisku starfsemi hr. E. B. Það þyk- ist eg geta fullyrt. Að síðustu skal þess get- ið, að skoðun hr. E. B. um, að „blað mitt sé nú vikið frá stefnu sinni og skoðunum um sérréttindi íslands", erhugarburður einn og helber misskilningur. Og mun eg svara til þess á sínum tíma, er á mig verður leit- að. En hvað okkur E. B. hefur farið á milli „prívat“ í þessu máli, mun eg fyrir mitt leyti trauðla gera að blaðamáli ótilknúður, enda þótt eg sé ekki viss um, hvort „kunningjar okkar vita það svo vel“, eins og hann kemst að orði. H. I*. Skemmtisamkomu héldu Tungnamenn sunnudaginn 10. þ. m. við Geysi. Var þar saman kominn fjöldi fólks úr nálægum sveitum, og skemmtu menn sér hið bezta við ræðu- höld, söng, kvæðaupplestur, glímur, kapp- hlaup o. fl. Ræður héldu séra Magnús Helgason á Torfastöðum og Guðmundur Magnússon prentari úr Reykjavlk. Kvæði það, sem hér fer á eptir, og ort hafði Guðm Magnússon, var sungið. Söngflokk- ur hafði æft sig fyrir samkomuna, og stýrði hreppsnefndaroddviti Björn Bjarnar- son á Brekku söngnum. Veður var milt um um daginn, en þykkt lopt og fór að rigna undir kveldið. Allar skemmtanirnar fóru ágætlega fram, og var fólk yfirleitt nijög ánægt; en ekki kvað þó minnst að þeirri skemmtun, að þegar hátíðahaldið stóð sem hæzt, gaus Geysir fögru gosi, og fannst mörgum til um að sjá það. Kvæðið hljóð- ar svo:

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.